Morgunblaðið - 02.10.1968, Qupperneq 13
MORGUINBLAÐIB, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 196«
13
BRIDGE
VETRARSTARF Bridgeíélags
Reykjavíkur er hafið og stendur
nú yfir hjá félaginu einmenn-
ingskeppni (3 umferðir). Að 2
umferðum loknum er rö_ð efstu
þessi:
1. Páll Bergsson 795 stig
2. Ólafur H. Ólafsson 762 —
3. Ríkharður Steinb.s. 750 —
4. Reimar Sigurðsson 744 —
5. Hörður Þórðarson 740 —
6. Hjalti Elíaason 732 —
7 .Þröstur Sveinsson 711 —
8. Þráinn Finnbogason 711 —
Síðasta umferð verður spiluð
miðvikudaginn 2. oktober í Dom
us Medica við Egilsgötu.
Dagana 9., 16. og 23. október
fer fram tvímenningskeppni
(undankeppni) hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur og síðan fer fram
úrslitakeppnin (5 umferðir).
Jólakeppni félagsins fer síðan
fram 11. og 18. desember.
Stjórn félagsins gefur frekari
upplýsingar um keppnir þessar,
en stjórnin er þannig skipuð:
Hjalti Elíasson (sími 40690),
formaður, Stefán J. Guðjhonisen
(sími 10811), Þorgeir Sigurðsson
(sími 38880), Guðmundur Pét-
ursson (sími 12332) og Ásmund-
ur Pálsson (sími 10121).
Ákveðið hefur verið að Heims-
meistarakeppnin árið 1969 fari
frarn isíðari hluta maímánaðar í
S.-Ameríku. Árið 1970 mun
keppnin fara fram í Svíþjóð og
hefjast 15. júní. Verður þá ieinn-
ig tvímenningskeppni. Árið 1971
fer Heimsmeistarakeppnin fram
í Asíu.
Evrópukeppnin fyrir spilara
undir 30 ára fór fram í Prag dag
ana 5.—10. ágúst sl. Sænska
sveitin sigraði með miklum yfii
burðum en alls tóku 11 sveitir
þátt í þessari fyrstu Evrópu-
keppni yngri spilara. Röð þátt-
tökusveitanna varð þessi:
íslenzk-þýzk orðabók
— eftir Svein Bergsveinsson
1. Svíþjóð 74 stig
2. Portúgal 56 —
3. Brstland 55 —
4. Pólland 55 —
5. Holland 63 —
6. Finnland 52 —
7. Danmörk 44 —
8. Austurríki 43 —
9. Ungverjaland 42 —
10. Tékkóslóvakía 28 —
11. írland 28 —
Ákveðið hefur verið að næsta
FÉLAGSLIF
Framarar,
handknattleiksdeild, stúlkur.
Æfingar fyrir stúlkur 10-12
ára á fimmtudögum kl. 7.40—
8.30. Stúlkur 12—16 ára kl.
8.30—9.20. Ath., æfingarnar
fara fram í æfingasalnum
undir stúku Lauigaxdalsvallar.
Fjölmennið — Stjómin.
Knattspymufélagið Valur,
knattspyrnudeild.
Innanhúsæfingar h e f j a s t
miðvi'kudaginn 2. okt. Annar
flokkur miðvikudaga og föstu
daga kl. 19.40—20.30. Þriðji
flokkur miðvikudaga og föstu
daga kl. 18.50—19.40. Fjórði
flokkur miðvikudaga og föstu-
daga kl. 18—18.50 og sunnu-
daga kl. 15.40—16.30. 5. fl. a
og b lið fimmtudaga kl. 10—18
og sunnudaga kl. 14.50—15.30.
c lið sunnudaga kl. 14—14.50
og yngri en 10 ára sunnudaga
kl. 13.10—14. Mætið stundvís-
lega.
Stjórnin.
NÚ, er skólar eru sem óðast að
búa sig undir og hefja vetrar-
starfið, er tímabærf að vekja
athygli á bók, sem kom á mark-
aðinn snemma á þessu ári, en
hefur ekki verið getið opinber-
lega, svo ég viti. Ég á hér við
ÍSLENZK-ÞÝZKA ORÐABÓK
eftir dr. Svein Bergsrveinsson,
prófessor við Humboldt-Univer-
sitát í AustuT-Berlím, gefna út
af fonlagi.nu Enzyklopádie í
þeirri gömlu og merku bóka-
gerðarborg Leipzig.
Bók þessi er XXXII + 335
blaðsíður (12x19 sm), mjög
skýrt prentuð og smekklega
bundin, en því miður á pappír,
sem tæplega er nógu góður. Á
eftir formála og leiðbeiiningum
um notkun bókarinnar er mjög
athyglisverður kafli um hljóð
fræði, þar sem framburður hvers
bókstafs íslenzkunnar er sýnd-
ur eftir stöðu hans með rækileg-
um dæmum. í skólum hér mætti
taka þessa hljóðaskrá dr. Sveins
til fyrirmyndar ( og gera jafn-
framt útlæga hina rótgrónu,
gömlu vitleysu um svonefnd
„grönn og breið sérhljóð").
Beygingafræði islenzkunnar á
XX. til XXXII. blaðsíðu er gerð
af einum samverkamanna dr.
Sveins og er greinargott yfirlit,
sem kemux sér áreiðanlega vel
fyrir margan útlendinginn við
íslenzkunám.
Sjálf orðabókin er 335 síður.
Þar eð hún mun fremur ætluð
þýzkumælandi notendum, er
sýnd beyging íslenzkra orða, en
ekki þýzkra, og er að því nokk-
ur bagi. Hins vegar er það ein-
kenni á bókinni, hve oxðaforð-
inn er nútíma'legur og hve mörg
orðasambönd og orðatiltæki er
þar að finna, og er það megin-
kostur. Þá er og að finna í bók-
inni þýðingu á mörgum nýyrð-
um, enda er höfundur vel kunn-
ugur þeim af starfi sínu við söfn-
un þeirra og útgáfu. Því hlýtur
bókin að vera velkomið hjálp-
artæki öllum, sem þurfa að
skrifa þýzku, bvort sem það eru
skólanemendur, verzlunaxmenm,
stúdentar eða aðrir. Auk þess er
bókin að sjálfsögðu ágætt hjálp-
artæki handa útlendimgum við
íslemzkunám, ekki sfet vegna
þess, að fjöldamörg mikið beygð
orð eru gefin í mismunandi
mynd sem uppsláttarorð og visað
til aðalmyndar þeirra.
Tungumálanám er jafman
mikilvægur þáttur í skóila-
menntun smærri þjóða, og skyldu
mernn varast að gera of lítið úr
nytsemi þess. Á okkar tímum,
sem einkennast af beinum og
óbeinum áróðri mikilvirkra fjöl-
miðlunartækj a, þar sem mönnum
hættir til að skoða hlutina á ein-
hliða hátt og sífellt með sömu
(útlendu) gleraugunum, er sér-
stök nuðsyn að halda opnum
gluggum til sem flestra átta. Til
þess er málanám ekki sízt smá-
þjóðum mikil nauðsyn, og ber
að þakka hvem skérf, sem lagð-
ur er fram til að efla það. Skerfur
dr. Sveins Bergsveinssonar er
mjög kærkominn, og það er trú
mín, að hin nýja íslenzka-þýzka
orðabók hans eigi eftir að koma
mörgum að góðu gagni.
Balður Ingólfsson.
Prói ■ bílamálun
verða haldin í húsnæði Bílasprautunar h.f. laugar-
daginn 12. október.
Þátttaka tilkynnist fyrir 8. október í síma 35035.
PRÓFNEFNDIN.
keppni fari frarn árið 1970 og
mun þá verða miðað við 26 ára
aldur spilaranna.
Einbýlishús í Hofnoriiiði
Til sölu einbýlishús við Melholt í Hafnarfirði, 4 svefn-
herb. og bað á. efri hæð, samliggjandi stofur, eldhús,
búr og þvottahús á neðri hæð. Bílskúr. Ræktuð og
girt lóð.
SKIP OG FASTEIGNIR,
Austurstræti 18, símar 21735,
eftir lokun 36329.
JÖrð tll sölu
JÖrð í nágrenni Reykjavíkur er til sölu. Húsakynni
eru 1. flokks, nýbygging og jörðin er á mjög fallegum
stað. Selst aðeins félagsmönnum. Jörðinni fylgir
lax- og silungsveiði, sem ekki er í leigu.
Tilboð leggist á afgreiðslu Morgunblaðsins merkt:
„Jörð — 8998“ fyrir 15. okt. n.k.
Skrifstofustúlka
Skrifstofustúlka óskast hálfan eða heilan daginn
í heildverzlun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist Mbl. merktar: „Skrifstofustúlka —
— 2378“.
Aðstoðarmann vantar nii þegar
Æskilegt að hann hafi unnið við bílaviðgerðir.
Upplýsingar eftir kL 18 hjá Bílaraf, Höfðavík við
Sætún. Sími 24700.
Söltunnrstúlkur — Beykir
Söltunarstúlkur vantar til Neskaupstaðar. — Viljum
einnig ráða vanan beyki. Saltað er inni í upphituðu
húsi. — Fríar ferðir og fæði. — Uppl. í síma 21708.
SÖLTUNARSTÖÐIN MÁNI, NeskaupstaS.
Sendill óskast
Röskur piltur eða stúlka óskast til sendistarfa. Nauð-
synlegt að viðkomandi hafi hjól til umráða.
Upplýsingar í síma 17695 í dag frá kl. 1 — 5.
3ja herbergja
íbúð á efri hæð við Flókagötu er til sölu. fbúðin er
stofa, svefnherbergi með innbyggðum skápum og
bamaherbergi, eldhús, baðherbergi og forstofa. Suður-
svalir. Tvöfalt gler í gluggum.
VAGN E. JÓNSSON
GUNNAR M. GUÐMUNDSSON
hæstaréttarlögmenn
Austurstræti 9
Símar 21410 og 14400.
Utan skrifstofutíma 32147.
Tilboð
óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem verða til sýnis föstu-
daginn 4. október 1968 kl. 1—4 í porti bak við skrif-
stofu vora, Borgartúni 7:
Vauxhall Victor fólksbifreið,
Vol'kswagen
Ford Zephyr
Volvo sendiferðabifreið
Chevrolet fólksbifreið
Austin Gipsy
Austin Gipsy
Austin Gipsy diesel
Tempo sendiferðabifreið
Land Rover lengri gerð
Gaz 63 þjarkur
Willys jeep skúffubifreið
árg. 1965
— 1964
— 1960
— 1962
— 1955
— 1965
— 1965
— 1963
— 1963
— 1964
— 1959
— 1964
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, sama dag kl. 5 e.h. að viðstöddum bjóðendum.
Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki
teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI7 SlMI 10140
JAZZBALLETTSKOLI BARU
Skólinn tekur að fullu til starfa 7. október.
Kennt verður í öllum aldursflokkum. Bamaflokkar — táninga-
flokkar — byrjendaflokkar — framhaldsflokkar.
Jazzballet fyrir alla!
Innritun alla daga frá kl. 9—7 í síma 8-37-30.
Dömur — líkamsrækt
Megnmaræfingar fyrir konur á öllum aldri. — Nýr þriggja
vikna kúr að hefjast. 4 tímar í viku. — Dagtímar — kvöld-
tímar. — Góð húsakynni. — Sturtuböð.
Frúarjazz einu sinni í viku.
Innritun alla daga frá kl. 9—7 í síma 8-37-30.