Morgunblaðið - 25.07.1968, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1968
17
Gróiurlendi bjargað úr klém
eyðingarafla
Ungir Húnvetningar í uppgrœðsluferð
BLÖNDUÓSI, 23. júlí — Síðast-
liðinn laugardag fór 25 manna
hópur frá Ungmennasambandi
Austur-Húnvetninga fram á
Auðkúluheiði í þeim erindagjörð
um að græða gömul sár og koma
í veg fyrir önnur ný á gróður-
feldi heiðarinnar. Tildrög far-
arinnar voru þau, að á síðasta
sambandsþingi var ákveðið að
ungmennafélög sýslunnar skyldu
starfa meira en þau hafa áður
gert að landgræðslu. Á þinginu
var mættur fulltrúi frá UMFÍ,
Eysteinn Þorvaldsson. Hét hann
félögunum stuðningi og kom
þeirn í samband við Land-
græðslu íslands. Þar var ekki í
kot vísað. Landgræðslan bauð
að leggja fram 11 lestir af fræi
og áburði og flytja bæði efni og
starfsfólk fram á heiði, samband
inu að kostnaðarlausu.
Ingva Þorsteinssyni var falið
að ákveða hvar fræinu yrði sáð
og vaidi hann stað á Auðkúlu-
heiði, skammt norður af Helgu-
feili. Þar hefur orðið talsverður
uppblástur og honum er ekki
lokið, þó að miklu meira sé um
það á Auðkúluheiði að land sé
að gróa upp heldur en blása
upp. Á þessu svæði, sem liggur
fast við veginn og blasir við
augum vegfarenda, er löng en
mjó ræma, þar sem jarðvegur
og gróður er að eyðast. Þar er
mjög þurrt og sendið flatlendi
og hætt við áframhaldandi upp-
blæstri. Fræi og áburði var
dreift á þessa ræmu og nokkuð
út fyrir hana. Þar vaxa nokkr-
ar tegundir harðgerðra blóm-
jurta á marflötum mel og fylgja
uppblæstrinum fast eftir ert gras
hefur ekki náð þar neinni fót-
festu. Þarna var sáð í 20 hektara
lands og kjarni og trífosfat bor-
ið á.
Þrír menn, sem starfa að gerð
gróðurkorta undir stjórn Ingva
Þorsteinssonar, voru staddir á
heiðinni og leiðbeindu land-
græðslufólkinu. Voru það þeir
Gylfi Már Guðbergsson, Einar
Gíslason og Ólafur Gislason.
Það skiptir litlu máli varðandi
haga á víðlendum heiðum hvort
þar er 20 hekturum meira eða
minna af grónu landi, en ef
þessi tilraun tekst er mörgum
sinnum stærra gróðurlendi
bjargað úr k!óm eyðingarafl-
anna. Líklega gætu tölvísir
menn reiknað hagnaðinn út i
krónum á svipaðan 'hátt og þeg-
ar strönduðu skipi er bjargað af
skeri. En björgunarstarf af þessu
tagi verður seint metið til fjár.
Þökk sé öllum, sem þarna áttu
hlut að máli. — Björn.
Stefán A. Jónsson, bóndi á K agðarhóli, ræðir við þremenn-
ingana, sem starfa að gróður kortagerð.
■■
Fræi dreift á land, sem er að blása upp.
(Ljósm. Björn Bergmann)
Heimasæturnar Iétu ekki sinn hlut eftir Iiggja. Hér er Guð-
rún Björnsdóttir á Ytri Löngumýri að verki.
„Bak við mig bíður dauðinn“.
Kaffihlé.
Páll Pétursson, bóndi á Höllustöðum, kom með dráttarvélina
sína en landgræðslan lagði til áburðardreifara.