Morgunblaðið - 13.08.1968, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 196«
Jón Eiríksson tyrrv. formaður Skipstjórqfélags íslands:
Lög um atvinnuréttindi skipstjórn-
armanna á íslenzkum skipum
Hvers virði eru þessar breyt-
ingar?
Þá er að athuga nánar þessar
breytingar og leiðrétitngar, sem
Alþingi hefur gert á frumvarp-
inu, og að hve miklu leyti þær
ganga til móts við óskir okkar,
sem mótmæltum frumvarpinu.
1 fyrsta lagi: Aldurmörk stýri
manna á fiskiskipum hafa verið
hækkuð nokkuð. Segja má, að
það sé betra en ekki, en engin
frambærileg ástæða hefur verið
færð fyrir því, að hafa þauekki
sömu og áður. „Rökin“, sem sjáv
arútvegsnefnd neðri deildar færa
fyrir þessu, hafa nokkuð mik-
inn keim af pílatusarþvotti til
þess að hægt sé að taka þau
alvarlega.
í öðru lagi: Undirstýrimanns-
réttindi þeirra, sem hafa tekið
.próf upp úr 2. bekk farmanna-
deildar hafa verið framlengd
um eitt ár. Ég skal ekki segja
um það með vissu, en ég efast
réttindi þekkist annarstaðar
stórlega um, að slík tímabundin
meðal siglingaþjóða. Ég hef ekki
á móti því, að veita þessum
mönnum réttindi til stýri-
mennsku, ef þeir hafa nógan
siglingatíma á skipi yfir 30 rúm-
lestir, og þar af skulu 3 mán-
uðir vera á Verslunarskipi eða
varðskipi yfir 100 rúmlestir.
Annars siglingatíma er ekki kraf
ist í lögunum. Þeir geta því
fengið þessi réttindi með 21 mán
aða siglingu á skipi undir 100
rúmlestum og þriggja mánaða
siglingu á skipi yfir 100 rúm-
lestir, og án þess að hafa nokk-
urntíma út i verslunarskip stig-
ið. Þesssir menn eiga svo að
stjórna vöktum á siglingu á
svona 10 til 30 sinnum stærra
skipi en þeir hafa verið á áður,
og segja fyrir verkum við vöru-
hleðslu og losun, sem þeir
þekkja ekkert til. En hvers
vegna á að taka þessi réttindi
af þeim, einmitt þegar þeir hafa
fengið nokkra reynslu í starf-
inu? Orðið „Valfrelsi" var mik-
ið á vörum manna nú fyrir síð-
ustu þingkosningar. Hvers vegna
1 ósköpunum mega þessir menn
ekki velja um það sjálfir, hvort
þeir láta sér nægja að vera und-
irstýrimenn, eða hvort þeir vilja
afla sér meiri bóklegrar fræðslu
sem gæfi þeim kost á hærra
prófi og veitti þeim aðgang að
hærri stöðu. Ég hef alltaf verið
því hlynntur, að prófin væru tek
in í stigum, eins og tíðkast hjá
allfelatum siglingaþjóðum, en að
hafa þennan hátt á því, tel ég
alveg ófært. Ég tel því hvorki
bót né skaða að því, að lengja
þennan tíma um eitt ár.
í þriðja lagi: Stærð landróðr-
arbáta, sem skylt er að hafa
stýrimann auk skipstjóra, hefur
vierið lækkuð niður í sína upp-
runalegu stæirð, 30 rúmlestir, og
er það eina heila sporið, sem
Alþingi hefur stigið við meðferð
þessa frumvarps, og vert er að
þakka.
í fjórða lagi: í frumvarpinu
hafði verið felld niður krafa,
sem var í gömlu lögunum, um 12
mánaða siglingatíma sem
yfirstýrimaður á verslunarskipi
1 utanlandssiglinum, til að fá
skipstjóraréttindi í utanlands-
siglingum. Alþingi hefur auð-
sjáanlega viljað gera hér brag-
arbót, og af rausn sinni setur
það 6 mánuði sem stýrimaður
f stað 12 mánuði sem yfirstýri-
maður. Það sker niður helming-
inn af tímanum, og gerir hinn
helminginn, sem eftir er lítils
virði, með því að sleppa kröf-
unni um yfirstýrimann.
í byrjun þessa máls lýsti ég
þeim breytingum, sem frumvarp
ið gerði á gömlu lögunum, og
allar bentu niður á við. Það var
lágmarkskr af a Skipst j óraf élags
íslands í mótmælum þess gegn
frumvarpinu, að ekki yrði slak-
að á þeim kröfum til skipstjórn-
arréttinda, sem voru í gömlu lög
unum. Þessi nýju lög eru óra-
langt frá því marki. í þeim er
aðeins um þrjár breytingar að
ræða, sem ganga í rétta átt, og
aðeinis ein þeirra nær því að
vera til jafns við gömlu lögin.
Og sú breyting fjallar ekki um
skipstjórnarréttindi.
Kveðjan frá sjávarútvegsnenfd
neðri deildar.
Það mun tæplega annað til-
hlýðilegt en að viðurkenna mót-
töku kveðjunnar, sem sjávarút-
vegsnefnd neðri deildar sendir
okkur „mótmælendum“ í nefnd
aráliti sínu, en þar stendur:
„Ekki er annað að sjá en að
aðilar þeir, sem mótmælt hafa
þessum atriðum, hafi ekki vitað
um þær breytingar, sem gerðar
voru á lögum um Stýrimanna-
skólann í Reykjavík vorið 1966
og þetta frumvarp ier beint fram
hald af“. Já, ljótt er að heyra.
Af þessum orðum nefndarmanna
má sjá, að þeir telja okkur, sem
mótmæltum frumvarpinu, ekki
--------------- t
Síðari grein
--------------- R
fylgjast vel með því, sem gerist
á hinu háa Alþingi og sjómenn
og siglingar varða. Ég mundi
nú telja það ráðlegt fyrir þessa
háttvirtu alþingismenn, að næst
þegar þeir senda kveðju af
þessu tagi, hverjir svo sem mót-
mælendur hennar verða, þá
finni þeir orðum sínum betur
stað Hvað er það í mótmælun-
um, sem stangast svona mikið á
við skólalögin, að það geti rétt-
lætt þessi ummæli? Ef þeir, með
því sem á eftir kemur í fram-
haldi af „kveðjunni", eru að
hleypa stoðum undir þessi orð
sín, þá hafa þeir skotið illilega
yfir markið Þar stendur:
„Lengri skólatími hefur fyrst
og fremst verið notaður til að
auka þekkingu rnemenda á helstu
raf- og radíótækjum, sem notuð
eru við fiskveiðar og siglingar".
Og svo kemur rúsínan í pylsu-
endanum. „Með hliðsjón af
þessu telur sjávarútvegsnefnd
Nd., að eðlilegt verði að teljast,
að siglingatíminn sé styttur"
(Leturbreytinig mín J. E.). Þá
veit maður það. Ef t.d. skip-
stjórnarmaður á verslunarskipi
hefur góða þekkingu á nýtísku
siglingatækjum, þá þarf hann
ekki að eyða löngum tíma í að
kynnast öllum þeim margvíslegu
störfum öðrum, sem starfinu
fylgir.
Stjórn Skipstjórafélags Is-
lands fór þess á leit við sjávar-
útvegsnefnd efri deildar, að fá
að mæta á fundi í nefndinni, þeg
ar hún hefði frumvarpið til um-
ræðu. Niefndin sýndi okkur þá
vinsemd að verða við þessum til
mælum, en vegna mjög stutts
fyrirvara gátu aðrir stjórnar-
menn ekki mætt, og mætti ég
því einn. Nefndarmenn minntust
ekki einu orði á skólalögin, gátu
ekki um neitt ósamræmi milli
þeirra og mótmæla okkar. Það
skyldi þó aldrei vera, að þeir
hafi heldur ekki vitað um þau.
Böndin berast að þeim! Þeix
leggja til að siglingatíminn verði
lengdur, en það hefðu þeir auð
vitað ekki gert ef þeir hefðu
vitað um skólalögin og haft
eins skarpan skilning á málinu
og kollegarnir í neðri deild. Þeir
snúa svo frá villu síns vegar,
þegar neðri deild bendir þeim á
skólalögin, og samþykkja þá að
stytta siglingatímann aftur. En
hvað gera nú siglingafræðikenn
iarar Stýrimannaskólans? Geta
þeir verið þekktir fyrir að halda
áfram kennslu, eftir að vera
uppvísir að slíkri fáfræði?!
I kveðjunni er það beinlínis lát
ið í veðri vaka, að við mótmæl-
endur höfum ekki vitað hvað við
vorum að gera, þegar við mót-
mæltum frumv., vegna þess
að við vissum ekki um skólalög-
in. Við skulum lofa þeim að
standa í þeirri trú áfram, ef
þeim er einhver hugsvölun að
því. En fleiri eru sekir enlngi-
mundur, sagði karlinn, þegar
hann skyggndi brennivínsflösk-
una, sem yfirvaldið hafði tekið
af honum og sá að drjúgumhafði
lækkað á henni. Það skyldi þó
aldrei vera, að þeir sem bregða
okkur um fáfræði, hafi sjálfir
bergt á bikar fáfræðinnar, og
ekki vitað hvað þeir voru að
gera. Tilfærð ummæli þeirrahér
að framan og lögin í heild, bera
þess glögg merki, að þeir hafa
ekki haft neina, eða þá alranga
hugmynd um störf skipstjórnar-
manna á verslunarskipum. En
þá þekkingu tel ég nauðsynlega
fyrir þá, sem taka að sér að
semja lög, er svo mjög snerta
starf þessarra manna.
Þáttur Farmanna- og Fiskimanna
sambands íslands.
Þess er getið hér að framan,
að nokkur félög skipstjórnar-
manna ásamt fleiri aðilum, hafi
sent Alþingi mótmæli gegn frurn
varpinu. Auk þeirra, sem þar
eru nefndir sendi stjórn F.F.S.f.
ierindi til Alþingis um frumvarp
ið. En það var ekki til að mót-
mæla því, heldur var þar skorað
á Alþingi, að samþykkja frum-
varpið óbreytt.
Farmanna-og Fiskimannasam-
band íslands er samband sér-
menntaðra farmanna og fiski-
manna á íslandi, þ.e. skipstjórn
armanna, vélstjóra, loftskeyta-
manna og bryta. Það á m.a. að
vera málsvari þessarra stétta á
opinberum vettvangi. Mál það,
sem hér um ræðir, snerti eina
stétt þessara skipstjómar-
manna. Innain þeirra félaga, sem
mótmæltu frumvarpinu, er mik-
111 meiri hluti íslenskra skip-
stjórnarmanna. Samt fann stjórn
F.F.S.Í., eða meiri hluti hennar,
hvöt hjá sér til að ganga í ber-
högg við yfirlýstan vilja þess-
arra sambandsfélaga sinna. Ber
er hver að baki bróður nema
eigi. Það var ekki ónýtt að hafa
slíka málsvara að bakhjarli í
þessu málL
Ólík störf sérhæfing.
Þótt liðin sé meira en hálf öld
síðan íslendingar eignuðust sín
fyrstu vöruflutningaskip —burt
séð frá fáeinum litlum flóabát-
um — og þótt íslenskir skip-
stjórnarmenn hafi frá byrjun
siglt þessum skipum um svo að
segja öll heimsins höf, og að á
þessum tíma hefur íslenska far-
mannastéttin þróast og eflst, og
íslenskir farmenn þegar orðnir
sérhæfðir í sínu starfi, þá ríkir
ennþá í heilabúum manna eins
og illkynjuð umferðaveiki, sú
meinlega hugsunarvilla, að eng-
inn munur sé á starfi manna á
farskipi og fiskiskipi eða öðr-
um tegundum skipa. Höfundar
þessarra laga hafa augljóslega
verið mjög illa haldnir af þess-
ari veiki. Þar er allt í einum
graut eins og vel hristur kokkt
eill. Þeir, eins og margir fleiri
virðast álíta það nóg, að menn
kunni sína siglingafræði og ann
að það er útheimtist til að stand
ast próf við stýrimannaskóla, þá
geti þeir tekið að sér skipstjórn
á hvaða skipi sem er, án tillits
til þess til hvaða starfs skipið
er notað,
í orðaskýringum laganna,
jafnt þessara sem þeirra gömlu
eru taldar upp tvær tegundir
skipa, fiskiskip og verslunar-
skip, og seinna í lögunum er tal
að um varðskip. Atvinnuréttindi
skipstjórnarmanna hafa verið
miðuð við þetta, svo og við
stærð skipa og við utan — og
eða innanlangssiglingar. Störf
skipstjórnarmanna á þessum
skipategundum eru mjög frá-
Framhald á bLs. 21
SÍIUI 24850
Til sölu
2ja herb. íbúðir í nýrrí blokk
vfð Kleppsveg, um 70 ferm.
suðursvalir, allar innrétt-
Ingar úr vönduðum harð-
við, mosaik á baði, sam-
eign frágengin. Góð lán
áhvílandi. Sérlega vönduð
íbúð.
3ja herb. íbúð við Hjarðar-
haga, ásamt einu herb. í
risi.
3ja herb. íbúð á jarðhæð við
Nóatún, sérhiti, sérinngang-
ur, nýstandsett.
3ja herb. kjallaraíbúð vi'ð
Skipasund, Sérhiti, sérinn-
gangur.
4ra herb. endaíbúð við Álf-
heima, um 107 ferm. laus
strax. Útb. 500 þús., góð
íbúð.
4ra herb. efri hæð við Goð-
heima, sérhiti, um 115 fer/n.
Tvennar svalir.
4ra herb. íbúð á 3. hæð við
Safamýri, suður- og vestur-
svalir, vönduð íbúð, bílskúrs
réttur.
6 herb. 1. hæð við Þingholts-
braut, um 153 ferm. 4 svefn
herb., tvær stofur.
5— 6 herb. blokkaríbú’ð við
Ásbraut, Kópavogi, allar
innréttingar úr vönduðum
harðvið. Lítur sérlega vel
út. Ibúðin er um 127 ferm.,
útb. 700 þús.
6— 7 herb. sérhæð við Goð-
heima, bílskúr, góð íbúð.
Einbýlishús við Hlíðargerði í
Smáíbúðarhverfi, hæð og
ris. Bílskúr, sérlega vel við
haldið hús.
/ SMÍÐUM
Fokheldar 2ja, 3ja, 4, 5 og 6
herb. hæ'ðir í Kópavogi, með
sérlega góðum greiðsluskil-
málum, með bílskúr eða án.
3ja og 4ra herb. íbúðir í Breið
holtshverfi, tilb. undir tré-
verk og málningu. Með hag
stæðum greiðsluskilmálum.
3ja herb. íbúð í Fossvogi, á 1.
hæð við Geitland, um 93
ferm. Selst tilb. undir tré-
verk og málningu. Sameign
að mestu frágengin. Útb.
400 þús. sem má skiptast.
Góð lán áhvílandi.
Austarstrætl 10 A, 5. hæ®
Sími 24850
Kvöldsími 37272.
Einangrið með
ARMA PLAST
Selt og afgreitt hjá
Pi M§SO !Si &LCO-
Suðurlandsbraut 6
Sími 38640
16870
IEinbýlishús í Vogunum.
Tvær hæðir, 112 ferm.
hvor. Bílskúr. Hægt
að hafa 2ja herb. sér-
íbúð á jarðhæð.
5 herb. efri hæð við
Holtagerði, Kópavogi.
Sérhiti. Ágæt innrétt
ing.
5 herb. neðri hæð við
Skólagerði, Kópavogi.
Sérhiti. Væg útb.
Skipti á minni íbú'ð
í Kópavogi möguleg.
4ra herb. efri hæð við
Kelduhvamm í Hafn-
arfirði. Sérþvotta-
herb. á hæðinni. Sér-
hiti, og 3ja herb. óinn
réttuð risíbúð í sama
húsi.
3ja herb. 97 ferm. sér-
hæð við Karfavog.
Stór bílskúr. Fallegt
hús. Fallegur garður.
3ja herb. íbúð á 1. hæð
í Kópavogi, tilb. undir
tréverk. Tæki í bað-
herb. komin. Sérinng.
Sérhiti. Góð lán áhvíl
andi. Útb. 250—300
þús.
2ja herb. kjallaraíbúð í
FASTEIGNA-
PJÓNUSTAN
Lekur steyptu þukið?
Nýtt vatnsverjandi steypuefni, Color Crete, á flöt
steinþök til að fvrirbyggja leka. Aðeins 90 kr. á ferm.
3ja—4ra mm lag, beint á steininn. Uppl. í síma 14835
og 15795 eftir kl. 5.
Til leigu í Huínurfirði
er ný 5 herbergja íbúð á 3. hæð. Leigist frá 1. október.
Tilboð er tilgreina mánaðarleigu, möguleika á fyrir-
framgreiðslu og fjölskyldustærð, sendist afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir 28. ágúst, merkt: „Eitt ár 8424“.