Morgunblaðið - 25.07.1968, Síða 8

Morgunblaðið - 25.07.1968, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚU 1968 Hvítu túnin í Vestur-Húnavatnssýslu Rætt við tvo bændur, Pál Karlsson á Bjargi og Jón Jónsson i Eyjanesi ÞEGAR íarið er um Vestur- Húnavatnssýslu og innanverða Strandasýslu, er þar heldur kulda legt um að litast, þótt kominn sé miður júlímánuður. Hafíshröngl er á Miðfirði, Hrútafirði og Bitru firði, úthagi tæpast búinn að ná grænum sumarlit og það, sem al- varlegast er, túnin eru iangflest meir og minna hvítskellótt og sum nær hvít yfir að líta eða ljósgræn arfabenda með dökk- grænum toppum á stangli. Nokk uð er þetta misjafnt á bæjum, en þó má segja, að sveitirnar báðum megin Hrútafjarðar og að nokkru leyti Miðfjörður séu þann ig leiknar af kalskemmdum og sprettuleysi, að vandséð sé hvern- ig afla skuli.fóðurs til næsta vetr ar af túnunum. Fréttamaður Mbl. hafði tal af tveimur bændum, sem einna harð ast hafa orðið úti í vestanverðri Vestur-Húnavatnssýslu að mati kunnugra. Fyrst fór hann að Bjargi í Miðfirði, þar sem búa bræðurnir Sigurgeir og Páll Karls synir, og hitti að máli hinn síð- arnefnda. — Ef litið er á Miðfjörðinn sem heild, sagði Páll, þá eru víða skemmd og ónýt stykki hér í sveitinni, og víða eru tún ó- drjúg og gloppótt, þó að þau virðist sæmilega falleg yfir að líta. Á einstaka stað er vel sprott ið, en alstaðar seint til, eins og sjá má af því, að það er eigin- lega hvergi byrjað að slá. Þó held ég mér sé óhætt að segja, að kalskemmdir séu hvergi hér í sveit jafnmiklar og hér. — Túnið hér hjá mér er um 50 hektarar, og þar af eru minnst 20 hektarar alveg dauðir og hitt er stórskemmt og ákaflega lítið nýtilegt af því. Gamla túnið stend ur sig bezt og svo nýrækt síðan í fyrra, sem aldrei hefir verið slegin. Þessi stykki eru þau einu, sem nýtileg eru hér heima. Okk- ur reynast mýrartún þola kuld- ann verst. Flóinn, stykkið hér út með Berginu, sem þurrkaður var fyrir meira en 20 árum, en var áður varla hestfær forarflói, spratt ágætlega, þangað til hann fór að bregðast fyrir fáum árum, hefir farið verst núna. Hann er alveg ónýtur þetta árið. Við rif- um upp 4 hektara til reynslu í vor og sáðum í þá. Þeir grænka svo sem, en ég veit ekki, að hverju það verður. — Hvað við tekur? Það verð- ur sjálfsagt niðurskurður, það verður hvergi hægt að fá hey. Sauðféð bjargast náttúrulega í sumar, en hvað_ verður í vetur, veit ég ekki. Ég hef haft um 400 fjár á fóðrum og gefið mest votheysverkaða töðu, — þvíhlýt ur að fækka talsvert. Svo hef ég 22 mjólkandi kýr og verð sjálfsagt að farga mörgum, og það er seinlegt og dýrt að koma aftur upp kústofni. Okkar tún fóðrar ekki mikið, held ég. Tvö tún hef ég tekið á leigu hér frammi í dal. Annað reynist alveg dautt, en ég fæ kannske eitt- hvað af hinu. — Ég hef ekki trú á, að hér verði mikið um engjaheyskap, og svo mun hvergi vera hér í sýslu, — útengi er hvergi vél- tækt. Svo er hagi enn grár, rétt bithagi og hvergi slægja enn a. m. k. Auk þess eru engir brúk- unarhestar lengur til eða reið- ingar, svo að maður kemur hey- inu ekki að sér. Það er heldur enginn mannafli á bæjunum til að heyja á útengi svo að nokkru nemi. — En það verður að bera á túnin, þó að þau séu ónýt, — það er sjáanlegt, þau gróa þó fyrr með því móti. Bændur hafa bara ekkert fjármagn til að ausa áburði á tún, sem ekkert gefa af sér. Það var léleg spretta í fyrra og lítil hey, en mikil fóð- urbætisgjöf í vetur, svo að ég veit ekki, hvernig bændur stand ast þetta. Ég get alveg eins bú- izt við, að margir bændur flosni upp í þessu árferði. — Svo er nú hitt, að þótt tún- blettir eigi að heita óskemmdir af kali, þá er sprettan sama og engin, eins og á hólunum hérna fyrir neðan. Þar er að vísu svo- lítið gras að koma, en það er engin slægja. Svo er víða gisið og ódrjúkt. Þó eru góðir blettir innan um. — Það er ekki gott að segja hver meginorsökin til kalsins er, en sumir fara ekki dult með það, að þeir kenna áburðinum um, það vantar eitthvað í Kjarnann, sjálf sagt kalk. Blandaði áburðurinn útlendi virðist góður. Við bárum kalksaltpétur á milli slátta í fyrra og fengum kappslægju í seinna slætti, — meira magn en af fyrra slætti. Annars eru or- sakirnar sjálfsagt margar. Allt túnið var einn gljái í vetur, og það kann að hafa valdið ein- hverju. Sumarið 1918 man ég, að var voðalegt kal eftir frostavet- urinn, og þá fengust alls 57 kapplar af Bjargstúni og heyið Jón Jónsson í Eyjanesi svo smálegt, að það tolldi varla í reipum. Þá var ekki hægt að kenna áburðinum um. — Mér leiðist að vera að heimta bætur af hinu opinbera, en hins vegar er ef til vill ekki ástæða til annars, ef sjávarút- veginum er sífellt hjálpað í sín um kröggum. Kunnugum ber saman um, að hvergi hafi kalskemmdir orðið meiri í Vestur-Húnavatnssýslu en á bænum Eyjanesi við Hrúta- fjörð, en þar er nýbýli úr landi Tannstaðabakka. Þar býr dugn- aðarbóndinn Jón Jónsson, og all ur heyskapur hans byggist á ný- lega ræktuðu landi, sem nú er að mestu ónýtt. Ég fór heim að Eyjanesi og hitti Jón bónda, sem bauð mér til stofu í nýju og myndarlegu íbúðarhúsi. — Ég hóf ræktun hér árið 1960 og byggði hér fjárhúsið, — mælti Jón, en íbúðarhúsið ár- ið eftir. Ég tók svo 4—6 hekt- ara til ræktunar árlega fyrstu ár in, og nú er túnið 29 hektarar, en auk þess grænfóður síðan í vor. Megnið af landinu var vel gróinn mói, nokkuð leirborinn melur, en að litlu leyti mýri. Ég bar eingöngu Kjarna á fyrstu fjögur árin, en síðan mikið af fosfórsýru og nokkuð af kalí. — Ekkert af túninu er til slægna í sumar, nema ef hægt væri að slá þennan æping með skúffu, annars mundi heyið týn- ast í kalskellurnar. Siðustu dag- ana er að koma upp svolítil nál sums staðar, — eitthvað af rót- inni hefir kannske lifað langt niðri. Ég býst ekki við að fá af túninu nema 10—20% af venju legum töðufeng, ef við leggjum uppskeru áranna 1964 og 1965 til grundvallar. Þar að auki verð ur mjög erfitt að fást við verk- unina, það er svo mikill arfi, að heyið er óþurrkandi og verð ur allt að fara í vothey. — Kal var mikið í hitteðfyrra, en þá fékk ég a.m.k. 40% af töðufeng næstu ára á undan. Kalskellurnar voru dálítið farnar að hlaupa saman í fyrra, og þá var ekkert nýtt kal. Þó að þá væri yfirleitt léleg spretta, fékk ég þó um 50% uppskeru, en beitti mikið á túnið um vorið. Ef ég hefði ekki gert það, hefði ég sennilega fengið um 60%. 1964 og 1965 hlóðust upp hjá mér heyin, svo að ég seldi mik- ið um áramótin 1965—1966 og sparaði þó ekki heyin við skepn urnar. En nú er svo komið, þó að ég sparaði hey eins og ég gat, að ég verð að kaupa megn- ið af fóðrinu næsta vetur. — Mýrarstykkin hér niðri við sjóinn hafa dugað mér bezt. Ég hef ræst þau fram, ^ en þar er upphaflegur gróður. Ég hef borið aðeins á hluta þeirra, og það eru einu partarnir þar, sem eitthvað hefir borið á kali núna. Þar sem ég hef ekki borið á, eru engar skemmdir. Það segir sína sögu. — Ég hef haft undanfarið 280 fjár á fóðrum og 11 nautgripi, en hafði' vetur 270 fjár og 7 nautgripi. Ég geri ráð fyrir að farga öllum kúnum nema rétt til mjólkur handa heimilinu. Ég veit ekki enn, hvort ég verð að fækka fénu, það fer eftir því, hvort ég fæ hey einhvers staðar. Ég er fyrir að fóðra vel og fóðra til afurða enda_ er meginhluti ánna tvílemdar. Ég get ekki hugsað mér, þó að fjörubeit sé góð, að setja á guð og gaddinn eða þá fóðurbætinn. — Versta ástandið hér í sýslu mun vera hér út með Hrúta- firði, og einna verst hér hjá mér. Orsakirnar til þess eru senni- íbúðir í byggingarsamvinnuiélagi Til ráðstöfunar eru enn nokkrar 3ja Herb. (90 ferm.) og 4ra herb. (100 ferm.) íbúðir í tveim stiga- húsum, sem verið er að byrja á að byggja, á góðum stað í Breiðholtsehverfi. Allar íbúðirnar hafa suð- ursvalir, og eru með þvottahúsi sér og vinnuher- bergi inn af eldh. (gluggi 1.50 m.). Baðherb. er með glugga. í kjallara eru geymslur og sameiginlegt húsnæði. 6 íbúðir eru í hverju stigahúsi. Búið er að sækja um Húsnæðismálastjórnarlán. Verð á þessum íbúðum verður mjög hagstætt. Útb- á þessu ári um 250—375 þús. Teikningar og allar upplýsingar liggja frammi hjá Sigurði Pálssyni, byggingam. að Kambsvegi 32, sem veitir allar frekari upplýsingar á staðnum aðeins kl 20—22 í kvöld og næstu kvöld. Sumarbústaður óskast keyptur Vil kaupa sumarbústað, helzt á glæsilegum stað við Þingvallavatn. Tilboö er greini stað, verð og skilmála sendist afgr. Mbl. fyrir nk. miðvikudag, merkt: „Þing- vallavatn — 8347“. Heildsolor — kauplélög — verzlanir Erum kaupendur að skófatnaði hvaðan sem er af land- inu. — Upplýsingar í síma 11670. Páll Karlsson að Bjargi lega einkum tvær, túnið er á flatlendi, þar sem vatn situr leng ur og svellar meira, og það er allt nýrækt. Gömlu túnin hafa varizt mifclu betur. Oktkur 9 bænd um hafa verið úthlutaðir 14 hekt arar af engi suður á Hvanneyri í Borgarfirði. Við erum búnir að bera á það land, en það verð ur mikill áhættuskapur, því að það er alit votlendi, ekki hægt að koma bíl að einu sinni, og má því ekkert út af bera með tíðarfar, ef þetta á að takast. Annars er ekki séð, hvar á að taka hey til vetrarins. Ég sáði þó höfrum í vor í 3 hektara hér heima. — Margir bændur hafa sýnt mikinn dugnað og útvegað sér slægjur hingað og þangað, jafn- vel til að slá með orfi og ljá. Annars vantar hesta, reiðinga eða önnur flutningstæki til að koma heyinu heim, svo að ekki er allt fengið með slíkum slægj- um. — Kuldinn hefur verið óskap- legur í vor og sumar og ísinn legið hér fram að þessu. Sprettu leysi er eftir því. Gróðri hefir sama og ekkert farið fram síð- ustu vikur. Ég sáði höfrum tvisv ar, 14. júní og 2. júlí, og á þeim stykkjum er sáralítill munur. Gróður hefur bókstaflega sölnað á bersvæði víða. Lengst af það sem af er júlímánaðar hefur hit- inn ekki komizt yfir 2—3 gráður á daginn og farið niður í frost- mark eða niður fyrir það á nótt- unni. Eftir miðjan júnímánuð hefir fjórum sinnum orðið aihvítt niður í sjó. ísinn hefur legið hér inn undir Hrúteyjar, og því er sprettuleysi verst hér fyrir utan, kuldinn af ísnum er svo geigvænlegur. Ástandið er skárra innst í firðinum, þar sem ísinn hefur ekki verið eins nálægur. Kýr voru ekki látnar út fyrr en snemma í júlí, og þeim var gefið hey og matur eftir það, — já er gefinn matur enn þá. — Ég veit ekki, hvernig á að snúast við þessu. Ef byggð á að haldast hér, sem ástandið er lak- ast, sé ég ekki, að hjá því verði komizt, að opinber stuðningur komi til í einhverri mynd. T.d. mætti hugsa sér, að ríkið eða einhverjir opinberir sjóðir greiði flutning á heyi og frestur verði gefir\n á afborgunum lána, a.m. k. þeirra, sem eru með nýbýli og miklar skuldir á bakinu fyrir. Það kostar t.d. 5000 krónur að flytja hingað eitt bílhlass sunn- an frá Hvanneyri, og flutningur á heyi t.a.m. sunnan úr Rangár- vallasýslu, þar sem helzt er að fá núna, væri mér algerlega of- viða, engin leið að kljúfa það. — Margur reynir samt að kom ast yfir þetta núna, þótt erfitt sé á allan hátt, sérstaklega eft- ir öll fóðurbætiskaupin í vetur, en haldi þessu áfram og komi harður vetur og grasleysi næsta sumar, þá sé ég ekki annað en fjöldinn allur af bændum gefist upp og vonlaust sé að halda á- fram búskap. Sv. P.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.