Morgunblaðið - 19.09.1968, Síða 26

Morgunblaðið - 19.09.1968, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 19. SEPT. 1968 Kraftaverkið varð: Valur - Benfica 0:0 Atvinnumennirnir fundu aldrei leið gegnum þéttan varnarmúr Vals Frábær og óvænt frammistaða Valsliðsins „Ég trúi á kraftaverkið til síðustu stundar", sagði Óli B. Jónsson þjálfari Vals í viðtali við Mbl. í síðustu viku. Mikil þótti sú trú Óia, en hún rættist í gærkvöldi er Valur og Benfica — eitt fræg- asta félagslið heims skildu jöfn í marklausum leik. Valsmenn unnu með þessu einn frækilegasta sigur sem íslenzkt félagslið hefur unnið, og Valsliðið sýndi að mínum dómi þann bezta leik sem ísl. félagslið hefur sýnt í 1—2 áratugi. Valsmenn útfærðu það kerfi Óla B. þjálfara, sem hann lýsti fyrirfram 100% vel og þó liðið stæði langtímum saman í vörn — kerfinu samkvæmt — ógnaði það til síðustu stundar. En staðreyndin er: Ennþá er Valur ósigraður á heimavelli í Evrópukeppni. Benfica átti að vísu miklu meiri sóknarleik og er á leið báða hálfleikina var pressan á Vals- markið ægileg. En hún varð sjaldan hættuleg. Vörn Vals tókst að halda völdum í vítateig sínum, þar se.m var valinn mað- ur í hverju rúmi, og gerði fylli- lega skyldu sína um gæzlu ákveð inna manna samkvæmt áætlun þjálfarans. Og með því neyddu þeir hina frægu sóknarmenn Benfica til að skjóta af 20-25 m færi og þaðan af lengra. iÞað eru skot sem Sigurður Dagsson er meiistari á. Hann hreinlega „brilleraði“ líka í leiknum, því auk þeirra varði hann nokkur mjög snögg og erfið skot, sem hann hefði ekki verið sakaður um, þó að mörkum hefðu orðið. Nokkrum sinnum var Vals- markið í mikilli hættu í þungri sóknarpressu Benfica. Eitt sien var knötturinn kominn fra-mhjá Sigurði og markið virti-st óum- flýjanlegt. En þá stakk Þorsteinn Friðþjófsson upp kollinum í markhorninu og skallaði frá. „Það er synd að Valur skuli hafa lent á móti Benfica í 1. umferð", sagði einn portu- gölsku blaðamannanna. „Vals liðið á svo sannarlega erindi í keppnina lengra“ — og þar með má sjá að hann býst við sigri Benfica á heimavelli — eins og reyndar fleiri. Ef við lítum á málið frá sjónarhóli Benfica — þess heimsfræga liðs, hlýtur 0-0 á móti íslenzku áhugamanna- liði að vera mikill ósigur. Að sama skapi eru úrslitin, frá ísl. sjónarmiði séð, stórkostleg ur sigur. Ekki sízt þegar jafn- teflið skapast ekki af veður- farslegum eða öðrum íslenzk- um aðstæðum, heldur fyrir þrotlausan baráttuvilja Vals- manna og óbilandi barátti*- Coluna og Hermann skiptast írska að baki. (Ljósm. Sveinn kjark þeirra á móti þessum frægu liðsmönnum. Þetta var stórkostlegur sigur fyrir Val á félagsfánum. Þorm. Dómaratríóið — og spyrnu. fyrir íslenzka knatt- GLÆSILEGT met var sett aðsókn að Laugardalsvellin- nm i gær. 18243 gestir komu á völlinn og þar með var glæsilega slegið met það sem sett var fyrir 11 árum er völl urinn var vígður og 12600 manns komu á völlinn. Bíla stæði í öllum nálægum göt- um voru full, en fólkið hagaði sér mjög prúðmannlega — ef undan er skilið ólæti krakk- anna í hálfleik og leikslok, sem þó stöfuðu meira af hrifn ingu yfir Benfica-leikmönn- unum heimsfrægu en illgimi. Tvö slys urðu. Stigið var ofan á maga lítils drengs sem tróðst undir í látunum í leiks lok og annar drengur skarst á hæl á glerbroti í sömu lát- um. Hvorugt slysið var alvar legt að sögn. Tölur leiksins Ef litið er á .feikinn Eusebio sækir að marki, en það eru nógir til vamar. (Ljósm, Ben. Reyndum að vinna - en gátum ekki LEIKMENN Benfica virtust ekki sérlega stúrnir yfir úr- slitunum, þegar blaðamenn heimsóttu þá í búningsklef- ann að leik loknum. Þar rikti kátína manna á meðal — á yfirborðinu að minnsta kosti, og leikmennirnir skipt- ust á að Ieggjast á bekk í klefanum og fá notalegt nudd. Þó mátti heyra að leik- urinn hafði komið illa við suma, til að mynda stundi einn leikmanna: Islandina, úff — og svo hristi hann höfuðið. Við náðum tali af þremur af Portugölunum og spurðum þá um leikinn: Adolfo Vieira de Breitto, forseti Benfica, sagði um leik inn: ★ — Ég tel að þetta hafi ver- ið allgóður leikur. Láðsmenn Benfica höfðu yfir mun mieiri tækni að ráða en Valsmenn, en þeir voru óvanir að leika á svo litlum leikvangi, þar sem áhorfendur eru svo fáir, og það getur haft sín sálrænu áhrif. Við ætluðum okkur að vinna þennan leik, en vörn andstæðinganna stóð sig mjög vel, svo að þ-að tókst ekki. Af leikmönnum vil ég tilgneina markvörðinn, sem var mjög góður. Bretto taldi, að úrslitin hér kæmu til með að hafa mikil áhrif á -aðsóknina, er þessi lið leika aftur í Lissabon. Hann sagði, að veðrið hér hefði ekki haft nein áhrii á leik Benfica — þeir væru vanir að leika í alls kyns loftslagL ★ Eusebio, Knattspyrnusnill- ingurinn frægi sagði: — Þetta var frem-ur rólegur leikur. Við lögðum ekki mjög har-t að okk ur, og lékum aðallega með það í huga að tapa ekki. Um „gæzlumann" sinn í leiknum, Pál Ragnarsson, sagði þessi knattspyrnukempa: — Han-n lék vel og drengi- lega, og sleppti méir aldrei úr augsýn. Hann á heiður skilið íyrir að hafa gætt mín svo vel með þessum hætti. Af einstökum leikmönnum igat Eusebio sérstaklega mark- varðarins, Sigurðar Dagsson- ar, sem staðið hefði sig mjög vel. Að öðru leyti vildi hann ekki fjölyrða um leik Vals- manna, kvað það erfitt, því að „liðið lék allt í vörn.“ ★ Að lokum snerum við okkur að fyrirliðanum, Coluna, sem kvað þennan leik vera til mik- ils álitsauka fyrir Val. Hann kvaðst vera tiltölulega óánægð ur með leik Benfica. — Gegn svona liði er ekki hægt að spila öðru vísi en við gerðum. Og við reyndum að vinna leik inn, en okkur tókst það ekki. tölum" sézt að Benficamenn eiga 47 skot á mark, yfir og framhjá, en Valur aðeins 3. Auk þess á Ben- fica 12 hornspyrnur á Val en Valsmenn 3 á Benfica-liðið. Á þessu er stórkostlegur munur og sést greinilega af því, hve sókn- arpressa Portugalanna var mik- il. En mörk af þessum skotum voru örvæntingarfullar tilraunir atvinnumannanna til að skapa sér frumkvæði í mörkum — lang flest hættulítil eða hættulaua Svo vel stóðu Valsmenn á verð- inum — svo vel framkvæmdu þeir leikkerfi sitt. Byrjunin. Hermann vann hlutkestið fyr- ir Vai og sókn Benfica hófst þeg ar. Á fyrstu 7 mínútunum átti Toni langskot langt framhjá, Torres skalla sem var auðveld- lega varinn og Eusebio skot úr kyrrstöðu af 30 m færi siem flaug yfir. En þá tóku Valsmenn að ná stjórn á óstilltum taugum sín- um og breyta vörn í sókn, sem enda með því að Gunnsteinn gef ur vel fyrir frá vinstri og Her- mann á skalla að marki — sem varinn var í horn. Leikurinn er í fullu jafnvægi, þó sókn Ben- fiea sé öllu meiri. Á 14. mín. fær Cruz áminn- ingu dómarans. Skot Benfica- manna eru öll fremur auðveld, og Sigurður Dagsson ler sýnilega kominn „í stuð“ eftir þessi lang- skot, sem voru honum svo létt. Nokkuð bar á því, að Vals- menn eyðilegðu upphlaup sin sjálfir með því að vera of seinir að gefa knöttinn frá sér og átti það bæði við um Bergsvein og Hermann. Valsmenn gáfu er á leið nokk- uð eftir — sjö manna vörn liðs- ins hörfaði mjög og gaf hinum færi á að sækja að marki. En vítateignum var lokað — og skotin varð að framkvæma utan hans — og þau voru auðvteld við fangs. Bn er síðari hluti hálfleiksins hófst varð pressan að marki Vals alger. Má segja að Vals- menn hafi vart komið knettin- um yfir miðlínu allan síðari hluta fyrri hálfleiks. En Vals- menn lokuðu sem fyrr vítateig sínum, þar stóð hver maður á verði gegn sínum mó.therja —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.