Morgunblaðið - 05.09.1968, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1968
Hreinlætið of hátt skrifað
— segir frú Frederika Kristinsson frá Hollandi
Hún er arkitekt, frúin sem
við hittum í norðannæðingi inni
í Laugardal milli hlaðinna
veggja úr múrsteini. Hún var
með manni sínum, Jóni Kristins-
syni, arkitekt, og þau reka sam-
an húsagerðar og verkfræðistofu
í Deventer í Hollandi.
Þau útskrifuðust frá háskólan
um í Delft, og hann kennir einn-
ig gerð háhýsa við sama skóla.
Hann hefur skrifað bækling:
„Leiðbeiningar um hleðslu húsa“
aam út kom í júlí, og þegar hefur
hann algerlega haft umsjón með
byggingu nokkurra einbýlis-
húsa.
— Húsin ykkar eru mörg fall-
eg, segir frúin, en það er allt of
mikil röð og regla á þeim, held
ég. Maður á gjarnan að eiga fall-
egt heimili, en það verður að
vera þægilegt. Það má ekki allt
vera svo hreint og fágað, að fólk
þori hvergi að tylla sér, og hafi
nánast á tilfinningunni, að allt
sé bókstaflega dauðhreinsað í
kring um það.
— Finnst yður það?
— Já, húsmæðurnar, held ég
bókstaflega útkeyri sig á hrein-
gerningum.
— Á heimili verður að vera
hægt að láta fara vel um sig, en
það er tæplega hægt, ef ekkert
má fara úr skorðum, án þess að
það þurfi bráðrar lagfæring-
ar við.
— Hvað finnst yður um húsa-
gerðina okkar, annars?
— Ég álít, að þið teyðið allt of
miklum peningum i húsin ykkar.
Þau eru oftast nær ekki nægi-
lega vel skipulögð, geysilegt hús
rými fer til spillis. Tökum til
dæmrs þessi fínu, stóru eldhús.
Þetta er alilt á amerískum mæli-
kvarða. Þið eruð bara ekki mjög
stórt þjóðfélag, svo að stakkur-
inn er, að mér finnst, nokkuð
rúmt sniðinn.
— Segja má.
— Svo eru það þessar stóru
innri forstofur, eða skálar. Þær
eru eyðsla á dýrmætu húsrými,
sem mætti nota í einstaklingsher
bergin, eða aðrar gagnlegar vist
arverur. Allavega af meiri hag-
kvæmni.
— Ef húsin væru minni, og
húsrýmið betur nýtt, væri ekki
nauðsynlegt að hafa borgina
svona dreifða, og myndi það þá
lækka annan kostnað, sem óneit
anlega hlýzt af þesskonar að-
gerðum.
— Þetta gæti einnig sparað
farkost eða ferðakostnað, og þá
er mikið talið.
— Konurnar virðast vinna svo
mikið úti hérna, að mig rekur í
rogastanz yfir öllum þessum
Arkitektarnir, Jón Kristinsson og frú Frederika, ásamt Lofti
Jónssyni forstjóra.
Roðhús með góðum kjörum
Höfum til sölu raðhús í smíðum á mjög fallegum stað
í Kópavogi. Selzt með hagkvæmum kjörum.
Skipti á 2ja til 3ja herb. íbúð kæmi einnig til greina.
Teikning á skrifstofunni.
SKIP OG FASTEIGNIK
Austurstræti 18 — Sími 21735,
eftir lokun 36329.
myndarskap. Hvar fá þær tíma
til að gera allt þetta?
— Ef við gætum gert ráðstaf-
anir til að len.gja sólarhringinn
um helming, væri þeim tekið
þakksamlega.
Þetta finnst henni hjákátlegt í
fyrstu, en kannski ekki svo frá-
leitt, er fram líða stundir.
— Við erum hérna til að líta
eftir húsi ssm verið er að
byggja, en förum heim í septem-
bermánuði.
— Góða ferð!
Til sölu er fokhelt
Einbýlishús við Sæviðursund
Húsið er um 175 ferm. með fullfrágengnu þaki.
Lóð sléttuð. Bílskrúsréttur. Skipti á annari fast-
eign eða bíl kemur til greina.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
Austurstræti 17, 3. hæð
símar 16870 og 24645
kvöldsími: 30587.
ROCKWOOL9
8TEINLLL
Nýkomið.
ROCKWOOL - BATTS
600 x 900 x 40 — 50 mm.
Verð ótrúlega hagstœtt
ROCKWOOL —fúnar ekki
ROCKWOOL — brennur ekki
Engin einangrun er betri en
ROCKWOOL
Rockwool Batts112
Einkaumboð fyrir ísiand:
HANNES ÞORSTEINSSON heildverzlun.
Hallveigarstíg 10 — Síini: 2-44-55.
I
I
I
Wl ER RÉTTI TlMNN Tlt ÍBllDAKAUPA
ll n
DAG
DAG
DAG
höfum við meira úrval íbúða en nokkru sinni áður
er hœgt að gera betri kaup í íbúðum en nokkru sinni áður
er bezti tíminn til íbúðakaupa
Söluskrá okkar fyrir september var að koma út. Ómiss-
andi skrá fyrir alla þá sem hyggjast festa kaup á íbúð.
Komið eða hringið og biðjið um söluskrá okkar.
ðvei
^jet6*
8
**£&***£**
íCft1-*
V«ct VLm, «5>1: * «'»• ■ -•"*
18 íf'W* „arne
\jet
MESTA URVALIÐ: Höfum hundruðir íbúða á
söluskrá. fullgerðar og í smíðum.
BEZTA ÞJÓNUST AN:Ókey\tis söluskrá. Kvöld-
sítni. Ökum með yður á staðinn.
BEZT STAÐSETTIR: Skrifstofa okkar er í
hjarta borgarinnar, Austurstræti 17 (3. hæð,
í húsi Silla & Valda).
ÍBÚÐAEIGENDUR:
sölu hjá okkur.
Látið skrá íbúð yðar til
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
Austurstræti 17, 3. hæð (hús Silla & Valda).
Símar: 16870 og 24645. Kvöldsími: 30587.
Ragnar Tómasson hdl,, Stefán J. Richter sölum.