Morgunblaðið - 06.06.1968, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1968
23
KENNEDY
Framhald af bls. 11
orðið fyrir skotum um leið og
hann. Síðan aflýsti hann öllum
kosningaáætlunum sínum næstu
^aga og sagðist mundu fara fyrst
í sjúkrahúsið, en síðan beint til
Washington og ræða þar við for-
ystumenn kosningabaráttu
Kennedys, Hubert Humphrey
og Jo'hnson, forseta. Hann lét
svo um mælt, að Bandaríkja-
menn í heild hlytu að bera byrði
sektar eftir þetta tilræði.
Richard M. Nixon frestaði
einnig kosningabaráttu sinni um
óákveðinn tíma og lét í Ijós furðu
og skelfingu yfir því sem gerzt
hafði. Hann lýsti samúð sinni
með Kennedy-fjölskyldunni er
hann sagði hafa fengið meira en
sinn skerf af sorg og hörmung-
um.
hannig voru viðbrögð banda-
riskra forystumanna allra á
sama veg og hver af öðrum
spurði: „Hvað er að gerast 1
landi okkar“, „Hvert stefnum
við“.
Ekkja Dr. Martins Luthers
Kings, sem myrtur var fyrir
réttum tveimur mánuðum í
Memphis í Mississippi, sendi frú
Ethel Kennedy persónulega sam-
úðarkveðju, þar sem m.a. sagði:
„Ég bið fyrir eiginmanni yðar,
sem ég virði svo mjög og ég bið
fyrir þjóð okkar sem virðist nú
ganga gegnum tímabi'l hörmung-
ar og hættu“.
0 Skothljóðin kveða við
Svo sem fyrr var getið, fyrir
skipaði Johnson, forseti, þegar
í morgun, að frambjóðendum og
fjölskyldum þeirra skyldi héðan
í frá séð fyrir vernd. Fyrirskip-
erts, hafði fyrir nokkru lagt
fram í öldungadeildinni frum-
varp, þar sem meðal annars var
kveðið á um, að ríkiseftirlit
skyldi vera með sölu skot-
vopna gegn póstsendum pönt-
unum. Frumvarpið var fellt en
annað samþykkt í þess stað, sem
ekki gekk nálægt því eins langt.
Johnson, forseti, lýsti megnri ó-
ánægju sinni með það frumvarp
vegna þess hversu gagnslítið það
væri.
Lög um skotvopn eru mjög
breytileg í Bandarí'kjunum eftir
því hvar er.
Að undanförnu hefur marg-
faldlega fjölgað þeim borgurum,
sem hafa skotvopn undir hönd-
um, vegna kynþáttaóeirðanna,
sem verið hafa í bandarískum
borgum síðustu árin.
Lagafrumvarpið, sem fyrr var
getið ,er öldungadeildin sam-
þykkti á dögunum, átti einmitt
að fara fyrir fulltrúadeildina í
dag til samþykkis. Meðferð máls
ins var frestað en mjög um það
rætt, að taka bæri frumvarpið
upp að nýju til umræðu og
breyta því í átt til strangara
ríkiseftirlits.
Þeir aðilar, sem harðast hafa
beitt sér gegn öllu slíku eru
skot- og veiðifélög ýmiss konar.
Þau hafa með sér samband, er
telur um eina milljón félaga.
í dag fóru 200 mamns hóp-
göngu til aðalstöðva sambands-
ins í Washington, þar sem stend-
ur skrifað stórum stöfum: „Ekki
skal skerða réttindi manna til að
eiga og bera skotvopn". Hóp-
göngumenn mótmæltu tilræðinu
við Robert Kennedy og höfðu
uppi spjöld og fána, þar sem á
Á mynd þessari sést Rafer Johnson olympíumeistari í tug-
þraut 1960, en á fundinum í gær var hann lífvörður Róberts
Kennedys og handsamaði árásarmann hans og hélt honum, þar
til vopnaðir lögreglumenn tóku hann í sína vörzlu.
Með Rafer Johnson á myndinni er Ingvar Hallsteinsson,
prentsmiðjustjóri, og er hún tekin í Kaliforníu árið 1962, en
þar stundaði Ingvar háskólanám. Myndin sýnir, er hann af-
henti Rafer Johnson að gjöf íslenzkt víkingaskip, þegar olym-
píumeistarinn heimsótti skólann í fyrirlestrarferð.
stóð m.a., „að samtökin
hefðú1*
fært Bandaríkin nær stjórnleysi11
og „Skothljóðin kveða við“.
-ÁRÁSARMAÐUR
Þannig leit fyrsta AP-skeytið út, sem skýrði frá banatilræð inu á Kennedy. Það barst Morg
unblaðinu kl. 7.25 í gærmorgun. Þá var klukkan 0025 í Los Angeles.
unina þarf öldungardeild þingsi
ins að samlþykkja og sagði Mike
Mansfield, leiðtogi demókrata í
deildinni að þar yrði málið tek-
ið til meðferðar þegar á morgun.
Þessari ráðstöfun forsetans fylg
ir kastnaður, sem nemur senni
lega um tveimur milljónum doll
ara.
Þá fréttist í WaShington síð-
degis í dag, að forsetinn hefði
skipað að herlið skyldi viðbúið,
ef til óeirða kæmi vegna til-
ræðisins við Kennedy, sérstak
lega í hverfum blökkumanna,
sem höfðu Kennedy í hávegum.
Ennfremur fyrirskipaði forset-
inn, að Ramsey Clark, dómsmála
ráðherra, og FBI hefðu yfirum-
sjón með rannsókn málsins og
sagði ráðherrann í dag, að rann-
sakaðir yrðu allir möguleikar,
þar á meðal hvort um samsæri
gæti verið að ræða — en að svo
stöddu benti ekkert til þess.
Tilræðið við Kennedy hefur
vakið að nýju upp umræður um
þær gloppur, sem margir telja
vera í bandarískum lögum, varð-
andi ley.fi til að bera vopn. Ár-
um saman hafa ýmsir stjórn-
málamenn barizt árangurslaust
fyrir því, að hert verði eftirlit
með vopnaleyfi og þeir hafa bar-
izt gegn því, sem þeir hafa kall-
að „gamalgróna skotgleði Banda
ríkjamanna".
Edward Kennedy,bróðir Rob-
Framhald af bls. 1.
var, að nauðsyn bæri til að
drepa Kennedy fyrir 5. júní.
Var hvað eftir annað minnzt
á Kennedy í bókinni, en lög-
reglan telur nær öruggt, að
hún sé eign Sirhans Sirhans
og hann hafi skrifað allt sem
í henni stendur.
0 Framkvæmdastjóri nefnd
ar, sem lætur sig miklu skipta
samskipti Araha og Banda-
ríkjanna, dr. Mohammed T.
Mehdi, sagði í kvöld, að mað-
ur sá, sem ákærður væri fyr-
ir árásina, hefði að öllum lík-
indum fyllzt bræði yfir því,
sem Kennedy hefði sagt í
sjónvarpskappræðum þeirra
McCarthys sl. laugardags-
kvöld, að Bandaríkjamenn
hefðu skyldur við ísraels-
menn.
Borgarstjórinn í Los Angeles,
Yorty og lögreglustjórinn, Redd
in, héldu fund með fréttamönn-
um síðla dags í dag, þar sem
þeir skýrðu frá því helzta, sem
um tilræðismanninn er viltað.
Sirhan Sirhan er búsettur ásamt
fjölskyldu sinni í Pasa-
dena í Kaliforníu, og þriðji bróð
irinn Adel býr einnig þar í
grennd. Sirhan er ókvænt-
ur. Yorty sagði að fjórir
100-dollara seðlar hefðu fund-
izt í fórum Sirhan og sömuleið-
is úrklippa úr blaði í Pasadena,
með óhróðri um Kennedy. Yorty
sagði, að enn hefði Sirhan ekki
fengizt til að segja nokkurn skap
aðan hlut, síðan hann var hand-
tekinn. Samkvæmt frásögn bróð-
urins kom Sirhan til Banda-
ríkjanna árið 1957.
Bróðir hins ákærða Said Sir-
han sagði í útvarpsviðtali í Los
Angeles í kvöld, að þráJtt fyrir
allt drægi hann mjög í efa, að
maður sá sem sagður er vera
Sirhan Bishara Sirhan hefðiskot
ið Kennedy. Said kvaðst hafa
hitt bróður sinn síðast fyrir um
það bil mánuði. Hann hefði aldrei
heyrt hann segja hnjóðs-
yrði um Robert Kennedy.
Reddin, lögreglustjóri, sagði,
að enginn annar væri grunaður
um að hafa staðið að tilræðinu.
Áður en hann var fluttur í eins
manns klefa í Aðalfangelsinu í
Los Angeles var leitað gaumgæfi-
lega á honum, svo að hann gæti
ekki grandað sér. Honum var boð
ið að tala vfð lögfræðing, en
skeytti því engu.
Reddin sagði, að samkvæmt
bókum lögreglunnar, væri Sir-
han fæddur í arabiska bæjar-
hlutanum í Jerúsalem, en
ekki væri vitað um þjóðerni
hans með fullri vissu. Yorty
borgarstjóri sagði, að Sirhan tal-
aði góða ensku með nokkrum
kúbönskum hreim. Þó gæti verið,
að sá hreimur stafaði frá dvöl
á Jamaica.
Sirhan er grannur, dökkhærð-
ur og með dökku yfirbragði. í
fyrstu voru uppi getgátur um,
að hann væri frá S.-Ameríku.
Samkvæmt fréttastofufregnum
starfaði Sirhan við afgreiðslu í
matvöruverzlun í Pasadena fram
til 7. marz sl. Eftirlitsmaður
verzlunarinnar segir hann hafa
verið uppreisnargjarnan og ekki
þolað neins konar aga.
Áreiðanlegar heimildir í Jer-
úsalem sögðu í kvöld, að Sirhan
Bishara Sirhan væri ættaður frá
litlu þorpi skammt frá Jerúsal-
em. Ættingjar hans, sem þar
ganga undir nafninu Sarhan,
búa enn í borgarhluta þeim, sem
áður var á yfirráðasvæði Jórda-
níu- Fréttaritari AP segir, að
ekki sé vitað til, að neinn úr
fjölskyldunni hafi áður komizt
í kast við lögin.
Framkvæmdastjóri vináttufé-
lags Bandaríkjanna og Araba-
landanna í New York,
Dr. Mohammed T. Mehdi,
sem fyrrr var getið, hafði í
kvöld sína skýringu á tilræðinu
á takteinum. Hann minnti á sjón-
varpskappræður þeirra Kenn-
edys og McCarthys á laugar-
daginn.
Dr. Mehdi sagði, að Kennedy
hefði rætt Vietnammálið og síð-
an sagt, að Bandaríkin ættu að
styðja ísrael í deilu þeirra fyrir
botni Miðjarðarhafs. „Það er
þessi óvirðing fyrir Aröbum sem
manneskjum, er kemur af stað
slíku ofbeldisverki," sagði dr.
Mehdi.
í kappræðunum sagði Kenn-
edy orðrétt: „Ég er þeirrar skoð
unar, að við höfum skuldbind-
inga að gæta alls staðar á jarð-
arkringlunni. Ég er þeirrar skoð
unar, að við höfum skuldbind-
ingar við ísrael til dæmis, sem
við verðum að standa við“.
Dr. Mehdi sagði síðar, að ekki
væri unnt að afsaka né fyrir-
gefa gerð Sirhans og þeir (þ.e.
félagar í hreyfingu þessari)
væru þrumu lostnir. „En fram-
koma hans endurspeglar von-
leysi margra Araba í garð
bandarískra stjórnmálamanna,
sem hafa selt Araba í Palest-
ínu í hendur Gyðingum."
Hann sagði ennfremur, að á
sama hátt og árásin á Kennedy
væri fordæmd, þá vildi hann
einnig fordæma þá staðreynd, að
Kennedy hafði látið þvinganir
Gyðinga hafa áhrif á sig og þar
með aðhyllzt hina hættulegu
stefnu Bandaríkjanna gagnvart
löndunum fyrir botni Miðjarðar
hafs. Dr. Mehdi gagnrýndi einn
ig afstöðu McCarthys í umræð-
unum. McCarthy sagði aðspurð-
ur, að hann teldi að Bandarík-
in ættu að hjálpa ísraelum til
að byggja upp herstyrk þann,
sem þeir hefðu misst í styrj-
inni. Mehdi sagði að lokum, að
nefnd sú, sem hann væri tals-
maður fyrir hefði 10 þúsund
fylgismenn í Bandaríkjunum og
markmið hennar væri að koma
á algerri breytingu í banda-
rískum stjórnmálum, hvað snerti
afstöðuna til deilu Araba og ís-
raela.
Engin opinber yfirlýsing hef-
ur verið birt í Amman, höfuð-
borg Jórdaníu, vegna frétta um,
að ódæðismaðurinn sé sennilega
Jórdaníumaður og fæddur í Jer
úsalem. Talsmaður jórdanska
þingsins kvaðst aldrei hafa
heyrt að fjölskylda með þessu
nafni hefði búið í Borginni
helgu.
Sendiráð Jórdaníu í Washing
ton harmaði í kvöld aitburðinn
og vísaði því ákveðið á bug, að
nokkur tengsl kynnu að vera
milli jórdönsku stjórnarinnar og
þessa glæpsamlega atburðar.
Talsmaður sendiráðsins sagði, að
fréttin hefði vakið óbiandna
sorg og það bæri að harma, að
hinn grunaði væri sennilega Jór
daníumaður. „Jórdanska stjórn-
in fordæmir harðlega þetta
glæpsamlega athæfi gegn merk
um forystumanni og trúum syni
þjóðar sinnar,“ sagði talsmaður-
inn að lokum.
Tilræðismaðurinn var leiddur
fyrir rétt, sem haldinn var fyrir
luktum dyrum og að því loknu
tilkynnt, að hann hefði verið á-
kærður fyrir sex morðtilraunir.
Borgarstjórin í Los Angeles,
Sam Yorty tilkynnti seint í
kvöld, að fundizt hefði vasabók,
sennilega eign hins ákærða. í
henni stóð á einum stað „að
nauðsynlegt væri að myrða
Robert Kennedy, öldungardeM-
arþingmann fyrir 5. júní 1968".
Borgarstjórinn sagði, að vasa-
bókin hefði fundizt í hýbýlum
ákærða og hefði fjölskylda hans
veitt leyfi til að lögreglan kynnti
sér hana. Yorty sagði, að allt
benti til að Sirhan Sirhan hefði
skrifað allt það sem í bókinni
stæði. Mikið væri um pár ýmis-
konar og oftlega vikið að Roibert
Kennedy og sömuleiðis að Art-
huT Goldlberg. Skrif þessi væru
ekki öll jafn greinileg, en
mjög ákveðið væri skrifað
um að nauðsynlegt væri að
drepa Kennedy fyrir 5. júní. Þá
er víða lýst hrifningu á Nass-
er og sömuleiðis kemur í ljós,
að Sirhan er hlynntur kommún-
isma, hvort sem hann er sovézk-
ur, kínverskur o.s.frv. Víða kerp-
ur í ljós andúð hans á „heims-
valdastefnu“ og stefnu Bandaríkj
anna sérstaklega, og bert
er að hann hefur tví-
mælalaust verið fylgjandi Ar-
öbum en andsnúinn ísraelum.
Borgarstjórinn sagði, að mjög
erfitt væri að greina eftir skrif-
um hans hvers vegna hann
ákvað að Kennedy skyldi verða
fórnarlambið og ekki
er fullkomlega ljóst hvort og
hvers vegna hann telur, að það
hafi þurft að fórna Kennedy,
nema hann hafi álitið, að það
ætti að bæta úr öllu böli“, sagði
borgarstjórinn.
Reddin, lögreglustjóri, sagði
ennfremur í kvöld, að Sirhan
Framhald á bls. 31.