Morgunblaðið - 26.05.1968, Síða 32
&0Æ. wHm ifjrw
^ íj i * ^*'í' i
ASKUR
Suðurlandsbraut 14 — Sími 38550
Hraðatak-
markanir
UM LEIÐ og hægri umferð
gekk í gildi kl. 06.00 í morgun,
gengu í gildi hraðatakmarkan
ir um allt land. í þéttbýli,
þar sem áður var leyft að
aka hraðar en 35 km á klst.
er nú 35 km hámarkshraði.
Utan þéttbýlis verður há-
markshraði 50 km fyrstu þrjá
dagana eða til kl. 24 hinn 28
maí, en þá verður hámarks-
hraðanum breytt í 60 km á
klst.
Hámarkshraði á Reykjanes
braut frá vegamótum Krísu-
víkurvegar að vegamótunum
við flugvallarveg í Keflavík
verður 60 km á klst.
Þá verður hámarkshraði a
sérstökum vegarköflum 50'
km þar sem áður gilti hrað
inn 60 km á klst.
Mengun Elliða
ónnní othugun
MENGUN vatns í Elliðaám hefur
borið á góma að undanförnu.
Mbl. sneri sér til borgarverk-
fræðings, Gústafs E. Pálssonar í
gær og innti hann eftir þessu
máli. Hann sagði, a'ð mengun
Elliðaánna hefði verið til um-
ræðu á síðasta borgarráðsfundi
og þar hefði borgarverkfræðingi
verið falið að gera tiltækar ráð-
stafanir til hindnxnar frekaxi
mengun vatnsins í ánum. Þetta
mál væri nú á athugunarstigi og
meðan svo stæði vildi hann ekki
ræða þáð í einstökum liðum.
Myndin er tekin á sýningunni íslendingar og hafið og sýnir samskonar hvalveiðibyssu og er í hvalföngurunum. Stúlkan stend-
ur við byssuna tilbúin að skutla. Myndin í bakgrunni bátsins sýnir menn við hvalskurð. (Ljósm. Mbl. Ól. K. Magn).
„BRIMRÚHAR SKALT KUNNA"
— „íslendingar og hafið
er hafsjór af fróðleik
SÝNINGIN íslendingar og hafið i
var, sem kunnugt er, opnuð al-
menningi í gær. Sýningin mun
standa yfir í hálfan mánuð og er
opin daglega frá kl. 10—10. Við
Pétur Sigurðsson formaður sýn-
ingarstjórnar og Eggert G. Þor-
steinsson sjávarútvegsmálaráð-
herra ,en hann opnaði sýningua.
Sýningin er sú yfirígripsmesta.
opnun sýningarinnar fluttu ræðu: i sem haldin hefur verið á íslandi
Isinn getur lónað að og
frá í allt sumar
Svo mikill að hann kemst ekki burt
1 GÆR fór fluigvél Flugmála-
stjórnarinnar norður, til að vísa
kemur út á morgun, mánudag,
einkum helgað H-umferð. Birt-
ast þar fréttir af fyrsta H-deg-
inum á íslandi, viðtöl við fólk
í H-umferð o.fl.
tveimur skipum leið um ísinn.
Tvö skip voru stödd út af Skaga,
Jökulfell og Björgúlfur, og var
þeim leiðbeint úr flugvélinni.
í fluigvélinni var dr. Sigurður
Þórarinsson, jarðfræðingur, sem
var að huga að nýja gosinu.
Sagði hann, er hann lenti á
Reykjavíkurflugvelli, að hann
hefði ekki svo miklar áhyggjur
af gosinu. En ísinn fyrir Norður-
landi væri óhugnanlegur og
hefði sér eiginlega brugðið í
brún við að sjá þetta mi'kla
magn. fsbreiðan er svo þétt
milli íslands og GrænJands, að
ísjakarnir komast ekkert þó
vindáttin gæti rekið þá aðeins
frá landi. ísinn gæti þvi ekki
farið langt frá landi, og hætta á
að í hvert skipti sem norðanátt
kemur langt fram á sumar eða
í sumar, leggist hann aftur að.
Sé það ekki glæsilegt t. d. með
tilliti til síldarbáta eða síldar-
flutningaskipa til Norðurlands-
ins. Sagði Sigurður að sér litist
alls ekki á það, enda oft gerzt
við ísland að ísinn væri í nánd
allt sumarið að því er heimildir
herma.
og sýnir allar þær hliðar, sem
snúa að sjávarútvegi. Sýningar-
aðilar eru um 80 og eru leið-
beinendiur við marga sýniragar-
bása. Það verður alltaf eitthvað
að ske á sýningunni og t. d.
munu Hrafnistumenn vinna við
tóvinnu og veiðarfæragerð í sögu
sýningunni, piltar af sjóvinnu-
námskeiði Reykjavikurborgar
munu vinna við splæs og neta-
gerð, skemmtiatriði mumu verða
einstaka daga á sýningunni og
nokkrir kaupstaðir munu hafa
sérstakar dagskrár. í sýningar-
höllinni er veitingastofa, sem
rúmar um 200 manns í sæti og
þar er hægt að kaupa kaffi, öl
sælgæti, brauð, pylsur o. s. frv.
í Laugarásbiói verða kvik-
myndir sýndar daglega kl. 19
meðan sýningin stendur yfir og
gildir aðgöngumiði sýningarinn-
ar í kvikmyndahúsið.
Sýningin hefur gefið út mjög
vandaða sýnimgarskrá, sem er
um 200 bls. og kostar hún 35 kr.
Fram'hald á bls. 31.
Gosið í Kverkfjöilum
líklega nýr hver
I GÆRMORGUN flaug dr. Sig-
urður Þórarinsson og Birgir
Kjaran með Sigurjóni Einarssyni
flugmanni yfir Vatnajökul, til a'ð
skoða nýja gufugosið í Kverk-
fjöllum. Það var nú miklu lægra
en í gær, gufustrókurinn líklega
um 100 metra hár.
Gufugosið er framarlega í ran-
Gott H-veðurútlit
SAMKVÆMT upplýsingum ina og Vestmannaeyjar og út
Veðurstofunnar og veðurútliti lit er fyrir þurrt og bjart veð
í gær verður í dag gott veður ur norðan og austan. Verið
um land allt. Spáð er sunn- getur að örlítil úrkoma verði
an strekkingi við suðurströnd sunnanlands í dag.
Slysavaröstofan í
Borgarsjúkrahúsið
SLYSAVARÐSTOFAN hugsar til
hreyfings nú í vikunni. Eins og
menn vita hefur hún verið stað-
sett í Heilsuverndarstöðinni við
Barónsstíg, en að öllu forfalla-
lausu flyzt hún nk. miðvikudag
í Borgarsjúkrahúsið í Fossvogi.
Yfirlæknir Slysavarðstofunnar
sagði Mbl. í gær, að í Borgar-
sjúkrahúsinu fengi Slysavarð-
stofan betri aðstöðu, m. a. fyrir
þá sök, að þar er beint samband
við röntgendeild. Fullkomin að-
staða verður þó ekki á Slysa-
varðstofunni fyrr en handlælkn-
isdeild Borgarsjúkrahússins verð
ur tekin til starfa, en það verður
væntanlega með haustinu.
anum, þar sem hverasvæðið er,
og telur Sigurður að þama hafi
opnast nýr hver með gufugosi.
Ekki þurfi það að verða meirá.
Hann hafi alltaf minni trú að
eldgos sé í uppsiglingu, þegar
gufustrókar byrja á miklu jarð-
hitasvæ'ði. En þetta þurfi þó að
athugast nánar og sjálfsagt að
fylgjast með þvi hvort breytingar
verði.
1365 umferðar-
verðir ú
27 stöðum
UMFERÐARVERÐIR verða á alls
27 þéttbýlisstöðum á landinu á
H-dag og næstu daga á eftir. —
Alls verða að störfum 1365 um-
ferðarverðir á þessum stöðum og
munu þeir gæta 199 varðsvæða. I
Reykjavík verða 600 umferðar-
verðir og mun þeir gæta 90
varðsvæða.