Morgunblaðið - 04.09.1968, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPT. 1&68
5
„Hingað koma allir af fúsum vifja“
— XTiðtal við Óskar Jónsson, hjúkrunarmann í Arnarholti á
Kjalarnesi, sem er á törum til sérnáms í geðhjúkrun í Noregi
MARGT hefur verið ritað og
rætt um sjúkdóma og meðferð
þeirra. Áður fyrr var það hald
manna, að þeir væru húskross, er
ekki væri hægt að losna við, en
síðustu ár hafa viðhorf breytzt.
Skilningur virðist þó fara vax-
andi á þeim sjónarmiðum að þess
ir sjúkdómar séu rétt eins og
aðrir, læknanlegir ef skilyrði
eru fyrir hendi, þ.e. sjúkrarúm
á geðdeildum almennra sjúkra-
húsa og sérmenntað starfsfólk til
hjúkrunar, lækninga og endur-
hæfingar.
— Arnarholt á Kjalarnesi er
staður, sem margir vita af, en
fáir vita deili á. Óskar Jónsson
hefur verið hjúkrunarmaður þar
i sex ár, eða frá því er hann
útskrifaðist úr Hjúkrunarskól-
anum 1962. Hann var einn við
hjúkrunina fyrstu fimm árin, og
má því ætla, að reynsla hans af
Arnarholti sé athyglisverð.
Hvað er Arnarholt?
Thor Jensen hafði á sínum
tíma kúabú hér, en í stríðslok
eignaðist borgin Arnarholt og lét
innrétta það sem vistheimili.
Það var rekið sem slíkt á vegum
framfærslunnar, þangað til fyr-
ir nokkrum árum, að Sjúkrahúsa
nefnd Reykjavíkur tók við
rekstrinum. Síðan hefur Arnar-
holt þróazt í að verða geðsjúkra-
hæli, með 60 sjúkrarúm.
ég verð frá næsta ár. Auk þess
eru hér fimm starfsstúlkur og
einn maður á næturvakt. Við
höfum aðgan-g að sjúkraþjáifara,
sem kemur eftir þörfum á vet-
urna. Félagsráðgjafi hefur kom-
ið hingað reglulega, en yfirlækn-
ir hælisins er Kristján Þorvarð-
arson, sérfræðingur í tauga- og
geðsjúkdómum.
Hvernig gengur að fá starfsfólk
hingað?
Það hefur gengið ágætlega að
fá starfsstúlkur hingað núna.
Þetta er ungar konur á aldrinum
16 ára til þrítugs, sem sumar
inlega seíustofu og eldhús, sem
þær geta notað að eigin vild.
Allt er þetta byggt á mjög ný-
tízkulegan og ha-gkvæman hátt.
Hvernig er búið að sjúklingum?
Flestir eru á eins- eða tveggja
manna herbergjum, með nafn
sitt á hurðinni. Herbergin eru bú
in rúmi, fataskáp, borði, stól,
myndum, blómum og að öðru
leyti persónulegum hlutum ein-
staklingsins. Hver hefur sín eig-
in föt yzt sem innst. Ókunmug-
um kann að þykja þetta furðu-
leg upptalning, en þessir hlutir
hafa 'því miður ekki ailtaf þótt
sjálfsagðir á geðsjúkraihælum.
býli og helzt í tengslum við al-
rnennt sjúkraihús, eða sem hluti
af því. Hvað viðvíkur hæli sem
Arnarholti, þá er í fyrsta lagi
óhagkvæmt að þurfa að flytja
sjúklinga langa leið til að leggja
þá inn á sjúkradeild, sem ekki er
óalgengt. í öðru lagi hefur það
slæm áhrif bæði á sjúklinginn og
samfélagið að ákilja þetta að,
þ.e. að sjúklingum og aettimgjum
þeirra finnst að verið sé að taka
þá úr umferð. Aftur á móti er
staðurinn að mörgu leyti heppi-
legur fyrir þann hluta sjúkliimga,
sem endurhæfing kemur ekki til
greina á við núverandi aðstæður
til lækninga og hjúkrunar. Hér
er rólegt og fallegt, og staðsetn-
ingin gerir kleift að hafa hælið
opið, þ.e. opin deild fyrir lang-
dvalarsjúklinga.
samband við THNGLA, sem er
hreyfing fólks, er vinnur að því
að koma á og viðhalda temgslum
sjúklinga við umheiminn með
félagslegu starfi á geðsjúkrahús-
um. Þeir heimsóttu okkur viku-
lega síðastliðinn vetur og fcomu
á spilakvöld, skemmtanir og
dans. Einnig var farið í leikhús-
ferðir og ekki má gleyrna vor-
fagnaði TENGLA í Templaraihöll
inni, sem sjúklingum otg starfs-
fólki var boðið til. Nú í sumar
hefur heimsóknum verið haldið
áfram, og ennfremur hafa
TENGLAR tvisvar skipulagt
eins dags skemmtiferðir, sem
hafa tekizt mjog vel. ALH hefur
þetta breytt andrúmslofti mjög
til batnaðar og þeir eru margir,
sem hlakka alltaf til komu
TENGLA. Tel ég starf þetta veiga
mikinin þátt í félagslegri endur-
hæfingu sjúklinga.
Heimsóknir ættingja og vina?
Það eru engir ákveðnir heim-
sóknartímar, en aðstandendur
og vinir eru velkomnir alla
daga. Það er dálítið áberaindi í
sambandi við heimsóknir, að
þær eru nokkuð þéttar í fyrstu,
en fækkar smátt og smátt og
alltof stór hluti sjúklinga fær
sjaldan eða aldrei heimsóknir.
Þó eru einstaka sjúklingar,
sem fá alltaf réglulega heim-
sókn, sem er geysimikilsvert.
Það skiptir öllu máli fyrir geð-
sjúklinga, að tengsl' þeirra við
heimilin rofni ekki, þeir sem þá
eiga heimili. Bréfaskriftir og
símhringingar eru líka mikils
virði. í raun er það ómælanlegt,
hvað samband sjúklinga við
heimili og vini eða samfélagið í
heild er mikils virði. En sjá má
þó, hve þeir sjúklingar, sem heim
sókn fá eru hamingjusamari.
hverjar hafa unnið á sjúkrahús-
Arnarholt á Kjalarnesi.
Hvernig sjúklingar eru í Arnar-
holti?
Geðsjúklingar okkar eru flest-
ir geðveikir langlegusjúklingar
(psychoses). Sumir eru þó hug-
sjúkir eða „taugaveiklaðir", eins
og það er kallað (neuroses) og
um Ve drykkjusjúklingar. Af
öðrum stofnunum koma hingað
oft þeir, sem eru búnir að vera
lengi sjúkir, og sem tekur lang-
an tíma að hjálpa. Einnig er
þetta gjarnan í þeim tilgangi að
rýma til á stofnunum í Reykja-
vík fyrir sjúklingum, sem þarfn-
ast og læknast af skjótri með-
ferð.
Hvernig er skipting milli kynja?
Karlarnir eru fleiri, og veit ég
ekki um annað geðsjúkrahæli,
sem hefur fleiri karla en konur.
Hér er rúm fyrir 40 karla og 20
konur. Fólkið er frá 16 ára aldri,
en flestir á milli fertugs og
fimmtugs,
Hvaða starfsfólk er hér til
hjúkrunar?
í fyrra fékk ég ágætis hjúkr-
unarkonu mér til aðstoðar, þann
ig að við erum búin að vera tvö
núna í eitt ár. Þetta er auðvitað
allt annað líf, frá því að vera
einn. Hún tekur svo við, meðan
þegar þær koma. Annars hef ég
yfirleitt verið heppinn með starfs
fólk. En það er sérmenntað
starfslið sem vantar.
Fyrir hvaða starfsfólk er þörfin
brýnust?
Geysilegur skortur er á hjúkr-
unarkonum. Hér eru allir undir
lyfjameðferð, sem enginn má
veita nema hjúkrunarfól’k. T.d.
nú í sumar vantar hingað sérlega
hjúkrunarkonu til afleysingar.
Staðið hefur yfir mikil leit, sem
reynzt hefur árangurslaus hing-
að til, og er þessu hér með kom-
ið á framfæri. Með annað starfs-
fólk fer þetta að sjálfsögðu eftir
þeim kröfum, sem gerðar eru.
Það, sem ég vildi fá fyrst núna,
eru iðjuþjálfarar, þ.e. sérmennt-
að fólk í handavinnu, myndlist,
músík o.s.frv. til endurhæfingar
geðsjúkdómum.
Hvernig er aðbúnaður
starfsfólks?
Sérstaklega góður Nýtt starfs-
mannahús var tekið í notkun
fyrir þrem árum síðan. Er hér
um að ræða íbúðir fyrir hjúkr-
unarfólk, og ráðskonur, en ein-
staklingsherbergi fyrir starfs-
stúlkur. Þær hafa einnig sameig-
Hvað er gert til að lækna?
Meðferðin er í fyrsta lagi
lyfjameðferð. Þótt ekki sé að-
staða né starfsfóik til að stunda
sállækningar (psychotherapy),
þá er margt gert til afþreyingar.
Hér er bókasafn með á sjötta
hundrað bóka, sem er mjög vel
sótt. Safnvörður er einn sjúkling
ann-a, sem stundar starf sitt af
mikilli kostgæfni. Sjónvarp er í
dagstofunni og sumir hafa keypt
sér útvarps- eða sjónvarpstæki
á sín herbergi.
Vinna sjúklingar fyrir launum
á hælinu?
Já, þeir sem vinnu hafa, fá
greidd laun. Langflestar kon-
umar vinna við hælið, í eldhúsi,
borðstofu, ræstingu, saumaskap
o.fl. Erfiðara er með karlmenn-
ina. Þar vantar okkur mjög iðju-
þjálfara, enda virðist ekki vera
völ á slíku fólki í laindinu. Samt
týnast til hin og þessi störf í
útivinnu, svo sem í garðyrkju
eða hellusteypun og heyskap á
sumrin.
Staðsetning Arnarholts sem
geðsjúkrahælis?
Geð- og taugadeildir eiga sam-
kvæmt mínu áliti að vera í þétt-
Er þá enginn hér gegn vilja sín-
um?
Nei, hingað koma allir af
frjálsum vilja, og hér er enginn
sviptur sjálfræði. Nefna má, að
þátttakan í forsetakosningunum
var um 50%, sem blýtur að telj-
ast gott miðað við önnur sjúkra-
hús.
Hve lengi dvelja sjúklingar hér?
Allt frá nokkrum dögum, upp
í fjölda ára. Einstaka sinnum
líkar fólki ekki staðurinn og
kemur sér fljótt í burtu, annað-
hvort heim eða, ef heppnin er
með, á önnur sjúkrahús, ef laust
rúm finnst. Aðrir hafa svo verið
hér fjölda ára. En dvaldartíminn
er að styttast, eins og útskriftir
sína. Þær aukast með hverju ár-
inu, sem líður — með bættri
þjónustu. — Fyrir fimm árum
voru útskriíaðir 15—20% en eru
nú 50—60%. Skilningur og
áhugi borgaryfirvalda til bættr-
ar geðheilbrigðisþjónustu er fyr-
ir hendi, sem nýja geðdeildin á
borgarspítalanum er gleggst
dæmi um.
TENGLAR — samband við um-
heiminn.
Snemma í vetur komst ég í
Bæjarferðir?
Engar áætlunarferðir eru frá
Arnarholti, og veldur það að
sjálfsögðu erfiðleikum. En Arn-
arholt hefur nú eignazt 15 manna
bíl, sem sannarlega kemur að
notum. Sjúklingar fara dag og
dag í bæinh eða yfi.r helgar og
dvelja hjá fjölskyldum sínum.
Reynt er að hvetja fólk til bæjar
ferða.
Ferð þín til Noregs?
Eftir sex ára starf hér hef ég
fengið ársfrí frá störfum og fer
til Noregs í sérnám í geðhjúkr-
un. Skortur á sérmenntuðuðu
hjúkrunarfóiki er hvergi gífur-
legri en á þessu sviði. Má benda
á, að af um 350 starfandi hjúkr-
unarkonum er, að ég yeit, aðeins
ein sérmenntuð í geðhjúkrun,
þótt geðsjúklingar séu í þriðj-
ungi sjúkrarúma landsins.
Ég fékk skólavist í geðhjúkr-
unarskóla norska ríkisins, sem
hefúr gott orð á sér. Ég verð á
launum hluta námsársins frá
sjúkrahúsnefnd en fæ einnig
styrk frá Evrópuráðinú. Án
þessa hefði þetta ekki orðið
mögulegt, ekki sízt þar sem ég
er fjölskyldumaður. Þetta er 12
mánaða nám, bóklegt og verk-
Framhald á bls. 1C
STÚRllTSALA — síðasta vika
IJIIarkápur, terylenekápur, plast-regnkápur, dragtir
og buxnadragtir frá kr. 1400.OO.
Síðbuxur, peysur, pils, sumarkjólar, crimpelinkjólar, jerseykjólar
frá 190.oo kr. og tækifæriskjólar frá 290.oo kr.
Stórkostleg verðlækkun
KJÓLABÚÐIN MÆR, Lækjargötu 2.