Morgunblaðið - 13.08.1968, Síða 1
28 SIÐUR
Þegar landbúnaðarsýningin í Laugardal lokaði í gærkvöldi höíðu 4200 manns sótt hana yfir daginn og á 11. þúsund dag-
inn áður. Þessi mynd var tekin á sunnudag, er verið var að leiða hross í dómhring. Dró þessi samkeppnissýning að sér mik-
ið margmenni, eins og myndin gefur reyndar til kynna. (Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.)
Ulbricht fékk kuldalegar móttökur
— viðrœðum hans og leiðtoga
Tékkóslóvakíu lauk í gœrkvöldi
— herœfingar hafnar að nýju skammt
frá landamœrum Tékkóslóvakíu
Prag, 12. ágúst — AP-NTB
FORYSTUMENN Tékkóslóvakíu
áttu í dag viðræður við æðstu
menn Austur-Þýzkalands, með
Walter Ulbricht í broddi fylk-
drukkna
Indlandi
Bombay, 12. ágúst — AP
RÖSKLEGA eitt þúsund manns
hafa drukknað í miklum flóðum
í ríkinu Gujarat á Indlandi.
Eru þetta einhver mestu flóð sem
orðið hafa á þeim slóðum og
komu í kjölfar mikilla rigninga
í f jóra sólarhringa.
Áttatíu þúsund manns misstu
heimili sín og skemmdir á rækt-
uðu landi eru gífurlegar. Búizt
er við, að flóðin séu nú í rén-
um, en björgunarstarf hefur
gengið mjög erfiðlega.
ingar .Viðræðurnar fóru fram í
Karlovy Vary, sem er frægur
heilsulindarstaður í Tékkósló-
vakíu. Brezka útvarpið sagði
í dag ,að Ulbricht mundi kanna,
hvort tékkóslóvakíska stjórnin
hefði áform á prjónunum, um
að viðurkenna v-þýzku stjórn-
ina.
Fundinum lauk um kl. 9 að ís-
tíma og var sagt, að sameigin-
leg yfirlýsing yrði birt á morg-
un, þriðjudag. Það eitt var sagt
um viðræðurnar, að þær hefðu
verið vinsamlegar.
Fréttastofufregnum ber sam-
an um, að móttökur almennings
hafi einkennzt af ískaldri kurt-
eisi og aðeins nokkur hundruð
manns höfðu safnazt saman við
komu leiðtoganna, og hrópað
var „Lifi Dubcek“, en hvergi
heyrðust hyllingarhróp um hinn
austur-þýzka foringja. Stjórn-
málafréttaritarar segja, að fund
urinn hafi ekki verið haldinn í
Prag, af ótta við mótmælaað-
gerðir. Ulbricht er mjög illa
þokkaður í Tékkóslóvakíu, enda
hefur hann verið einn harðsnún-
asti gagnrýnandi umbótastefnu
stjórnarinnar þar.
Með Ulbricht í förinni er m.a.
forsætisráðherra A-Þýzkalands,
Willy Stoph, ritari kommúnista-
flokksins, Honecker, og ýmsir
meðlimir miðstjórnar flokksins.
Af hálfu Tékkóslóvaka sitja
fundinn þeir Dubcek, Smrkov-
sky og Cernik og nokkrir fleiri.
Tilkynnt var um komu Ul-
Kynþátta-
óeirðir
Los Angeles, 12. ágúst (AP-
NTB)
Á SUNNUDAG var efnt til há-
tíðahalda í Watts-hverfinu í Los
Angeles, til að minnast mikilla
kynþáttaóeirða þar fyrir réttum
tveimur árum. Fóru hátíðahöldin
vel fram í fyrstu, en þegar
kvöldaði hófust átök milli
blökkumanna og lögreglu. Friður
komst að nýju á í morgun, en
þá höfðu þrír blökkumenn verið
drepnir, og 35 manns höfðu
særzt.
I uppþotunum í Watts fyrir
tveimur árum voru alls 34 drepn-
ir, en hundruð særðust.
Skotið á flugvélar Rauða krossins
brichts, aðeins einni klukku-
stund eftir að Tító, Júgóslvaíu-
forseti, hélt heimleiðis frá Prag.
Kom tilkynningin á óvart, þar
sem áður hafði verið látið að
því liggja, að frekari viðræðna
kommúnistaforingja væri ekki
þörf í bili.
Stjómmálafréttaritarar í Kar-
lovy Vary eru þeirrar skoðun-
Framhald á bls. 27
35 fórust
I flugslysi
Oharleston, 11. ágúst (AP)
TVEGGJA hreyfla skrúfuþota
of gerðinri F-227 fórst í lend-
ingu við Maunteintop-flugvöll-
j inn hiá Charleston í Vestur-
J Virginíuríki í Bandaríkjunum á
I laugardag. f vélinni voru alls 37
manns og fórust 32 þeirra, en
fimm var bjargað úr brakinu,
og voru flestir þeirra illa slas-
aðir. Af þeim, sem bjargað var,
létust þrír í sjúkrahúsi á sunnu-
dag.
Flugvöllurinn, sem vélin átti
að lenda á, er í 270 metra hæð
jTir sjávarmáli, og við enda
hans er um 100 metra djúp gjá,
aðeins 50 metrum frá brautar-
enda. Þokuslæðingur var yfir
flugvellinum, og rakst flugvél-
in á gjábarminn á leið til lend-
ingar. Eldsneytisgeymar munu
hafa rifnað, og flóði logandi
steinolían yfir brakið ,sem fuðr-
aði upp. Tókst slökkviliði vall-
arins að slökkva eldinn eftir
stundarfjórðungs viðureign.
Annar farþeganna, sem eftir
lifa, er Barbara Schiller, 19 ára
stúlka frá Cincinnati. Segir hún
svo frá:
— Við fengum enga aðvörun
Ekkert . . Engan grun-
aði neitt. Mér fannst þetta eins
og martröð, hrein martröð. Ég
var ekki einu sinni að horfa út
þegar þetta gerðist. Ég rotaðist,
og þegar ég kom til sjálfrar min
voru þeir að úða okkux með
froðu.
Dularfull lending
MIG-17 véla I Israel
Tel Aviv, Beirut, 12. ág. NTB.
AP.
TVÆR sýrlenzkar orustuþot-
ur af sovézkri gerð, MIG 17 —
lentu á ísraelskum flugvclli í
morgun kl. 7,45 að staðartíma,
að því er opinberlega var til-
kynnt í Tel Aviv. Stjórnvöld í
ísrael hafa neitað að láta upp-
skátt, hvernig á lendingunni stóð
og segja fréttaritarar það
renna stoðum undir þær tilkynn
ingar, sem sýrlenzka stjórnin
hefur gefið út, um að vélarnar
hafi orðið að nauðlenda vegna
eldsneytisskorts, og afleitra veð-
urskilyrða.
Talsmaður sýrlenzka hersins
hafði sagt, að vélarnar hefðu
villzt af leið og neyðzt til að
lenda á flugvelli í Galileu. Bag-
dad útvarpið rauf fréttaút-
sendingu til að ssgja frá atburð-
inum.
Stjórnvöld í ísrael hafa eimn-
ig neitað að segja nokkuð um,
hvort tengsl séu á milli lend-
ingar MIG-vélanna og töku ísra-
elsku vélarinnar, sem neydd var
til að lenda í Alsír á dögunum
og hefur verið kyrrsett þar síð-
an. Stjórnmálafréttaritarar í Tel
Aviv telja, að með þessu hafi fs
raelar fengið ágæta aðstöðu til
að semja um afhendingu El-AL
vélarinnar og 12 farþega hennar,
sem enu í haldi í Alsír.
Útvarpið í fsrael skýrði frá
því, að sýrlenzku flugmennirnir
tveir væru nú í yfirheyrslu hjá
Framhald á bls. 17
Hlé á matvælafiutning-
um til Biafra
Lagos, Addis Abeba, Kaupmanna
höfn, 12. ágúst (AP-NTB).
★ Talsmaður Alþjóða Rauða-
krossins skýrði frá því í Lagos
í dag að stjórn Nigeríu liefði
neitað að verða við ósk samtak-
anna um að hætta að skjóta á
Rauða-kross-flugvélar, sem
flytja matvæli til Biafra.
h Tilkynnt var í Stuttgart í dag
að skotið hafi verið á tvær flug-
vélar, sem voru á leið til Biafra
i dag með matvæli og lyf, og
neyddust vélarnar til að snúa
við. Jafnframt var frá því skýrt
að skotið hafi verið á eina af
vélum Rauða-krossins á fimmtu-
dag og aðra á föstudagskvöld,
og var þeim báðum snúið við.
★ Fulltrúar Biafra og Nigeríu
komu saman til fundar í Addis
Abeba í dag undir forsæti Haile
Selassie Eþiópíukeisara, og stóð
fundurinn í þrjár og hálfa
klukkustund. Var þetta fjórði
fundur fulltrúanna á rúmri viku,
og jafnframt sá lengsti. Að hon-
um loknum var tilkynnt að næsti
fundur yrði haldinn á morgun,
þriðjudag.
Ekki er vitað hvort nokkuð
miðaði í samkomulagsátt á fund
inum í dag, en áður en hann
hófst bað talsmaður Biafra-nefnd
arinnar Haile Selassie keisara
að knýja stjórnina í Lagos til að
hætta áð skjóta á flugvélar
Framhald á bls. 17
Banvænn afli
Fort Myers, Florida,
12. ágúst (AP)
FIMM sjómenn létust af eitr-
un er þeir voru að vinna að
löndun á fiskfarmi i Fort My-
ers í Florida á sunnudag.
Voru mennirnir fimm ofan-
þilja við lestar fiskiskipsins
„Novelty“ að undirbúa lönd-
un, og höfðu rétt opnað fyr-
ir vatnsrennsli niður í lest-
ina til að unnt yrði að dæla
aflanum á land, þegar þeir
skyndilega féllu hver á eftir
öðrum niður í lestina. Voru
þeir allir látnir, þegar björg-
unarmenn búnir gasgrímum
komu að.
Ekki vita yfirvöldin hvað
heldur valdið eitruninni, og
er málið í rannsókn.