Morgunblaðið - 19.09.1968, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.09.1968, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. SEPT. 1968 27 og skotin lentu í öruggum hönd- um Sigurðar, flugu yfir og frtam- hjá eða varnarmenn stöðvuðu sóknina. Látlítil sókn. f síðari hálfleik kom Graza inná fyrir Toni og litlu síðar fór Simoes út af og inn kom Cavem. En ekkert dugði. Að vísu var mikið sótt að Valsmarkinu áfram en hætta skapaðist aldrei mikil. Á 16. mín átti Coluna skot af vítateig, sem Sigurður varði mjög vel og litlu síðar komst Eusebio í gegn með sendingu Coluna en kiksaði og skotið fór framhjá. í hverju upphlaupi Vals á þessu tímabili voru sóknarmenn Vals leiknir rangstæðir og þann ig runnu upphlaupin út í sand- inn fyrir ekkert. I>arna sást greinilega munurinn á atvinnu- og áhugamennskunni. Á 20. mín. varði Sigurður glæsilega hættulegt skot Col- una. Á 2ö. mín. átti Augustu hættu legt skot eftir stutt spiil inn að teig Vals og þarna bjargaði Þor- steinn á marklínunni. Litlu síð- ar komst Eusebio einn innfyrir,, Liðin. Valsliðið var mjög heilsteypt í þessum leik og enginn maður brást sínu hlutverki — þvert á móti uxu allir að ásmegin við það hversu vel toerfi þeirra dugði gegn atvinnumönnunum dýru. Sigurður markvörður á sérstak- an heiður skilið, en einnig allir hinir, varnarmennirnir allir, en sérstaklega ber og að nefna Reyn ir Jónsson og Ingvar Elísson, sem áttu mjög góða spretti. í heild var leikur liðsins emn sá stsrkasti sem félagið hefur náð — og má ef til vill rekja það, að grundvallarmunur er á áhuga- mannaknattspyrnu og atvinnu- mennsku. Atvinnumenn eru ávallt hræddir við návígi, vilja ekki eiga á hættu að tapa þeim og verða að athlægi fólksins. Um þetta var Valsmönnum sama, þeir óðu gegn frægustu stjörnum heims óhræddir og unnu oft návígin — höfðu enda allt að vinna, engu að tapa. Til að byrja með efa ég að Bsnficaliðið hafi leikið af full- um krafti, hefur talið þrautina auðunna. En er á leið var leik- ið af fullu og allt reynt, en leið- in fannst ekki. Langbezti maður Krakkaskríll ruddist inn á völlinn í leikhléi og gerði aðsúg að Portúgölum — aðallega Euse- bio. Var þetta til mikilla leiðinda og réðu vallarstarfsmenn ekki við neitt. Sagan endurtók sig í leikslok. (Ljósm. Sv. Þorm.) liðsins var Coluna fyrirliði, með feikilega yfirferð og sérstaklega skemmtilegan leik. Á stundum beittu þsir brögðum atvinnu- manna, þá er návígi var að tap- ast. Það er kannski skiljanlegt, en ljótt eigi að síður. Ágætur dómari í leiknum var írinn P. J. Graham, sem hélt Hér tókst Sigurði að bjarga með blátánni. Augusto og Torres horfa spenntir á. Þorsteinn til- búinn til varnar í hominu — eins og þegar hann varði á línunni. (Ljósm. Sv. Þorm.) leiknum vel í skorðum, útbýttiig í veg fyrir grófan leik. áminningum strax og kom þann — A. St. Leikurinn í tölum Benfica Valur Fh. Sh Fh Sh. Skot framhjá 14 6 — 20 1 1 = 2 Skot yfir 1 2 = 3 0 0 = 0 Varið á línu 0 1 — 1 0 0 = 0 Skot varið 11 12 = 23 1 0 = 1 Hornspyrnur 6 6 12 2 1 = 3 Aukaspyrnur 7 5 12 8 5 = 13 Rangstaða 1 0 = 1 0 4 = 4 Sveinameistaramót Sveinameistaramót Reykjavík- ur í frjálsum íþróttum fer fram á Laugardalsvellinum, fimmtu- dag 19. og föstudag 20. sept., og hefst kl. 18 báða dagana. Keppnisgreinar verða: Fimmtu dag: 100 m, 400 m hlaup, lang- stökk, stangarstökk, kúluvarp og kringlukast. FöstudagUrinn: 200 og 800 metra hlaup, þrístökk, hástökk, spjótkast, 80 metra grindahlaup og 4x100 metra boðhlaup. Keppni í sleggjukasti mun fara fram á Melavellinum 24. eða 25. sept. og verður nánar tilkynnt um það síðar. I sEimbandi við sveinameistara mótið verður keppt í nokkrrun greinum kvenna: 100 metra hlaupi, hástökki og kúluvarpi fyrri daginn og langstökki og kringlukasti síðarí daginn. Keppendur eru beðnir áð mæta tímanlega og láta skrá sig til keppni í síðasta lagi 1/2 felst. áður en hún hefst. Armann — ÍK — KR. en skaut framhjá úr dauðafæri. Síðustu mínútur leiksins voru mjög spennandi, því spurningin var hvort Val tækist að halda marki sínu hreinu. Harðar at- lögur voru að því gerðar, en samstillt átak í vörn bjargaði málunum ætíð. Portugalarnir voru síðari hlutann orðnir heit- ir mjög, kölluðust mikið á og jafnvel rifust. Þeir fundu ekki leiðina sem dugði, — það ergði þá. EM-leikir TJRSLIT í öðrum leikjum Ev- rópubikairkeppninnar í gær urðu þessi: Meistaralið: Malmey — AC Milan 2-1 Val-efcta (Florehs) — Reipas Finnil. 1-1 Numberg — Ajax 1-1 Manc. City — Fenerbache (Tyrkl.) 0-0 Rosenborg — Rapid Vin 1-3 WaJterford — Manoh. Utd 1-3 AEK Aþenu — Ju-enesse (Lux.) 3-0 Steaua Búfearest — Spartak (Tékk.) 3-1 Bikarmeistarar. Cardiff — Oporbo (Portúgal) 2-2 Dunfermline — Apoed (Kýpur) 101 Rumelange (Lux.) — Sliema (Malta) 1-0 Randers Freja — Shamrock (írland) 1-0 Crusaders — Norrköping 2-2 „vio erum enn ósigraöir heima «■ ÞAÐ voru að vonum himin- lifandi Valsmenn sem við hittum í búningsklefanum að leik loknum. Forustumenn liðsins voru þar komnir til að fagna leikmönnum og klöppuðu þeim í bak of fyrir. „Við erum enn ósigraðir á heimavelli!“ hrópaði einhver og menn tóku undir það með fagnaðarlátum. Sá fyrsti sem við fengum tii að spjalla við okkur var Sigurður Dagsson markvörður. Hann hafði þetta að segja um leikinn: Jú, þetta var sannarlega erfiður leikur. Annars átti ég von á því að þeir hittu betur, en skotin voru föst og snögg. Ég reiknaði með að þurfa að sækja boltann oft í netið í þessum leik, jafnvel 5—8 sinn um. ★ ÓIi B. Jónsson þjálfari Vals skipulagði leikaðferðina sem gafst svo vel. Hann sagði: Við reiknuðum reyndar alltaf með að tapa leiknum, þótt ég segi að enginn leikur sé tap- aður fyrr en hann er búinn, og með það fóru strákarnir út á völlinn. Við vorum bún- ir að leggja Ieikaðferðina nið ur fyrir okkur, og síðast í dag drukkum við saman kaffi í rólegheitum og fórum yfir hana. Og hún heppnaðist líka svo sannarlega. Mér fannst Benfica ekki eiga nema eitt hættulegt tækifæri og það skapaðist af mistökum okkar manna. Við leikum sömu takt ik í Portugal og ég reikna með því að þjálfari þeirra reyni að finna mótleik. Gunnsteinn Sfeúlason sagði: Þetta var mjög erfiður leikur, en sannast sagna átti ég von á því að þeir væru betri, sér- staklega Eusibio. Hermann Gunnarsson fyrir liði Vals sagði: Jú, ég er undr andi yfir úrslitunum. Ég held að það sé langt síðan að Val- ur hefur átt svo góðan Ieik. Við vorum allir ákveðnir í að berjast til þrautar og gerðum það. Sigurvissan spillti líka fyrír Portúgölunum. Allir reiknuðu með stórsigrí þeirra. Annars hef ég aldrei leikið á móti Iiði þar sem leikmenn- irnir hafa rifizt eins ógur- lega. Sérstaklega bar á þessu í síðari hálfleik. Þeir voru greinilega orðnir vondir. Bezti maður þeirra var tví- mælalaust Coluna. Hann var lykilmaður að öllu spili þeirra og alis staðar á vellinum. Þorsteinn Friðþjófsson bak vörður sagði: Ég hugsaði ekki um hvort þeir væru góðir eða slæmir leikmenn. Reyndi bara að standa mig. Simoes var að mínu áliti bezti maður þeirra. Ingvar Élisson sagði: Ég átti sannarlgea ekki von á þessum úrslitum og er auð- vitað mjög ánægður. Við vor- um ráðnir í að selja okkur dýrt, og gerðum það líka. Mér fannst Coluna bezti maður Portúgalanna. Vörn þeirra var einnig góð, en þó var hægt að komast fram hjá henni. Þegar það tókst fannst mér þeir hins vegar vera einum of grófir og hugsa jafnvel eins mikið um lappimar á manni og boltann. Það hafa víst fæstir öfund- að Pál Ragnarsson áf því hlut verki að gæta Éusibios. Én þegar á hólminn var komið reyndis Páll hlutverki sinu vaxinn. Hann hafði þetta að segja: Mér fannst ekki erfitt að gæta Eusibios. Hann hafði svo litla yfirferð á vellinum. Að vísu elti ég hann aldrei fram yfir miðju og þurfti því ekki að hlaupa svo ýkja mik- ið. Þá var það alltaf Torres sem lagði boltann fyrir hann. Ef Torres var með boltann vissi ég á hverju ég átti von. Nei, þetta var ekkert erfiðara en að gæta íslenzks sóknar- manns, sem maður verður stundum að elta lon og don. Ægir Ferdinandsson for- maður Vals var að vonum á- nægður með úrslitin. — Strák arnir komu mér á óvænt. Bar áttugleðin var áberandi og hún hafði mikið að segja. Éð hef það á tilfinningunni að Benficamenn geti betur en í þessum leik, og muni gera betur í Portúgal. Það verður óhagstæðara fyíir okkur að spila þar, en ekki vildi ég spá um úrslitin, þótt allar líkur séu á að Benfica vinni þar með nokkrum mun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.