Morgunblaðið - 22.06.1968, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1968
27
Jón Vestdal, forstjóri Sementsverksmiðjunnar, heldur þarna á sýnishornaglasi með sementi í.
Við hlið hans sjást sýnishorn ýmissa efna, sem unnin eru af sjávarbotni. (Ljósm. Sv. Þorm).
Í$LENDINGAR OG HAFIÐ:
Framtíðarverkefni rannsóknarstofnana
Dagur Orkustofnunarinnar, Sements-
verksmiðjunnar og Rannsóknarráðs
í DAG er dagur Sementsverk-
smiðju ríkisins, Orkustofnunar-
innar og Rannsóknarráðs á sýn-
ingunni islendingar og hafið.
Þessar þrjár stofnanir hafa sér-
stakar deildir á sýningunni og
kynna þar starfsemi sína og
framtíðarverkefni.
Af þeinum verkefnum, sem
Orkustofnunin hefur fengizt og
fæst við, og eru í tengslum við
hafið kringum landið má nefna:
Vinnsla efna úr sjó
og nýtingu sæþörunga.
Frumskilyrði þess að ofan-
greind vinnsla sé hagkvæm er
að ódýr orka sé tiltæk í nægj-
anlegu magni.
Að báðum þessum verkefnum
vinnur Orkustofnun í sam-
vinnu við Rannsóknarráð ríkis-
ins.
Vinnsla efna úr sjó hefur
lengi verið til athugunar. Hún
hófst hjá Raforkumálaskrifstof-
unni (nú Orkustofnun) á árun-
um upp úr 1950. Síðustu árin
háfa athuganir þessar verið að-
allega í höndum Rannsóknar-
ráðs ríkisins, sem hefur látið
fram fara verkfræðilega könnun
á hagkvæmni vinnslu á söltum
og málmum úr sjó. Nú er hins
vegar annar þáttur þessara at-
hugana að hefjast, en það eru
boranir á Reykjanesi, þar sem
aðstæður til slíkrar sjóefna-
vinnslu virðast hagstæðari en
annars staðar. Þessar boranir
eru kostaðar af Orkusjóði, en
Orkustofnun sér um framkvæmd
þeirra.
Að rannsóknum á nýtingu sæ-
þörunga hefur verið unnið und-
anfarin 20 ár. Upphaflega voru
þær á vegum Rannsóknarráðs
ríkisins, en síðan 1956 hafa þær
einkum verið hjá Raforkumála-
skrifstofunni (nú Orkustofnun).
Þessar athuganir hafa einkum
beinzt að nýtingu þaramiða á
Breiðafirði með þurrkun við
jarðvarma á Reykhólum í huga.
Einnig hafa farið fram athuganir
á möguleikum á framleiðslu
þangmjöls á Eyrarbakka og
Stokkseyri.
Sementsverksmiðjan sýnir
þau efni af sjávarbotni, sem not-
uð eru við framleiðslu sements.
Áburðarkalk er unnið úr skelja-
sandi með sigtun og fleytingu og
inniheldur yfir 90% af kalki.
Sementsgjall er framleitt úr
skeljasandi og líparíti og er not-
að í hráefnisblöndu til fram-
Gaullistum er spáð
sigri í Frakklandi
Róleg kosningabarátta, en 20 slösuðust
Kosningabaráttunni í Frakk-
landi, sem hófst fyrir 12 dögum
með blóðsúthellingum og ofheldi
lauk með friði og spekt í kvöld.
KKxsningabaráttan hefur yfir-
leitt verið róleg, en þó tilkynnti
flokkur gaullista í kvöld, að
rúmlega 20 frambjóðendur
flokksins hefðu slazast alvar-
lega í kosningabaráttunni og
lægju enn á sjúkrahúsi. Flokk-
inn gagnrýndi ofbeldi það, sem
sett hefði svip sinn á kosninga-
baráttuna.
Þessi gagnrýni gaullista kom
fram rétt áður en lokaþáttur
kosningabaráttunnar, ræðuhöld
flokksleiðtoga í sjónvarpi, hófst.
Fréttaritarar segja, að hin
stutta kosningabarátta hafi
ekki komið róti á hugi manna
í Frakklandi. Yfirleitt hefur
ekkert borið til tíðinda á kosn-
ingafundum, og hvað sem öðru
líður hefur
stungið mjög
kosningabaráttan
í stúf við umrót
leiðslu á sementsgjalli og þar er
skeljasandur um 90% og lípa-
rít um 10%. Skeljasandurinn er
fenginn úr Faxaflóa og líparít
frá Bláskegg í Hvalfirði. Sem-
ent er framleitt úr sementsgjalli
ásamt um 5% af gipsi, sem flutt
er inn frá Póllandi.
Einnig sýnir Sementsverk-
smiðjan safn skelja og kuðunga
sem fundizt hafa í skeljasandin-
um og eru tegundirnar yfir 40.
Úr þessum tegundum skelja og
kuðunga myndast sandurinn og
tegundirnar vaxa á hraunum í
Faxaflóa. f brimróti brotna og
molast þær niður í sand, flytj-
ast inn fyrir hraunið og mynda
halla frá hrauninu niður á For-
imar, sem eru nær landi og á
meira dýpi. Þannig hefur þessi
sandur í Faxaflóanum myndast
og er að myndast.
í anddyrinu eru ker með þara-
tegundum og eru um 20 af 30
tegundum lifandi. Þeir sem vilja
geta fengið keyptan ís með möl-
uðum sölvum í veitingastofu sýn
ingarinnar í dag.
það, sem ríkti áður en de Gaulle
tforseti rauf þing og efndi til
nýrra kosninga.
Að sögn innanríkisráðuneyt-
isins keppa 2.267 frambjóðend-
ur um 487 þingsæti í fyrri lotu
þingkosninganna á morgun.
Gaullistar eru sammfærðir um,
40 þús. kr.
stolið í Eyjum
STOLIÐ var um 40 þúsund krón
um úr peningaskáp á skrifstofu
Shell í Vestmannaeyjum. Var
þjófnaðurjnn framinn í matar-
hléi í fyrradag, og var þá eng-
inn í skrifstofunni. En þegar
starfsfólk kom aftur til vinnu
kom í ljós, að peningaskápurinn
hafði verið tæmdur, en nokkur
hluti upphæðarinnar, sem þar
var geymd, var í erlendum gjald
eyri. Lögreglan í Vestmaonaeyj-
um vinnur nú að rannsókn máls-
ins.
að þeir muni bæta stöðu sína,
og í svipinn bendir allt til þess
að þeir hafi á réttu að standa.
Að minnsta kosti er ekki gert
ráð fyrir stórfelldum breyting-
um. Samkvæmt skoðanakönnun,
sem AP hefur gert, hefur lítil
sem engin breyting orðið á
styrkleikahlutfölliun flokkanna.
Ef um breytingu er að ræða
á afstöðu kjósenda er hún helzt
sú, að þeir eru orðnir leiðir á
stjórnmálum. ,,Við höfum ekki
haift frið fyrir pólitísku umróti
og rifrildi síðan í maí-byrjun.
Við erum orðnir þreyttir á
stjórnmálamönnum og viljum
snúa okkur aftur að störfum
oikkar“ sagði einn þeirra sem
AP spurði álits á kosningunum.
„Kosningarnar breyta engu, svo
að það er til einskis að æsa sig“
sagði háskólastúdent. Flestir
kjósendur virðast umfram allt
vilja ljúka kosningunum af og
fara í sumarfrí. Sú ákvörðun
de Gaulles, að efna til kosn-
inga hefur greinilega lamað eld
móð stúdenta og annarra æstra
afla, segir Parísarfréttaritari AP
OAS-manni skýtur upp.
Einn af fyrrverandi leiðtog-
um leynisamtaka hersins, OAS,
skaut allt í einu upp kollinum
á blaðamannafundi í París í
dag og skoraði á franska kjós-
endur að styðja alla aðra en
gaullrsta. OAS-leiðtoginn, Pierre
Sergent, hefur verið dæmdur til
dauða og hélt fund með blaða-
mönnum á leynilegum stað. Hann
kvaðst nýlega hafa komið frá
V-Þýzkalandi og sagðist ætla að
fara huldu höfði I Frakklandi
um nokfcurn tíma.
Handknuttleikur
í GÆRKVÖLDI voru leiknir 2
leikir í handknattleiksmótinu á
Melaskólavellinum. Ármann
vann KR í spennandi leik 22:21
og Haukar unnu Víking 22:19 og
var sá leikur einnig mjög spenn-
andi. Valur vann Breiðablik í
m.fl. kvenna.
FH og FRAM
fúm vel af stað
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt-
leik utanhúss hófst sl. fimmtu-
dagskvöld. Leiknir voru þrír
leikir.
Fyrsti leikur mótsins var milli
KR og Víkings í m.fl. kvenna.
Leikurinn var allan tímann jafn
og spennandi. í hálfleik var stað
an 6—6. í seinni hálfleik skipt-
ust liðin á um forystuna, en KR-
stúlkurnar voru harðari í lokin
og sigruðu 11—10. Munaði þar
mestu um betra úthald og betri
skyttur.
★ Sýning FH
Næst léku Valur og FH í m.fl.
karla. Fyrstu 5 mín var leikur-
inn jafn, en eftir það var nánast
um sýningu að ræða af FH hálfu
og gátu Valsmenn aldrei rönd
við reist. FH-ingar voru á tíma-
bili komnir 20 mörk yfir en slök-
uðu á undir lokin og endaði leik-
urinn 27—9.
★ Barátta Fram
Síðasti leikurinn var milli
Fram og ÍR. í fyrri hálfleik
mátti ekki milli sjá hvort liðið
hefði leikið í annarri deild eða
sigrað 1. deild á síðasta vetri.
í hálfleik var staðan 14—13
Fram í vil, en í síðari hálfleik
tóku Framarar sig á og unnu
29—19.
Búazt má við 13. sigri FH í
röð í móti þessu ef ekkert betra
kemur fram en sást á þessu
fyrsta leikkvöldi, en ugglaust
eiga Haukar eitthvað í pokahorn
inu til að velgja andstæðingun-
um undir uggum.
Dómarar voru misjafnir, en
sumir gerðu sitt til að gera leik-
ina jafna og skemmtilega.
Heimsmetí
100 metra
hlaupi
i ÞAÐ hefðu þótt harðir kost-
ir fyrir ári að 10 sekúndur
sléttar nægðu ekki til sigurs
í 100 m hlaupi, en sú varð
þó raunin í fyrradag.
í Sacramento í Kaliforníu
fór þá fram meistarainót
Bandaríkjanna í frjálsum í-
þróttum, og varð frá'bær ár-
angur í ýmsum greinum.
Ungur Kaliforníubúi —
Ronnie Ray Smith að nafni
— náði þeim einstaka árangri
að hlaupa 100 m hlaup á 9,9
I sek. Þetta afrek dugði þó
ekki til sigurs og ekki einu
sinni silfurverðlauna.
Afrek þetta var unnið í
undanrásum 100 m hlaupsins
og sigurvegarinn í riðlinum,
Jimmy Hines, varð sjónar-
mun á undan í mark.
í úrslitaklaupinu varð hins-
vegar hlauparinn Charlie
Greene sterkastur og hljóp á
9,9 sek.
Að hlaupinu loknu sagði
sigurvegarinn, að tímarnir
væru aukaatriði en sigurinn
skipti öllu máli.