Morgunblaðið - 13.08.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.08.1968, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1968 Tilboð óskast um sölu efnis og vinnu við frágang á kæli- og frystiklefum í eldhúsi Landsspítalans í Reykjavík. — Útboðsgögn afhendast á skrifstofu vorri gegn kr. 2000,00 skilatryggingu, frá kl. 1 e.h. mánu- daginn 12. ágúst. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140 Úrvalsþiliur Þórsþiljur Mikið úrval aí veggþiljum Verð frá kr 285 ferm. Komið, skoðið. Kaupið þar sem úrvalið er mest. 'S KUfKUS p Grensásvegi 7, sími 84533. Ráðstefna um verkfræði og verklegar. framkvæmdir DAGANA 15. og 16. ágúst munu Félag verkfræðinema og SÍSE gangast fyrir ráðstefnu um verk fræði og verklegar framkvæmd- ir. Rætt verður m.a. um störf og starfssvið verkfræðinga, nýt- ingu verkfræðimenntaðs vinnu- afls, verkfræðideild H.í. og verk fræðinám o.fl. Þannig verða 5 málaflokkar ræddir, 3 annan daginn, en 2 hinn daginn. Til að spara tíma og auka um- ræður hefur undirbúningsnefnd- in látið fjölrita flest framsögu- erindi ráðstefnunnaT fyrir fram. Framsöguerindi verða alls um 10 talsins. Áætlaður tími hvom daginn er um 4 klst. Ráðstefnan verður haldin í hátíðarsal Há- skóla íslands og hefst kl. 8 síð- degis bæði kvöldin. Framsögumenn eru allir reyndir verkfræðingar og visinda menn. Þá skal þess sérstaklega getið, að til ráðstefnunnar er boð ið milli 40 og 50 verkfræðingum auk allra þeirra verkfræðinema sem áhuga hafa á þessari nýjung stúdenta. Þeir verkfræðingar og verk- fræðinemar, sem sitja vilja ráð- stefnu þessa, eru beðnir að til- kynna þátttöku á skrifstofu SÍSE í síma 15959 kl. 2—5 n.k. þriðjudag og miðvikudag. Þar verða einnig veittar frekari upp- lýsingar. (Fr éttatilkynning). Útihús í Kol- múla shemmd- ust í eldi Reyðarfirði, 10. ágúst. MIKIÐ og tilfinnanlegt tjón varð í fyrradag hjá Guðjóni Daníelssyni, bónda í Kolmúla við Reyðarfjörð, er eldur kom upp í útihúsum á bænum. Elds- ins varð vart um kl. 15 og var þegar hringt í slökkviliðið á Reyðarfirði, sem kom þremur stundarfjórðungum síðar á stað- inn, en um 30 km. leið er að KOImúla frá Búðareyri og slæm ur vegur. Er slökkviliðið kom á staðinn var mjög mikill eldur í hlöðu, fjárhúsum, fjósi og geymslu og brann allt, en einhverju tókst þó að bjarga af fóðurbæti — en nokkurt magn brann í eldinum. Guðjón Daníelsson býr í Kol- múla ásamt konu sinni og börn- um og hefur hann orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Hús munu hafa verið vátryggð, en trúlega lágt. íbúðarhúsið, sem stendur hinum megin vegarins sakaði ekki. Veður var gott, en nokkur strekkingur að norðan. —Fréttaritari. SÓLÓHÚSGÖCN Seljum frá verkstæði okkar hin vinsælu SÓLÓHÚSGÖGN sterk og stílhrein, í borðkrókinn, kaffistofuna og samkomuhúsið. MJÖG HAGSTÆTT VERÐ Hringbraut 121, sími 21832. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 en borgarstjórinn stóð fyrir neðan með klukku 1 höndunum og athugaði hve lengi hver bíll væri á leiðinni niður. Þannig gat hann skorið úr um hver sigraði. Keppendurnir streymdu nú að úr öllum áttum og ýttu kassabílunum sín- um á undan sér. Klump ur og Kalli kengúra stilltu sér upp í röðina, eftir að hafa fengið að vita númer hvað þeir væru hjá Lárusi lög- reglustjóra. „Við verðum örugg- lega fyrstir niður hæð- ina“, sagði Villi refur gortandi. Félagi hans, ívar íkomi, var önnum kafinn við að smyrja hjólin í græna bílnum þeirra. „Bíddu bara þangað til þú sérð bilinn okkar“, hrópaði Berti bjór. Hann og Maggi mús höfðu mál að bílinn sinn hvítann. Klumpur fór til Lár- usar, til þess að fá að vita hvað langt væri þangað til kappakstur- inn byrjaði. Á leiðinni til baka heyrði hann ein hvem gráta ákaft. Hann leit við og sá að Lilli bjór og vinur hans Bjössi björn sátu hágrát andi hjá bílnum sínum. „Hvað er að?“ spurði Klumpur. Bjössi saug upp í nef- ið: „Eitt hjólið datt und- an bílnum okkar“, sagði hann snöktandi. „Þegar við vorum að ýta honum hingað, rakst það á stór- an stein og brotnaði". „Og nú getum við ekki einu sinni reynt að virnna verðlaunin“, sagði Lilli bjór, grátandi. Klumpur fór aftur að bílnum sínum. Hann stóð og horfði á hann í langan tíma. Síðan sagði hann við Kalla kengúru: „Hvað mundir þú segja, ef ég skýrði þér frá því, að við getum ekki tekið þátt í kappakstrinum?1* „Ég mundi halda að það væri eitthvað að þér“, hrópaði Kalli. „Af hverju getum við ekki verið með?“ „Vegna þess að við ætlum að gefa tveimur minnstu keppendunum eitt hjólið okkar“, sagði Klumpur ákveðinn, „og settu þig ekki upp á móti því“. Eftir stutta stund hafði hann tekið eitt hjólið undan bílnum þeirra og hlaupið með það til Lilla bjórs og Bjössa bjöms og gefið þeim það. Hann beið ekki eftir að heyra þakkir þeirra, en gekk dapur í bragði til Kalla. „Jæja“, andvarpaði Kalli kengúra, „mér hef ur svo sem aldrei þótt gaman að kappökstrum, og allra sízt þessari sápukassakeppni**. „Sápu?" muldraði Klumpur. „Kalli, ég heid að ég viti hvernig við getum tekið þátt í kapp akstrinum. Taktu nú hin þrjú hjólin líka af bíln- um. Ég kem rétt strax aftur og segi þér hvað við getum gert“. „Taka hiin þrjú hjólin — ?“ byrjaði Kalli. „Jæja, hvers vegna ekki?“ Klumpur hljóp nú til borgarstjórans og hvísl- aði einhverju að honum. Borgarstjórinn kinkaði kolli. Þá hljóp Klumpur til Frikka fíls og hvísl- aði einhverju að honum. Frikki hló með sjálfum sér og sagði: „Allt í lagi, Klumpur. Þú kallar í mig þegar þú verður til- búinn. * Klumpur hljóp loks heim til sín .Hann kom aftur um leið og kapp- aksturinn byrjaði og fyrsti bíllinn þaut niður hæðina. „Flýttu þér“, sagði hann við Kalla kengúru. „Náðu í hamar og nokkra langa nagla. Við verðum með í kappakstr inum og höfum meira a ðsegja möguleika á að vinna“. „En — en“, sagði Kalli stamandi, „fannstu ann- að hjól af sömu stærð?“ „Nei“, sagði Klumpur, „ekki hjól, en fjögur stór og þykk sápu- stykki". Klumpur og Kalli negldu sápustykkin und- ir bílinn í flýti. Þegar röðin kom að þeim — þeir voru síðastir — báru þeir bílinn upp á hæðarbrúnina**. PRENTVILLUPUKAÞRAUTIN ÞIÐ hafði án éfa heyrt um „prentvillupúkann", þennan óróabelg, sem skemmtir sér við að gera stafsetningarvillur og rugla bókstöfum í bók- um og blöðum. Hérna hefur hann ruglað fyrir- sögninni á grein um heimsfrægan hugvits- mann. Fyrirsögnin átti upphaflega að vera nafn hugvitsmannsins, en það er ekki svo gott að sjá núna. Þið skuiið nú reyna að koma stöfun- um í rétta röð og finna hver hugvitsmaðurinn er. „Allt í lagi, Frikki“, hrópaði Klumpur. Frikki fíll dýfði nú rananum í bæjartjörn- ina og byrjaði að sprauta vatni á veginn. Klump- ur og Kalli ýttu bílun- um sínum af stað og stukku upp í. Sápustykk in byrjuðu að renna eft- ir votum veginum. Þeir runnu hraðar og hraðar og huldir í skýi af glamp andi sápukúlum þutu þeir niður brekkuna og komu á ofsahraða í mark. „Fimmtíu og tvær sek úndur á leiðinni**, kall- aði borgarstjórinn. „Sig- urvegarar í keppninni eru Klumpur og Kalli kengúra og þeir voru einni sekúndu á undan næsta bíl. „Ég býst við því", sagði Frakki fíll bros- andi, um leið og hamn sprautaði dálitið meiru af vatni á veginn, til þess að hreinsa burt sápuna, „að þetta megi kalla góðan og hreinleg- an kappakstur".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.