Morgunblaðið - 03.07.1968, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1968
Löng er leiðin, löt eru tryppin, hvað skulu mínir menn til
matar hafa, maga úr músinni, miltið úr lúsinni, fót af fiðrildi
og flugu garniiiir — er sungið við litlu börnin, er þau sitja
á mömmu hné, og er dilláð!
Hér eru tveir stórspekingar á stærri hestum, vaxnir upp
úr því að sitja á móður hné. Þeir eiga heima að Leirulækjar-
seli á Mýrum.
Bifreiðastjórar
Gerum við allar tegundir
bifreiða. — Sérgrein hemla
viðgerðir, hemlavarahlutir.
HEMLASTILLING H.F.
Súðavogi 14 - Sími 30135.
Óskast á leigu
2ja herb. íbúð óskast frá
15. sept. eða 1. ofct. Upp-
lýsingar í síma 17244.
Parley-garnið
er kx>máð. Tökarm daglega
upp nýjar tegundÍT af garni
frá mörgum löndiuim.
Hof, Hafnarstræti.
Stórt og gott herbergi
á 2. hæð til leigu á Rán-
argötu 10.
Nýr Normende
radíófónn (stereo) úx
teak, til sölu. Verð kr.
14.000.00. Uppl. í Melgerði
15, niðri, Kópavogi.
Til sölu
Sem nýtt sófasett, svefn-
sófi, verð 10 þús., Hofner-
rafmagnsgítar, verð 3 þús.,
plötuspilari, 1500. — Sími
16557.
Eldavélar
Nokkrar lítilsh. gallaðár
eldav. með grilli, seldar
með afslætti. Raftækja-
verzl. H. G. Guðjónssonar,
Stigahlíð 45—47, s. 37637.
Til sölu
milliliðalaust 4ra herb.
íbúð, 107 ferm. Til greina
koma skipti á stærri íbúð í
Rvík eða Kópav. S. 81507.
Loftpressa óskast
Tvö til þrjú hundruð cubic
feta loftpressa óskast
keypt. Upplýsingar í sím-
um 51887 og 52407.
Ung kona>
gift lögfræðinema, óskar
eftir fastri hálfsdags vinnu
fyrir hádegi. Upplýsingar í
síma 16169.
Til sölu
Mersedes Benz 327 flutn-
ingabifr. ’63. Bifreiðin er
nýsk. og á nýjum dekkj-
um, ekin 145 þús. km. Atv.
getuir fylgt. Uppl. í 81793.
Heimasaumur
Konur vanar kvensíðbuxna
saumi geta fengið heima-
vinnu strax. Tilb., merkt:
„Vandvirkni — 5130", send
ist Mbl.
2 duglegar stúlkur,
16 og 19 ára, óska eftir at-
vinnu strax. Allt kemur til
greina. Tilboð sendist Mbl.,
merkt: „2 stúlkur — 8299“.
Herbergi óskast
á leigu I Hafnarfirði,
Reybjavík eða nágrenni.
Tilboð sendist Mbl. fyrir
10. júlí, mierkt: „8323“.
Sveit
17 ára piltur óskast í
sveit, þarf að vera vanur
vélum. Sími 31124 kl. 7—9
í kvöld og annað kvöld.
FRÉTTIR
SumarferSalag; Nessóknar
verður sunnudaginn 7. júlí. Haldið
verður frá Neskirkju kl. 10 og
farið um suðurhluta Rangárvalla-
sýslu milli Þjórsár og Ytri-Rangár.
Verið við messu í Hábæjarkirkju
er hefst kl. 2. Nánari upplýsing-
ar í síma kirkjunnar 16783 milli
5 og 7 daglega. Þar fást einnig
farmiðar, sem þarf að sækja í síð-
asta lagi á föstudagskvöld.
Bræðrafélag Dómklrkjunnar.
Skemmtiferð verður farin sunnu
daginn 7. júlí, jafnt félagsmenn
sem aðrir safnaðarmenn og fjöl-
skyldur þeirra eru velkomnir
í ferð félagsins. Farið verður að
Odda og Keldum, hinn forniskáli
skoðaður. Leiðsögumaður verður
Árni Böðvarsson, cand.mag. Fargj.
er áætlað uþb. kr. 250. Fólk hafi
með sér nesti, en kaffi verður
drukkið að Hótel Hellu á heimleið.
Nánari upplýsingar veitir Jón
Magnússon í síma 12113 og 15996.
Þess er vænzt, að allir, sem eiga
þess kost noti þetta tækifæri til
ferðar á þessa fornfrægu sögustaði.
Hafnarfjörður
Kvennadeildin Hraunprýði fer
austur I Þjórsárdal sunnudaginn
7. júlí. Upplýsingar í síma 50231
(Rúna) og 50290 (Rannveig)
Kristniboðssambandið
Fómarsamkoma í kvöld kl. 8.30 I
Betaniu, Jóhannes Sigurðsson:
Hugleiðing. Frjálsir vitnisburðir.
Allir velkomnir.
Snmarbúðir Þjóðkirkjunnar
Sumarbúðabörnin koma heim á
miðvikudag úr Menntaskólaselinu
kl. 3. Frá Kleppjárnsreykjum kl.
3. Bílarnir koma í Umferðarmið-
stöðina.
Happdrætti S.N.K.
Hinn 21 júní sl var hjá bæjar-
fógetanum á Akureyri dregið í
happdrætti Sambands norðlenzkra
kvenna til styrktar hæli fyrir van-
gefna, sem nú er í byggingu á
Akureyri Eftirtalin númer hlutu
vinninga, sem hér segir:
18788 Þvottavél
6313 Frystikista
10316 Strauvél
2241 Saumavél
6610 Ryksuga
10625 Vöflujárn
8500 Hraðsuðuketill
1406 Hraðsuðuketill
Vinninganna má vitja til Jó-
hanns Snorrasonar, deildarstjóra,
Búsáhaldadeild Kea, Akureyri.
Kvikmynda „Litlabíó" klúbbur-
inn
Stuttar myndir frá ýmsum löndum
sýndar kL 6 og 9.
Kvenfélag Háteigssóknar
efnir til skemmtiferðar fimmtu-
daginn 4. júlí I Skorradal Kvöld-
verður verður snæddur 1 Borgar-
nesi. Þátttaka tiilkynnist í síma
34114 og 16917 fyrir kl. 6 daginn
áður.
Heyrnarhjálp
Maður frá félaginu verður á
ferðalagi um Norðurland frá
1.—15. júli til aðstoðar heyrnar-
daufum. Allir sem óska, geta
snúið sér til hans. Nánar auglýst
á hverjum stað.
Kvenfélag Laugarnessóknar
Skemmtiferð félagsins verðurfar
in fimmtudaginn 4. júlí. Farið verð
ur um Reykjanes, Krisuvik af
Strandarkirkju. Uppl. hjá Ragn-
hildi 81720.
Kvenfélag Bústaðasóknar
Hin árlega skemmtiferð félags-
ins verður farin stmnudaginn 7.
júlí kl. 8 árdegis frá Réttarholts-
skóianum. Uppl í síma 34322 og
32076
Strandamenn
Farið verður í skemmtiferð í
Veiðivötn föstudaginn 5. júií kl. 8
síðdegis. Tilkynnið þátttöku til
Hermanns Jónssonar úrsmiðs, Lækj
argötu 4 fyrir þriðjudaginn 2. júli.
Kvenfélag Lágafellssóknar
Hin árlega skemmtiferð félags
ins verður farin fimmtudaginn 4.
júlí. Nánari upplýsingar í símum
66184, 66130, 66143. Pantanir óskad
fyrir 1.7. Nefndin.
Frá Orlofsnefnd Reykjavíkur
Reykvískar húsmæður, er óska
að komast i orlof að Laugum f
Dalasýslu, komi á skrifstofu kven-
réttindafélagsins á Hallveigarstöð-
um, mánudaga, miðvikudaga, föstu
daga og laugardaga kl. 4-6.
Bústaðakirkja munið sjálfboða-
vinnuna hvert fimmtudagskvöld kl
8.
PRESTAR
FJARVERANDI
Verð fjarverandi til 26. þ.m. vott
orð úr prestþjónustubókum mínum
og Grensássóknar, verða afgreidd
í skrifstofu minni í NeSkirkju á
miðvikudögum kl. 5-6. sími 11144.
Séra Frank M. Halldórsson
Séra Ólafur Skúlason fjarver-
andi frá 3.-20. júlí. Vottorð af-
greidd Hlíðargerði 17, milli 11-12.
Séra Sigurður Haukur Guðjóns-
son fjarverandi frá 11. júlí — 26.
júM. Vottorð afgreidd hjá kirkju-
verði sími 33913.
Nessókn.
Frá 16. júní verð ég fjarverandi
um óákveðinn tíma. Safnaðarfólk,
sem notar þjónustu mína tali við
sr. Grím Grímsson, sóknarprest,
sem þjónar fyrir mig á meðan. Við
talstími hans er milli 6-7. Sími
32195, vottorð verða veitt f Nes-
kirkju á miðvikudögum kl. 6-7.
Séra Jón Thorarensen.
Ef þér trúið ekki, þegar ég segi
yður frá jarðneskum hlutum,
hvernig munuð þér þá trúa, ef ég
segi yður frá himneskum. Og þó
hefur enginn stigið upp til himins,
nema sá er niður sté af himni,
mannssonurinn sem er á himni.
(Jóh .3, 12-13.
í dag er miðvikudagur 3. júlí og
er það 185. dagur ársins 1968. Eftir
lifa 181 dagur. Tungl á fyrsta
kvarteli. Árdegisháflæði kl. 11.45.
Upplýslngar um Iæknaþjðnustu ■
norginni eru gefnar i síma 18888,
sirasvara Læknafélags Reykjavík-
or.
Læknavaktin í Heilsuverndar-
stöðinni hefur sima 21230.
Slysavarðstofan I Borgarspítal-
anum er opin allan sólahringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
81212 Nætur- og helgidagalæknir er
■ síma 21230.
Neyðarvaktin rOvarar aðeins á
vrrkum dögum frá kl. R ttl kl. 5,
«imi 1-15-10 og laugard. kl. 8—1.
Ráðleggingastöð Þjóðkirkjunnar
dun hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9, 2. hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4—5, viðtalstími prests,
þriðjud. og föstud. 5—6.
Grensásprestakall
Vegna fjarveru minnar um nokk
urra mánaða skeið, munu vottorð
verða afgreidd í skrifstofu séra
Franks M. Halldórssonar, og ex
sóknarfólki bent á að snúa sér til
hans. Guðsþjónustur hefjast aftur í
Breiðagerðisskóla eftir sumarhlé,
eins og undanfarin ár. Felix Ólafs-
son.
Áheit og gjafir
Biafra-söfnunin
Rauða krossi fslands hafa borizt
eftirtaldar gjafir:
Skreið frá: Haraldi Böðvarssyni
& Co Akranesi fyrir ca. 100 þús.
ísfélagi Vestm. eyja 50—60 þús.
Þórði Óskarssyni, Akranesi 150
þús. Ónefndur 150 þús., Karólínu
Karlsdóttur, Keflavík 10 þús., Bæj-
arútgerð Rvíkur 250 þús., Hall-
dóri Snorrasyni 30-40 þús. Skreið-
arsamlaginu 350 þús. Skúla
Þorleifssyni. Þórir h.f. 20 þús,
Arxiljóti Gunnlaugssyni Vestm 20
þús., Ágústu Bryndísi Guðmunds-
dóttur, Jóni Guðmundssyni, Grænu
hlíð 22, Trúkonum, Hafnarfirði
Osta og smjörsalan hefur gefið
töluvert magn af undarennudufti,
ennfremur hafa borizt peningagjaf
ir á skrifstofu RKÍ kr. 100.000,- og
til dagblaðanna samtals kr. 61500-
Gjafir og áheit til Hallgrímskirkju
Kvöldvarzla og helgidagavarzla í
lyfjabúðum í Reykjavík
vikuna 29. júní -6. júlí er Lyfja-
búðin Iðunn og Garðs apótek.
Næturlæknir í Hafnarfirði aðfara
nótt 4. júlí er Kristján Jóhannes-
son síml 50056.
Næturlæknir í Keflavík 5. júlí er
Arnbjörn Ólafsson.
Keflavíkurapötek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á mótl
þeim, sem gefa vilja blóð i Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þrlðjud., fimmtud. og föstud. frá
kL 9—11 th. og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 th. Sérgtök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
xr á skrifstofutíma er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavarzla, 18-230.
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir t fé-
■agsheimilinu Tjarnargötu ‘ 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svarar i síma 10-000.
í Reykjavík.
Áheit frá N.N. 1.000 Áheit frá
konu 100 Minningargjöf frá Á og
M 5.000 Minningargjöf frá Guð-
mundi Gunnlaugssyni og konu hans
Ingibjörgu Einarsdóttur, Baróns-
stig 11, R — til minningar umhjón
in Gunnlaug Guðmundsson og Guð
ríði Einarsdóttur, Hverf. 41. Rvík
og Sigurð Gunnlaugsson, bakara-
nM'Lstara 25.000 Áheit frá Ást-
björgu Magnúsdóttur 200. Áheit frá
vantrúuðum 200
Kærar þakkir sr. Ragnar Fjalar Lár
usson
Gjafir og áheit til Hallgrímskirkju
Áheit frá M.J. 125. Áheit frá tog-
arasjómönnum 1300. Áheit frá M.
Jónsd. 3.000.
Áheit frá H.G. 500. Gjöf frá ó-
nefndum 100. Gjöf frá G.G. Móður
minning 4.000. Gjöf frá ónefndri
konu til minningar um mann sinn
10.000. Samtals kr. 20.225
Minningargjöf
Hinn 25. apríl síðastliðinn
afhenti Abigel Jónsdöttir Stein
hólm prestum Haligriimskirkju
stóra og fagra koparstjaka að gjöf
til kirkjunnar. Gjöfin er gefin tll
minningar um Bjarna Þóri Isölís-
son, er fæddist 15. des. 1896 og and
aðist 25. apríl 1966. Gjöfin var því
afhent á dánardegi hans.
öllur þessum gefendum voPast
kærar þakkir fyrir góðhug til Hall-
grímskirkju.
Jabob Jórxsson prestur.
só NÆST bezti
Gunna litla, 6 ára, var stödd hjá afa sínum, sem var læknir.
Hún sá á honum fararsnið og spurði, hvert hann væri að fara.
„Ég ætla nú að fara í hús og lækna fólk,“ svaraði afi hennar.
„Aumingja fólkið," varð þá Gunnu litlu að orði.
Þau tíðindi gerðust á Austurlandi fyrir skömmu að mlnkur kom í opinbera heimsókn þang-
að í fyrsta sinni svo vitað sé.