Morgunblaðið - 03.07.1968, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1908
Klaufaskapur að Þjdðverjarnir unnu
Urslitin 3:1 eftir
1:0 fyrir Island
í fyrri hálfleik
EF íslenzkt úrvalslið gat farið með sigurorð af viðskiptum
við Schwartwald Essen, þá getum við í áhugamannalands-
liðinu vart búizt við að sigra, sagði einn af þýzku landsliðs-
mönnunum í gær. Og orð hans voru mælt af fullum sanni.
Það var alger klaufaskapur að tapa landsleiknum í gær. —
Lengst af hafði íslenzka liðið betur í viðureigninni — hafði
forystu í leikhléi 1—0. En í síðari hálflcik tókst Þjóðverj-
um að skora þrjú mörk, sem voru hvert öðru klaufalegra frá
íslenzkum sjónarhól séð. Þannig urðu endalok þessa lands-
leiks, sem byrjaði svo vel, á sömu leið og svo margra ann-
ara á undanförnum árum. Enn einu sinni urðu ísl. áhorf-
endur að halda heim með ósigur í huga. Það var þó sízt af
öllu ástæða til þess nú. Isl, liðið hafði lengi framan af —
meirihluta leiktímans — betur í viðureigninni en slys og
klaufaskapur ollu hinu stóra tapi 1:3 um það er lauk.
Hermann Gunnarsson skorar hér eina mark íslands í landsleiknum í gaerkvöldi.
markvörðurinn horfir á eftir knettinum i markið, krjúpandi á vellinum.
Allan fyrri hálfleikinn var ís-
lenzka liðið strekara liðið á vell-
inum. Hver sóknarlotan af ann-
arri dundi á þýzka markinu. Að
visu skorti alltaf á að endahnút-
urinn yrði bundinn á annars vel
uppbyggð og skipuleg upphlaup.
En forysta íslenzka liðsins var
ótvíræð og það var tímaspurs-
mái hvenær hún yrði að veru-
leika í mörkum séð.
t>að var þó komið fram á síð-
ustu mínútu hálfleiksins er
fyrsta mark leiksins var skorað.
Það gerði Hermann Gunnarsson
eftir vel framkvæmda spyrnu
Kára frá vinstri kanti fyrir mark
ið.
Með þessu marki náði ísl. lið-
ið verðskuldaðri forystu. Allan
tímann hafði liðið sýnt lipran
leik og jákvæðan. Vörnin hafði
staðið af sér með sóma allar til-
raunir mótherjanna til sóknar og
framherjarnir fengu hverja send
inguna af annarri til að vinna
úr, en tókst misjafnlega og þó
að stundum skylli hurð nærri
hælum þá varð ekkert úr neinu
fyrr en á lokamínútu fyrri hálf-
ieiks.
Hraði leiksins hafði ekki verið
mikill og leikaðferðir beggja
liða svipaðar, en ísl. liðið komið
skemmtilega á óvart með sam-
leik og góðu spili. Reyndi á
þessum tíma og í þeirri upp-
byggingu mest á tengiliðina Þór-
ólf og Guðna, sem báðir stóðu
sig með ágætum og svo Eyleif
í framlínunni.
Fyrri hálfleikurinn var prýði-
Jega leikinn af hálfu ísl. liðsins,
enda hraðinn eins og bezt var á
kosið og geta mótherjanna mátu-
leg.
En allar vonir breg'ðast. Það
getum við knattspyrnufrétta-
menn yfirleitt reitt okkur á. Það
virðist auðvelt — séð úr stúk-
unni — að halda í sigur í þess-
um leik. Hættulegu færin sköp-
uðust ekki og með forystu í
mörkum frá fyrri hálfleik virtist
máiið auðvelt viðureignar.
En þýzka sóknin harðnaði og
ísl. vörnin komst í æ krappari
vanda. En þrátt fyrir það virtist
sem að mörkin er þýzka liðið
tók nú að skora væru fremur
fyrir heppni fengin, en yfir-
burðaleik.
Er 28 mín. voru af síðari hálf-
leik jafna Þjóðverjar eftir sókn
hægra megin og mistök Antons
Bjarnasonar miðvarðar.
10 mín. síðar nær vinstri út-
herjinn forystu fyrir Vestur-
Þýzkaland — eftir önnur mis-
tök í vörn ísl. liðsins.
2 mín. fyrir leikslok varð svo
sigurinn endanlega staðfestur
með þriðja markinu, er vara-
maður er inná kom skoraði.
Allt fram að þeim tíma vox.u
góðir möguleikar fyrir hendi
fyrir ísl. liðið að vinna sigur í
þessum leik, en samtökin brustu
algjörlega í síðari hálfleik og
liðið kom mjög illa frá þeim
hluta leiksins — eiginlega jafn
illa og það kom vel út í fyrri
hálfleik.
Fyrirliði liðsins, Þórólfur
Beck, átti mjög góðan fyrri hálf-
leik og lék þá liðsmenn sína vel
upp ef svo má að orði komSst.
En honum þvarr illilega úthald
og það hafði sín afdrifaríku
áhrif er á leikinn leið. Þá varð
nánast um látlausa sókn að ræða
af hálfu Þjóðverja — sókn, sem
þó virtist sjaldan hættuleg, en
skapaði þó þann yfirburðasigur
er vannst.
Þorbergur Atlason, nýiiðinn í
markinu, stóð sig vel, lé'k með
rósemi og yfirvegun sem marga
miklu reyndari leikmenn skort-
ir. Hann verður varf sakaður
um ósigurinn.
Guðni Kjartansson, framvörð-
ur, átti mjög góðan leik og var
i heild séð einna beztur af okk-
ar liðsmönnum. Hann sameinaði
vel vörn og var sá sem bezt
byggði upp af okkar liðsmönn-
um.
Framlínumenn stóðu sig yfir-
leitt lakar en vonir stóðu til.
Þýzka liðið var létt leikandi
og mjög ámóta að getu og okk-
ar lið. Eftir á séð finnst okkur
að það 'hafi verið alger klaufa-
skapur ag tapa þessum leik. Það
Moskvu, 1. júlí. — AP.
ALEXEI N. Kosygin, forsætis-
ráðherra Sovétrikjanna, ræddi í
dag viff Le Thanh Nghi, varafor-
sætisráffherra Norffur-Víetnams,
um hernaffaraðstoff og annan
stuffning Sovétríkjanna viff N-
Víetnam. Le Thanih Nghi kom
til Moskvu í síffustu viku og hef-
ur setiff fund meff Vladimir N.
Novikov, varaforsætisráffherra.
f opinberri tilkynningu um
fundinn í dag segir, að rætt hafi
verið „í anda vináttu og gagn-
kvæms skilnings um sameigin-
leg hagsmunamál á sviði stjórn-
mála, efnahagsmála og hermála".
New York, 28. júní. NTB.
RALPH Schoeman, fyrrv. einka-
ritari Bertrand Russels, sem var
vísða frá Bretlandi í gær, kom
samdægurs til New York og
Þýzki
Myndir Mbl.: Kr. Ben.
er eitthvað annað en raunveru-
leg geta sem brestur þá er slík-
ur ósigur verður að staðreynd.
Dómarinn MoKee dæmdi lítið
og hreinlega stofnaði til mögu-
leika til deilna með því. En
þama áttust við skapgóðir menn
svo að mistök hans ollu ekki
vandræðum.
sagði þar, að hann væri nú fyrst
að hefja baráttu gegn innflytj-
endalögum í Bretlandi fyrir
alvöru.
Schoeman var búsettur í Eng-
landi í tíu ár, unz vegabréf hans
var tekið af honum fyrir ári.
Bíl stolið
BIFREIÐINNI R-16374, sem er
gulhvítur Trabant-station árgerð
1964, var stolið af stæði við
Höfðatún sl. föstudag.
Allir þeir, sem kynnu að vita
um ferðir bilsins síðan, eru vin-
samlegast beðnir að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna.
Elmar Geirsson f. h. á í höggi viff einn Þjóffverjanna.
Sláttur er nú víffa aff byrja hér sunnanlands, enda þótt norff-
anlands neiti vetur aff víkja fyr ir sumri. Þessi mynd var tekin
um helgina, er menn voru aff slá aff bænum Skálatúni, skammt
frá Lágafelli í Mosfellssveit.
— A. St.