Morgunblaðið - 06.11.1968, Page 21

Morgunblaðið - 06.11.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1968 21 Aðalfundur kennurusam bunds Austurlunds SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM: KVIKMYNDIR AÐALFUNDUR Kennarasam- bands Austurlands var haldinn á Fáskrúðsfirði sunnudaginn 22. sept. 11908. Dagana 21.-23. sept. voru kennarar af Austurlandi á námskeiði á FáskrúlSsfirði. Parna voru yfir 30 -kennarar mættir og tókst framkvæmd öll með igæt- um, en um hana sá fráfarandi stjórn og Skúli Þorsteinsson náms stjóri Austurland/s. Þeir sem leið beindu og fluttu erindi voru: Eiríkur Stefánsson kennari, sem leiðbeindi um átthagafræði, Stefán Ólafur Jónsson náms- stjóri, er flutti erindi um félags- fræði, Stefán Júlíusson rithöfund ur, sem ræddi um Fræðslumynda safn ríkisins en hann er fram- kvæmdastjóri þess, Torfi Ásgeirs son skrifstofustjóri hjá Efna- hagsstofnuninni, er ræddi um nýju skólakostnaðarlögin og áhrif þeirra og Skúli ÍÞorsteins- son er flutti m.a. erindi um norr- ænt samstarf. Miklar tunræður urðu um þessi efni og var mörg um fyrirspurnum beint til máls- hefjenda. Kennarar eystra hafa löngum reynt að fá fœra menn til fundar við sig og tókst að allra dómi mjög vel til um fyrir- lesara. Kennarar lögðu mikla áherzlu á eflingu Fræðslumynda safnsins og fögnuðu nýbreyttni í starfsemi þess s.s. útgáfu skóla- ljóðanna á hljómböndum. Einn- ig var mikill áhugi fyrir auk- inni kennslu í starfsfræði og ein- dregið óskað eftir úthlutun bók- arinnar Starfsfræði til nemenda í 2. bekk unglingastigsins. Varð- andi nýju skólakostnaðarlögin var lögð aðaláherzla á að hlutur hinna smærri skóla yrði ekki fyr ir borð borinn heldur aukið til- lit tekið til sjálfsagðra þarfa þeirra í krafti þeirrar skoðunar að allir skólanemar landisins eigi að hafa sem jafnastan rétt og að- stöðu til náms. Á aðalfundi K.S.A. flutti formaður sambands ins, Þórólfur Friðgeirsson, Búð- um, skýrslu stjórnar, en ásamt honum voru í stjórn Sólmundur Jónsson, Stöðvarfirði og Magnús Stefánisson, Búðum Fundarstjóri var Hjörleifur Guttormsson, Neskaupstað, en fundarritari Ingimar Sveinsson, Djúpavogi. Miklar umræður voru á fundin um um kennslumál og ýmis hagsmunamál kennarastéttarinn ar, svo sem sjá má á ályktunum - MINNING Framhald af bls. 18 gæti hann hjálpað . náunga sín- um í þeim efnum, var honum það meira virði en sjálfs síns þörf. Einn af áberandi eiginleikum Guðmundar var, hve hann var góður börnum og unglingum. Sem dæmi þess skal getið, þar sem hann réri margar vertíðir í Höfnunum var hann ei sjaldan, er hann hóf göngu héðan í ver- 'tíðarbyrjun, beðinn fyrir ungl- inga, óharðnaða og óvana sjávar- störfum ,til umsjár. Var Guð- mundur þeim sem faðir og móð- ir, og ef unglingurinn varð fyr- ir órétti eða aðkasti á einhvern hátt, kom þá glöggt fram greind Guðmundar er bar þá klæði á vopnin, ávallt verndari þess sem var minni máttar. Síðustu ár Guðmundar — svo sem áður er tekið fram — dvaldi hann í Sunnu'hlíð hér í Höfða- kaupstað, þá farinn að heilsu, hjá Ámýju Magnúsdóttur og dætrum hennar. Naut hann hjá þeim mæðgum nákvæmni, sam- úðar og umönnunar. Bar Guð- mundur hlýjan og þakklátan huga ávallt til þeirra mæðgna. Nú er Guðmundur Rafnsson horfinn yfir síðustu landamærin, en við trúum að orð Biblíunn- ar hafi rætzt á honum — þessi orð: „Kom og erf það ríki sem yður var fyrirbúið“. Höfðakaupstað í okt. 1908. Lárus G. Guðmundsson. fundarins. í næstu stjórn voru kjörin: Helgi Seljan, Kristinn Einarsson og Valtýr Sæmunds- son, til vara Lára Jónsdóttir, öll á Reyðarfirði. Hér fara á eftir nokkrar éilykt- anir fundarins. 1. Aðalfundur K.S.A. haldinn á Fáskrúðsfirði 22. sept. 1908, lítur svo á, að kennsla í kristnum fræð um hafi ótvírætt uppeldis- og þroskagildi fyrir nemendur á mót unarskeiði í unglinga- og gagn- fræðaskólum. Telur fundurinn því, að efla beri siðfræðilegt inn tak í kennslu í öllum bekkjum áðurnefndra skólastiga og skor- ar á fræðsluyfirvöld að vinna að því, að svo megi verða. 2. Ársþing K.S.A. haldið á Búð um 22. sept. ’68 skorar á fræðslu yfirvöld að skipa nefnd skóla- manna, er hafi það verkefni að semja reglugerð um kennslu- tækjabúnað skólanna í landinu og fylgja eftir framkvæmd henn ar. 3. Aðalfundur K.S.A. 1968 skorar á fræðslumálastjórn og stjómir S.Í.B. og L.S.F.K. að hlutast til um að greiddur verði að fullu ferðakostnaður kennara er sækja þau námskeið er haldin eru á vegum fræðslumálastjórn- ar eða viðurkennd af hennL 4. Aðalfundur K.S.A haldinn á Fáskrúðsfirði 22. sept. 1908 skor ar á Fjárveitingavaldið að veita Bandalagi íslenzkra leikfélaga árlegan fjárstyrk til útgáfu leik- bókmennta fyrir börn og ungl- inga. TOGARINN Kingston Peridot frá Hull, er hvarf með 20manna áhöfn við ísland í vetur, var á lista 10 skipa, sem höggva átti upp, að því er fram hefur kom- ið í Hull í réttarhöldunum vegna hvarfs skipsins. Graham Hellyer, forstjóri fyr- irtækisins Hellyer Brothers, sem átti togarann, sagði, að King ston Peridot og systurskip tog- arans, Kingston Sarfius, hefðu verið elztu skipin í eigu fyrir- tækisins. Fyrir réttu ári hefði verið ákveðið, að 10 af skipum fyrirtækisins, þar á meðal King- ston Peridot, yrðu höggvinn upp af fjárhagsástæðum. Hann sagði, að niðurrif skip- anna hefði verið frestað, þar sem slíkt hefði valdið atvinnuleysi og haft ýmsar aðrar afleiðingar í för með sér, og þess vegna hefði verið ákveðið að notast við þessi skip enn um sinn í þeirri von, að fjárhagsafkoma fiskiðnaðar- ins batnaði. Hellyer bætti því við, að Kingston Sardius hefði nú verið lagt og biði niðurrifs. Aðspurður um afdrif Kingston Peridot kvaðst Hellyer útiloka þann möguleika, að skipinu hefði hvolft, þar sem stöðugleiki þess hefði verið fullnægjandi. Hann sagði, að sú staðreynd að björgunarhringir, lífbátur og brak hefðu fundizt á tak- mörkuðu svæði, benti til þess, að Laugarásbíó. VESLINGS KÝRIN (Poor Cow) Ensk mynd Leikstjóri: Kenneth Loach. MeSal leikenda: Carol White, Terence Stamp. Mynd þessi er á margan hátt sérstæð. Þó ekki væri nema fyrir þá sök, að hún sýnir enga „hetju“ í algengri merkingu þess orðs. Aðalpersónur eru þjófar eða hór- ur, nema hvort tveggja sé. Þetta er út af fyrir sig, hvorki kostur eða galli á kvikmynd. Nefndar tegundir fólks þurfa ekki að vera óforvitnilegri en ýmsar aðr- ar. Hversu trúverðuglega jýsir hún lífi þessa fólks? Og að hvaða nið urstöðu kemst hún um orsakir þær, sem ráða breyttni þess? Býr hún kannski yfir einhverjum töframeðölum vfð því þjóðfélags lega bölí, sem það er talið valda? í prógrammi er sagt, að leik- stjóri fjalli um það, hvort fanga- vist sé hinum fangelsuðu til góðs. Og niðurstaðan er samkvæmt sömu heimild sú, að „hann telur hana sóun á kostum einstakling- anna, og oft gefur samfélagið mönnum ekki tækifæri til að sýna hvað í þeim býr.“ Vel má vera, að nokkuð sé til í þessu. Þó var Dave búinn a’ð sýna, að hann bjó yfir dágóðum þjófnaðarhæfileikum, áður en haxm hlaut tólf ára fangelisdóm- inn, sem hann hefur enn ekki afplánað, er myndina þrýtur. skipið hefði tekið niðri á skeri eða blindskerjum og sokkið á skömmum tíma. Önnur skip, sem tekið hefði niðri hefðu sokk ið á tveimur til þremur mínút- um í kyrrum sjó, en Kingston Peridot hefði strandað í myrkri, hvassviðri og hörkufrosti. Hellyer játaði, að engin skeyti hefðu borizt frá skipinu fyrstu fjóra dagana eftir að það lagði úr höfn. Síðasta skeytið frá King ston Peridot barst 25. janúar um Kingston Saridus. Eigendurnir báðu Kingston Saridus að koma skilaboðum til Kingston Peridot, og 27. janúar tilkynnti Kingston Sardius, að ekkert samband næð- ist við systurskipið. GÚSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Laufásvegi 8. - Sími 11171. Sími 20070 -19032 Volkswágen 1500 station árg. 65. Opel Cadett árg. 66. Volkswagen 1500 árg. 63, góður bíll. Volkswagen 1300 árg. 68. Chevy II Nova árg. 67. Opel Caravan éirg. 65. Bronco árg. 66. Skipti á ódýrari bíl. Moskwiteh árg. 67, skipti á ódýrari bíl. Landrover benzín árg. 66., keyrður 28 þús. Siaukin sala sannar öryggi þjónustunnar. ^"^biloiftQiloi GUOMUNDAR Bertþ&rusötu 3. Simar 19032, 20010. Einnig hafði hann til að bera hæfileika til aö nýta ástir eigin- konu vinar síns, meðan sá sami vinur sat í fangelsL Sj álfsagt er ekki mjög algengt, að fangavist sé hinum fangelsuðu beinlínis „til góðs“. Refsingar fyrir afbcrot hafa líka allajafnan verið hugsaðar fremur öðrum til viðvörunar svo og til a'ð firra samfélagið hættu, heldur en þær færðu afbrotamanninum sérstak- an ágóðahlut. — Stundum kann að vísu að vera hægt að „heila- þvo“ pólitíska fanga í tugthús- um, þannig, að þeir verði taldir betri menn eftir en áður. Og heyrzt hefur, að venjulegir af- brotamenn hafi stundum tekið sinnaskiptum í „betrunarhúsum“, og þegar slíkt igerist, má auðvitað bæöi reikna þjóðfélaginu og við- komandi einstaklingum það til tekna. Annars finnst mér ofangreind kvikmynd gera fremur lítið að því að reyna að greiða úr gátum, prédika eða troða skoðunum upp á fólk. Hún sýnir okkur tilveru og athafnir fólks þess, er hún fjallar um, og rétt er það: hugs- anagangur Joy (Carol White) er tíðum gefinn upp í eins konar rit uðum endurminningum á hvíta léreftinu. En vegna hraðra skipt inga og fremur losaralegrar bygg ingar myndarinnar, þá njóta þess ar endurminningar sín lakar en ella mundi. Svo er að sjá sem Joy sé áskap- áð að vera hálfgert allragagn, hún er hvorki trú manni sínum né friðli. Efnahagslegar orsakir eiga nú að einhverju leyti að liggja þessu að baki og kannski miður heppileg éihrif frá óhollu uppeldi. En hvorugt verkar sér- lega sannfærandL og einhvern veginn er sú undarlega tilfinning áleitin, að manneskjan hafi fæöst með þessum ósköpum. Carol White er eigi að síður ■töfrandi persónuleiki og leik- kona, og í samleik hennar viö Johny litla, son sinn, koma fram mest hrífandi atriði þessarar sér kennilegu kvikmyndar. Þá á Terence Stamp sinn ágæta leik í hlutverki friðilsins, og ýmis auka hlutverk eru einnig vel leikin. — Það gefur kvikmynd þessari auk ið gildi, að hún býr yfir talsverð um húmor, sem kemur einkum fram í orðaskiptum og gerir hana líflegri og skemmtilegri en ella. Þar sem myndin vekur auk þess fólk til hugsimar um erfið þjóðfélagsvandamál — þótt ekki bendi hún á lauism þess vanda þá er hún vel þess virði að sjá hana. S. K. SVAR MITT |3j EFTIR BILLY GRAHAM Hlýtur sá maður að vera geðbilaður, sem fremur morð? Margir þeirra, sem fremja morð að yfirlögðu ráði, fá vægan dóm, vegna þess að þeir eru úrskurðaðir geðbilaðir. Þótt stundum sé um geðbilun að ræða, er vafalaust svo, að flest morð eru framin af fólki, sem er fullkomlega sjálfrátt gerða sinna. Saga mannanna er blóði drifin. Blóði var fyrst út- hellt, þegar Kain fylltist reiði og öfund og drap Abel bróður sinn. Frá þeim degi hefur vegur mannkyns- ins verið blóðugur. Hvers vegna? Orsökin er syndin. Margir heimspekingar og lögfræðingar hafa tilhneig- ingu til að sjá í gegnum fingur við þessa meinsemd mannlegs eðlis og telja mann óheilbrigðan, ef hann skrökvar, stelur, svíkur, prettar eða myrðir. En Biblían lýsir þvi skýrt og afdráttarlaust, að við höfum öll hneigð til þess, sem illt er. Hún segir: „Ekki er neinn réttlátur, ekki einn. Ekki er neinn vitur . . . Allir eru þeir fallnir frá, allir saman orðnir duglausir. Ekki er neinn, sem auðsýnir gæzku, ekki svo mikið sem einn einasti" (Róm. 3,10-12). Þetta táknar ekki, að ekki sé til neitt gott í mann- legu eðli. Það er margt gott til í náttúrlegum manni, en okkur skjátlast, ef við höldum, að manninum sé eðlilegt að vera alltaf góður. Við erum öll sambland góðs og ills. Við getum gert mikið illt og einnig mikið gott. Þess vegna kom Kristur til að fyrirgefa syndir, til að umbreyta eðli okkar og gefa okkur styrk til að sigrast á hinu illa. BLADBURÐARFOLK OSKAST í eftirtalin hverfi: Sjafnargötu, Skeggjagötu, Víðimel. Talið v/ð afgreiðsluna í sima 10100 Kingston Peridot beið niðurrifs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.