Morgunblaðið - 04.09.1968, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPT. 1968
11
Óóýr saltvinnsla vegna orkulindanna
býður heim f jölbreyttari sjdefnavinnslu
Rcztt vf- Baldu Líndal, efnaverkfrœðing
ísland er fátækt land af
vinnslnhæfwm efnum. En eyj
an er umhikt sjó er hefur að
greyma Heiri uppleyst efni og
efnasambönd, sem notuð eru
og eru 5Ö uhæf á heimsmark-
aðinum. en flest okkar gera
sér ljóst. Stendur nú yfir
gagngerð rannsókn á því
hvort tilt^kilegt sé og hag-
kvremt að vinna þessi efni
hér, og fékk sérstök nefnd á
vegum Rannsóknarráðs ríkis-
ins þetta rannsóknarverkefni
á sl. ári. Ýmislegt kemiir til |
greina varðandi ákvarðanir i
um hugsanlesra sjóefna- j
vinnslu, því ekki er ísland
eina landið með aðgang að
sjó. Því fer fjarri. Og stofn-
kostnaður slíkrar vinnslu er
hár.
Um 20 ára skeið hefur Baldur
Uíndal, efnavarkfræðingur, unn-
ið að rannsóknum varðándi nýt-
ingu jarðgufu í sambandi við
iðnað, m.a. vinnslu salts og fleiri
efna úr sjó, og er hann manna
kunnugastur þessum málum.
Mbl. leitaði því til hans um
fræðslu. Ræddum við um sjó-
efnavinnslu almennt og mögu-
leika Islendinga á því sviði.
—• Það sem við erum í raun-
inni að gera, er að leita að leið
um til að notfæra okkur nátt-
úruauðlindir fslands, svo sem
orkuna, sem er að grundvelli til
einstaklega hagkvæm og gefur
góða efnahagslega möguleika,
sagði Baldur eftir nokkurt rabb
fram og aftur. — Til að geta
notfært okkur þessa orku, þurf-
um við hráefni, helzt hráefni,
sem ekki strax þrjóta. Haldgóð
hráefnalind er mjög mikilvægt
atriði nú á dögum, því fjárfest-
ingin er oft há og því þarf að
byggja til langs tíma. Það hefur
komið okkur til þess að snúa
okkur að þeirri óendanlegu hrá-
efnalind sem sjórinn er, þó það
kunni að kosta okkur miklar
bollaleggingar og skipulagningu
að finna leiðir til að nýta hana
á raunhæfan hátt.
— Við höfum sem sagt nóg
af sjó, sem fullur er af alls kyns
efnum. En í hverju liggja erfið-
leikarnir?
— Frá hráefnalegu sjónar-
miði er sjórinn að sjálfsögðu
mjög öruggur. Hins vegar er af-
ar erfitt að komast inn í efna-
vinnslu sem þessa, án þess að
hafa á einhvern hátt sérstöðu.
Allir hafa yfir sjó að ráða. Hvers
vegna skyldum við þá fremur
fara að vinna úr honum en aðr-
ir? Svarið er, að við gerum okk-
ur vonir um að finna og nýta
það sem er betra en sjór í þessu
sambandi og að það muni lyfta
okkur yfir þá örðugleika sem
við er að =tja.
— Og það er?
— Okkar góða samkeppnis-
aðstaða ætti að liggja í orku-
lindunum. Út af fyrir sig fáum
við enga sérmöguleika með efn-
unum í sjónum. Ef aðeins væri
um það að ræða að nýta þau, þá
get ég ekki séð að það skipti
verulegu máli fyrir okkur. Þesisi
efni eru hreint ekki óalgeng og
þeirra vegna mundum við ekki
ná sérstakri samkeppnisaðstöðu.
— Þessar orkulindir? Er það
raforka eða jarðhiti?
— Hvort tveggja. Þarna er um
að ræða orkufrekan iðnað. All-
ir kannast við raforkunotkun-
ina í þessu sambandi. En hins
vegar er færra fólki það ljóst,
hve geysimikla möguleika jarð-
hitinn gefur sem hjálparmeðal
í efnaiðnaði. Hitaorka er afar
sterkur þáttur í framleiðslunni.
Verðið á henni getur haft mikla
þýðingu í efnaiðnaði. Og raf-
orku getum við framleitt nærri
helmingi ódýrara en þróuðu iðn
aðarþjóðirnar gera. En hitaork-
an hjá okkur getur verið 5—10
sinnum ódýrari en sú hitaorka,
sem almennt er notuð. Það er
einmitt þetta, sem við erum að
reyna að koma þarna að, þ.e.
að finna leiðir til að nýta sem
allra bezt þessa tvo meginþætti
raforku og jarðhita.
— Við mundum þá ekki vinna
efni úr sjó með sömu aðferðum
og aðrir?
— Vinnslunni þarf að haga
öðru vísi hér, miða hana við okk
ar aðstæður. Allt er undir þvi
komið að við getum lagað hana
sem mest eftir þeim náttúrulegu
aðstæðum, sem hér eru fyrir
hendi. Við megum ekki reikna
með að gera þetta eins og aðr-
ir. Það er alveg út í hött.
— Nú eru mörg efni í sjón-
um. Hvaða efnum er sérstaklega
verið að sækjast eftir?
— í bili salti. Eins og aðstæð-
urnar eru hér, þá er um að gera
að framleiða saltið nógu ódýrt.
Það hefur svo almennt gildi sem
undirstaða efnaiðnaðar. Og ein-
mitt er verið að kanna mögu-
leikana á ódýrri framleiðslu á
því. Til þess að unnt verði að
koma upp alhliða og nokkuð ör- I
uggum efnaiðnaði hér, þurfum
við fyrst að fá salt. En það væri
tilgangslaust að geta unnið salt,
án þess að hafa aðila, sem get- I
Baldur Líndal.
ur tekið á móti því og þarf á
því að halda. Því þarf líka að
rannsaka hvaða möguleikar
gætu verið fyrir hendi á notkun
þess.
— Þá skilst mér að þið séuð
ekki bara að hugsa um að vinna
salt? Er þá um margar verk-
smiðjur að ræða?
— Já, í rauninni Þetta geng-
ur stig af stigi. Uppbyggingin í
þessum iðnaði gengur þrep af
þrepi. Sem dæmi um slíkt mætti
tiltaka að á fyrsta stiginu hér
myndu vera framleidd ýmis sölt,
svo sem natríumklórið, magnes-
íumklórið, kalíumklórið eða sul-
fat, og ef til vill fleira. Hér er
um a'ð ræða saltverksmiðjuna.
Auk þess sem hún seldi mikið
af framleiðslunni til fjarskyldra
framleiðslugreina (salt, kalí o.
fl.) myndi hún framleiða hrá-
efnið fyrir annað stigið. Annað
stigið gæti tekið til framleiðslu
léttra málma með raforku, svo
sem magnesiums og natríums
eða fleiri efna. Meginframleiðsl-
an frá þessu stigi yrði seld beint,
en auk þess veitir þetta hrá-
efni fyrir þriðja stigið. Frá
vinnslunni á öðru stigi verður að
gera ráð fyrir töluverðu af klóri,
sem við hana myndast. Klór má
væntanlega selja sem slíkt, en
engu að síður myndi það notað
mestmegnis til að byggja upp
ýmis lífræn efnasambönd úr efn
um, sem fást í því sambandi við
olíu. í þriðja stiginu má þannig
framleiða plasttegundir og fleira,
sem við myndum hafa áhuga á.
Það annað, sem kæmi til greina
á þriðja stiginu, er framleiðsla
á títaníum, sem er einn hinna
léttu málma. Auk títanum-hrá-
efnis þarf til þess klór og natr-
íum, sem fáanlegt er frá næsta
stigi á undan. Hér er þannig
um möguleika á fjöldamörgum
verksmiðjum að ræða.
— Gæti verið um sölumögu-
leika að ræða á öllum stigum?
— Já, en þeim mun hærra er
verðið sem lengra er komið úr-
vinnslunni.
— Hvaða grunnefni eru að-
gengilegust?
— Það sem við köllum sjó-
efnavinnslu er breytt svið og
nær til allra efna, sem eru í
sjónum. Við höfum verið að
reyna að átta okkur á því á
hvaða sviði er aðgengilegast að
bera niður, á hvaða sviðum við
gætum beitt okkur jneS árangri
í þessu mikla efnahafi, sem um
er að ræða. Þegar rannsókn okk-
ar byrjaði, voru 40 efnasambönd
og hrein efni hugleidd, en við
athugun varðandi tækni, hrá-
efnaleg atriði og markaðsatriði
fækkaði þeim fljótt, svo að að-
alframleiðsluefnin sem eftir
verða, voru aðeins sex, en að
auki efni, sem fást með annarri
aðalframleiðslu. Aðalframleiðslu
efnin byggjast reyndar á tveim
ur aðalsöltunum í sjónum, natrí
umklóríði og magnesíumklóríði,
en þetta eru einmitt þau sölt,
sem hafa mest verðmæti miðað
við sjávarmagn.
— Hafið þið ekki eitthvað sér
stakt í huga af unnum og dýr-
mætum efnum?
— Jú, t.d. mundi vinnsla á
magnesium hæfa okkar aðstæð-
um vel að mínum dómi. Og fleira
gæti komið til greina í þessu
sambandi.
— Magnesíum er mjög verð-
mætt efni, er það ekki?
— Jú, það er verðmætara en
ál. Söluverð er hærra á heims-
markaðinum.
— Er það mikil og margbrot-
in vinnsla?
— Ojá, maður þarf að vinna
önnur efni með. Heildarfram-
leiðslukerfið er því umfangs-
mikið á þessu sviði hér á landi.
— Manni skilst, að stofnkostn
aður sé ákaflega hár. Er hægt
að gefa hugmynd um hann?
Hleypur þetta á milljónum, tug
um milljóna eða hundruðum
milljóna?
— Saltverksmiðjan myndi
kosta nokkur hundruð milljón-
ir. Hins vegar myndi heilsteypt
framleiðslukerfi á þessu sviði
miklu fremur kosta 2 þúsund
milljónir.
— Hvert er umfang slíkrar
vinnslu? Hve mikið magn af sjó
efnum gerið þið ráð fyrir að
hægt verði að vinna?
— Það fer eftir þvi hve sjó-
efnavinnslan er ákveðin víðtæk.
Reikna má með að saltverksmiðj
an muni vinna 150—250 þús.
tonn á ári. Markaðurinn nú er
50 þús. tonn innanlands og það
sem umfram yrði, það færi til
áframhaldandi sjóefnavinnslu.
— Nú hafa rannsóknir staðið
um nokkurt skeið. Eru þær langt
komnar?
— Það hefur farið fram mikil
undirbúningsvinna. Samt er enn
eftir ákvarðandi rannsókn. Fyrsti
þátturinn 1 henni eru þessar bor
anir, sem nú fara fram á Reykja-
nesi. Þar háttar svo til, að á
hverasvæði streymir upp heitt
vatn, sem er miklu saltara en
venjulegur sjór. Hvað það er?
Það er væntanlega sjór, en þann
ig umbreyttur að önnur efna-
samsetning kemur fram. Þetta
hefur mikla kosti og mundi gera
vinnsluna miklum mun einfald-
ari.
— f hverju liggja aðalkost-
irnir?
— Aðalkosturinn liggur í þvi
að ódýrara verður að vinna salt
ið á þennan hátt. Efnasamsetn-
ingin er miklu aðgengilegri en
er í sjónum. Kalíuminnihaldið
er líka miklu hærra. Það eykur
verðgildi salta hveravatnsins og
hjálpar til við að koma þessari
vinnslu í gang. Vel seljanlegt
aukaefni mundi bæta mjög að-
stöðuna.
— Fæst nægilegt magn af
þessu salta hveravatni á Reykja
nesinu?
— Við gerum okkur góðar von
ir um að þar fáum við nóg af
söltu hveravatni til að geta fram
leitt mikið magn af salti. En bor
anir eiga að sýna endanlega
fram á, hvort þær vonir eru
raunverulega á rökum reistar.
Gosið úr fyrstu borholunni, þeg
ar hún var opnuð um daginn,
gaf góðar vonir. Og nú verður
haldið áfram að bora.
— Mundi nokkur annar aðili
vinna þessi efni á sama hátt og
við, nota salt hveravatn?
— Nei, á Reykjanesi eru mjög
óvenjulegar aðstæður. Þó hafa
komfð fram dálitlar hliðstæður
í Kaliforníu, en óvíst að það sé
að öllu leyti eins.
— En loftslagið er mun heit-
afleidd framleiðsla.
ara í Kaliforníu en hér. Hefur
góð aðstaða til kælingar ekkert
að segja í þessu sambandi?
— Jú, kælingaraðstæður hafa
oft mikla þýðingu í efnaiðnaði, og
er það sérstaklega mikilvægt í
þessu tilfelli. Á Reykjanesi mynd
um við nota sjóinn í þessu skyni.
Hins vegar ber mér ekki að neita
því, að hin sólvernda Kalifornía
hafi sína sérstöðu líka.
— Hvað er næsta skrefið eftir
að rannsókn ar lokið með borun-
um?
— Ef við getum framleitt nógu
ódýrt salt munu allar dyr standa
okkur opnar.
Meira vildi þessi gætni maður
ekki um þetta segja á þessu
stigi málsins, og við þökkuðum
Baldri Líndal fyrir fræðsluna um
þetta mikilvæga mál, sem ráða-
menn hafa sagt að mundi verða
okkar næstu stórframkvæmdir í
iðnaði eftir að áliðnaður er kom-
inn í gang. — E. Pá.
Efnamagn og verðgildi efna í 100 tonnum af sjó:
Natríum sem salt
Magnesíum sem magnesíumoxíð
Magnesíum sem málmur
Brennisteinn sem natriumsúlfat
Kalíum sem kalíumklóríð
Bróm sem brómvökvi
Kalsíum sem kalsíumoxíð
Bór sem bórax
Strontíum sem strontíum-súlfat
o. s. frv.
Þungi í kg Verðm
2680 2600
211 850
127 3600
392 550
72 170
6,5 150
56 65
2,6 10
2,7 9
í kr.
Sjóefnavinnsla og
Sjor
Skeljosondur
Ohusombond
TÍIoníum oxítf
Sumarútsalan heldur úfram aðeins í dag
KARNABÆR tískuverzlun unga fólksins Týrsgötu 1 sími 12330