Morgunblaðið - 02.10.1968, Page 1
28 SIÐUR
Hér er verið að leggja síðustu hönd á fyrstu þotuna.
Fyrsti „strœfis-
vagn" loftsins
— fer senn í jómfrúairferðina
Washington, Osló 1. október
AP-NTB
FYRSTU Boeing 747 risaþotunni
var rennt út úr skýli sínu á
mánudaginn. Hún er þó ekki full
búin, eftir er að ganga frá inn-
réttingum og nokkrum smáhlut-
um. Þessar flugvélar eru kallað-
ar „strætisvagnar" lofsins og
það er ekki svo fjarri lagi því
að í samanburði við þær eru Bo-
eing 707, sem við köllum risa-
þotur í dag, eins og leigubílar.
Boeing 747 getur flutt 490 far-
þega, eða 100 lestir af vörum
6000 mílna vegalengd í einum á-
fanga, og það með rúmlega 1000
kílómetra hraða. Stélið er jafn
hátt og fimm hæða hús og lengd
in er 70,5 metrar, sem er held-
ur lengra en Wright bræðurnir
gátu komið Kittyhawk í fyrstu
flugferðinni.
Búist er við að fyrsta risaþot-
an fari í loftið einhverntíma í
desember og þá eru mörg
reynsluflug eftir áður en hún verð
ur tekin í notkun sem farþegaflug
vél. Það er samt þegar búið að
panta 158 slíkar vélar frá Bo-
eing, og það er algert sölumet
fyrir flugvél sem aldrei hefur
flogið.
Meðal flugfélaga sem pantað
hafa Boeing 747 er SAS sem
hefur gert samning við KLM og
Swissair um að vélar þær sem
félögin panti verði allar ná-
kvæmlega eins innréttaðar og
með sama útbúnaði. Með því
móti spara þau milljónir króna,
sem veitir líklega ekki af því
þotan kostar litlar 32 milljónir
dollara.
Ræðu Humphreys um
Vietnam fálega tekið
New York, Washington, Moskvu.
1. október. AP-NTB.
LOFORÐI Huberts Humphrey
um að hann muni stöðva loft-
árásir á Norður Vietnam ef hann
verði kjörinn forseti, hefur verið
heldur fálega tekið víðast hvar.
Margir halda því fram að þeir
séu jafnnær og áður um stefnu
forsetaefnisins, og illar tungur
segja að hann hafi fengið sam-
þykki Johnsons forseta til að
gefa þetta loforð.
Edward Kennedy, sem er ákaf
ur stuðningsmaður Humphreys,
lýsti þó hrifningu sinni yfir ræð-
unni og segir hann vera eina
manninn sem vir'ðist geta stefnt
ákveðið að friði í Vietnam. Tass
fréttastofan sagði að þetta væri
augljóslega áróðurbragð sem
frambjóðandinn notaði til að afla
sér atkvæða og taldi lítið mark
á takandi, ekki sízt vegna þeirra
krafa sem hann gerði til Norður-
vietnama.
Nokkrir þingfulltrúar republik
ana sögðu í yfirlýsingu áð Hump
hrey væri bara að fiska eftir at-
kvæðum og að ekkert mark væri
takandi á þessu loforði. Everett
Dirkson og Gerald R. Ford, öld-
ungadeildarþingmenn republik-
ana frá Illinois og Michigan,
75 þúsund bandarískir
hafnarverkamenn í verkfalli
— Johnson kann að fyrirskipa
80 daga verkfallsbann
New York 1. október AP.
Verkfall 75000 hafnarverka-
manna á Austurströnd Banda-
ríkjanna hófst í dag, en John-
son forseti virðist hafa ákveðið
Verst lögreglu og
her meö haglabyssu
Á litlum bóndabæ í Englandi
er maður vopnaður tvíhleyptri
haglabyssu, sem hefur varizt
miklum fjölda lögreglu- og her-
manna í tólf daga. Með honum
er kona hans og fjögur börn.
Maður þessi heitir John James
og hann er í þessari aðstöðu
vegna þess, að hann neitaði að
greiða sekt fyrir umferðarbrot.
Hann lenti í hörðum deilum við
lögregluna og svo leiddi eitt af
öðru þartil nú að svona er kom-
ið.
Hann lét þau boð út ganga, að
hann ætlaði að setja heimsmet í
vörn gegn umsátri og til að
leggja áherzlu á þau ummæli
skaut hann af báðum hlaupum
haglabyssunnar á hænsnakofa
sem tveir lögregluþjónar notuðu
sem skjól. Lögregluþjónarnir
settu óðara heimsmet í undan-
haldi.
Þetta er fremur einkennilegur
vígvöllur að heimsækja. Allt um
hverfis húsið eru tjöld, þar sem
hermenn, lögreglumenn og blaða
menn hafast við, og tjaldbúðirn-
ar eru rétt utan skotfæris hagla
byssu númer 12. Það hefur verið
kalt og leiðinlegt veður undanfar
ið og umsáturliðið situr lengstum
við prímusana og hitar sér kaffi.
James hinsvegar lifir góðu lífi í
hlýju húsi sínu og móðir hans
færir honum vistir daglega.
Vegna konunnar og barnanna get
ur lögreglan ekki reynt að svelta
hann. Lögreglan hefur reynt ótal
aðferðir við að ná James, en þær
hafa það allar sameiginlegt að
vera vita gagnslausar.
að beita fyrir sig Taft-Hartley
lögunum, sem banna verkfall í
80 daga meðan viðræður fara
fram. Það var Alþjóðasamband
hafnarverkamanna, sem fyrir-
skipaði verkfallið eftir að samn-
ingaviðræður við Samband út
gerðarmanna fóru út um þúfur á
mánudagskvöld. Nokkrum klukk
ustundum síðar skipaði forsetinn
þriggja manna nefnd, sem á að
hefja rannsókn á deilunni og
skila áliti á miðvikudag. Niður-
stöður nefndarnnar gætu orðið
til þess að 80 daga verkfalls-
bann gengi í gildi, en það er
mögulegt ef þjóðarhagurinn er
talinn í veði.
Mikill fjöldi skipa stöðvaðist í
höfnum á austurströndinni þeg-
ar verkfallið hófst, en full afleið
ing þess kemur ekki strax í ljós.
Herskip og skip sem notuð eru
til flutninga á hergögnum, eða
matvælum fyrir Bandaríkja-
stjórn eru undanþegin verkfall-
inu.
Thomas Gleason, forseti Al-
Framh. á bls. 27
sögðu í sameiginlegri yfirlýsinigu
að þeir teldu loforðið vera gefið
í eiginhagsmunaskyni. Það ætti
að líta á það í því ljósi og því
ekki taka mark á því.
Narciso Ramos, utanríkisráð-
h:rra Filipseyja, sagði að þetta
sama loforð hefði Johnson g<4f-
ið í San Antonio. Hann hefði
gert sömu kröfur til Norður-Vi-
etnam og Humphrey gerir (að
þeir virði hlutlausa beltið milli
Suður- og Norður-Vietnam) og
þeir hefðu engan áhuga sýnt.
Josef Luns, utanríkisráðherra
Hollands sagði loforðið vera
mikla tilslökun isem væri nálægt
Framh. á bls. 21
Banna
nynazista
Berlín, 1. okt. NTB.
ÞING Vestur-Berlínar mun
leggja bann við starfsemi Þjóð-
ernissinnaða lýðræðisflokksins
í borginni. Skýrði talsmaður
þingsins frá þessu í dag. Var
fjallað um mál þetta á viku-
legum fundi þingsins, þar sem
borgarstjóranum, Karl Schiitz,
var falið að grípa til allra þeirra
ráðstafanna, sem nauðsynlegar
væru til þess að framfylgja slíku
banni. Var skýrt frá því, að
flokkurinn hefði um 400 með-
limi í borginni.
Undirbún fund
Norðurlondarúðs
Osló. 1. október NTB.
FORSÆTISRÁÐHERRAR Norð
landa og forsetar Norðurlanda-
ráðs koma saman til fundar í
Osló 19. og 20. okt. nk. til þess
að ræða um dagskrá næsta fund
ar Norðurlandaráðs, sem haldinn
verður í Stokkhólmi í marzmán-
uði á næsta ári. Fundurinn nú
er haldinn samkvæmt venju á
hverju ári til þess að undirbúa
næsta fund ráðsins. Fjármála-
nefnd Norðurlandaráðs mun
koma saman í Osló 21. októ'ber.
Brezka stjórnin mun ekki breyta
um stefnu
í efnahagsmálum
Stefna stjórnarinnai loks tekin
að bera árangur, segir Wilson
Blackpool, 1. október.
NTB-AP.
Harold Wilson, forsætisráð
herra Bretlands, lýsti því yfir
á landsþingi Verkamanna-
flokksins í dag, að efnahags-
málastefna ríkisstjórnar hans
væri nú tekin að bera árang-
ur og skoraði hann á fylgis-
menn sína að veita sér stuðn-
ing, svo að Verkamannaflokk
urinn héldi völdunum í land-
inu og gæti því uppskorið
árangur erfiðis síns. Lýsti
hann því yfir, að stjórnin
hefði ekki í huga að breyta
stefnu sinni í launa- og kjara
málum, þrátt fyrir það, að
þingið hefði hafnað henni dag
inn áður. Ræðu Wilsons var
mjög fagnað á landsþingi
Verkamannaflokksins og er
talið, að með ræðu sinni hafi
hann mjög styrkt aðstöðu
sína, þrátt fyrir þá erfiðu að-
stöðu, sem hann var í.
— Undanfarið tímabil hefur
verið verkalýðshreyfingunni erf-
itt, sagöi hann. — Einkum hefur
síðasta ár valdið okkur miklum
vonbrigðum, en nú horfir allt til
Framh. á bls. 27