Morgunblaðið - 06.11.1968, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.11.1968, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1968 Halldór Ásgrímur Guðmundsson Æðey — Minningarorð F. 10. apríl 1889. D. 30. okt. 1968. í dag fer fram frá Foss- vogskapellu útför Halldórs Guð mundssonar frá Æðey. Hann var fæddur að Æðey 10. apríl 1889. Foreldrar hans voru hin víð- þekktu merkishjón, Guðmundur Rósinkransson frá Æðey og Guð- rún Jónsdóttir frá Arnardal, af hinni fjölmennu og víðkunnu Arn ardalsætt. — Æðey hefur frá fyrstu öldum íslandsbyggðar verið eitt af búsældar mestu höfuðbólum landsins. Byggðist búrekstur þar jöfn- um höndum á blómlegum land- búnaði og útgerð, sem stunduð hefir verið í Æðey frá fyrstu tíð og fram á 4. tug þessarar ald- ar. I>ó hefir Æðey um alllangt skeið verið mesta dúntekjujörð á fslandi og mun vera það enn. — Þeir sem komið hafa til Æðeyj ar að sumarlagi munu seint gleyma fegurð hennar og litskrúð er hún rís_ skrúðgræn úr hinu fagra bláa ísafjarðardjúpi. Á eynni sjálfri skiptast á hól- ar og lægðir hamrar og víkur, sem á vorin eru þéttsetin og ið- andi af aeðarfugli og fjölmörgum öðrum fuglategundum. Á þessu fagra og glæsta óðali þeirra Guðmundar og Guðrúnar ólst Halldór heitinn upp ásamt stórum og glaðværum systkina- hópi. Var hann frá æskualdri bæði starfgefinn og lagvirkur og vandist því snemma öllum heim- ilisstörfum, bæði til sjós og lands. Mun hann þegar á unga aldri hafa tekið við einskonar verk- stjórn á hinu fjölmenna og um- svifamikla Æðeyjarheimili. Mátti um Æðey segja eins og Sighvat- - ALÞINGI Framhald af bls. 11 væri gert. Menn yrðu að átta sig á, í hverju gallar þingstarfanna væru fólgnir og ræða um þau á nógu breiðum grundvelli, en ekki taka einstök atriði úr, eins og gert hefði verið. Þá vék ráðherra einnig að gagnrýni Eysteins Jónssonar á útvarpinu og sagði að við mörg tækifæri væri pað óhjákvæmi- legt að frekar væri sagt frá ráð stöfun ríkisstjórnar heldur en at höfnum stjórnarandstæðinga, þar sem menn vildu heldur segja frá athöfnum en hugsunum. Erfitt væri að komast fram hjá þessu atriði, hverjir svo sem sætu við stjórnvölinn. Það væri hins vegar óframkvæmanlegt að stjórnarandstæðingar segðu jafn an sína skoðun á málinu og mætti til nefna hliðstæðu að ekki ætti þá að segja frá álykt- unum t.d. LÍÚ tða bændasamtak anna, ef enginn væri til and- svara. Ráðherra sagði að ekki væri eftir því sótt hjá ráðherrum að frá ræðum þeirra og sjónarmið- um væri skýrt, en fréttastofnan- irnar sjálfar væru að verða æ aðgangsfrekari eftir fréttum. Að lokum tók Benedikt Grön- dal til máls. Sagði hann að á út- varpi pólitískra málefna og um- ræðna hefði orðið stórfelld breyt ing í frjálsara form að ræða und anfarin ár. Það væri rétt, að ó- hjákvæmilega hefðu ráðherrar jafnan meiri fréttir fram að færa en stjórnarandstæðingar, og því leituðu fréttastofnanir meira til þeirra. Finna þyrfti leiðir til þess að stjórnarandstæðingar fengju tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum og hugmynd um á framfæri. Slík lausn væri heppilegri heldur en að fella nið ur núverandi form og snúa til baka til þess tíma er stjórnmála umræður eða umræður um póli- tísk mál voru útilokuð í útvarp- inu, án þess að þar ríkti full- kominn jöfnuður milli ólíkra sjónarmiða. ur forðum — að margs þurfti bú- ið við. — Eftir andlát Guðmund- ar í Æðey árið 1906 veittu þau systkinin 3, Ásgeir, Halldór og Sigríður búi Guðrúnar mpðux sinnar forstöðu og eftir andlát hennar árið 1981 tóku þau við sjálfstæðum búrekstri í Æðey um 30 ára skeið, eða til ársins 1961 er þau brugðu búi og flutt- ust hingað til Reykjavíkur. Er það eigi ofmælt að búrekst- ur systkinanna í Æðey var nafn- frægur víða um land sakir mynd arlegra búnaðarhátta, risnu og höfðingsskapar, sem einkenndi heimili þeirra frá fyrstu tíð. — Þeir voru einnig margir nauðleit armennirnir, bæði innan hrepps og utan, sem leituðu ásjár þeirra og liðveizlu, og sem fengu þar fyrirgreiðslu, hjálp og aðstoð, er var af góðsemi og veglyndi veitt. f Æðey dvaldi á hverju sumri fjöldi aðkomubarna og unglinga, stundum munu þau hafa verið á milli 10—20. Þeir munu því marg ir sem á fullorðinsárunum minn- ast til æfiloka hins glæsta heim- ilis þeirra systkina og hinna hollu uppeldisáhrifa 3em þeir nutu þar^ Hið fjölmenna heimili þurfti mik illa aðdrátta og umsjónar við og þekktu það allir er kunnugir voru að Halldór var ávallt vakinn og sofinn að vinna að hagsæld heim ilisins og vaka yfir velferð þess, afkomu og öllum þrifnaði í smáu sem stóru. Hann var uppalandi og vinur barnanna, sem þarna dvöldu, en hann var jafnframt vinur dýranna á eynni, fuglanna sem verptu við gluggann og bú- fjárins, sem hann annaðist af nær gætni og hjartahlýju. Natni þeirra Æðeyjarbræðra í meðferð búfjór var rómuð og á orði höfð. Halldór var maður heilsteypt- ur, hreinlyndur og ákveðinn í skoðunum. Öll var skapgerð hans einlæg, traust og fastmótuð, enda fór hann aldrei í grafgötur með skoðanir sínar. Hann var holl- ráður og tillögugóður í hvívetna. Vinátta hans var einlæg, traust og ógleymin, það vissu og reyndu vinir hans bæði fyrr og síðar. Halldór var einnig prýðilega greindur, glöggskyggn, athugull og raunsýnn á hvert það mál- efni, sem hann kynnti sér. Eftir að Halldór fluttist hing- að til Reykjavíkur gekk hann aldrei heill til skógar. Þrek hans var smátt og smátt að fjara út, eins og dvínandi skar. Þrátt fyr- ir það bar hann sjúkleik sinn með einstæðu þreki, glaðlyndi og æðruleysi enda efaðist hann ekki um bjarta dagrenningu framund- an, þar sem þrautir þverra og dagur ljómar eftir dimma nótt. Þegar Halldór frá Æðey er kvaddur hinztu kveðju minnumst vér hins drenglynda, góðsama og raunsæja manns, sem í hvívetna vandaði dagfar sinn og gengur ð leiðarlokum með hreinan skjöld af hólmi lífsins. Vér vinir hans kveðjum hann með einlægri þökk fyrir frábæra kynningu og drengi legt og göfugt ævistarf. Bless- uð sé minning hans. Þorsteinn Jóhannesson. Búizt viö hafnarverk- falli í Bandaríkjunum — Eimskip flytur 7.500 tonn af frystum fiski vestur um haf BÚIZT er við verkfalli hafnar- verkamanna í Bandaríkjunum hinn 20. desember nk., og horfir illa með lausn þess. Hafa því verið miklir vöruflutningar til Bandaríkjanna héðan að undan- förnu og þá sérstaklega á fryst- um fiski, til að nóg verði af vör- unni á boðstólum þegar verkfall- ið skellur á. Samkvæmt upplýsingum Eim- skipafélags íslandis fór Brúar- foss 23. október sl. frá íslandi og fiskflökum til Bandaríkjanna, með fuílfermi af frystum fiski Ekið d kyrr- stæðan bíl í GÆRDAG á tímabilinu frá kl. 18.30-45 var ekið á rauða Saab- bifreið, sem stóð á móts við Lita ver við Grandaveg. Var vinstra frambretti bifreiðarinnar beygl- að mjög mikið, jafnframt því sem bifreiðinni var ýtt um 40 cm til hliðar. Er því enginn vafi að sá, sem árekstrinum olli, hef- ur orðið var við hann, og er skorað á ökumanninn, og vitni að gefa sig fram hjá umferðar- deild rannsóknarlögreglunnar. An-fln kvaddur heim til Moskvu nftur — Moskvu, 5. nóvember — AP Menningarmálaráðuneyti Sovét- ríkjanna tilkynnti í dag, að An- An, risaþvottabjörn fjölleikahúss ins í Moskvu, yrði að koma strax heim. Fyrir tveimur mánuðum fór An-An til London „með ást- arkveðju frá Rússlandi“ til fund ar við risaþvottabimuna Chi- Chi. Var vonast til að ástir tækj- ust með þeim og að árangurinn af því yrði risaþvottabjarna- bam. An-An og Chi-Chi eru einu dýrin 'sinnar tegundar í Evrópu ísland hefur 2:0 ó móti Mongóliu Guðmundur vann stórmeistarann Donner ÍSLENZKA skáksveitin tefldi í gærkvöldi við Mongólíu í 12. um ferð. Ingi R. vann Uitjumen, Guð mundur á sennilega tapaða bið- skák á móti Marsuren, Bragi vann Zorigt og Jón á vonandi unna biðskák á móti Purevjav. Hafa því íslendingarnir tvo vinninga og tvær biðskákir. Holland vann ísland 2%—1% í 11. umferð. Guðmundur vann Donner, Bragi tapaði fyrir Ree, Jón gerði jafntefli við Buw- meest og Björn tapaði fyrir Prins. Árangur Guðmundar er mjög athyglisverður, þar sem Donner er stórmeistari. Guðmundur hef- ur ekki tapað skák frá því á móti Spáni í annari umferð, og hef- ur fengið 4% vinning í síðustu 5 skákunum, þar af hefur hann teflt tvisvar á fyrsta borði. Jón hefur einnig teflt mjög vel og hlotið 4 vinninga í síðuistu 5 skákum. Önnur úrslit í 11. umferð urðu þessi: England — Austurríki 2—2, fsrael — Kúba 2%—1%, Betgía — Sviss 2—2, Spánm — Svíþjóð 2%—1%, Skotland — Mongólía 2%—1%, Finnland — Brasilía 2—2. í A-riðli eru Sovétríkin enn efst og hafa reyndar nú þegar tryggt sér sigurinn í þeim riðli. í B-riðli hefur England forustu, ísland er í 9. sæti og í C-riðli eru Norðmenn efstir. Nígería: og þetta var tilraun til að fjölga stofninum. En þau An-An og Ohi-Chi sýndu hvort öðru eng- an áhuga og ein skýringin var sú, að stjórnmálaskoðanir þeirra væru of ólíkar til að vel gæti farið. Yfirmenn dýragarðsins í Lon- don spurðu, hvort An-An gæti ekki fengið að vera dálítið leng- ur, í von um að allt færi vel að lokum, en Rússar sögðu nei. Telja sumir, að þeir óttist að An- An verði fyrir of miklum vest- rænum áhrifum. Þessari sorg- legu „ástarsögu“ lýkur því ein- hvern næstu daga, þegar An-An stígur upp í Aeroflot-flugvél og heldur 'heimleiðis. Gárungar segja, að það sem hafi ráðið úrslitum sé, að Rússar og Bret- ar hafi ekki getað komið sér saman um hvort afkvæmið yrði rússneskur eða brezkur „ríkis- þvottabjörn“. Kveðst hafa ný vopn — sem geri kleift að skjóta niður flugvélar að nóttu til Lagos, 5. nóvember — NTB NÍGERÍUSTJÓRN hefur enn einu sinni lýst því yfir að hún muni skjóta niður allar flug- vélar ,sem fljúgi yfir Biafra að nóttu til og kveðst nú hafa vopn til þess. Það var Ant- hony Enahoro, talsmaður sam bandsstjórnarinnar, sem flutti þessar fréttir, en hann gat i ekki um hverskonar vopn i það væru sem þeir hefðu / fengið. / Alþjóða Rauði krossinn hef 1 ur lýst áhyggjum sínum út af » þessu og talsmaður hans L sagði, að þetta kæmi eins og / þruma úr heiðskíru lofti, eng- ar umræður hefðu farið fram um þetta efni. Hann sagði, að síðast, aðfaranótt þriðjudags, hefðu flugvétar Rauða kross- ins flutt matvæli til Biafra. Hann sagði einnig, að Rauði krossinn værj fús til þess að hefja flug að degi til, með því skilyrði, að Biaframenn lofi að engir vopnaflutningar eigi sér þá stað. Biaframenn hafa hafnað þessu á þeim forsend- um, að orustuvélar sambands- stjórnarinnar geti þá fylgt matvælaflutningavélunum eft ir og fundið leynilega flug- velti sem þeir nota. alls um 2 þúsund tonn. Lagar- foss og Selfoss fara í þessum mánuði til Bandaríkjanna, einnig með fullfermi, og Brúarfoss mun fara aftur vestur um haf að lok- inni þeirri ferð, sem hann er nú í. Nema frystivöruflutningar í þessari ferð samtals um 7.500 tonnum. Per Olof Sundman. Loft- siglingin — verðlaunabók Norðurlanda- ráðs komin út hjá AB LOFTSIGLINGIN eftir sænska rithöfundinn Per Olof Sundman, sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir árið 1967, er komin út hjá Almenna bóka- félaginu. Ólafur Jónsson þýddi söguna á íslenzku. í tilkynningu AB um bókina segir: „Árið 1930 gerðist sá við burður á nyrzta hjara heims, sem lagði heimsblöðunum til efn ið í stærstu forsíðufrétt síns tíma. Á Hvítey við Svalbarða höfðu norskir selveiðimenn fund ið leifarnar af frægum heim- skautaleiðangri, kenndum við hinn sænska íoringja, Andree verkfræðing, sem ásamt félögum sínum tveimur hafði horfið um merkjalaust 33 árum áður, og síðan ekkert til spurzt. Hver leit arleiðangurinn af öðrum hafði verið sendur út af örkinni og mánuðum saman biðu menn í of væni, en árangurslaust. Það leit ekki út fyrir að þögn heim- skautsins mundi nokkru sinni gera leyndarmál sitt uppskátt, en nú voru ekki einungis líkams leifar þeirra félaganna komnar í leitirnar, heldur einnig dagbæk- ur þeirra og ljósmyndafilmur, allt merkilega heilt og vel varð- veitt. Þannig atvikaðist það, að heimurinn beið að áratugum liðnum í nýju ofvæni eftir að heyra sögulok hinna látnu ofur huga, í þetta sinn af vörum þeirra sjálfra". Bók Sundmans byggist á dag- bókum leiðangursmanna og öðr um tiltækum heimildum um und irbúning leiðangursins, loftferð- ina sjálfa og loks hrakninga á heimskautaísnum, allt þar til dauðinn tekur fram fyrir hend- urnar á þeim. Loftsiglingin er 310 bls. I stóru broti, kápu gerði Kristín Þorkelsdóttir. Bókin er prentuð í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.