Morgunblaðið - 05.09.1968, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1968
f
V
0 „Kom á óvart“
Hér er ánægjulegt bréf frá Á.E.M um
Hótel Borgarnes:
Á ferðum mínum um landið kemst ég
ekki hjá því að verða oft fyrir leiðindum,
vegna vankunnáttu eða kæruleysis margra
þeirra, sem tekið hafa að sér að selja ferða-
mönnum beina, vxðs vegar á hinu fagra
landi okkar
Stundum er það aðbúnaður 1 gistihúsun-
um, svo sem stutt og mjó rúm, ónógurþrifn
aður, sér-staklega í snyrtiklefum og á sal-
ernum, en oftast veldur þó meðferð og
framreiðsla matar óanægju minni. En í síð-
ustu viku lá svo við, að ég varð fyrir
alveg óvæntri ánægju.
Ég gisti í Hótel Borgarnesi, og þar var
ekki í kot vfsað. Er við komuna í anddyri
gistihúsins mætti okkur strax þessi ósvikna
hlýja og prúðmennska, sem er aðall allra
góðra hótelmanna, en er því miður svo allt
of sjaldgæf hér á landi. Þegar eftir innritun,
var okkur fylgt upp I tandurhreint gisti-
herbergi með smekklegum húsgögnum og
öllu þvi, sem þar þarf að vera.
Þegar komið var fram á salerni, það sem
hótelgestunum er ætlað að nota sameigin-
lega, ljómaði þar allt af hreinlæti og snyrti-
mennsku. Það vakti strax athygli mína, að
á vegg yfir salernisskálinni var kassi með
eérstökum setuklæðum úr pappír, vatns-
vörðum, sem hver notandi fær til að breiða
á salemissetuna og fleygir síðan. Þama er
á ferðinni mjög þörf nýjung, sem ég hefi
hvergi séð hér á landi, nema í Hótel Borg-
arnesi, þó svo að þetta sé vel þekkt á fyrsta
flokks gisti- og veitingastöðum erlendis.
Þeir sem reka Hótel Borgarnes kunna
sannartega til veika.
Þegar að lokinni snyrtingu, lá leiðin
niður í veitingasal hxíssins, og þar bar allt
vitni um sömu snyrtimennskuna og áður
var lýst, hvítir, tandurhreinir dúkar á borð-
um og brosandi framreiðslustúlkur í hrein-
um og smekklegum búningxxm inntu gesti
kurteislega eftir því, hverjar óskir þeirra
væru. Og hér brá svo við, að þær kunnu að
þéra gesti sína, jafnframt því sem þærgátu
leyst úr spurningum okkar um þá rétti,
sem á matseðlinum voru. En eins og flestir,
sem víða fara um landið, vita, er það fátítt,
að framreiðslustúlkur viti eða vilja vita
neitt um það, sem á boðstólum er.
Meðal þess, sem Hótél Borgames hafði
á matseðlinum að þessu sinni, var lax, en,
eins og allir vita, er hann viða framreiddur
um þessar mundir, en fólk, sem neytir fæðu
sinnar með fullri rænu, forðast yfirleitt að
panta lax á greiðasölustöðum, vegna þeirr-
ar furðulegu meðferðar, sem þessi kjörTétt-
ur fær víðast hvar. Við ákváðum þó vegna
meðmæla framreiðslustútkunnar að borða
laxinn. Einnig á þessu sviði kom Hótel
Borgarnes okkur mjög þægilega á óvart,
laxinn var ekki aðeins fallega framborinn,
ann var frábær fæða, svo frábær, að ég held
að ég hafi aldrei bragðað betri lax, ekki
einu sinni í veiðimannahúsi.
Þegar maður deilir á það, sem ólhæft er,
ber manni einnig að þakka það, sem vel er
gert og þá ekki sízt, þegar það er frábært.
Ég leyfi mér því að biðja þig, Vel-
vakandi góður, að bera kveðjur mínar og
þakklæti þeim ágætu mönnxxm, sem standa
að rekstri Hótels Borgaraess.
Jafnframt mæli ég með hvíldar- og leyfls
dvöl í því góða hóteli, og hvet menn til að
njóta frábærrar laxmáltíðar í hinu sérkenni
lega og fagra klettaþorpi Borgfirðinga.
á. e. m.
0 Seltirningum þökkuíi aíistoð
á Þingvöllum
„Illa haldið fólk á Þingvöllum" skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ég get ekki látið ógert að skrifa þér
nokkrar línur, þó að ég sé litt pennafær.
Við fórum nokkur saman til ÞingvaUa
helgina 27. júU og lentum í vonzkuveðri.
Við vorum svo mörg, að við kamumst
ekki öU í einni ferð á Utlum bíl með allt
okkar dót, þvi að meining var að vera I
viku, og lentum við í basU með að tjalda,
því að stormur og rigning var, sem við
vonuðum að mxmdi batna.
Það stóð maður við veiði skammt frá. Ég
fór og bað hann að hjálpa okkur, sem
hann gerði ekki. Hvað hann sagði, hirði ég
ekki um að segja hér.
En veðrið fór vensnandi, en ekki batn-
andi helgina þá. Og við flossnuðum upp
eftir miðdegi á sunnudag. Það varð að fara
tvær ferðir og vont að koma dótinu saman,
svo blautt sem aUt var, en það má segja,
þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst.
Þarna voru tveir ungir menn að reyna
að veiða, þó að vont væri. Þeir vora svo
elskulegir að taka af okkur fuUt aftxxrsœtið
í bíl sínxxm og töldu það sjálfsagt, þegar
talað var við þá um að taka eitt af okkxxr.
Því vil ég biðja þig, Velvakandi góður
fyrir okkar beztu þakkir til þessara pilta,
sem ég veit ekki hvað heita, en eiga heima
á Seltjarrrarnesi. Svo fljóta og góða hjálp
ber sannarlega að þakka.
Illa haldið fólk á ÞingvöIIum".
0 Það þarf mikið til ........
N. N. skrifar:
„Herra Velvakandi:
Það þarf mikið til þess, að jafn vænjfcært
(en ekki að sama skapi sómakært) fólk og
við íslendingar hrökkvxxm upp úr velferðar
sæluvímudraumum okkar og förxxm að fá
samúð með öðru fólki, a.m.k. ef það býr
lengra í burtu en á Norðurlöndum eða 1
Englandi.
Nú virðist öllum bregða við síðustu at-
burði í Tékkóslóvakíu, en áður stóð öllum
á sama um þetta fólk og aimað, sem býr
undir gerræðisstjórn kommúnista.
Ég þekki nokkuð til þarna eystra og á
góða kunningja bæði í Tékkóslóvakíu og
Austur-Þýzkalandi .Þegar ég hef minnzt á
örlög og kjör þessara kunningja mimxa
undir ráðstjórn sósíalismans, hefur við-
kvæðið jafnan verið á vinnustað mínum
(og jafnvél á mínu eigin heimili): Góði,
vertu ekki með þetta ofstæki. Svo kemur:
Já, þetta er kannske nokkuð slæmt, en
þetta er allt á batavegi. Þetta lagast altt
smám saman .Vertu ekki að nöldra þetta.
Heimurinn er að batna.
£ Er hann ofstækismaður?
Nú ættu augu manna að opnast fyrir því,
að kommxinismi þrífst ekki nema undir ein-
ræði, ritskoðxm og andlegu ófrelsi. Þetta er
ékki frumlega sagt, enda er ég aldrei beð-
inn um að vitna, þegar stóratburðir gerast,
og því ekfci vanur að færa hugsanir mínar
i prenthæfan búning. En gat nokkur virki-
lega orðið hissa á þessu? Varla þeir, sem
samvizkusamlega fylgjast með fréttum.
Nú um stund, meðan menn muna eftir
Tékkóslóvakíu, verður sagt við mig: Já,
líklega hefur þú haft alveg rétt fyrir þér.
En bráðum, þegar allt er gleymt (og fsl-
endingar eru fljótir að gleyma), verður
sagt að nýju:
Góði bezti, vertu ekki með þetta andskot
ans ofstæki.
Einn, sem ann frelsi,
N. N.“.
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Sími 22-0-22
Rauðarárstig 31
\^J siK11-44-44
mum
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
Til leigu
húsnæði í Miðborginni, hentugt fyrir skrifstofu- eða
læknastofu.
Upplýsingar eftir kl. 6 í síma 14435—32419.
Verksmiðjustarf
Reglusamur maður óskast til starfa í verksmiðjunni
Varmaplast við Kleppsveg.
Upplýsingar gefnar hjá
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO., Suðurlandsbraut 6.
HAHST - IJTSALA
Okkar árlega haustútsala stendur aðeins fáa daga. — Gerið reglulega góð kaup.
LAUGAVEGI 26
BÍLALEIGAN
AKBRALT
SENDUM
SÍMI 82347
Húsgögn frá
Kaupið núna
það borgar sig
Ul
» 1
1
mn m\ 3
Simi-22900 Laugaveg 26
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstaett leigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 01743.
Sigurður Jónsson.