Morgunblaðið - 20.08.1968, Blaðsíða 21
MORGUNB'LAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1968
21
Myndlistarhúsið á Miklatúni í byggingn.
- MINNING
Framhald af bls. 20
væri farin. Þú brást mér ekki,
alltaf jafn trygg og byrjaðir að
senda litlu frænku gjafir og
skrifa mér og svo komstu til okk
ar öðru hvoru. Heimsókn þinni
fylgdi alltaf eitthvað gott og
skemmtilegt, þannig eru allar
mínar minningar um þig. Tíminn
leið og fundum okkar bar sam-
an í Reykjavík, alltaf var ég
með annan fótinn þar sem þú
varst. Það var líka gott að hitta
þig, alltaf góða og glaða, gef-
andi holl ráð þinni ungu frænku.
Þamni’g hefiur þú ávallt neynzt
mér frá því fyrsta til hins síð-
asta, börnin mín öll hefur þú
vafið sama kærleika.
Ánægjulegt var fyrir okkur
hjónin og fjölskylduna alla þeg
ar þú iheimisóttiir okkur hér á ísa-
fjörð, vildi það hefði getað verið
oftair. Margt var rifjað upp þeg-
1 ar við ókum hér um á lognkyrru
kvöldunum, og Snæfjallaströnd-
in, æskustöðvar þínar, blöstu
við.
Að lokum, elsku Dóra frænka,
vil ég og fjölskylda mín öll,
þakka þér alla þína tryggð og
vináttu, þakka þér hlýju brosin,
nærgætni þína og kærleika, sem
þú áttir í svo ríkum mæli og
veit ég að það fundu vinir þínir
aðrir á lífsleiðinni. Ég bið þér
allrar guðs blessunar, megi kær-
leikans sól umvefja þig í hin-
um nýja heimi. Frænda mínum,
Gísla Hauki, konu hans og börn
um, sendum við hjartanlegar sam
úðarkveðjur.
Ragnhildur Helgadóttir
4
Myndlistarhúsið að rísa á Miklatúni
í SUMAR var byrjað á byggingu
Myndlistarhússins á Miklaitúni
og er verkið í fullum gangi.
Veggir eiru að koma upp, en
byggingin er 2090 fermefcrar á
aðalhæð og geymslukjallari und-
ir, hluta af húsinu. Arkitekt
myndiis’tarhússins er Hannes
Davíðssom, en byggimgarfélagið
Dagfari s.f. hefur tekið að sér
byggingu þess. Hefur verið sam-
ið um að 'því verði ski'lað upp-
steyptu og fullfrágengnu að ut-
an á 18 mánuðum.
í húsinu á bæði að vera al-
menmur sýningarsa'lux, er kemur
í stað Listamanmaskálams gamla,
og einnig annar salur með föst-
um Jistsýningum. Þá er þar kaffi
hús, svo fólk geti sezt niður og
fengið sér kaffisopa og er það
á sumrin í góðum tengslum við
garðinn. Er húsið vinkilbyggt og
glerhliðar að garðinum.
M'bl. spurðist fyrir um bygg-
inguna "hjá Hannesi Davíðssyni
arkitekt, sem sagði að hún gengi
vél. Þegar verktakar skila hús-
inu frágengnu að utan, er enn
talsvert verk eftir. Hve langan
tíma það tekur, sagði Hannes að
færi eftir því hve mikil áherzla
verður á það lögð að flýta verk-
inu, en búast mætti við álíka
löngum tíma í að fullgera húsið,
sem að steypa það upp að utan.
- DEMÖKRATAR
Framhald af bls. 1
immar. Þeir segja að það hhljóti
samt að vera Humphrey mjög í
hag ef honum tekzt að koma
íram málamiðlunartillögu innan
dagskrárnefndarinnaT þar sem
viðkvæimustu 'hliðar Vietnamdeil
unnar verði sem minnst ræddar,
því að hann muni ekkert græða
á því að þær milljónir kjósenda,
sem fylgjast munu með flokks-
þinginu í sjónvarpi, sjá hve klof-
inn flokkurinn sé um Vietnam.
Humphrey hefur enn ekki lát-
ið í það skíma á noktourn hátt
hvernig bamn muni leysa Viet-
namdeil'una, verði hann kosinn
forseti, en hann hefur undanfar-
ið nálgast McCarthhy nokkuð í
þeim efnum. Hanm hefur gengið
svo langt að segja að skoðanir
hans og Robert heitinis Kenne-
dys hafi verið mjög líkar. Hvað
til er í þessari staðhæfingu mun
fcoma gerst fram, er Edwaxd
Kennedy flytur ræðu sína til
bandarísku þjóðarinnar n. k. mið
vifcudag, þar sem hann mun láta
1 ljósi afstöðu sína til utanríkis-
mála landsins. Margir telja að
Kennedy muni þá leggja til að
flokfcsþingið samþykki ályktun-
artillögu um Vietnam, sem likist
skoðunum og stefnu þeirra Ro-
berts heitins Kennedys, McCart-
hys og McGovers. Ræðu Kenne-
dys er beðið með mikilli eftir-
væntingu og varð að flytja fund-
arstaðinn í stærri húsakynni til
þess að allir þeir háttsettu og
mikilsvirtu menn í bandarísku
þjóðlífi, er sóttust eftir að kom-
ast í sjálfan ræðusalinn, fengju
sæti. Allar bandarísku sjónvarps-
stöðvarnar munu sjónvarpa og
útvarpa ræðunni um gervöB
Bandaríkin.
- „PRAVDA“
Framhald af bls. 1
að verkamenn í verksmiðjum í
Tékkóslóvakíu sem hlynntir séu
Sovétríkjunum og stuðningsríkj-
um þeirra verði fyrir aðkasti.
Hafi frjálslyndu öflin svonefndu
ýtt undir allskyns flokkadrætti
og átök, sem séu til þess eins
fallin að sundra þjóðinni og
flokknum. Til dæmis hafi 99
verkamenn í bílaverksmiðju í
Tékkóslóvakíu sem nýlega gagn-
rýndi umbótastefnuna, verið of-
sóttir af vinnufélögum og sé
slík framkoma algerlega andstæð
loforðum stjórnar Tékkóslóvak-
íu.
— Sænska stjórnin
Framhald af hls. 1
Grikklandi en stjórnin hafi ekki
skýrt frá þeim að tveimur undan
teknum.
Tilkynningar voru birtar um
þessa starfsemi sama dag og til-
ræðið var gert. Hafa þær allar
verið undirritaðar „gríska and-
spyrnan“ og sendar á ensku,
grísku og frönsku frá „Upplýs-
ingamiðstöðinni" fyrir Vestur-
Evrópu, París.
Prá Aþenu berast þær fregn-
ir, að átta menn hafi verið hand
teknir í dag, mánudag, grunaðir
um aðild að tilræðinu við forsæt
isráðherrann. Hafi þeirra á með-
al verið George Antonakos mar
skálkur, fyrrum yfirmaður flug-
hersins, Antohny Rozakis, fyrr
fyrrum yfirmaður gríska flotans
fyrrum aðstoðarmaður Konstan-
tíns konungs, ónafngreindur og
tveir aðrir foringjar úr flughelrn
odi og flotamuim. Öllum hafði ver
ið vikíð úr hernum áður vegna
meintrar aðildar að byltingartil-
raun Konstantíns konungs í des-
ember sl. Þá er sagt að þrír með-
limir Miðflokkasambandsins til
viðbótar hafi verið handteknir,
Manelaos ZylosrLs, Constantine
Koniotakis og Christos Avrami-
dis.
Stjórnin gríska hefur harð-
lega neitað þeim staðhæfingum,
að pólitískum föngum hafi verið
misþyrmt í Grikklandi að undan
förnu. Segir í opinberri tilkynn
ingu hennar, að enginn þeirra
manna, sem handteknir voru
vegna tilræðisins við Papadopol
os hafi sætt illri meðferð. Þá er
haft eftir talsmanni grísku
stjórnarinnar, að Andreas Pap-
andreou, sonur George Papan-
dreous beri hluta af ábyrgðinni
á tilræðinu og sömuleiðis segir
dagblað eitt í Aþenu að sænska
stjórnin sé meðsek, m.a. hafi til-
ræðismaðurinn játað, að hafa not
ið fjárstyrks frá Andreasi Pap-
andreou sem nú njóti verndar
sænska ríkisins. Sænska stjórnin
hafi leyft honium að nota sænskt
landsvæði tB glæpsamlegra að-
gerða gegn Grikklandi og veitt
honum stöðu sem prófessor. Þar
með hafi sænska stjórnin fallizt
á að Svþjóð verði dregin inn í
endann á. Segir í blaðinu, að
Svíum væri betra að láta nú af
fjandskap sínum við Grikkland,
enda sæmi það ekki sósíalistísku
lýðræðisríki sem Svíþjóð að
styðja fasista og kommúnista-
hreyfingar eins og þá, sem And-
reas Papandreou starfi fyrir.
Gríska stjórnin hefur ennfrem
ur gert að umtalsefni áskorun
Papanderous til ferðamanna að
fara ekki til Grikklands. Segir
stjórnin þessa áskorun Papan-
dreous sýna enn sem áður, að
hann hafi glatað öllum tilfinning
um til Grikklands. Staðhæfir
stjórnin, að þrátt fyrir áskorun
hans hafi 19.233 ferðamenn heim-
sótt Grikkland síðustu fjóra
daga, en 18.059 á sama tíma í
fyrra.
Papandreou hefur upplýsit í
Stokkhólmi að gríska neðanjarð-
arhreyfingin, sem hann starfi
fyrir hafi staðið að baki tilræð-
inu við Papadopoulos og spreng
ingunum í Grikklandi en aðgerð-
irnar séu skipulagðar í Grikk-
landi sjálfu.
í frétt frá Izmir er frá því
skýrt, að gríski efnahagssérfræð-
ingurinn, Constantine Mitzotak-
is, fyrrum áætlunarmálaráðherra
hafi flúið land, til Tyrk-
lands og beðizt hælis sem póli-
tískur flóttamaður unz hann geti
haldið áfram ferð sinni tB Aust-
urríkis. Mitzotakis flúði á
skemmtisnekkju ásamt vini sín-
um.
HAFSTEINN BALDVINSSON
HÆSTARÉTTARIÖGMAÐUR
AUSTURSTRÆTI 18 III. h. - Síml 2173S
Tannlækningastofa
Nálægt Miðborginni er til leigu tannl'ækningastofa
í fyrsta flokks ástandi, búin fullkomnum tækjum.
Upplýsingar gefur
BERGUR BJANASON, HDL.,
Óðinsgötu 4 — Sími 20750
kl. 10—12 og 13—15.
Sjúkraþjálfarl
eða nuddkona
óskast nú þegar til starfa að Elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Sólvangi, Hafnarfirði. FuBt starf eða hálft starf
er um að ræða eftir samkomulagi.
Sólvangi, 19. ágúst 1968.
Forstjórinn.
KAUPMENN - KAUPFÉLÖC
STÍFELSI f TÚPUM
Höfum fengið sænska stífelisið
STÁRKE
50 og 150 gramma túpur í fal'legum pakkningum og á góðu verði.
Heildsölubirgðir
S. Óskatsson. &. (Zo.ý Heildverzlun, Garðastræti 8, sími 21840.
TORUTSALA
kvenskóm
hafin
nfslóttur
SKÓ6ÚÐ AUSTURBÆJAR
LAUGAVEGI 100