Morgunblaðið - 26.05.1968, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1968.
M. Fagias:
FIMMTA
hOXÍX
spurði aðeins: — Hvar sástu
börnin seinast, nákvæmlega til
tekið?
Hún lýsti staðnum og hann
hringdi af. Það sem eftir var
dagsins leitaði hann í öllum göt-
um í námunda við þinghúsið.
Um sólarlag hafði hann enn
ekki séð neitt til Péturs og Agn-
esar. ískaldur vindurinn næddi
gegn um buxnaskálmarnar hans
og upp í ermarnar. Hann bölv-
aði Lillu og velti því fyrir sér,
hvort hún mundi hafa haft vit
á að láta börnin vera í vetrar-
yfirhöfnum.
Klukkan fimm hætti hann leit
inni og fór heim. í íbúðinni fann
hann Lillu, umkringda af með-
aumkunarfullum nágrönnum, en
af börnunum hafði ekkert frétzt.
Nemetz fór inn í herbergið
sitt og hringdi til allra lögreglu
deilda og bað um að svipast eft-
ir börnunum. Hann hringdi líka
í sjúkrartúsin, en þar voru þau
hvergi á skrá yfir innkomna
sjúklinga. Aftur á móti þorði
hann ekki að hringja til Rauða-
krossdeildarinnar, sem safnaði
saman líkum.
Látið ekki dragast að athuga
bremsurnar, séu þær ekki
lagi. — Fullkomin bremsu-
þjónusta.
Stilling
Skeifan 11 - Sími 31340
Síðan fór hann aftur til lög-
reglustöðvarinnar. Venjulega
var þetta tuttugu og fimrn mín-
útna gangur, en nú gekk hann
það á fimmtán minútum.
— Er nokkurt svar frá deild
unum? spurði hann Irene.
— Nei, ekki eitt orð, svaraði
hún. Síðan benti hún á bekk-
inn við vegginn. — Þetta fólk
bíður yðar, sagði hún.
Nú fyrst sá Nemetz fólkið, en
það voru tveir karknenin og ein
kona. Eldri maðurinn var um
sextugt, lítill vexti og hjólfætt-
ur. Hinn var nokkru yngri, á
fimmtugs aldri, hærri vexti og
helmingi dignari. Andlitið var
kringlótt, hörundið dökkt og
olíugljáandi. Allra fyrst sýndist
Nemetz konan vera karknaður,
því að hún var í buxum
og frakka og með húfu, sem var
dregin niður fyrir eyru. Það
var ekki fyrr en hún stóð upp,
að hann sá, að frakkinn lá þétt
að umfangsmiklum brjóstum
hennar, að hann sá að hún var
— eða hafði verið — kvemkyns-
vera. Mennirnir stóðu líka upp
og sá eldri gekk eitt skref fram.
— Það er sagt, að þér hafið
Halmymálið til meðferðar? sagði
hann.
Nemetz hafði allt frá því að
hann leit manninn augum, haft
einhverja hugmynd um að hafa
séð þennan mann áður, en nú
beindi Halmy-nafnið honum á
rétta braut. Hann minntist brúð-
kaupsmyndarinnar, sem hann
hafði séð í íbúð læknisins. Litli
maðurinn með skarpleita andlit-
ið, var brúðguminn, Janos Toth,
tengdafaðir læknisins. Konan
var sýnilega frú Toth. Aftur á
móti var honum ekki vel ljóst,
hver sá olíugljáandi var.
— Jú, það stendur heima, það
er ég, sem er með Halmymálið,
svaraði hann stuttaralega. Hann
hafði andstyggð á þessu ,,Fé-
laga“ nafni.
— Ef þér eruð að leita að
morðingjanum get ég vísað yð-
ur á hann, sagði Toth.
— Það er læknirinn! Sjálfur
eiginmaðurinn hennar! Konan
gekk fram og beinlínis hrækti
þessum orðum framan í Nemetz.
Nú var sá olíugljáandi líka
staðinn á fætur og þessi þrjú
stóðu nú eins og ókleifur múr
kring um Nemetz.
— Þetta er býsna alvarleg á-
sökun, sem þið komið með, sagði
Nemetz. — Það er ekki hægt að
kæra neinn fyrir neitt, nema
hafa raunhæfar upplýsingar á
hendinni.
— Ég hef nægar upplýsingar
til að flá hann dæmdan fyrir
föðurlandssvik. Fyrir að vinna
gegn þjóðarlýðveldinu, fyrir að
taka þátt í samsæri til að koll-
varpa ríkisstjórninni, fyrir árás
ir gegn öryggi landsins og fyr-
ir að vera njósnari fyrir útlend-
inga. Toth taf'saði ásakanirnar,
rétt eins og þær væru viðkvæði.
Nemetz tók að svitna á háls-
inum. — Við höfum engan áhuga
65
á pólitískri starfsemi hér. Þetta
er ekki leynilögreglan, og það
ættuð þér að vita.
— Við höfum heila hrúgu af
sönnunum, sagði oliuandlitið. —
Anna vildi ekki leyfa okkur að
nota þær gegn honum, en við
eigum þær engu að síður.
— Við höfum nægar sannan-
ir til að fá hann hengdan, bætti
Toth við. — Og hengdur skal
hann verða.
— Þér eigið við, að þér hafið
sannanir fyrir því, að læknir-
inn hafi framið morð? spurði Ne-
metz.
— Já, þær sanna að minnsta
kosti, að hann er sekur, sagði
sá digri.
— Já, sekur eins og fjandinn
sjálfur, bætti Toth við.
— Rússarnir eru þegar farn-
ir að leysa upp fasistahópana.
Og hann er fasisti. Það er ein-
mitt það, sem hann er, bætti frú-
in við.
Nemetz sneri sér að Toth. —
Kjörgarður auglýsir
Nýkoniið mikið úrval af DRALON gluggatjalda-
efnum, nýjar gerðir.
Ódýr rósótt crepelone efni.
Storesar með blúndu, finnsk bómullarefni.
gardínudeild — Sími 18478.
llúsmteður ?
Óhreinindi og blettlr, tvo
sem fitublettir, eggja-
blettir og blóSblettir,
hverfa á augabragði, ef
notað er HENK-O-MAT f
forþvottinn eða til aS
leggja f bleyti.
Síðan er þvegið á venju-
legan hátt úr DIXAN.
HENK-O-MAT, ÚRVALS VARA FRÁ
Heyrið þér nú, maður minn.
Annaðhvort vei'ðið þér að kom-
ast strax að efninu, eða þá hafa
yður burt. Ég hef engan tíma til
að hlusta á bull og þvaður. Hvað
viljið þér okkur?
— Það hef ég þegar sagt,
sagði Toth.
— Þér hafið einmitt ekkert
sagt. Bkki einusinni hvað þér
heitið. Hvað heitið þér?
— Janos Toth, faðir hinnar
myrtu. Hann rétti úr sér.
— Er daman konan yðar? Ne-
metz benti á frú Toth.
Irene hafði setið þögul, með-
an þessu fór fram. En við orðið
„daman“ leit hún upp.
— Stendur heima, svaraði frú
Toth fyrir mann sinn.
— Og hver er hann? spurði
Nemetz og benti á þann digra.
— Karoly zloch, tengdasonur
minn. Hann er giftur hinni dótt-
urinni okkar, Rósu- Má ég segja
nokkuð? spurði Toth.
— Ég er sjálfur með nokkrar
spurningar fyrst, sagði Nemetz
stuttaralega.
Hann bauð þeim ekki að setj-
ast og þau urðu að standa upp
á endann með fýlusvip.
— Hvar voruð þér, laugardag-
inn 27. október milli klukkan
20 og 22? spurði hann Toth.
— Hvað kemur það við dauða
dóttur minnar? spurði Toth móðg
aður.
— Þér gerið svo vel að svara,
þegar þér eruð spurður, sagði
Nemetz.
— Gættu þess, að hann geri
þig ekki að morðingjanum, sagði
frúin og sneri sér að Toth.
— Hvar voruð þér? spurði
Nemetz og brýndi raustina.
— í Tököl. Anna átti vinkonu
þar, sem var gift rússneskum
liðþjálfa. Þegar allt fór að ó-
kyrrast, spurði Anna, hvort hún
gæti hýst okkur í nokkra daga.
— Höfðuð þér þá eitthvað að
óttast af hendi uppreisnarmann
anna?
— Ég hef ekkert að óttast af
neins hendi, sagði Toth með há-
tíðlegri sjálfsánægju.
— Þakka yður fyrir. Þér höfð
uð með öðrum orðum ekkert að
óttast en Skriðuð samt í felur.
Nemetz sneri sér að konunni. —
Og hvar voruð þér milli klukk-
an 20 og 22, þetta kvöld?
— Ég var hjá manninum mín-
um. Og Karolyi var lika með
okkur. Og hún Rósa dóttir mín
og bömin þeirra tvö. Ég get
leitt fram tíu vitni, sem hafa séð
okkur, svo að við þurfum ekk-
26. MAÍ 1968.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Taktu loforð dagsins ekki of hátíð’lega. Það er ekki líklegt
að þau verði efnd. Hailtu í skildinginm seinni hluta dagsins.
Betra hefði verið að verja honum tii að styrkja kirkju þína í
morgun
Nautið 20. apríl — 20. maí
Leggðu áherzlu á samvinnu, hún horfir ekki of byrlega. Leggðu
dkki of mikinn trúniað á ailt. Hreinskitod í dag kamn að létta
þér staxfið síðar.
Tvíburarnir 21. mai — 20. júní
Farðu í sparifötto áður en þú ferð tii kirkju. Talktu elkki skiln-
ingsleysi annaira of hátíðlega. Bjóddu einihverjum kunningjum
heim síðari htoita dags.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Þú skalt slást í för með vinum þinum í kirkju, taka lífinu
með ró síðdegiis, og skemmta þér regtolega vei með kvöldinu.
Bjóddu einhverjum í mat.
Ljónið 23 júlí — 22. ágúst
Þvi færra sem þú segir út á við, þeim mun betra. Eitthvað
dularfullt skeður, sem aldrei verður almennilega ráðið framúr.
Þú Skalt ökki bregða út af vana í netou.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Taktu það ekki til þín sérstaklega, sem þú kannt að heyra
við kirkju í dag. Það gæti átt við einhvem annan. Breyttu
alveg til seinni hluta dagsins.
Vogin 23. sept. — 22. okt.
Farðu í heimsóknir, og njótfcu þeirra snUli sem góðar sam-
ræður geta borið í Skauti. Þú kannt að verða mangs vdsari. Ráð-
stafaðu tíma þímum í kvöld í alvarleg mál.
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Dagurinn verður erilssamur, er á láður. Þú munt lenda 1 kapp-
ræðum Þú skalt hvergi hopa.
Bogamaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Þú ert trúgefinn í dag. Taktu afstöðu í ýmeum málum. Það
geifcur verið befcra að gera sér greto fyrir útlitimu.
Steingeitin 22. des. — 19. janúar
Smátafir eru allan daginn að raska ró þtoni. Hafðu samband
við fóik, sem þú hefur ékki talað við um hríð. Þú verður margs
áskynja.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Haltu áfram að sigrast á erfiðleikunum. Þú skalt bjóða vtoum
þínum heim með kvöldtou.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Vertu ekki að hætta á meitt með óþarfa mælgi. Það er elkkl
vfst að þú gerir þér ljósar þær aðstæður er rfkjanidi eru annars
staðar.