Morgunblaðið - 06.11.1968, Síða 17

Morgunblaðið - 06.11.1968, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NOVEMBER 1968 17 leit að Vínlandi hinu góða Það var liðið ár og kominn timi til að leggja aftur af stað til Lance aux Meadows og byrja uppgröftinn. Báturinn sem við höfðum til fararinnar hét Halt- en. Hann var einn af björgunar bátum hins gamla góða Colin Archers, 47 feta langur, byggð- ur úr eik. Það var nauðsynlegt að hafa bát, því að jafnframt því sem við ynnum að uppgreft- inum yrðu farnar könnunarferð ir með ströndum Labrador til að vita hvort við fyndum fleiri tóftir. Svo einn góðan veðurdag var Halten hífður um borð í skipið Byklefjell, sem átti að flytja hann og okkur yfir Atlantshaf- ið. Við sigldum inn St. Lawr- ence flóann þar sem miklar ís- hellur glömpuðu í sólskininu, upp fljótið og til Montreal. Þar höfðum við nokkra viðdvöl með an við undirbjuggum ferð okk- ar. Það eru margir Norðmenn í þessari borg og margir þeirra voru okkur hjálplegir, ekki síst konsúllinn Ivar Melhuus. Svo loksins lögðum við frá bryggjunni þar sem hópur landa okkar stóð og veifaði. Við sigld- um niður fljótið mikla og út í St. Lawrence flóann aftur. Við höfðum áætlað að fylgja norð- urströndinni sigla gegnum sund ið við Belle Isíe og áfram austur til tóftanna á nyrzta hluta Ný- fundnalands. Meðan á þeirri ferð stæði ætluðum við að rann- saka ströndina eins vel og við gætum á þeim stöðum sem voru það byggilegir að við teldum mögulegt að víkingarnir hefðu tekið þar land. Einstaka vísindamenn telja að Vínland sé á þeim slóðum. Við vorum sex um borð. Fyrir utan mig voru það konan mín Anna Stína, sem átti að stjórna upp- greftinum, skipstjórinn Paul Sör nes, ljósmyndari og aðstoðarmað ur sem heitir Erling Brun- borg, matsveinninn var dr. Odd Martens og honum til aðstoðar cg reyndar okkur öllum var dóttir mín Benedicte. Það fyrsta athyglisverða sem við sáum var hvalavaða. Það voru Mjaldar og þeir byltu sér og léku alls óhræddir rétt við bátinn. Ef eskimói hefði séð þá hefði hann fengið vatn í munn- inn, en franskir kanadamenn menn kæra sig ekkert um þá. „Landið sem Guð gaf Kain“ kallaði Jaques Cartier, norður- strönd St. Lawrenceflóans þeg- ar hann uppgötvaði hana 1534. Og það er ekki svo fjarri lagi, við sáum úfið skógi klætt land með litlu grasi eða öðrum gróðri. Meðan við héldum lengra og lengra austureftir var ég enn að hugsa um hvemig víkingunum hefði litist á landslagið, var beitilandið nógu gott? Við stopp uðum oft, fórum í land og könn- uðum þau svæði sem okkur fannst likleg. Við komum að mörgum smáþorpum þar sem fólkið býr svotil algerlega ein- angrað og lífið er með sama hætti og fyrir hundrað árum. Prestarnir þarna virtust stjórna fiestum hlutum og þeir tóku vin samlega á móti okkur. Fólkið lifði á fiskveiðum og loðdýra- veiðum, margt kunni ekki að skrifa. Við komum líka í Indí- ánaþorp, (Montaignais índíána) þar sem fólkið starði undrandi á okkur, og það var erfitt að komast i samband við það. En börnin komu á móti okkur á harðahlaupum, og þarna voru stúlkur sem líktust fallegum villt um dýrum. Halten hélt áfram austur á bóginn. Stundum hvessti og há- ar öldur þeyttu honum sitt á hvað, stundum var sjórinn speg- ilsléttur, þakinn ótölulegur grúa fugla. En okkur varð smámsaman ljóst að það var ólíklegt að vík- ingum hefðu fundist þessi strönd freistandi. Svo loksins fórum við um sundið við Belle Isle og stefndum austureftir að nyrzta odda Nýfundnalands og tóftanna við Lance aux Meadows. Big Chief stóð á ströndinni og tók á móti okkur, með breitt glott á sínu sjóræningjafési. Það er gott að vera kominn aftur á þennan stað, þar sem landið er svo miklu frjósamara en hrjóstr ugar strandirnar sem við höf- um siglt mieðfram. Hið slétta land er fagurgrænt, við strönd- ina stinga jarðaberjarunnar upp kollinum, mýrin bak við tóftirnar er hvít af blómum og Írísíu við hjalandi ána er rétt í þann mund að breiða úr bláum blöðum sinum, Það eina sem er kuldalegt við umhverfið er gríð- arstórt ísfjall sem rekið hefur á land milli eyjanna, eftir langa ferð suðureftir Labradorstraumn n. Svo byrjuðum við uppgröft- inn undir stjórn Önnu Stínu. Eins og ég hef áður sagt eru tóftirnar á landlengju um 100 metra frá flæðarmálinu. Það ar alveg eins líklegt að við yrðum íyrir vonbrigðum, rústirnar gætu verið eftir Eskimóa, Indíána eða landnema sem komu þangað eft- ir að Cabot uppgötvaði landið 1497. Það var spennandi gröftur. Síðari grein Við byrjuðum á lítilli tóft sem var næstum ferhyrnd. Eftir því sem neðar kom urðum við spennt ari og spenntari, við tókum strax eftir því að þarna voru engin steináhöld eða mulningur frá steinvinnu, eins og er svo al- gengt að finna í rústum eftir Fskimóa eða Indíána. f neðsta laginu kemur í íjós eldstæði við vesturvegginn, hyrnt með uppi- standandi steinhliðum. Rétt þar hjá er gróf með trékolum, lék- lega nokkurskonar hlóðir. Lag af trékolum í miðju herberginu gefur til kynna að þar hafi ver- ið langeldur. En athyglisverðasti fundurinn var lítið glóðarker, rétt við langeldinn. Það var grafið í gólfið og með hellu á botninum og á þrjár hliðar. Þar hafa glæðurnar líklega verið geymdar yfir nóttina til þess að auðveldara yrði að kveikja upp um morguninn. Þetta var mjög ánægjulegur ár angur, ekki síst að finna glóðar kerið en mörg samskonar hafa fundist á bæjum í hinum nor- rænu byggðum Grænlands. Á höfðingjasetrinu í Brattahlíð þar sem Leifur Eiríksson bjó fannst einnig samskonar glóðarker. Byr.junin lofaði góðu, en það /ar mikið eftir og eins gott að draga ekki of margar ályktan- ir. í næstu tóft fundum við þung an klump sem eftir öllu að dæma hlaut að vera gjall, og það var dálítið merkilegt. Gjallið hlaut að vera frá járn vinnslu. Víkingarnir voru vel að sér í henni, en ekki Eskimóar- nir eða Indíánarnir sem hömr- uðu járnið kalt. En hvar var járnvinnslan, smiðjan og hráefn ið? Mýrarmálmur? Það varð að sýna sig seinna. Það var ætlunin að halda áfram uppgreftinum stanzlaust fram á haust en um leið áttu nokkur okkar að sinna öðrum mikilvæg um verkefnum. Það þurfti að kanna strendur Labrador betur en ég hafði gert síðastliðið ár. Sörnes, skipstjóri brosti breitt þegar hann heyrði að Halten ætti aftur að kljúfa bylgjurnar. Við héldum norðureftir, fram- hjá Belle Isle og áfram með- fram skoróttri ströndinni þar sem er aragrúi eyja og þar sem fjörður eftir fjörð skerst inn í landið. Það er villt land þar sem fáir búa, aðeins nokkrir fiski- menn, loðdýraveiðimenn, Eski- móar og Indíánar. Það er allt, að undanskildnum nokkrum námum lengst í vestri. Landið var nokk uð slétt og skógi klætt. Þegar maður sér það frá sjónum, pass- ar lýsing sögunnar á ferð Leifs Eiríkssonar mjög vel. Þar seg- ir: að landið hafi verið slétt og skógi vaxið. Þeir hafi gefið því nafn í samræmi við það og kall- að það Markland. Við komum til Cartwright og fórum nokkrar könnunarferðir inneftir Sandwich Bay, þar sem sumir telja að Þorfinnur karl- efni hafi átt höfuðstöðvar. Þar rákust við á veiðikofa þar sem 78 ára gamall unglingur bjó með kynblendings konu. Hann átti 21 barn og þau þeyttust hróp- andi fram og aftur umhverfis kofann. Það var ró yfir mann- inum í þessum fátæklega kofa og hann virtist vera ánægðari með lífið en flestir sem ég þekki. Frá Cartwright sigldum við í fimm tíma í norðurátt og þá breytist ströndin á furðulegasta fcátt, breið sandströnd nær alveg veg upp að skógarjaðrinum svo langt sem augað eygir. Frá þess ari strönd liggur langur oddi „Porcupine Point“ sem líkist skipi á hvolfi. Það eru næstum engar eyjar fyrir utan svo að þegar vínlandsfararnir komu siglandi suðurmeð ströndum Labrador hafa þeir ekki komizt Ihjá því að sjá þessa strönd sem er minnst sextíu kílómetra löng. Það var prófessor V. Tann er sem hélt því fram að þetta hlytu að vera Furðustrandir og að öllum líkindum hefur hann á réttu að standa. Mér finnst einn ig líklegt að hinn langi oddi sé „Kjalarnesið". f sögu Þor- finns karlsefnis segir að þeir hafi gefið ströndunum nafn og kallað þær Furðustrandir vegna þess hve langan tíma það tók að sigla meðfram þeim. Við fórum í land á oddanum og skoðuðum okkur um kring. Við fundum nokkrar gamlar rúst ir en þær eru tæplega eftir nor- iænt fólk. Við gengum eftir ströndinni sem er vel 100 metra breið Sandurinn er fíngerður og öldurnar gjálfra við ströndina. Skógurinn nær svotil niður að flæðarmálinu og þar eru bein- vaxin grenitré. Við rekumst á nýleg bjarnarspor sem eru skýr i rökum sandinum. Við fáum íljótlega skýringu á því hvers- vegna svona margir birnir eru á ferli. Þetta er sá tími að loðn- an kemur upp að landi. Sums- staðar hefur heilum torfum skol að á land og smásíldin er eins og glitrandi belti eftir fjörunni. Fyrir utan eru torfur af stór- þorski. En fyrst þegar kvöldar sjáum við hversu ótrúlega marg ir birnir það eru sem hafa lagt leið sína niður að sjónum. Við sjáum tíu svartbirni og þeir eru svo nærsýnir að þeir labba stundum beint í fangið á okkur til mikillar ánægju fyrir Brun- borg, sem skoppar í kringum þá og fer í kapphlaup við þá. Við göngum á land á fleiri stöðum og finnum nokkrar rúst- ir en engar sem okkur þykir líklegt að séu eftir víkingana. Svo er haldið aftur til Lance aux Meadows. Þegar við siglum suðurmeð ströndum Labrador kemur mér enn í hug hversu eðlilegt það hefði verið fyrir víkingana að stefna beint á Ný fundnaland, þegar það kemur í ljós út við sjóndeildarhringinn. Við siglum milli Big og Little Sacred eyja og skipstjórinn seg- ir: Þessa leið myndu allir sjó- menn fara. Kunnuglegt umhverfi Lance aux Meadows birtist og við för- um að verða spenntir. Hvað hafa Anna Stína og aðstoðarmenn hennar grafið upp meðan við vor um í burtu? Kannske eitthvað sem staðfestir eða afsannar allt sem ég hafði gert mér í hugar- lund. Þegar báturinn urgar í fjöru- borðinu kemur hún hlaupandi með Big Chief, og bæði eru bros andi. Það er semsagt allt í lagi. Hún leiðir okkur upp að tóft- unum, norðaustur hluta þeirra, og sýnir okkur hina miklu upp- götvun. Þar hafði jarðvegurinn verið svotil sléttur og við gát- um aðeins gizkað á að þar væri eitthvað undir. Við augum okkar núna blasir hálf uppgrafið hús með torf- veggjum. Það lítur út fyrir að vera stórt og merkilegt, og með fleiri herbergjum. Það lítur út fyrir að vera amk. 20 metra langt og næstum jafn breitt. Enn þá eru mörg leyndarmál geymd undir grassverðinum en allt bendir til þess að við höfum fundið eitthvað mikilvægt. Anna Stína stendur við uppgröftinn, þreytuleg en ljómandi af ánægju Síðan Helge Ingstad skrifaði þessar greinar hefur hann far ið margar ferðir til Lance aux Meadows, er nú nýkominn úr þeirri áttundu. Alls hafa verið grafnar upp níu húsarústir og í þeim hafa fundist margir merki legir hlutir. Nú síðast kom leiðangurinn heim með mjög merkilega hring nælu frá víkingaöld sem fannst í langeldi í einu húsanna. Frá- sögn um það birtist í Morgun- blaðinu sunnudaginn 20 október síðastliðinn. (Þýtt og endursagt úr Aften- posten). - SKOLAPROF Framhald af bls. 12 inda. Þessi hlið snýr að nemand- anum sjálfum. Sérréttindi hins skynsama verða ekki fremur réttlætt en sérréttindi hins auð- uga. í frjálsu nútímaþjó'ðfélagi er það fyrst og fremst réttur ein- staklingsins, að fá að þroskast á eðlilegan hátt, án þvingunar eða eftir boðum óréttlátra skilyrða, sem afturhaldssömum áhrifa- mönnum hefur tekizt að við- halda í þjóðfélaginu. Hér er um að ræða eitt af þeim fyrirbærum, sem greina má í menningu og félagsmálaþróun allra þjóða. Stöðnun ákveðinna þjóðfélagsforma og skilgreining þegnanna á stö'ðu einstakra þjóð félagshópa gerir stjórnmálamönn um og öðrum umbótamönnum oft erfitt um vik. Þjóðfélagsfræð .ingar og aðrir þeir, sem vinna að félagsfræðilegum vandamál- um standa hér einnig illa að vígi. Lýðræðishugsjónin, sem byggist á ákvörðunarvaldi almennings um vál stjórnenda, sem hafa yf- irlýstar skoðanir um flest meg- insjónarmið, tekur ekki svo mjög tilllit til hinnar hugsjónalegu mótunar, sem stefnan byggist á. Af þessu leiðir að almenningur á oft erfitt með að greina e’ðli og orsakatengsl einstakra mála- flokka. Það kemur því í hlut þjóðfélagsfræðingsins, að benda á hinar einstöku leiðir, skýra or- sakir og afleiðingar og þannig veita almenningi aðstöðu til að meta málin án fordóma og ann- arra handahófskenndra sjónar- miða. Eins og ég drap á hér að framan hafa Islendingar heils- hugar stutt jafnréttishugsjónina um nám, án þess að greina á milli efnahags, stéttar eða bú- setu. En hvað um einstaklinginn sjálfan, þá mannkosti er hann býr yfir, eftir a'ð þessir utanað- komandi þættir hafa verið metn- ir? Það er einmitt hér sem oss ber að staldra við og athuga af- stöðu vora. Það er sagt að matið byggist á hæfileikum og getu einstaklingsins. En áhrif matsins rista mun dýpra, og meðal ann- ars vegna þess að þjóðfélag vort hefur alið með sér ómeðvitaða dýrkun á „sigurvegaranum.“ Áherzla þjóðfélagsfræðinga á al- menn mannréttindi brjóta því í bág við þ j óðf élagshætti, sem stuðla að sérréttindum á grund- velli skölaprófa. Ég vil sérstak- lega leggja áherzlu á orðið al- menn, því flestir munu gera sér grein fyrir hinum margbreyti- lega aðstöðumun samfara ólíku námi. Matthías Jónasson segir svo um landsprófið: „Það tundur, sem sífellt kveikir deilur um landsprófið, er hlutverk þess að votta hæfni unglinga ti'l æðra náms. Þeir úrskurði hljóta ýms- ir að kvfða, bæði unglingarnir sjálfir og foreldrar þeirra, enda getur hann ekki fallið öllum í vil. Því er von, að þetta sé við- kvæmt mál.“ Hvers vegna er þessi úrskurður, þrátt fyrir veik- ar forsendur, slíkur stóri dæmur, að unglingar og foreldrar þeirra líta tii landsprófsins með kvíða? Höfundur segir: „enda getur hann ekki fallið öllum í vil.“ Auðvitað fellur hann ekki öllum í vil, því það sem hér er verið að gera, er í algerri andstöðu við almenn mannréttindi. Það er einfaldlega verið að afskrifa stærsta hluta íslenzkrar æsku frá því að njóta þeirra réttinda, sem æðra nám veitir. Það er verið að velja úr sáralítinn hóp unglinga til þess að njóta þessara réttinda, ef þeir þá hafa manndóm í sér og getu til að halda áfram námi. Próf gefa vissulega vísbend- ingu um hve vel nemandinn hef- ur lært. Aftur á móti geta eink- unnir aldrei gefið algert tilefni til að tilgreina markalínu mil'li hins hæfa og hins óhæfa. Til þess liggja ótal ástæður. Auk þess má benda á, að fjölmargir eiginleikar, sem gæfu fyllsta til- efni til mats koma hvergi til álita. Eiginleikar svo sem hag- sýni, hófsemi, stjórnsemi, skipu- lagsgáfa, athafnasemi, fómfýsi í starfi, baráttuvilji, samvinnu- andi, hugkvæmni og viljastyrk- ur koma að mjög takmörkuðu leyti til mats. Sama má einnig segja um eiginleika svo sem leti, kæruleysi, þr j ósku, einstreng- ingshátt, eigingirni, tortryggni og skapofsa. Hér er um a'ð ræða eiginleika, sem miklu skipta þeg ar út i lífið kemur. Þessa eigin- leika gefur skólafyrirkomulag vort lítinn möguleika á að kanna og meta. Eins og nú er háttað eru al- menn skólapróf notuð tii þess að meta þekkingu og náms- árangur einstaklingsins í einstök um greinum, án tillits til að- stæðna. Þrátt fyrir það geta þessi próf verið gagnleg, og auk hins formlega tilgangs, geta þau stuðlað að námsárangri. Sem endanlegur mælikvarði á hæfni og óhæfni til ákveðins fram- haldsnáms eru þessi próf mjög vafasöm og jafnast á engan hátt við ýmisskonar greindarmæling- ar og hæfnispróf, sem nú eru almennt notuð vfða um heim. Utanaðkomandi próf, í beinum tengslum við námsefni og kennsl'u skólanna (Sjá Skýri- mynd A) eru nú almennt tal- in mjög óheppileg vegna hinna fjölmörgu neikvæðu áhrifa, sem þau hafa á kennslunna og nám- ið sjálft. íslenzka landsprófið er gott dæmi um þetta úrel'ta form. Það má lagfæra hitt og annað varðandi framkvæmd lands- prófsins, en slíkar lagfæringar geta aldrei haggað megintilgangi og áhrifum prófsins, sem eru í eðli sínu mjög neikvæð. Hannes J. Magnússon lýsir þessum áhrif- um vel í grein, er birtist í Heim- ili og Skóli, árið 1965. Þar segir höfundur á þessa leið: „Prófin stjórna kennslunni. Þarna liggur mesta hætta prófanna yfirleitt. Þau eru draugur, sem hlýtur að fylgja hverjum kennara í starfi sínu og útiloka að verulegu leyti allt jákvætt frumkvæ’ði í kennslunni." En Hannes J. Magnússon hefur einnig aðra lýsingu á prófunum, sem er á þessa leið: „Próf eru nauðsynleg, jafnvel ómissandi, sem lokatak- mark skólagöngu, sem veitir einhver ákveðin réttindi. Það er handhægasta aðferðin til þess að kanna þekkingu manna, sem eiga að taka að sér ákveðið hlutverk í þjóðfélaginu. En fyr- ir utan þetta eru þau óþörf, oft beinlínis hættuleg." Þessi er hin hagnýta hlið málsins, það er, af- staða ríkisins til einstaklings- irns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.