Morgunblaðið - 05.09.1968, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUK 5. SEPTEMBER 1968
Bandaríkjamerm sterkari
en nokkru sinni fyrr
SPÁDÓMURINN um, að Banda-
ríkjamenn verði enn sterkari í
sundgreinum Olypmíuleikanna
nú en í Tokíó 1964, virðist ætla
að rætast. í öllum greinum eiga
þeir sæg keppenda sem eru und-
ir eða við heimsmetin. Skemmst
er að minnast heimsmetanna 8,
sem sett voru á úrtökumóti í
kvennagreinum — og á lokadegi
mótsins voru enn sett þrjú heims
met á þriðjudaginn. Er þá ekki
minnst á öll Bandaríkjametin
sem sett voru.
Heimsmetin
þriðjudags-
kvöld voru sett í 800 og 1500 m
skriðsundi og í 4x100 m. skriðj;
sundi karla.
Sami maður, Mike Burton, sem
er 21 árs, setti tvö hin fyrrtöldu
er úrslitakeppni fór fram í 1500
m. Hann synti 800 m í því sumdi
á 8:43.4 mín og bætti þar með
verulega heimsmet Frakkans
Luyce sem var 8:42.0. Tími ha.ns
í 1500 m var 16:05.5 sem er 19,6
sek betra en fyrra heimsmetið
sem Mexikaninn Hevarrira átti.
í boðsundi karla 4x100 m
setti bandarísk sveit heimsmet
3:32.5 mín. Sá tími er aðeiins 1/10
úr sekúndu betri en met er
bandarísk sveit setti í fyrra.
Til marks um getu Bandaríkja
manna í sundi má geta þess, að
í einni sundgrein kvenna, syntu
fjórar stúlkur umdir gildandi
heimsmeti. Aðeins þrjár þeirra
komast til leikanna, því að e'kk-
ert land má senda fleiri kepp-
endur en þrjá í hverja grein.
Það dugar því e'kki þar í landi
að setja heimsmet til þátttöku í
OL. Og jafnvel þó heimsmet séu
sett eru ekki nema sekúndubrot
í naesta eða næstu menn á úr-
tökumótum í Bandaríkjunum.
Dregið í bikarkeppni KSÍ:
Akureyringar mæta Val
og Eyjamenn Keflvíkingum
Fjórir bikaríeikir um helgina
KOMIÐ er að aðalkeppni bikar-
keppni K.S.Í. í knattspymu. Eft-
ir eiga að leika 1. deildar liðin 6
Skemmtileg og jöfn
firmakeppni í Nesi
Margir kepptu fyrir eigin firmu
Á LAUGARDAGINN fór fram
firmakeppni hjá Golfklúbbi
Ness og var megintilgangur fjár-
öflun til kaupa á mjög fullkom-
inni sláttuvél fyrir klúbbinn.
Þátttaka var takmörkuð við
þann fjölda leikmanna sem
keppa vildu og tóku 36 firmu
þátt í keppninni. Voru leiknar
18 holur með forgjöf og þótti
það einkar skemmtilegt hve
margir léku fyrir sín eigin firmu.
Sigurvegari í keppninni varð
Einar Sverrisson sem keppti fyr
ir Strandberg s.f. Fór hann 18
holur í 91 höggi en hafði 17 í
forgjöf svo nettóútköman var 74
högg.
2-3. Ólafur Þorláksson fyrir
Slippfélagið 93-16 eða 77 högg
og Gunnar Þorleifsson fyrir Fé-
lagsbókbandið 83-8 eða 77 högg.
4-5. Kristimn Hallsson — Vá-
tryggingafélagið 98-20 eða 78
Einar Sverrisson
— sigurvegarinn
Pétur Olafsson
— keppti fyrir Mbl.
högg og Ragnar Jónsson fyrir
Rafiðjuna 86-8 eða 78 högg.
Fyrir Morgunblaðið keppti í
þessari keppni ungur piltur,
Pétur Ólafsson nýlega 16 ára og
byrjaði golfleik með föður sín-
um í vor. Hann lék á 105 högg-
um, hafði 22 í forgjöf svo nettó
tala hans var 83. Þykir það góð
frammistaða hjá nýliða.
Um næstu helgi fer fram
keppni um FÍ bikarinn hjá Ness
klúbbnum og sækja hana marg-
ir meistarar víða að.
tvö af eftirtöldum fjórum lið-
um: Akranes, KRb, Þróttur og
Víkingur. í gær var dregið um
hvaða lið léku saman i 1. um-
ferð aðalkeppninnar. Viðstaddir
voru nokkrir forráðamenn K.S.Í.
og fulltrúar frá liðunum.
Jón Magnússon formaður
mótanefndar K. S. í. dró út
fyrsta miðann úr stórum kampa-
vínsflöskuvasa með nafni KRa.
Sigurgeir Guðmannsson dró síð-
an um hvaða lið skyldi keppa
við íslandsmeistarana og kom
upp hlutur KRb, eða Akraness,
en þau lið eiga eftir að keppa.
Næsta nafn sem kom upp var
Akureyri og féll það í hlut Haf-
steins Guðmundssonar í Kefla-
vík, að draga hvaða lið léki við
þá. „Ætli það verði ekki Kefla-
vík“, sagði hann — en svo varð
ekki. Á miðanum stóð nafn Vals.
Gunnar Felixson dró hins veg
ar nafn Keflavíkur á móti Vest-
mannaeyjum og voru þá aðeins
tveir miðar eftir í pottinum á
þeim stóðu Fram, sem mætir
Þrótti eða Víkingi.
Það hefur ekkert að segja hér
á landi, hvaða, lið er dregið á
undan, varðandi staðsetninigu
leiksins. Hún er ákveðin af for-
ráðamönnum K.S.Í.
í gærkvöldi var ákveðið um
fyrstu leikina.
Kl. 4 á laugardaginn leika
Keflvíkingar og Vestmannaey-
ingar í. Keflavík.
Á sunnudaginn kl. 5 síðdegis
leika Akureyringar og Valsmenn
á Akureyri.
Áður höfðu tveir leikir verið
ákveðnir á sunnudaginn hér í
Reykjavík. Fara þeir báðir fram
á Melavelli og leika kl. 2 KRb
og Akurnesingar og kl. 5 síðdegis
Víkingar og Þróttarar.
Meistararnir skor-
uðu ekki mark
- en töpuðu heldur ekki
2. UMFERÐ deildarbikarkeppn-
innar í Englandi var leikinn í
Molar
Keino frá Kenýa hefur til
kynnt, að hann muni keppa í
þremur hlaupagreinum í Mex
ico, 1500 m. 5000 m. hlaupi
hefur áður reynt við gull-
verðlaun á þessum þremur
greinum á sömu leikum.
Japanir senda 184 keppend
ur á Mexicoleikanna og keppa
í 17 af 19 keppnisgreinum.
Þetta er annar stærsti hópur
sem keppt hefur á OL-leikun-
um undir fána Japans. í Ber-
lín voru 179 Japanir á kepp-
endaskrá. Japanir senda nú
31 fararstjóra með keppend-
um sínum.
fyrrakvöld og gærkvöldi. Úrslit
á þriðjudagskvöld voru forvitni-
leg, eins og oft vill vera þegar
fyrstu deildarfélögin mæta félög
um úr Iægri deildunum .
Manehester City, sem eru Eng
landsmeistarar ,tókst t.d. ekki að
skora mark gegn Huddersfield,
en töpuðu þó ekki. Norwich
vann Ipswich á útivelli og Ori-
ent Fulham o.s.frv.
Hér eru úrslit leikjanna:
Barnsley — Millwall 1-1
Birmingham — Chelsea 0-1
Coventry — Portsmouth 2-0
Everton — Tranmere 4-0
Huddersfield — Manohester 0-0
Ipswich — Norwich 2-4
Nottm. For. — West Brom. 2-3
Orient — Fulham 1-0
Scunthorpe — Lincoln 2-1
Southport — Nowcastle 0-2
Walsall — Svwansea 1-1
Sprenging
í OL blysi
| OLYMPÍUELDURINN er nú j
. á leið 'til Mexico. Kom eld- ,
I urinn sem borin verður víða'
) um lönd, áður en hann verð-1
i ur tendraður í Mexico, til I
Barcelona á Iaugardaginn. Á,
I leiðinni þangað kom fyrir ’
| smáóhapp. Er tveir hlaupar-1
, ar voru að tendra eldinn á |
; nýju blysi, varð sprenging í,
1 blysinu, sem er sérstaklega ’
I útbúið með gasloga. Hlutu (
i báðir hlaupararnir smávegis |
1 meiðsli, en þegar í stað voru J
I fengnir aðrir hlauparar og ’
I blysið heldur áfram á leið I
i sinni til Mexico.
Molar
OLYMPÍULIÐ Mexico í
knattspyrnu sigraði á mið-
vikudag HM-lið Chile í gróf-
um og mjög hörðum leik sem
fram fór á Aztec-Ieikvangin-
um í Mexico — Olympíuleik-
vanginum. Lokatölur urðu
3—1, en 2—1 í hálfleik.
Kipchoge Keino frá Kenýa
sigraði í míluhlaupi á Nairobi
á úrtökumóti frjálsíþrótta-
manna frá Kenýa. Hljóp hann
á 3:55.3 mín. á velli sem er
í 1130 m. hæð. Annar varð
ungur skólapiltur, Ben Jupc-
ho á 3:59.8 — og náði einnig
lágmarki þar í landi til OL-
þátttöku.
Finnor sendn
61 til Mexico
FINNAR hafa nú ákveðið að
senda 61 keppanda á Olympíu-
leikana í Mexico og er það loka-
tala þátttakenda þaðan — nema
haldið er enn opnum möguleika
til að senda sveit fjögurra manna
í hjólreiðakeppni. Þarf ©kki að
gefa upp endanlega þátttöku í
þeirri grein fyrr en 13. sept.