Morgunblaðið - 13.08.1968, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1968
0 Ljóðalesturs Ævars
„Árnesingur" skrifar:
„Kæri Velvakandi
Eitt albezta efni, sem útvarpið hefir flutt
okkur um langa hríð, er ljóðalestur Ævars
Kvarans.
Þannig vill til, að ég hefi lagt nokkra
stund á athugun á upplestri ljóða í tóm-
•* stundum mínum, og sit ég mig því aldrei
úr færi að hlýða á, þegar ljóð eru lesin
á almannafæri eða í Ríkisútvarpinu. Einnig
geri ég það að gamni mínu á vetrarkveld-
um að lesa kvæði upphátt.
Það er mikil list að lesa kvæði, og sú list
er því miður allt of fáum íslendingum
gefin nú á dögum. Menn hafa glatað brag-
eyranu, og fleira kemur til. Það er oftast
hörmung að hlusta á Skólagengna leikara
lesa kvæði í útvarpinu, þeir hafa hvorki til-
finningu fyrir stuðlum, rimi né réttri
hrynjandi, sem kvæðin byggjast þó á.
Gæti ég nefnt ýmis hroðaleg dæmi, máli
mínu til sönnunar. Ekki veit ég, hver ber
ábyrgð á því, að slíkir misþyrmendur ísl-
enzkra ljóða komi fram fyrir alþjóð. „Fjall-
konan“ okkar seytjánda júní hefur líka oft
verið mislukkuð.
Nú veit ég vel, að ekki er einhlítt að lesa
kvæði eingöngu eftir réttum bragreglum
og hrynjandiföllinn. Innlifun og áherzla á
efnivið kvæðisins verður lika að vera túlk-
uð. En þetta getur allt farið saman, þegar
listamaður, sem lagt hefur á sig að nema
galdur íslenzkrar Ijóðlistar eða hefur bergt
hana með móðurmjólkinni, les upp.
0 Lesturinn verði gefinn út á
hljómplötum
Þannig les Ævar Kvaran upp að mínu
áliti. Honum skeikar aldrei í áherzluliðum
og réttum framburði, það er eins og kvæðið
yrkist ósjálfrátt upp úr honum, en samt
tekst honum að gefa lestrinum hæfilegan
leikarablæ, — þannig, að' hann „lifir sig
inn í“ ljóðið, sem hann les.
Ég skal ekki hafa þessi orð öllu lengri:
Þetta er fyrirmyndarlestur í hvívetna,
þjóðlegur, listrænn og fagur.
En ég vil koma uppástungu á framfæri:
Þannig lestur verður að geyma á hljóm-
plötum. Mér finnst sjálfsagt, að kennslu-
yfirvöld landsins láti sjá um upptöku á
ljóðalestrinum og sendi nokkur eintök í
hvert einasta skólahús landsins, þar sem
nemendur fá að heyra, hvernig á að lesa
íslenzk kvæði.
Bókasöfn landsins ættu að vera hljóm-
plötusöfn um leið, og væri prýðilegt tæki-
færi að byrja með þessari plötu.
Ef ríkisvaldið hirðir ekki um eða tímir
ekki að gera þetta, tel ég Harald í Fálkan-
um manna vísastan til þess að gefa slíka
plötu út, og veit ég, að margir mundu
verða til þess að gefa börnum sínum og
barnabörnum Ijóðalestur Ævars Kvarans á
grammófónsplötu.
Vertu svo blessaður,
Árnesingur".
0 Viðskiptabann
„Hlutlaus" skrifar:
Velvakandi:
Sameinuðu þjóðirnar eru að hugsa um að
setja algert viðskiptabann á Ródesíu vegna
stefnu ríkisstjómarinnar þar 1 kynþátta-
málum. Nú er ég enginn vinur þeirra, sem
vilja misrétti kynþátta, — síður en svo.
En hvers vegna er ráðizt á þetta eina land,
Ródesíu? í fyrsta lagi hefur ekki heyrzt,
að svertingjar í því landi kvarti mikið
undan stjórnarfarinu. í öðru lagi viðgengst
miklu hroðalegra kynþáttamisrétti í mörg-
um ríkjum, sem fulltrúa eiga hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Nígeríumenn, sem eru
að slátra íbúum í Biafra, hafa þar fulltrúa,
og mun hann sjálfsagt forææma það, sem
hann kallar misjöfnuð kjmflokka í öðrum
ríkjum en sínu eigin. Sovétríkin eiga þrjá
fulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, en í
landi þeirra er á skipulagsbundinn hátt
unnið að því að útrýma eistnesku, lett-
nesku og litháisku þjóðemi (svo sem með
brottflutningi úr Eystrasaltslöndum oginn-
flutningi Rússa þangað, upptöku nýs staf-
rófs o.s.frv.), afmáun gyðinglegrar menn-
ingar og hreinni upprætingu kynþátta í
Kákasus (viðurkennt af Krúsjeffi sjálfum).
Hvers vegna þetta misræmi? Hvers
vegna staðbundin réttlætistilfinning?
Hvers vegna tvöfalt siðgæði, eftir því hver
í hlut á?
Svarið er: HRÆSNI.
HIutlaus“.
0 Málvillur útvarpsmanna
„Ágúst" skrifar:
„Herra Velvakandi:
Allgóðir þykja mér þættir Tryggva Glsla-
sonar í Ríkisútvarpinu um málfar og mál-
villur, en oftar mætti hann víkja að vit-
leysum samstarfsmanna sinna. Einn sá
versti er fiskasérfræðingur útvarpsins,
sem heldur víst enn, að eignarfall af
orðinu „fiskur" sé fiskjar. Það er náttúru-
lega „fisks“, sem þýðir einfaldlega veiði,
og hélt ég að allir vissu það sem einhvem
tímann þykjast hafa séð fisk. í kvöld talar
sami maður um að „byggja veg“ (!) og um
Lögberg, þegar verið er að ræða um Lækj-
arbotna. Er ekki hægt að koma svona
mönnum í íslenzkutíma útvarpsins a.m.k.?
Ágúst".
____ðí _
H»AUr<;« RB RIKISINSl
Ms. Baldur
fer til Snæfellsness- og Breiða
fjarðarhafna á miðvikudag.
Vörumóttaka í dag og morg-
un.
Stúlka
Óskum eftir að ráða stúlku vana IBM götun. Um-
sóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf sendist afgr. Mbl. fyrir 17. þ.m., merktar: „8422“.
KITCHD & WE8TII\IGH0USE
viðgerðarþjónusta.
Viðgerðir og endurbætur á raflögnum.
Hringið í okkur í síma 13881.
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Síml 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Simi 22-0-22
Rauðarárstíg 37
MAGIMÚSAR
skipholti21 símar21190
eftir lokun simi 40331
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt Ieigugjald.
Símí 14970
Eftir lokun 14976 eða 81748.
Sigurð'ur Jónsson.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
SENDUM
SÍMI 82347
SÍM11-44-44
maiFim
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
KAU PMAN NASAMTÖK
ÍSLANDS
Ódýrt fargjald
Reykjavík - Köln - London - Reykjavík
Félag Ijósmyndavöruverzlana hefur í hyggju að taka
„Gullfaxa“ — þotu Flugfélags íslands — á leigu í sam-
bandi við hina heimsfrægu ljósmyndavörusýningu
„Photoklna“, sem hefst í Köln 28. sept. nk, ef næg
þátttaka fæst.
Þar sem félagið mun ekki þurfa að nota öll sæti vélar-
innar, er þeim, sem vildu notfæra sér óvenjulega
ódýrt fargjald, gefinn kostur á að kaupa farseðla og
notfæra sér ferðina, fyrir aðeins kr. 5.500.00.
Farseðillinn gildir frá Reykjavík til Kölnar (beint
flug) og frá London til Reykjavíkur. Þátttakendur
verða sjálfir að kosta sig frá meginlandinu til London,
en það kostar u.þ.b. kr. 1000.00 með járnbrautarlest.
Væntanlegir þátttakendur geta látið skrá sig á eftir-
töldum stöðum og verða þá að greiða um leið kr.
3.500.00:
Skrifstofu Kaupmannasamtakanna, Marargötu,
Verzluuinni Fókus, Lækjargötu 6 B.,
Filmur og vélar, Skólavörðustíg 41,
Verzluninni Sportval, Laugavegi 116.
Kynnið yður þetta hagstæða tækifæri.
Félag Ijósmyndavöruverzlana.
RAFIMAUST SF. Barónsstíg 3.
Dömur
nokkrir tímar lausir
JÓNS ÁSGEIRSSONAR PH. TH.
Bændahöllinni, sími 2-31-31
Ódýror burnobuxur
Smekkbuxur, verð kr 134,
flauelsbuxur, verð frá kr. 145,
barnaúlpur, verð frá kr. 458,
barnapeysur, verð frá kr. 155,
kvenpeysur, verð frá kr. 199,
kvenblússur. Sængurgjafir í úrvali. Útisett,
peysa, húfa og buxur, verð kr. 415. Greiðslu-
sloppar, náttkjólar og margt fleira. Bama-
fatnaður í miklu úrvali. Nælonsokkar í 6
tízkulitum. Prjónagarn í fallegum litum —
Póstsendum.
. LLA
Barónsstíg 29 - sími 12668