Morgunblaðið - 19.09.1968, Síða 10

Morgunblaðið - 19.09.1968, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. SEPT. 1968 Útflutningur Dana á fiskflökum eykst í VIÐTALI, sem nýlega birtist í blaðinu Dansk Fiskeri Tidende við formann sambands danskra fiskútflytjenda kom fram, að út- flutningur á nýjum þorskflök- um liefði aukizt um 3%>/2 og út- flutningur á frosnum flökum um Tengdosonur Frnnco skiptir um hjnrtn Madrid, 18. september. AP. Níu skurðlæknar undir for- ystu tengdasonar Franco þjóð- arleiðtoga, dr. Crisobal Marti- nez Bordui, skiptu í dag um hjarta i 44 ára gömlum manni í La Paz-sjúkrahúsi í Madrid. Þetta er fyrsti hjartaflutningur- Inn, sem reyndur hefur verið á Spáni, og er líðan hjartaþegans góð. Hjartað var úr spánskri konu, sem fórst í slysi skammt frá Madrid, og var það rann- sakað á Pasteur-stofnuninni í París áður en það var sett í hjartaþegann, Juan Rodriugze Grille, sem er pípulagningamað- ur. um það bil 22%. Á tímabilinu 1. júlí í fyrra til 1. júlí sl. fluttu Danir út 4.100 tonn af nýjum þorskflökum og að minnsta kosti 22.000 ton'n af frosnum flökum. Þrátt fyrir þessa aukningu hefur átt sér stað verðlækkun á markaðnum á þessu tímabili, segir í viðtalinu. Verðið sem fengizt hefur að meðaltali verið 10% lægra á þessu tímabili mið- að við næsta tímabil á undan. Eins og venjulega eru Banda- ríkin langstærsti markaður danskra fiskútflytjenda og er þangað seldur um það bil helm- ingur alls fiskflakaútflutnings þeirra. Svíar og Englendingar eru einnig góðir viðskiptgvinir. Talsvert magn er einnig selt til austantjaldslandanna. Á þeissu ári verða til dæmis seld 1.000 tonn af flökum til Tékkóslóvak- íu. Útflutningurinn þangað hef- ur iskki orðið fyrir neinum hindr unum þrátt fyrir ástandið í land- inu. Fyrir nokkrum dögum fór formaður sambands danskra fisk útflytjenda til Tékkóslóavkíu 4il þess að semja við stjórnvöld þar um sölu á fiskflökum á næsta ári. Þó var ekki vitað hvort af viðræðum gæti orðið. Afgreiðslustúlka rösk og ábyggileg, ekki yngri en 25 ára, óskast nú þegar í sérverzlun í Miðbænum. Vinnutími frá kl. 1 — 6. Umsóknareyðublöð liggja frami á skrifstofu Kaup- mannasamtakanna Marargötu 2. Aukavinna — sölustarí Traust fyrirtæki óskar eftir að ráða starfsfólk til söki- og kynningarstarfa. Gott tækifæri fyrir áhugasamt og ötult fólk, sem vill skapa sér arðvænlegt starf, jafn- vel framtíðaratvinnu. Umsóknir leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir sunnudag, 22. þ.m. merkt: „Áhugi — 2264“. Eins og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu er farið að selja Lögberg-Heimskringlu á götum Reykjavíkur. Þetta er eina blað- ið, sem gefið er út á íslenzku í Veseturheimi. Um daginn rákumst við á ungan pils, sem var að selja Lög- berg-Heimskringlu og er myndin tekin, þegar Sigurður Líndal hæstaréttarritari var að kaupa sér e intak. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.). Neita samningum viö Viet Cong París, 18. sept. NTB-AP. SAMNINGAMENN Norður-Viet- nams og Bandarikjanna héldu í dag 22. fund sinn í París í dag án þess að nokkuð miðaði í sam- komulangsátt. Á fundinum sagði bandaríski fulltrúinn Cyrus Vance, að tiiraun Norður-Viet- nama til að kúga Suður-Viet- nama tU hlýðni væri dæmj til að mistakast og hélt því fram, að Þjóðfrelsisfylkingunni og Viet Cong væri stjórnað frá Hanoi. Þar með kom fram, að Banda- ríkjastjórn neitar að ganga að því skilyrði kommúnista að semja við Viet Cong, nema því aðeins að Saigonstjómin eigi að- Ud að slíkum samningum. Sovézkt geimfar Manchester, 18. sept. NTB. SOVÉZk tungflaug fór fram hjá tunglinu í 1.600 kílómetra fjar- lægð í dag og er sennilega á leið aftur til jarðar, að þvi er Sir Beraard Lovell, forstjóri rann- sóknarstöðvarinnar í Jodrell Bank, skýrði frá í dag. Flaugin fór fram hjá tunglinu snemma í morgun og sendi fjölda upplýs- inga til jarðar. Talsmaður sovézka utanríkis- ráðuneytisins vísaði í dag þess- ari frétt á bug, en gaf enga nán- ari skýringu. Á sunnudaginn skutu Rússar á loft geimflaug, sem b:r nafnið Zond-5, en ekki var sagt hver tilgangur tilraun- arinnar væri, og síðan hefur ekkert verið sagt um flaugina. Zond-3, sem skotið var 1905, fór á braut umhverfis sólu og hafði áður tekið myndir af þeim hluta tunglsins, sem snýr frá jörðu. Sir Bernard Lovell sagði, að Rússar mundu sennilega reyna að koma tunglflauginni aftur til jarðar á föstudagskvöld. Bann sagði, að h ■ mlaflaugum hefði ekki verið skotið þegar flaugin nálgaðist tunglið. Hann kvaðst telja, að mesta vandamál Rússa væri í því fólgið, að koma flaug- mni aftur til jarðar og þegar þeir hefðu leyst það vandamál mætti gera ráð fyrir að þeir sendu mannaða flaug til tungls- ins. -sokkabuxur og nælon-sokkar viðurkennd gæðavara framleidd úr bezta nælongarni „TENDRELLE“ nælon. Fara vel á fæti. Falleg áferð — Tízkulitir. WOLSEY-sokkabuxur framleiddar í 20 og 30 denier. WOLSEY-sokkar 1 15—20 og 30 denier. WOLSEY hefir áratuga reynslu í sokka-framleiðslu. WOLSEY eru seldir í Reykjavík: Parísarbúðin. Austurstræti 8. London dömu- deild, Austurstræti. Verzl. Tíbrá, Laugavegi 19. Holts Apóteki, Langholtsvegi 84. í HAFNARFIRÐI: Geir Jóelssyni skóverzlun og Hafnar- fjarðar Apóteki. /\ÁJotóeu hícedcl ee uetLtcedcl Árús ú pólskt skip í Mianti Washington, 18. sept. AP-NTB. BANDARÍSK yfirvöld hafa beð- ið pólsk yfirvöld afsökunar og fyriskipáð rannsókn vegna skot- árásar, sem gerð var á pólskt skip í höfninni í Miami á mánu- daginn, að því er talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytinu skýrði frá í dag. Sendiherra Pól- lands í Washington hefur mót- mælt árásinni. Engan sakaði í árásinni, og skipið er farið frá Miami áleiðis til Mexikó með íþróttaútbúnað handa pólsku olympíuförunum. Óþekktur maður hringdi til lög- reglunnar, kvaðst vera fulltrúi samtaka kúbanskra útlaga og sagði að skotið hefði verið á skip ið til að mótmæla innrásmni í Tékkóslóvakíu. Aðeins eitt skot hæfði skipið. Liiandi 101 dag í gröf Skegness, 18. september. NTB 38 ára gömul húsmóðir og fyrr verandi nunna, Emma Smith, er stigin upp úr gröf sinni, þar sem hún hefur Iegið 101 dag. Þar með hefur hún sett nýtt heims- met, sem frinn Mike Meany átti, um 40 sólarhringa. Frúin lét grafa sig í likkistu í skemmtigarði í bænum Skegness í Englandi og er sögð við góða heilsu. FÉLAGSLÍF Ármann, handknattleiksdeild karla Þriðjudagar, Réttarholtssk.: Kl. 9.30 - 10.15 - 2. fl. karla. Kl. 10.15 - 11.10 - mfl. og 1. fl. karla. Fimmtudagar, íþróttahöllin: Kl. 8—9.20 mfl. karla. Föstudagar, íþróttahús Sel- tjarnarhrepps (opnað 1. okt.): Kl. 6.50 - 7.40 mfl. og 1. fl. ’karla. Kl. 7.40 - 8.30 2. fl. karla. Mætið vel og stundvíslega. Nýir félagar velkomnir, mun- ið eftir æfingagjöldunum. Stjórnin. Fram, handknattleiksdeild Æfingar í vetur verða sem hér segir: Meistarafl. karla: Réttarholtsskólin-n fimmtud. kl. 9.20—10.10 e. h. íþróttahöllin föstud. kl. 7.40— 8.30 e. h. 1. fl. og 2. fl. karla: Hálogaland þriðjud. kl. 7.40— 8.30 e.h. Réttarholtsskólinn fimmtud. kl. 10.10—11 -e. h. íþróttahöllin föstud. kl. 8.30— 9.20. 3. flokkur karla: Hálogaland þriðjud. kl. 6.00— 7.40 e. h. Hálogaland sunnud. kl. 17.10— 18.00 e. h. 4. flokkur karla: Hálogaland föstud. kl. 6.00— 7.50 e. h. Hálogaland sunnud. kl. 3.30— 5.10 e. h. Mfl. og 1. fl. kvenna: íþróttahöllin miðvikud. kl. 6.50—7.40 e. h. Hálogaland föstud. kl. 8.30— 9.20 e. h. 2. flokkur kvenna: Hálogaland föstud. kl. 9.20— 10.10 e. h. Hálogaland sunr.ud kl. 11.10— 12 f. h. Fjölmennum og mætum stund víslega. — Æfingin skapar meistarann. — Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.