Morgunblaðið - 06.11.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1068
- FORSETAKOSNINGARNAR
Framhald af bls. 1
Talið er að um 121% millján
manna uppfylli skilyr’ði fyrir
kosningarétti í Bandaríkjunum,
en til að greiða atkvæði þurfa
kjósendur að láta skrá sig fyrir-
fram. Er áætlað að rétt rúmar
90 milljónir kjósenda hafi látil
skrá sig, og að um 73 milljónir
þeirra greiði atkvæði. Við kosn-
ingamar 1964 greiddu alls 70.913.
673 atkvæði, og hafðí þá þátt-
taka aldrei verið meiri.
Alls hafa 28 forsetar verið
kjömir frá því Republikana-
flokkurinn var stofnaður. Baúð
flokkurinn fyrst fram árið 1856,
og hefur 16 sinnuna sigrað í for-
setakosningum á þessum tíma,
en demókratar 12 sinnum. Á
þessari öld hafa hins vegar
demókratar sigrað níu sinnum
en republikanar átta.
FYRSTU ÚRSLITIN
Að þessu sinni eru kjörstaðir
alls um 175.000, og hófust kosn-
ingar sumsstaðar strax eftir
miðnætti sl. nótt, en víðast hvar
snemma í morgun. Bar fréttum
strax saman um að allt benti til
mjög mikillar kjörsóknar, og
höfðu víða myndazt langar bið-
raðir við kjörstaðina. Fyrstu úr-
slitin bárust frá smáþorpinu Dix-
ville Noteh í New Hampshire,
en þar voru 12 manns á kjör-
skrá. Greiddu allir atkvæ’ði
skömmu eftir miðnætti í nótt,
og féllu atkvæði þannig að
Humphrey hlaut átta, en Nixon
fjögur, og Wallace ekkert. Þeg-
ar Nixon bauð sig fram árið
1960 gegn John F. Kennedy,
fékk hann öll átta atkvæði þorps
ims. 1 öðru þorpi í New Hamps-
hire, Ellsworth, hlaut Nixon öll
ellefu atkvæðin, og í þorpinu
Pointe aux Barques í Michigan
öll tólf atkvæðin, sem greidd
voru. Voru þetta fyrstu niður-
stöðurnar, sem bárust, og leið
langur tími þar til frekari upp-
lýsingar voru fyrir hendi.
Nixon hafði greitt utan-kjör-
staðaatkvæði nokkru fyrir kjör-
dag, en ýmsir aðrir frambjó’ð-
endur og leiðtogar mættu á kjör-
stað í dag og neyttu atkvæðis-
réttar síns. Hubert Humphrey
kom til Waverly í Minnesota
ásamt konu sinni í morgun til að
kjósa, og er trúlegt að flesta
gruni hvern hann kaus. Engu
að síður spurðu fréttamenn, sem
safnazt höfðu á kjörstað, hvort
hann vildi skýra frá því, en
Humphrey svaraði brosandi:
„Ó, það er leyndarmál.”
Lyndon B. Johnson fráfarandi
forseti kaus í Johnson City í Tex
as tveimur klukkustundum eft-
ir að kosning hófst, og er það
ekki oft á undanförnum 20 árum,
sem hann hefur mætt á kjörstað
án þess sjálfur a'ð vera í kjöri
til einhvers embættis. Sögðu
fréttamenn að forsetinn hafi ver
ið í mjög góðu skapi, en ekkert
viljað ræða um kosningamar.
Spiro Agnew, varaforsetaefni
republikana, greiddi atkvæði I
heimaborg sinni Annapolis í
Maryland. „Við búumst við sigri,
en erum reiðubúnir til að mæta
ósigri,“ sagði hann við frétta-
menn. Edward Kennedy kaus í
Boston skömmu eftir að kosning
hófst þar klukkan átta í morg-
un a'ð staðartíma. Kvaðst hann
vongóður um að ífumphrey færi
með sigur af hólmi. „Ég er von-
góður um úrslitin,“ sagði hann,
DRÆTTI
FRESTAÐ
DRÆTTI í Landshapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins
er frestað til 22. nóvember.
Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins.
,,straumurinn hefur legið til vara
forsetans.“
Edmund Muskie, varaforseta-
efni demókrata, kaus í Water-
ville I Maine snemma morguns,
og höfðu andstæðingar styrjald-
arinnar í Vietnam efnt til mót-
mælaaðgerða fyrir framan kjör-
staðinn þegar Muskie kom á
vettvang. Tóku um 175 manns
þátt í þeim aðgerðum, og hróp-
uðu margir þeirra kröfur um
„frjálsar kosningar nú“ meðan
Muskie greiddi atkvæði sitt.
Var honum þa’ð ekkert launung-
armál að hann kaus frambjóð-
endur demókrata til allra em-
bætta, sem um var keppt.
Nelson A. Rockefeller ríkis-
stjóri, sem keppti um framboð
á vegum republikana við Nixon
og tapaði, kaus í Tarrytown í
New York. Spáði hann því að
Nixon sigraði, en vildi ekkert
um það segja hvort hann gæti
hugsað sér að taka við hugsan-
legu ráðherraembætti hjá Nix-
on, ef spá hans rættist. Og Harry
S. Truman fyrrum forseti, sem
vann svo óvæntan sigur fyrir
20 árum, kaus í Indépendence í
Missouri snemma dags. Kom
hann gangandi á kjörstað, og
ræddi á leiðinni við fréttamenn.
Sagði hann meðal annars að nú
væri „gott demókrata-veður“,
þótt enn betra hefði verið að fá
svolitla rigningu. Aðspurður
hvort hann hefði rætt nokkuð
við Johnson forseta eða Hump-
hrey, svaraði Truman: „Ef þeir
hafa ekki gert nóg til að tryggja
sigur í kosningunum núna, er of
seint fyrir mig að gera nokkuð
fyrir þá í dag“.
MIKLAR BREYTINGAR
Að undanförnu hafa skoðana-
kannanir leitt 1 ljós að Hump-
hrey væri mjög að vinna á Nix-
on. Fyrir um hálfum mánuði
þótti sigur Nixons vís, og taldi
Gallup-stofnunin þá að Nixon
ætti fylgi 44% kjósenda, Hump-
hrey 36%, og Wallace 15%. Síð-
asta skoðanakönnun Gallups nú
fyrir helgina sýndi hinsvegar að
fylgi Nixons hafði lækkað niður
í 42%, en fylgi Humphreys hækk
að í 40%. Minni munur hefur
venjulega verið í könnunum
Louis Harris, en Nixon þó jafn-
an með töluvert meira fylgi en
Humphrey. í gærkvöldi birti
Louis Harris niðurstöður síðustu
könnu narinnar, og var þá Hump
hrey kominn upp fyrir Nixon í
fyrsta skipti. Sýndi sú könnun
að fylgi Humpnreys var 43%, en
fylgi Nixons 40%.
Frímerki í
gluggasýnintpim
„DAGIJR FRÍMHRKISINS” var
í gær, en fólki skal bent á, að
gluggasýningarnar á vegum
Félags frímerkjasafnara verða
fenn um sinn. Þær eru í sýning-
argluggum Eimskipafélagsins,
Flugfélags fslands í Lækjargötu,
blómaverzluninni Dögg í Álf-
heimum og Skátabúðinni við
Snorrabraut.
Ennfremur verður verðlauna-
getraunin í glugga Franch Mich-
elsens að Laugavegi 39 í nokkra
daga enn. Þar eru sýnd frí-
merkjabúnt og á geta til um,
hve mörg merkin séu. Verðlaun
verða veitt þeim, sem komast
næst hinu rétta. Eru það frí-
merki og það ekki af lakari teg-
undunum.
Fyrsta fundinum í París frestað
S-Vietnamar neifa að sitja fundi meðan
Viet Cong er sjálfstœður samningsaðili
París, 5. nóvember, AP—NTB
FYRSTA friðarviðræðufundinum
eftir stöðvun sprenf juárása á
Norður-Vietnam var frestað í
dag vegna fjarveru fulltrúa
stjórnarinnar í Saigon. Nguyen
Van An, varatormaður sendi-
nefndarinnar frá Suður-Vietnam
sagði, að þeir myndu ekki koma
til viðræðnanna svo lengi sem
„Þjóðfrelsisfylkingin“ hinn póli-
tíski armur Viet-Cong, kæmi
fram sem sjálfstæður samnings
aðili. Bandaríkin viðurkenna
fylkinguna ekki heldur og hafa
reynt að fá Norður-Vietnam til
að innlima hana í sendinefndina
frá Hanoi. Sagt er og að banda-
rísku fulltrúamir reyni bak við
tjöldin að telja Saigon á að taka
þátt í viðræðunum.
Talsmaður bandarísku sendi-
urkenningu og að samsteypu-
stjórn með henni verði ekki
mynduð í Saigon.
Stjórn Ástralíu hefur sent
stjórninni í Saigon orðsendingu,
þar sem segir, að Ástralía telji
að það muni þjóna bezt hagsmun
um fólksins í Suður-Vietnam, að
stjórnin sendi fulltrúa til Parísar
viðræðnanna. Þessir fulltrúar
myndu koma íram fyrir hönd
hinnar einu réttu og löglegu
stjórnar hersins. Það væri mikil
vægt atriði, þar sem stjórn Norð
ur-Vietnam hefði hingað til neit
að öllum viðskiptum við stjórn
Suður-Vietnam.
Frú Nguyen Thi Binh, formað
ur samninganefndar „Þjóðfrels-
isfylkingarinnar" hélt sinn fyrsta
fund með fréttamönnum í dag.
Hún talaði um þjóðlega og lýð
nefndarinnar sagði aðeins, að , ræðislega stjórn á breiðum grund
fundurinn yrði ekki haldinn, en I velli og frjálsar kosningar í Suð
að Bandaríkin voni að Saigon | ur-Vietnam. Hún sagði að Viet-
sendi fulltrúa innan skamms. Að
sjálfsögðu gætu ekki farið fram
neinar viðræður um framtíð Suð
ur-Víetnam án þátttöku fulltrúa
stjórnarinnar í Saigon. Það er
þó ekki talið ólíklegt að í milli-
tíðinni mundi fulltrúar Banda-
rikjanna og Hanoi ræðast við um
atriði sem sérstaklega snerta
stjórnir þeirra.
Ellsworth Bunker, sendiherra
Bandaríkjanna í Saigon, sagði
einnig, að viðræður kæmu ekki
til greina án þátttöku Saigon-
stjórnarinnar. Hann staðfesti að
Bandaríkjastjórn viðurkenndi
ekki „Þjóðfrelsishreyfinguna“ og
myndi ekki styðja samsteypu-
stjórn í Saigon.
Svipuð yfirlýsing hefur kom-
ið frá Suður-Kóreu. H Kwon
Chung, forsætisráðherra, sagði í
Seoul, að Bandaríkin hefðu full
vissað Suður-Kóreu um að
sprengjuárásir yrðu hafnar aftur
ef Hanoi dregur ekki tilsvarandi
úr sínum hernaðaraðgerðum. Því
hefði einnig verið lofað að „Þjóð
frelsishreyfingin“ hlyti ekki við
Nam gæti sameinast smámsam-
an á grundvelli viðræðna milli
hinna tveggja hluta, án íhlutunar
utanaðkomandi aðila. Bandarík-
in yrðu örugglega sigruð og bezt
væri fyrir yfirmenn, hermenn
og stjórnmálamenn í Suður-Viet
nam að slást í lið með Viet Cong
meðan enn væri tími til. Hún
kallaði stjórnina í Saigon sam-
ansafn af föðurlandssvikurum,
sem væri undir stjórn banda-
rísku innrásarliðanna.
Stjórn Suður-Vietnam hefur
upplýst, að hún hafi undir hönd
um leyniskj al sem náðíst
skömmu áður en árásum á Norð
ur-Vietnam var hætt. í því eru
skipanir um að auka hernaðar-
og áróðursaðgerðir um leið og
stöðvunin komi til framkvæmda.
Héraðshöfðingjum er skipað að
auka skæruhernað, hryðjuverk,
morð og skemmdarverk, um allt
Suður-Vietnam. Talsmaður banda
rísku herstjórnarinnar sagði, að
þeir hefðu fengið „svipaðar upp-
lýsingar" en neitaði að segja
meira.
Veglegt afmælis-
blað Vikunnor
VIKAN á þrjátíu ára afmæli um
þessar mundir. I tilefni af þvi er
kornið út vandað afmælisblað, 72
síður að stærð, þar af 4 síður
prentaðar á myndapappír. Af
efni blaðsins má nefna viðtöl við
Hilmar A. Kristjánsson og Hall-
dór Pétursson listmálara, smá-
sögu eftir Guðmund Danielsson,
grein og myndir um Lundúna-
dvöl Hljóma og ótalmargt fleira.
Vikan hóf göngu sina 17.
nóvember 1938. Stofnandi henn-
ar og fyrsti ritstjóri var Sigurð-
ur Benediktsson. 1940 tók Jón
H. Guðmundsson við ritstjórn-
inni, og var hann ritstjóri blaðs-
ins næstu 12 árin. Þá varð Gísli
J. Ástþórsson ritstjóri og síðan
Ríkisstjórnin gerir
ráðstafanir
til að sala á katfi,
sykri og hveiti
stöðvist ekki —
RÍKISSTJÓRNIN hafði af því
fregnir í gær, að innflytjendur
hefðu í hyggju að stöðva inn-
flutning á kaffi, sykri og hveiti.
Vörur þessar eru fluttar inn
með greiðslufresti, og óttuðust
innflytjendur þessara vara að
þeir kynnu að verða fyrir tjóni
af þessum sökum vegna vænt-
anlegra efnahagsaðgerða.
Á fundi sínum í gær ákvað rík
isstjórnin að bæta innflytjend-
um þessa varnings það tjón, sem
þeir kynnu að verða fyrir af
völdum fyrirhugaðra aðgerða,
miðað við eðlilega sölu frá deg-
inum í gær að telja og þar til
aðgerðirnar koma til fram-
kvæmda. Ætti því ekki að koma
til skorts á þessum vörum, eins
og útlit var fyrir.
Jökull Jakobsson. Á þeim rima
keypti Hilrnar A. Kristjánsson
(Hilmir hf.) blaðið, og í hans tíð
stækkaði það úr 16 siðum í nú-
verandi stærð, 52 síður. Þá var
einnig tekið að prenta kápu
blaðsins í fjórum litum, sem var
algjör nýjung hér á landi. 1959
var Gísli Sigurðsson ráðinn rit-
stjóri, og var blaðið undir hans
stjórn þar til 1967.
Vikan er eina vikublaðið sinn-
ar tegundar hér á landi. Nú sem
fyrr er lögð áherzla á að birta
fjölbreytt efni við allra hæfi,
bæði til fróðleiks og skemmtun-
ar. í seinni tíð hefur sú nýjung
verið tekin upp að birta blaða-
úrdrætti úr bókum, sem mikla
athygli hafa vakið erlendis. Má
þar nefna bókina um dauða
Kennedys forseta eftir Manchest-
er, 20 bréf til vinar eftir
Svetlönu, Tópaz eftir Leon Uris
og nú síðast Sögu Bítlanna og
Sögu Forsytættarinnar. Af vænt-
anlegu efni má nefna palladóma
um alþingismenn, sem Lupus
hefur skrifað fyrir Vikuna. Nú-
verandi ritstjóri Vikunnar er
Sigurður Hreiðar, en meðrit-
stjóri Gylfi Gröndal.
Listi yfir heildar atkvœðamagn og
kjörmannaatkvœði frambjóðenda
demókrata og republikana í forseta-
kosningunum undanfarin 40 ár: —
Vetrnisfnrí Sjólfstæðiskvennn-
félngsins Eddu í Kópnvogi
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
í Kópavogi hefur hafið vetrar-
starf sitt. Sauma- og föndurkvöld
eru alla þriðjudaga kl. 20.30.
Hinn 17. nóvember verður hinn
árlegi bazar félagsins. Þar er
margt góðra muna til jólagjafa.
Snemma í desember verður
sýnikennsla í jólaundirbúningi.
Fyrirhuguð er handavinnu-
kennsla. Kennt verður listsaum-
ur, hvítsaumur, klaustursaumur,
hedebo, blómstursaumur, orker-
ing, silkimálun, og tauprent.
Þær félagskonur, sem ætla að
sækja þe3si námskeið tilkynni
þátttöku í síma 41286 og 40159.
Ár: Frambjóðendur: Flokkur: Kjörmenn: Atkv.magn:
1928: Herbert C. Hoover R 444 21.392.190
Alfred E. Smith D 87 15.016.443
1932: Franklin D. Roosevelt D 472 22.821.857
Herbert C. Hoover R 59 15.761.841
1936: Franklin D. Roosevelt D 523 27.476.673
Alfred M. Landon R 8 16.679.583
1940: Franklin D. Roosevelt D 499 27.243.466
Wendell L. Willkie R 82 22.304.755
1944: Franklin D. Roosevelt D 432 25.602.505
Thomas E. Dewey R 99 22.006.278
1948: Harry S. Truman D 303 24.105.695
Thomas E. Dewey R 189 21.969.170
1952: Dwight D. Eisenhower R 442 33.824.351
Adlai E. Stevenson D 89 27.314.987
1956: Dwight D. Eisenhower R 457 35.585.316
Adlai E. Stevenson D 74 26.031.322
1960: John F. Kennedy D 303 34.277.096
Richard M. Nixon R 219 34.108.546
1964: Lyndon B. Johnson D 486 42.995.259
Barry M. Goldwater R 52 27.175.770