Morgunblaðið - 23.11.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1968
NÚ er eitt ár liðið síðan gengi
sterlingspundsins var fell't, en
það skapaði á sínum tíma
mikinn glundroða í peninga-
málum heims. Nú hefur pen-
ingakreppa enn einu sinni
komið upp og að þessu sinni
er það franski frankinn, sem
einkum á í erfiðleikum. Gjald
eyris- og gullforði Frakklands
hefur dvínað stórkostlega að
undanförnu og peningarnir
streymt þaðan yfir til Vestur-
Þýzkalands, sem reynt hefur
ákaft að ráða við gjaldeyris-
strauminn þangað úr höndum
fjármálamanna, sem óðfúsir
hafa viljað kaupa þýzk mörk
* staðinn í þeirri von, að
gengi marksins yrði hækkað.
Eftir því sem traust á pen-
ingakerfinu minnkaði í Evr-
ópu, jukust kaup á gulli og
varð það að sjálfsögðu til þess
að það hækkaði í verði.
„Einu sinni enn er spákaup-
mennskan í fullu fjöri“, lét
einn af starfsmönnum seðla-
bankans í Sviss sér um munn
fara. Og sannarlega voru öll
merki hennar fyrir hendi. Úti-
hú banka eins í grennd við
Frankfurt skipti frönskum
frönkum að upphæð um 44
millj. ísl. kr. á hálfri klukku-
stund einn morguninn og spá-
kaupmaður einn í París skýrði
frá því að viðskiptavinir
kæmu til sín með allt að
1 millj. franka í einu, sem
pakkað var inn í dagblöð sem
umbúðir, í því skyni að skipta
þeim í gull eða traustari gjald
miðil.
Fundurinn í Basel
Það skorti að sjálfsögðu
ekki á opinberar yfirlýsingar
um þessi mál. Yfirlýsing um,
að allt sé í lagi, er eitt
gleggsta merki þess, að erfið-
leikar séu skollnir á. Þannig
lýsti de Gaulle Frakkandsfor-
seti því ákveðið yfir í síðustu
viku, að frankinn yrði ekki
ækkaður í gengi, en Strauss
fjármálaráðherra V-Þýzka-
lands lýsti því yfir aftur á
móti að gengi þýzka marksins
yrði ekki hækkað. Og þrátt
fyrir það að Henry Fowler,
fjármálaráðherra Bandaríkj-
anna, færi flugleiðis til Evr-
ópu til viðræðna lýstu undir
menn hans því eindregið yfir,
að hann hefði engin sérstök
áform um aðgerðir varðandi
þessa kreppu sem óx dag frá
degi.
Um síðustu helgi beindist at
hyglin að hæglátu fjallaborg-
inni Basel í Sviss, þar sem
bankastjórar margra helztu
seðlabanka heims komu sam-
an til fundar. Ef þeir gætu
brugðizt nógu hratt við,
kynnu þeir að geta orðið
Frökkum úti um nýbt stór-
lán, sem rnyndi hafa mikil
áhrif á spákaupmennsku, ef
margir bankar stæðu sameig-
inlega að því. En þetta hefði
verið erfitt að gera með stutt-
um fyrirvara og það virtist
líklegra, að þeir myndu hafast
alls ekkert að. Það virtist
Ijóst, að viðbrögð af opinberri
hálfu við síðustu kreppu,
hefðu aðeins orðið til þess að
gera hana enn verri og bezt
gæti vel verið að segja ekk-
ert.
Hvað yfirbragð snerti virtist
þessi kreppa vera síðbúinn
endurleikur á því, sem gerð-
ist í fyrra. En það var samt
greinilegur munur. Vandamál
Frakka í fyrsta lagi byrjuðu
með stúdentaóeirðunum, sem
neyddu ríkisstjórnina til til-
slakana, sem urðu til þess að
kynda undir verðbólgu. Verk-
föllin urðu til þess að verka-
menn almennt fengu um 13%
launahækkun og síðan hefur
það verið stefna frönsku
stjórnarinnar að vinna þetta
upp með efnahagslegri út-
þenslu og með þvi að . auka
hratt framleiðnina. Timinn
hefur hins vegar verið of
stuttur til þess að unnt væri
Karl Schiller, efnahag'smálaráðherra Vestur-Þýzkalands og
Franz Josef Strauss fjármálaráðherra.
Frankinn riðar til falls, pundið í erfiðleikum. Slíkar fyrir-
sagnir mátti sjá víða í blöðum í síðustu viku.
Francois Ortoli fjármálaráð-
herra Frakklands.
að sýna fram á, að þetta gæti
borið árangur og á meðan hef-
ur frankinn, sem áður var svo
stoltur, misst aðdráttarafl sitt
til fjárfestingar.
Styrkleiki marksins
Bókstaflega þúsundir millj.
af frönkum hafa verið fluttir
úr landi og þeim skipt yfir
í traustari gjialdmiðil. Frá því
í óeirðunum í maí, hefur
næstum helmingur alls gjald-
eyrisvarasjóðs Frakka í gulli
og dollurum verið notaður í
því skjmi að efla óstöðugan
frankann. Fyrir tveimur til
þremur vikum virtist þessi
fjárstraumur úr landi vera að
dvína og svo leit út, sem unnt
yrði að vinna bug á vandan-
um.
En eftir því sem frankinn
varð veikari, varð vestur-
þýzka markið sterkara. Fyrir
tilstilli mikils greiðsluafgangs,
blómstrandi efnahagslífs og
minnstu verðhækkanir á með-
al nokkurra stærri þjóða
heims, urðu þær kröfur æ rík-
ari, að gengi markisins yrði
hækkað — yrði dýrara svo
að vestur-þýzkar vörur yrðu
dýrari á heimsmarkaðinum og
aðrar þjóðir fengjiu þannig
bétri samkeppnisaðstöðu fyrir
vörur sínar. Eftir því sem
orðrómurinn unrt þetta barst
út, byrjuðu spákaupmenn að
kaupa mörk í stórum mæli í
von um fljótfundinn gróða.
Samtímis þessu gerðist það,
að sá orðrómur komst á kreik
í Evrópu, að næði Richard
Nixon kosningu sem forseti
Bandaríkjanna, myndi hann
verða fylgjandi verðhækkun á
gulli. Þetta myndi verða hið
sama og lækkun á gengi doll-
arans og fáir efuðust um, að
slíkt myndi hafa í för með
sér bráðar breytingar til sam-
ræmingar á gjaldmiðlum um
aUan heim. Ef þetta gerð-
ist. myndi markið sennilega
hækka hlutfallslega í verði
og frankinn lækka. Með tilliti
til þessa jókst fjárflutningur-
inn á frönkium í mörk um all-
an helming. Búizt er við, að 1
síðustu viku einni hafi pen-
ingaflóttinn frá Frakklandi
jafnivel numið sem svarar 500
milljónum dollara eða 44
millljörðum íslenzkra króna.
Vandræðin, sem þetta hafði
í för með sér fyrir Vestur-
Þýzkaand, virtust nánasf bros
leg. Seðlabanki landsins varð
í því skyni að koma í veg
fyrir, að verð á markinu á
frjálsum markaði hækkaði,
sem hefði þýtt gengishækkun
í rauninni, að bjóða fram
mörk til þess að skipta upp-
hæð, sem kann að hafa numið
750 millj. dollurum í erlend-
um gjaldeyri. Síðan varð að
þjóða þennan erlenda gjald-
eyri aftur fram í því skyni
að koma í veg fyrir, að gjald-
eyrisvanasjóður Vestur-Þýzka
lands ykist enn og markið
yrði enn sterkara. Spákaup-
menn urðu þá fljótir til þess
að fá það fé að láni, sem
þannig var boðið fram og af-
hentu það síðan seðlabanka
Vestur-Þýzkalands aftur til
þess að fá þessu fé skipt í
mörk.
- SPRENGING
Framhald af bls. 1.
í sláturhúsi eftir sprenginguna,
blóðslettur upp um alla veggi oig
allt á tjá og tundri.
Elztu menn muna ekki eftir
hroðalegra skemmdarverki síðan
ísraelsríki var stofnað, og þykir
aðferðin minna á hryðjuverk
Araba á fyrstu árum ríkisins.
I Markaðstorginu var þegar lokað
ef fleiri sprengjum kynni að
hafa verið komið þar fyrir, og
Arafoahverfinu var einnig lokað
af ótta við að árásir yrðu gerðax
á Araba. Levi Esifchol forsætiis-
ráðherra hélt í skyndi til Jerú-
salem úr orlofi og kallaði stjórn-
ina til fundar.
LAGU í BLÓÐI SÍNU
Sjónarvottur sagði blaðamönn
um: ,,Ég hljóp út á torgið eftir
sprenginguna og sá elda loga í
fimm e'ða sex verzlunum. Ég
hljóp til rakastofunnar og reyndi
að verða að einhverju liði. Ég
sá látið fólk ög brennt. Sætin
voru ötuð blóði. Ég hef aldrei
séð hræðilegri ' sjón.“ Hjálpar-
sveitir komu í skyndi á slysstað-
inn og fluttu hina særðu, sem láu
í blóði sínu á gangstéttunum og
torginu, á sjúfcrahús. Stór gígur,
einn og hálfur metri í þvermál,
myndaðist eftir sprenginguna
framan við rafcarasitofuna.
Eftir sprenginguna stöðvuðu
nokkrir Gyðingar arabískan
leigubíl, ráfcu farþegana út og
eyðilögðu bílinn. Aðrir heyrðust
hrópa: „Drepið Arabana“. Eft-
ir svipað skemmdarverk, sem
framið var í Jerúsalem í ágúst
en fcemst þó ekki í hálfkvisti
við sprengjutilræðið í dag,
reyndu nokfcrir ungir Gyðdngar
að koma fram hefndum með því
að ráðast á Araba á götum úti,
en lífið gengur sinn vanagang í
borginni og ekki hefur komitð til
óeirða enn sem komið er.
Góðar heimildir herma, að
arabísk andspymusamtök standi
á bak við tilræðið. Um 500 Arab-
ar voru handteknir á svæðinu
umhverfis markaðstorgið eftir
sprengj utilræðið.
Alaloss góllteppin
í hæsta gæðollokki
Wiltonvefnaður úr 100% ull.
Breiddin er 365 cm og engin samskeyti á miðju gólfi.
Teppaleggjum frá eigin lager með stuttum fyrirvara.
Notið tækifærið og kaupið teppin á óbreyttu verði
Opið til kl. 4 í dag — laugardag.
mm
Grensasvegi 3 Sími 83430