Morgunblaðið - 22.06.1968, Qupperneq 28
stodSngsmanNA 0SEN
‘Wfjssssk'
SÍMI
Byrfað að rífa
gömlu laugarnar
Yfir milljón gestir þar á s.l. 6 árum
NÚ eru hafnar framkvæmdir
við niðurrif gömlu lauganna
Laugarnesi. — Reykjavíkurborg
annast framkvæmdimar og
verða laugamar rifnar niður og
svæðið rutt og fulljafnað. Ef
eitthvað nýtilegt er að finna
verður það e.t.v. flutt upp í Ár
bæ. Svæðið sem þarna myndast
fer að mestu undir nýtt raffhús.
Gömlu laugarnar voru fyrsta
íþróttamannvirkið sem borgin
réðst i að byggja og hafa þær
verið samfellt í notkun frá árinu
1907. — Var eini sundstaður-
inn í borginni allt fram til árs-
ins 1937, að Sundhöllin var
byggð.
Ógjörningur er að áætla heild-
araðsóknina að laugunum frá
upphafi. En frá 1962 hefur að-
sóknin að laugunum verið 180—
200 þúsund manns árlega, þannig
að mannfjöldinn, sem sótt hefur
laugarnar á síðustu sex árum, er
nokkuð yfir milljón. Geta menn
Svavar Pálsson.
því rennt grun í, hver heildar-
talan muni vera orðin á rúmlega
60 árum.
Yfir 20.000
ALLS hafa nú yfir tuttugu'
þúsund manns séff Kjarvals-1
sýninguna í Listamannaskál-1
anum og sýningarskrár hafa,
selzt fyrir á f jórffa hundraff;
þúsund krónur.
Sýningin er opn frá klukk-í
an 10:00 til 22:00 daglega og(
verffur svo fram aff mánaða-
mótum.
Fél. menntaskóla-
kennara úr BSRB
AÐALFUNDUR Félags mennta
skólakennara hófst í fyrradag og
lauk síffari hluta dags í gær. —
Gunnar Norland var kosinn for-
maffur félagsins, en affrir í
stjórn eru: Guffni Guðmundsson,
Bjöm Bjarnason og Örnólfur
Thorlacíus. t félaginu eru nú
tæplega 80 kennarar úr mennta-
skólunum fjórum.
Eitt af aðalmálum fundarins
var aðild Félags menntaskóla-
kennara að Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja. Fyrir fund
inum lá eftirfarandi tilaga um
þetta efni:
„Aðalfundur Félags mennta-
skólakennara, haldinn í Mennta-
skólanum í Reykjavík dagana
20.—21. júní, ályktar, að félagið
skuli segja sig úr Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja‘‘.
Var tillaga þessi samþykkt.
Gunnar Norland, formaður fé-
lagsins, sagði í viðtali í frétta-
auka útvarpsins í gærkvöldi, að
þróunin virtist vera sú núna, að
háskólamenntaðir menn flykkt-
ust æ mei-ra í Bandalag háskóla-
menntaðra manna, og væri til-
tölulega fámennur hópur eftir í
BSRB. Gunnar sagði, að mjög á-
kveðnar raddir hafi verið meðal
menntaskólakennara um að fé-
lagið gengi úr BSRB í BMH,
og var tillagan nú samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta.
Samningar tókust
— við Flugvirkjafélagið
SAMKOMULAG var undirritað
milli yinnuveitenda og samninga
nefndar Flugvirkjafélags íslands
um kaup og kjör flugvirkja og
flugvélastjóra kl. 3 í fyrrinótt.
Flugvirkjafélag íslands hafðd
Hrapaði við vinnu
og beið bana —
STARFSMAÐUR hjá Rafmagns-
veitunni beið bana, er hann
hrapaði sex metra, þar sem hann
var aff vinna við hreinsun rofa
í tengivirkinu við Rafstöðina
hjá Elliðaám um helgina.
Hinn látni maður, Svavar
Pálsson, Efstasundi 95, 44 ára að
aldri, vann við að þurrka af
skálum í rofanum og hafði um
sig öryggisbelti. Losaði hann
það til að geta fært sig, en þá
varð honum fótaskortur með
fyrrgreindum afleiðingum.
Svavar var fluttur í sjúkrahús,
en komst aldrei til meðvitundar,
og andáðist á miðvikudag sl.
boðað til vinnustöðvunar frá 24.
júní að telja, og hefði þá allt
flug lagzt niður. Samkomulagið
er háð samþykkt félagsfundar
hjá flugvirkjum og flugvélstjór-
um, og hjá framkvæmdanefnd
Vinnuveitendasambandsins.
FORSET AKOSNINGARNAR:
Fjölmennir kynningar-
fundir frambjóðenda
Gunnar á hafirði og Kristján
á Egilsstöðum í gœrkvöldi —
STUÐNINGSMENN dr. Gunnars
Thoroddsens efndu til mjög fjöl-
menns kynningarfundar í AI-
þýffuhúsinu á ísafirði í gær-
kvöldi ,og var frambjóðandan-
um og konu hans fagnað af fund
argestum í lokin. Þá héldu stuffn-
ingsmenn dr. Kristjáns Eldjárns
einnig mjög fjölmennan kynn-
ingarfund í Valaskjálf á Egils-
stöðum og fögnuffu fundargestir
honum og konu hans í fundar-
lok. Hér fara á eftir frásagnir
fréttaritara af fundunum:
Egilsstöðum, 21. júní.
STUÐNINGSMENN dr. Krist-
jáns Eldjárns efndu til almenns
kynningarfundar í samkomuhús-
inu Valaskjálf á Egilsstöðum.
Mikið fjölmenni var á fundi
þessum og voru menn víða að
komnir. Fundarstjóri var Þor-
kell Steinar Ellertsson, skóla-
stjóri að Eiðum, og í upphafi
fundar bauð hann dr. Kristján
og konu hans Halldóru Ingólfs-
dóttur velkomin.
Ávörp á fundinum fluttu eftir-
taldir menn: Sigurður Pálsson,
skólastjóri, Borgarfirði eystra,
Kjartan Ólafsson, læknir, Seyð-
isfirði, Helgi Seljan, skólastjóri
á Reyðarfirði og Sigurður Blön-
dal, skógarvörður, Hallormsstað.
í lok fundarins flutti dr.
Kristján Eldjárn ávarp, og var
honum vel fagnað af fundargest-
um. — Hákon.
ísafirði, 21. júní.
í gærkvöldi efndu stuðnings-
menn dr. Gunnars Thoroddsens
til kynningarfundar í Alþýðu-
húsinu á ísafirði. Auk ísfirðinga
komu til fundarins menn frá
Þingeyri, Flateyri, Suðureyri,
Drengur fyrir bíl
SJÖ ára drengur, Jón Ragn-
ar Jónsson, Fálkagötu 13, varff
fyrir bíl í gær og fótbrotnaði.
Óhappið varð á veginum, sem
liggur frá Flugfélagi íslands að
Suðurgötu. Bíl var ekið vestur
veginn, þegar drengurinn hjól-
aði skyndilega í veg fyrir hann
og kveðst ökumaðurinn ekki
hafa séð drenginn fyrr en hann
var kominn beint fyrir bílinn.
Drengurinn kastaðist upp á vél
arhiífina og valt af henni niður
á götuna, en hjólið leniti undir
bílnum.
Bolungarvík, Hnífsdal, Súðavík
og nokkrum öðrum byggðum ísa
fjarðarsýslu Var Alþýðuhúsið
fullt svo sem frekast mátti og
auk þess stóð nokkur hópur ut-
an dyra og hlýddi á mál fundar-
manna í hátölurum
Fundars'tjóri var Guðmundur
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri á ísafirði, en fundarritari
Einar Steindórsson, fyrrverandi
oddviti í Hnífsdal, Ávörp fluttu:
Einar Oddur Kristjánsson, full-
trúi á Flateyri, Jóhann Einvarðs-
son, bæjarstjóri, ísafirði, Bene-
dikt Þ Benediktsson, rafveitu-
stjóri, Bolungarvík, Arngrímur
Jónsson, skólastjóri, Núpi í Dýra
firði, og Sturla Jónsson, hrepp-
stjóri, Suðureyri, Súgandafirði,
Þessu næst flutti Gunnar Thor
oddsen ávarp, en að því loknu
voru bornar fram allmargar fyr-
irspurnir, sem Gunnar Thorodd-
sen svaraði, Fundinum lauk með
því að fundarstjóri flutti ávarps-
orð og fögnuðu fundargestir for-
setaefninu og frú hans með lófa-
taki. — Fréttaritari.
Aðalfundi
818 lokið
A'ðalfundi Sambands íslenzkra
samvinnufélaga að Bifröst í Borg
arfirði lauk í gær. Síðasta mál á
dagskrá var kosning í sambands-
stjórn. Sú breyting hafði verið
gerð á lögum Sambandsins, að
í stjórninni skyldu framvegis
sitja níu menn í stað sjö. Ur
stjórninni gengu að þessu sinni
Eysteinn Jónsson og Guðmimd-
ur Guðmundsson bóndi á Efri-
Brú, og baðst hinn síðarnefndi
undan endurkosningu. Eysteina
Jónsson var endurkjörinn, en í
stað Guðmundar var kjörinn
Þórarinn Sigurjónsson á Lauga-
dælum. í sæti hinna tveggja
nýju manna í stjórninni voru
kosnir Ragnar Ólafsson, Reykja-
vík, og Ólafur E. Ólafsson,
Króksfjarðamesi og Ingólfur
Ólafsson, Reykjavík. Fyrir í
stjórninni eru: Jakob Frímanns
son, Akureyri, Finnur Kristjáns-
son, Húsavík, Þór'ður Pálmason,
Borgarnesi, Skúli Guðmundsson,
Hvammstanga og Guðröður
Jónsson, Neskaupstað. Endur-
skoðendur voru kosnir Björn
Stefánsson og Tómas Árnason.
Sjá frétt á bls. 8.
Vaka varar við óspektum
við Háskólann
ÚT ER komið Vaka, blað iýðræð
issinnaðra stúdenta, þriðja tbl.
31. árg. Er blaðið helgað hús-
næðismálum Háskólans og útlán
um hans til ráðstefnuhalds.
Á forsíðu er áskorun etjórnar
Vöku til stúdenta um að taka
höndum saman um að forða því,
að stúdentar verði bendlaðir við
boðaðar mótmælaaðgerðir við
Háskólann, en þær muni einung
is vanvirða Háskólann og rýra
álit hans og þeirra er við hann
starfa.
Þá er grein eftir Reyni Tóm-
as Geirsson stud. med. um
NATO og húsnæði háskólans og
áminningarbréf Stúdentaráðs til
Stúdentafélagsins vegna óæski-
legrar íhlutunar Stúdentafélags-
ins á málefni Stúdentaráðs.
Þá eru í blaðinu ályktanir
stjórnar Vöku, og stjórnar stú-
dentaráðs um húsnæðismál Há-
skólans.
(Frá Vöku, félagi lýðræðis-
sinnaðra stúdenta)