Morgunblaðið - 25.07.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.07.1968, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1968 — Mér er sama um það nú orðið og var það líka að mestu þá En hann vissi eins vel og hún, að nú var hún að ljúga. Aftur varð þögn og þau stóðu og horfðu hvort á annað, án þess að vita, hvað þau áttu að segja. Hún þóttist vita, að hann langaði mest til að losna frá henni. Hún hafði ekki verið það viðkunnanleg við hann. — Vilduð þér ganga ofurlítið um þilfarið með mér? sagði hann allt í einu. — Það er gott að venjast sjónum, strax fyrstu dag- ana. Hún kinkaði kolli og gekk af stað með honum. Henni fannst hún mjög lítil við hliðina á hon- um. Rauðbrúna hárið á henni náði honum rétt í axlarhæð. Betty, sem lá í garðstól og var að lesa í bók, gretti sig framan í Pam um leið og þau gengu fram- hjá henni, rétt eins og hún vildi segja: — Jæja, þú ert þá strax búin að ná þér í einn! Stundarkorn gengu þau saman, án þess að orð væri sagt. Henni datt í hug, að hann væri að reyna að finna sér eitthvert hættulaust umtalsefni. Sjálf var var hún að reyna það sama, en með litlum árangri. Vitanlega hefðu þau getað fengið sér umtalsefni, svo að hundruðum skipti. Þau h-efðu get- að rætt samfarþega sína, talað um káeturnar sínar, eða þá mat- inn, sem þau fengu. Þau hefðu getað talað um þessa miljón ann- arra hluta, sem ungur maður og ung kona, sem hittast i fyrsta sinn, tala um. En á einhvern und- arlegan hátt fannst henni öll þessi umtalsefni vera þegar upp urin. Næstum frá fyrstu byrjun fannst henni kunningsskapur þeirra vera eitthvað miklu drama tiskari en svo. Jeff Maitland hefur víst fund- izt eitthvað svipað, því að þegar 12 -----—-------- » hann rauf þögnina, kom hann að sama efninu aftur. — Þér megið ekki halda, að ég sé ónærgætinn og vilji angra yður- en ég hef oft hugsað um það, hversvegna stúlka tekur sér það miklu nær að verða svik- in, en karlmaður. Vitanlega gremst karlmanninum það í bili, en ég held ekki, að hann verði raunverulega særður - ekki eins mikið og stúlkan. Og ég skil ekki, hversvegna þetta þarf að vera svona. Hún brosti ofurlitið. — Ég skil nú ekki í því heldur. Þegar þér segið það svona, verður þetta ekki rökrétt. En hugsar nokkurt okkar annars rökrétt, ef í harðbakka slær? Hann hugsaði sig um og það leið nokkur stund áður en hann svaraði: — Kannski gerum við það ekki, játaði hann, - en það ætti bara að gera okkur velviljaðri gagnvart yfirsjónum annarra. Því að það sem okkur kann að finnast yfirsjón, er ef til vill í þeirra augum sjálfsagður hlutur. Og ef út í það er farið, verðum við öll að lifa fyrst og fremst fyrir sjálf okkur. Við getum ekki eyðilagt okkar eigin líf af eintómri hræðslu við að særa aðra, og jafnvel þótt við gerum það, þá mundi hlutaðeigandi sjaldnast kunna að meta það eða þakka. Hann þagnaði og hló feimnislega. — Yður finnst sjálf sagt ég vera að bulla tóma vit- leysu. Það fannst henni ekki. Hún fann greinilega, að hann var að halda uppi vörnum fyrir systur sína og Hugh. Já, og því skyldi hann ekki gera það? Ef deila átti að verða um þetta, var ekki nema eðlilegt, að hann stæði þeirra megin. Hún láði honum það ekkert. En hinsvegar lang- aði hana að spyrja hann um syst ur hans - hvernig hún liti út, hvort hjónaband þeirra Hugh væri hamingjusamt. En einhvern- veginn kom hún sér ekki að því. — Þér hafið verið í fríi í Englandi? spurði hún, þegar þögnin fór að verða nokkuð löng. Hann kinkaði kolli. — Já, ég var mánaðartíma í London. Ég þurfti nú ekkert að vera að taka mér frí, en mér fannst betra að fara burt nokkurn tíma, svo að Kay og Hugh hefðu húsið út af fyrir sig. — Ætlið þér að búa með þeim, þegar þér komið aftur? Hann hló. — Nei, guð forði mér frá því! Ég ætla að byggja hús handa sjálfum mér annars staðar á landareigninni. Þau voru nú búin að ganga nokkra hringi um þilfarið.Þegar GESTUR GUÐMUNDSSON, SIGURÐUR GUOMUNOSSON OG ÞÓRARINN ELD- JÁRN LESA UPP EIGIN VERK. LÁTIÐ BLÓMIN TALA Blómvendir, sem þér hafið ánægju af að gefa Blómsveigar, blómaprýði við útfarir Blómaunnendur velja blómin frá Blómahúsinu. Blómin vand- lega meðhöndluð, sem tryggir að þau endast vel. Munið — næg bílastæði. þau gengu framhjá reykskálan- um sáu þau inn um opin glugg- ann, að þjónarnir voru að bera fram samlokur handa farþegun- um, til að éta með kvöld- drykknum. Hann stakk uppá því, að þau færu inn og fengju sér eitt glas, en hún hristi höfuðið. — Ég er hálfþreytt, og ég held ég verði að fara í háttinn, ef yður er sama. — En hvað um að leika tennis á þilfarinu í fyrramálið? sagði hann. — Einhverja hreifingu verður maður að hafa. Hún hristi aftur höfuðið. — Ég býst við, að ég verði að vinna í fyrramálið. Það leið skuggi yfir andlit hans og hún sá, að hann hleypti brúnum. — Sjáið þér til, ungfrú Hard- ing, sagði hann, hálfstamandi, - þér eruð væntanlega ekki að reyna að forðast mig, þó með allri kurteisi? Þér eruð ekki móðguð við mig af því að systir mín náði í kærastann yðar, eða hvað? Svo bætti hánn við með afsakandi hlátri: — Ég kem víst klaufalega orðum að þessu. Hún hló líka, og það var hress andi hlátur. Hún var ekki leng- ur gröm í skapi. Hún skildi ekkert í, hvað yfir hana hafði komið rétt áður. — Nei, ég er ekki reið við yður, sagði hún, - og vissulega var þetta ekki nein afsökun eða fyrirsláttur. Ég þarf að vinna á morgnana. Þér skiljið, að ég er hér ekki sem venjulegur farþegi, heldur er ég í vinnu. Ég þarf að gefa konum hérna nudd, til þess að grenna þær, svo að þær geti legið í letinni allan daginn, án þess að hlaupa í spik. Það hafði létt yfir svipnum á honum meðan hún sagði þetta. — Það var ágætt, sagði hann. — Þá getum við verið jafngóð- ir vinir. — Já, ef þér viljið hafa það svo. . .þá skulum við verða vinir Hann greip aðra hönd hennar. Þa-ð var eitthvað h-ressandi og róandi er hann þrýsti höndina. — Ég þykist vita, að ég ætli að njóta þessarar ferðar, Pam. Má ég kalla yður Pam? Hún varð ofurlítið vandræða- leg og varð hissa á því sjálf. En á einhvern einkennilegan hátt, varð hún glöð. Miklu glaðari en hún hafði verið undanfarna mánuði. Hún var enn dálítið móð er hún kom til káetu sinnar. Betty sat með krosslagða fætur á neðri kojunni, í ljósgrænum náttfötum. Hún sagði og brosti ertnislega þegar Pam kom inn. — Jæja, svo þú náðir þá í unga manninn, eða hvað? Þú lætur svei mér ekki grasið gróa undir fótum þér, verð ég að segja. Hver er hann? — Hann er kunningi minn, sagði Pam og fór undan í flæm- ingi. — Hann heitir Jeff Mait- 25 JÚLÍ. Hrúturinn 21. marz — 19. apríl. Varaðu þig á Amor í dag. Reyndu að ljúka dagsverkinu snemm-a, því að margt glepur, er á líður. Nautið 20. apríl — 20. mai. Þú skalt hugsa utn heimilið í dag, viðgerðir, eða eitthvað þess háttar. Ræddu fjölskylduvandamálin snemma, og sinnfu síðan hugð-arefnum. Tvíburamir 21. maí — 20. júní. Ljúktu brófaskritftum, semdu við nágrannana, láttu ekki þitt eftir liggja, og bjóddu heim í kvöld. Krabbinn 21. júní — 22. júlí. Eyddu ekki tímanum til einskis. Vertu harður við sjálían þig, en taktu lífinu með ró í kvöld. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst. Gefðu heilsu þinni gaum, komdu reglu á þín eink-amál, og hittu kunningjana í kvöld. Meyjan 23. ágúst — 22. sept. Þér vegnar vel, og mikil gróeka er í efnahagsmálum þínum. Biddu um kauphækkun, ef þér finnst þú eiga -það skilið. Vogin 23. sept. — 22. okt. Sterkir straumar eru í á-stamálum. Ef þú getur einbeitt þér að vinnu þinni, verður arður þinn mikill. Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv. Fól-k er samvinnuþýttl Reyndu að koma fram opinberlega. Bogmaðurinn 22. nóv — 21. des. Ef þú hefur góða sköpunargáfu, þá eru tækitfærin á hverju strái. Líklegt er, að þér bjóðist fjárhagsleg aðstoð. Steingeitin 22. des. -!). jan. Gakktu snemma til verks. Hættu um hádegið. Það er tilefni til að fagna einhverju. Vatnsberinn 20. jan. — 18. febr. Samvin-na gengur vel. Gerðu þinn skerf fyrir há-degið. At- hugaðu hag eldra fólksins. Fiskarnir 19. febr. — 20. marz. Þetta virðist ætla að ganga vel í dag. En það getur orðið þér dýrkeypt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.