Morgunblaðið - 06.11.1968, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.11.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1968 5 „ Nú erum við að gera klárt “ Rambað um bryggjusporða ÞAÐ er alltaf eitthvað um að vera við höfnina, skip að koma og fara, menn að ianda, skipa upp og út vörum, gera við veiðarfæri og sitthvað fleira. Við löbbuðum einn dag inn með höfninni og fylgd- umst með sjómönnunum og þeim sem vinna við höfnina. Það var hugur í flestum og þeir voru hressir og kátir að — Við erum búnir að vera á togveiðum síðan um mán- aðamótin febr.-marz, en höfð um verið á síld áður. Við hættum á síldinni um hátíðarnar í fyrra, bæði var ekkert að hafa eftir það og okkur þykir báturinn heldur lítill fyrir síldina, ef langt er að sækja. — Hvernig hefur aflazt? — Það hefur verið frekar tregt, en þó sæmilegt á köfl- um. Þetta hefur mest verið þorskur, en nokkuð af ufsa og ýsu, lítið af karfa. — Þið eruð með bobbinga- troll. — Já, við erum með eintóma járnbobbinga. Okkur reyndust gúmmíbobbingarnir ekki eins vel, járnbobbingarnir eru létt- ari í drætti og koma betur út. — Eruð þið að gera klárt? Frá Granda. í slippnum í fjarska eru 4 mismunandi skip í viðgerð: togari, Árni Friðriksson, Esjan og mótorbátur. búa skip sín til veiða. Áhöfnin á Gróttu RE var að vinna í lestinni, ekki við löndun, heldur breytingu á lestinni til þess að betra væri að ísa fisk í hana. Gróttumenn voru að ganga frá sérstökum hillum í lestinni, þar sem fisk inum verður raðað á og hann ísaður vandlega. Við tókum tali Guðmund Ólafsson, skipstjóra á Gróttu, sem er 180 tonna skip með 9 manna áhöfn, en skipið hef ur að undanförnu verið með troll: — Hvað hafið við verið með troll lengi? Kosið i stjórn Kvik- myndaklúbbsins Nýlega var haldinn aðalfund- ur Kvikmyndaklúbbsins. Þar var kosin fyrsta stjórn klúbbsins, en hana skipa þeir: Magnús Skúlason, cand med., RagnarAð alsteinsson, lögfr. og Þorsteinn Blöndal stud med. Samkvæmt lögum klúbbsins og stofnskrá Kvikmyndasafnsins eiga tveir þessara þriggja stjórn enda jafnframt sæti í stjórn hins nýstofnsetta Kvikmynda- safns. Þriðji aðilinn í stjórnþess er skipaður af stofnanda safns- ins. Hefur Vilborg Dagbjarts- dóttir verið skipuð í stjórnina af hans hálfu. Kvikmyndaklúbburinn hóf starfsemi sína eftir sumarleyfin með því að sýna tékkneskar kvikmyndir frá seinni árum, og er sýningum þeirra nú að Ijúka. Á sýningarskrá fram til áramóta eru m.a. myndir eftir Satjadit Ra.j Þá verður sýndur Fjalla- Eyvindur eftir Viktor Sjöström, en sú mynd er meðal þeirra fyrstu, sem nýstofnað Kvik- myndasafn eignast. Einnig verða sýndar brezkar heimildar myndir undir leiðsögn Dr. John Griersons frá árunum 1930 til 1940. Þau sigruðu í leikfimiskóm frá UMBOÐSMENN H. J. Sveinsson ht. Cullteig 6 Sími 83350. Guðmundur Ólafsson, skipstjóri. — Já, nú eruð við að gera klárt og „skvera" og nota tím ann. Við erum búnir að vera í biliríi upp undir mánuð, það hafa verið vandræði í skrúf- unni, en það sézt nú fyrir end ann á því. — Hvað er svo framund- an? — Framundan eru svo á- framhaldandi togveiðar og ef við fáum fisk fyrir Englands- markað, kemur til mála að við siglum. Við höfum verið að breyta lestinni að undan- förnu til þess að hún geymi betur ísaðan fisk, en þegar við ísum röðum við öllum bolfiski og ísum á hillur. á.j. SANDVIK SNJÓNAGLAR Á hjólbörðum negldum með SANDVIK snjónöglum getið þér ekið með öryggi á hál- um vegum. SANDVIK pípusnjónaglar fyrir jeppa, vörubíla og lang- ferðabíla taka öðrum snjó- nöglum fram. Gúmmivínnustofan h/f Skipholti 35 — Sími 31055 — Reykjavik. AF HVCRJU VELJA FLEIRI OG FLEIRI SOMVYL veggdúk? VEGNA ÞESS AÐ SOMVYL ER SÉRSTAKLEGA HLÝLEGT. SOMVYL ER MJÖG GOTT AÐ HREINSA. SOMVYL ER STERKT OG ENDINGARGOTT. SOMVYL ER UM LEIÐ HLJÓÐEINANGRUN. SOMVYL ER I.ÍKA HITAEINANGRUN. SOMVYL MÁ LEGGJA Á ÓSLÉTTA Á VEGGI, OG FYRIR ÞÁ SEM ERU AÐ BYGGJA- SPARAR SOMVYL FÍNPÚSSNINGU. FJÖLBREYTT LITAÚRVAL. AÐEINS ÞAÐ BEZTA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.