Morgunblaðið - 13.08.1968, Qupperneq 17
MORiGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1968
17
— Heyskaparútlit
Framhald af bls. 28
ir vegna mikilla kalskemmda í
túnum. Útlitið hefur þó batnað
mikið síðan fyrr í sumar. Nýting
heyja er góð, en þó vantar enn
nokkiurt magin af heyi, svo að
meðallag hafi náðzt. Sömu sögu
er að segja um Strandasýslu.
Hefur komið til tals að kaupa
hey úr Óslandshlíð í Skagafirði
og stóð tiil að byrja að flytja
það um helgina, en úrskurður
frá saðfjársjúkdómanefnd um
það hefur ekki fengizt enn.
★
Sláttur hófst ekki almennt í
A-Hún. fyrr en um síðustu mán
aðamót. I>á voru öll óskemmd
tún ágætlega sprottin. Nokkrir
bænduir hófu slátt fyrr en
hey þeirra hröktust nokkuð
vegna óþurrka. Síðan hafa verið
óvenju góðir þurrkar að örfáum
dögurn undanteknum og eru all
ar horfur á, að miklu betur ræt
ist úr með heyskap hér um slóðir
en nokkurn grunaði. Þrátt fyrir
það verður heyfengur margra
bænda mjög rýr, því á dauðkal
inni jörð vex ekki annað en arfi.
Úthagi og heiðalönd eru rnjög
vel sprottin.
— 0 —
I Fljótum austanverðum er
lítið kal og ágæt spretta. Lítur
því út fyrir gó'ðan heyskap og
sums staðar er búið að hirða tún.
Háaspretta virðist æifa að
verða góð.
í vestanverðum Fljótum er
töluvert kal á sumum bæjum
og var seint byrjað að slá. Und-
anfárið he'fur sprottið miklð.
Heysláttur þar og í Sléttuhlíð
og Hofslhreppi gæti víða odðið í
meðaillaigi. Mjög bagailegt er
þó, hve mikill arfi er í túnum,
sérstaklega upp úr kalblettum
og þar sem snemma var borið
á. í Blönduhlíð ér mjög lítið kal
og spretta er að verða góð. Hey-
skapur hefur gengið ágætlega
það sem af er. Má búast við með
al heyfeng. í úthaga hefur sprott
ið talsvert síðustu daga. I Lýtings
staðahreppi eru bændur mis-
jafnlega langt komnir með hey-
skap. Kal er mikfð á sumum
jörðum og arfi í túnum og sumir
bændur eru nýlega byrjaðir að
slá. Þar verður heyfengur mis-
jafn og sums staðar rýr. Sama
má segja um úthéraðið. Að vest-
an spraitt seint. Á eiinstaka jörð-
um er sláttur nýlega hafinn. Nýt
ing á heyjum er góð. Haldist
svipað tíðarfar eru bændur von-
góðir.
— 0 —
Á Mið-Austurlandi hefur
spretta verið ágæt og stórkost-
leg breyting átt sér stað frá því
í byrjun júlí. Kaltolettiirniir hafa
víða gróið nokkuð, nema á
nokkrum bæjum í Borgarfirði
eystra og yzt á Héraði. Bænd-
ur á Mið-Austurlandi eru al-
mennt byrjaðir að slá og eru
víða vel á veg komnir. Nýting
heyja er góð og haldist góð tíð
eru heyskaparhorfur sæmilega
góðar á Mið-Austurlandi.
— xxx —
í gær var bezti þurrkdagur
sumarsins á Suðurlandi og hey
skapur í fullum gangi. Spretta
er víðast hvar orðin með af-
brigðum góð og voru bændur
orðnir langeygðir eftir þurrk-
inum. Vélakostur er víðast hvar
arðiimn svo gtóður, að ef þuirrkur
helzt fram yfir næstu helgi fara
bændur langt með að heyja tún
sín. f gær spáði Veðurstofan að
í dag mætti vænta rigningar á
SuðuirJamdi og kepptuist flestilr
við að sœta og galta heyið fram
á nótt, en sú spá rættist sem bet
ur fór ekki. Vona menn, að nú
sé kominn þurrkurinn, sem allir
hafa þráð.
í Norður-Þingeyjarsýslu er
sláttur sums staðar vel á veg
kominn í inmsveitum, en í út-
sveitum var mikið kal í vor og
sjá bændur þar vart fram á
meira en 10% meðalheyfeng, þó
sums staðar eitthvað meira. í út
eveitum ertu bændur fairnir að
slá heilu svæðin, en upp úr kal-
iinu kemur ekkert nema arfi.
Norður-Þingeyiingar hafa sótt
mikið hey til Eyjafjarðair og
víðar.
— O —
Góða tíðarfarið sem hér hef-
ur verið sl. mánuð hefur valdið
því, að nú lítur yfirleitt sæmi-
lega út með heyfeng bænda í
S-Þing. þrátt fyrir bal og miklar
túnasikemmdir í vor. í Mývatns-
sveit en spretta talin góð og nýt
ing heyja ágæt, sem og annars
staðar í sýslunni það sem náðst
hefur í dölunum er sprettan
misjafnari, en hvergi er útlit
slæmt. Þegar nær dregur sjó er
eiins og sprettan sé lélegri og
hvort tveggja sé, að túnin hafi
farið verr í vor og að þeir hafi
gengið verr að ná sér aftur. Á
yztu bæjum á Tjörnesi mun hey-
fengur verða langt undir meðal-
lagi. f Flatey á Skjálfanda er
sagt kafgras, en þar verður ekki
borinn ljár í þúfu þetta sumar-
ið.
- MIG-17
Framh. af bls. 1
öryggisþjónustunni. Útvarpið hef
ur einnig staðhæft, að þegar vél-
arnar lentu hafi þær haft nægi-
tegt eldsneyti og varageymiair ver
ið fullir.
Fréttin um lendingu MIG-17
vélanna vakti mikla athygli í fs-
rael og streymdi fólk að til að
sjá þær. Bent er á, að flugmenn
irnir hafi beðið rólegir eftir að
þeir höfðu lent og gerðu enga
tilraun til að sýna mótþróa, þeg-
ar ísraelskir starfsmenn öryggis
þjónustunnar komu á vettvang.
Flugvellinum við Damaseus í
Sýrlandi var lobað fyrir umferð
erlendra flugvéla aðfaranótt
mánudags, en opnaður aftur í
morgun. Engin skýring var gef-
in. Sömuleiðis var símasamband
við Damascus rofið, einnig án
nokkurra skýringa.
Árið 1966 gerðist flugliðsfor-
ingi frá írak liðhlaupi, er hann
flaug MIG 21 vél til ísraels og
var það í fyrsta skipti að vél af
þessari gerð komst óslremmd í
hendur fulltrúa vestræns lands.
Brann
SLÖKKVILIÐIÐ á Vopnafirði
vair kvatt út á 1 augardagskvöld
klukkan 9:30, en kviknað hafði
í reykingairkofa að Ytra-Núpi.
Þeigar slökkviflið kom á staðinn
var kofinn bnuinininin til öskiu.
Lionisíklúibbur Vopnafjarðar af-
henti 8. ágúst sl. sveiitairstjóran-
um, Haraldi Gíslasyni, öndunar-
tæki að gjöf tiil sjúkraskýliisins á
staðrnum. — Ragmar.
Walter Ulbricht
Lmbætur eru honum
eitur í beinum —
7 SENDINEFND a-þýzkra
1 kommúnista er nú stödd í
4 Tékkóslóvakíu undir forystu
L Walter Ulbrights. Á nefndin
að eiga viðræður við þar-
lenda ráðamenn. A-þýzkir
kommúnistar hafa verið
manna harðastir í afstöðu
sinni gegn frjálsræðisstefnu
Tékka. Observer-grein sú, er
hér fer á eftir, segir frá við-
brögðum manna í A-Þýzka-
landi við atburðunum í
Tékkóslóvakíu.
Berlín, 9. ágúst.
Það eru engar biðraðir
sýnilegar við blaðsölutuma
hér í A-Berlín eins og þær ger
ast í Prag. Einu tíðindin, sem
Í flokksfélagar gátu fengið af
yfirlýsingunni vegn-a Tékkó-
slóvakíumálsins var með því
að lesa samv-izkusamlega til-
1 kynniingu miðstjómarinnar
um Bratislava-fundinn. Til-
kynningin birtist í „Neues
Deutsdhiland“ málgagni
kommúnistaflokksins.
„Miðstjórnin lýsir yfir
fylgi sínu við yfirlýsinguna
(frá Bratislavafundi Tékka,
Rússa og fylgiríkja) og
ánægju yfir árangri fundar-
ins, sem hún telur mjög já-
kvæðan“. Austur-Berlíniarbú-
ar á leið til virmu í neðan-
jarðarlestunum, litu flestir
hverjir rétt sem snöggvast á
fyrstu lín-urnar, og flettu því
næst upp á íþróttasíðunni. —
„Flestir landa minnia hafa nú
hugann við íþróttir þessa dag
ana“, sagði flokksstarfsmaður
nokkur. Sá hafði ekki alveg
á röngu að standa.
Bæði félagar á kommúnista
flokknum og óháðir A-Þjóð-
verjar leita frétta af atburð-
unum í Tékkóslóvakíu frá
báðum hliðum, þ.e. frá aust-
ur- og vestur-þýzkum út-
varps og sjónvarpsstöðvum.
En það, sem er að eiga sér
stað í Prag„ virðist fjarri öll-
um raunveruleika í A-Þýzka
landi.
„Það eru engir Dubcekar
hér“, sagði stúdent nokkur
frá Leipzig, sem staddur var
í veitingasal járnbrautar-
stöðvarinnar í Friedrich-
strasse. Andstaða gegn
flokknum er fyrir hendi, en
hana skortir gjörsamlega
grundvöll til að beita afli
sínu fyrir endurbótum.
Robert Havemann, prófess-
or, sem hefur forystu um
hugmyndafræðilega gagn-
rýni á Ulbrichtsstjórnina,
er hafður undir 24 stunda
eftirliti. Aðrir fylgjendur
„þriðju leiðarinnar til sósíal-
isma“, eru annað hvort liðin
lík eða hafa verið lækkaðir í
embætti. Þegar þannig er um
húntana búið, hvaða mögu-
leika hefur þá tékkneska sótt
kveikjan á að festa rætur í
A-Þýzkalandi?
„Austur-þýzki kommún-
istaflokkurinn er eins agaður
og bugsazt getur“, sagði
tékkneskur sendiráðsmaður.
„Þegar áróðurinn gegn Dub-
cek náði hámarki, neituðu
"kunningjar mínir úr flokkn-
um að láta sjá sig opinber-
lega með mér“.
Ef minnstu umbætur ættu
að eiga sér stað yrðu þær að
eiga rætur að rekja til öfl-
ugs hóps flokksmanna, sem
krefðist endurbóta. Eins og í
Tékkóslóvakíu myndi slíkt
sæta harðri andstöðu aftur-
haldsins í flokknum. í augna-
biikinu virðist engin „slíkur
hópur að verki í A-Þýzka-
landi.
Embættismaður í A-Ber-
lín, sem fer með menningar-
mál, játaði að árið 1964, þeg-
ar slakað var á flokkstökun-
um um skeið, hefði meiri
grózka ríkt í mennimgarlíf-
Walter Ulbricht —
heldur löndum sínura
í járngreipum.
inu en nú. Hann var spurður
varfærnislega, hvort hin ein-
strengingslega flokkslína
væri orsök ríkjandi ládeyðu.
Svarið var aðeins „kannski“.
En sagan var ekki öll sögð
með þessum orðum. Þess,
sem hann lét ógetið, var hinn
jámharði flokksagi bæðd á
andlega- og stjórnmálalega
sviðinu í A-Þýzkalandi. Ofan
á allt bætist svo, að menn
eru þess meðvitandi að öll
umbótaviðleitni er af flokkn-
um umsvifalaust stimpluð
sem ögranir að undirlagi
Vestur-Þjóðverja.
'i
„Þýzkai-and er klofið í tvö
ríki og þjóðin að auki. Þetta
gerir allt miklu erfiðara um
vik en í Tékkóslóvakíu", út-
skýrir stúdentinn frá Leip-
zig. „Af þeim, sem ég þekki
er varla nokkur maður, sem
álítur að Vestur-Þýzkaland
sé það sem við eigum að taka
til fyrirmyndar. En flokkur-
inn vantreystir okkur“, bætir
hann við.
En það er einmitt sú sama
tortryggni, er ríkir innan-
lands, sem kemur í veg fyrir
að hugsanlegir endurbóta-
menn opni hug sinn við skoð
an-abræður. Einangraðir í eig
in hugmyndaheimi 'halda þeir
áfram að láta sig dreyma um
mannúðtegan kommúnisma.
Reykjabólstrarnir teygðust upp fyrir þokuhjúpinn, sem lá yfir borginni, og sáust þeir vítt að.
Þessi mynd er tekin úr Öskjuhlið.
- NÍGERÍA
Framh. af bls. 1
Rauða-krossins. Eftir að fundin-
um lauk ræddi keisarinn við
Nigeríu-nefndina, en ekki er vit-
að hvað þeim fór á milli.
Rauði krossinn hætti öllu flugi
með matvæli til Biafra á laugar
dag, eftir að skotið hafði verið
á tvær flugvélar frá samtökun-
um. Fór talsmaður samtakanna
í Lagos, Robert Hitz, þess á leit
við stjórnina, að hún heimilaði
áframhaldandi matvælaflutninga
til sveltandi íbúa Biafra, en fékk
þau svör að afsta'ða stjórnarinn-
ar væri „óbreytt“. Segir Hitz
að allt frá því er de Gaulle
Frakklandsforseti lýsti samúð
með stjórninni í Biafra fyrir tíu
döguxn, hafi orðrómur verið á
sveimi um vopnaflutninga til
Biafra með flugvélum. Viðbrögð
yfirvaldanna hafi verið þau að
skjóta bæri á allar flugvélar á
leið þangað.
I frétt frá Kaupmannahöfn er
sagt að Poul Hartling utanríkis-
ráðherra Danmerkur hafi boða'ð
fulltrúa frá utanríkisráðuneyt-
um Norðurlandanna til fundar
þar á morgun, þriðjudag. Er
ætlunin að ræða þar hugisanleg-
ar sameiginlegar aðgerðir til að-
stoðar bágstöddum í Biafra.
- SJÓRINN
Framhald af bls. 28
h«fði gosið upp stærra bál en
þeir áttu von á.
Strax á laugardagskvöld hófu
starfsmenn stöðvarinnar að
brenna olíu í fjörunni og hreinsa
til og var því sta-rfi haldið áf-ram
á sunnudag og í gær. í gær fóru
starfsmenn stö'ðvarinnar svo á-
samt hafnsögumönnum út á sjó,
en þá fannst sama og engin olía
á sjónum. Sagði Svan,að mestri
olíunn-i hefði nú verið eytt úr
fjörunni og kvaðst hann ekki
hafa orðið var við að hún yrði
fuglum til skaða.