Morgunblaðið - 07.12.1968, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DES. 1968
- EFTA
Framhald af bls. 5.
arlega í hugum ful'ltrúa EFTA-
lanidanna, þegar umsókn íslamds
kom fyrst til umræ&u.
EFTA-löndin eru nú raun-
verulega 8 aS tölu. I>au eru
Bretland, Danmörk, Noregur,
Svíþjóð, Sviss, Austurríki, Port
úgal og Finnland, sem að vísu
er aukaaðili en tekur raunveru-
lega fullan þátt í starfi EFTA.
Meginstuðningur við umsókn
okkar mun koma frá Norður-
löndunuim. Velvild þeirra í okk-
ar garð er einstök og enginn
vafi er á því, að þeim er mjög í
mun að umsókn okkar nái fram
að ganga. Fulltrúar Norðurland
anna í EFTA-ráðinu munu því
án alls efa leggja sig alla fram
um að greiða fyrir okkar mál-
stað og útvega okkur, sem allra
bezt kjör. Sú mikla velvild í
okkar garð, sem ég kynntist hjá
fulltrúum Norðurlandanna í
Genf fyrir nokkrum dögum hef-
ur endanlega sannfært mig um,
að þátttaka okkar í norrænu
samstarfi er öru'gglega þýðingar-
mesti þáttur í starfi okkar á al-
þjóðavettvangi og að því fé er
ekki á glæ kastað, sem til þess
samstarfs er lagt af okkar hálfu.
Ég hef einnig sannfærzt um, að
það er fráleitt að leggja niður
sendiróðin í Osló og Stokkhólmi
vegna þess, að það stöðuga sam-
band, sem skapast með því að
hafa fasta fulltrúa í þessum
löndum hefur ómetanlega þýð-
ingu fyrir okkur á úrslitastund-
um eins og varðandi umsókn
okkar að EFTA nú.
Aðalerfiðleikamir verða tví-
mælalaust í sambandi við fisik-
útflutning okkar til Bretlands.
Bretar eiga nú í margvíslegum
erfiðleikum með sjávarútveg-
sinn og fiskiðnað og m.a þess
vegna hafa þeir sett sérstakan
kvóta ó ininflutning frystra fisk-
flaka fríá öðrum EFTA-Iönd-
um, þ.e. Noregi oig Dan-
mörk. Bretar munu vafalaust
hafa tilihneigiinigu til þess að segja
sem svo, að þessi kvóti.verði
að standa óbreyttur og að verði
fsland aði'li, verði helztu fram-
leiðendur frystra fiskflaka inn-
an EFTA að koma sér saman
um árlega skiptingu þessa kvóta
sín á milli. Það eykur enn á erf-
iðleikana í sambandi við þetta
atriði, að sá ráðherra í brezku
ríkisstjórninni, sem fer með mál-
efni EFTA, Antihony Crosland,
er þingmaður fyrir Grimsby og
er þess vegna undir enn meiri
þrýstingi frá umbjóðendum sín
um varðandi inniflutninig sjóvar-
afurða til Bretlands. Ix>ks er rétt
að við gerum okkur grein fyrir
því, að Svisslendingar hafa að
ýmsu leyti lykilaðstöðu í EFTA.
Þegar ágreiningur kemur upp
milli EFTA-landanna eru það
oft orð svissnesku fulltrúanna,
sem hafa úrslitaþýðingu um af-
greiðslu mála.
Það er ánægjulegt til þess að
vita fyrir okkur fslendinga, að
þeir fulltrúar okkar, sem vafa-
laust munu taka mestan þátt í
þessum samningaviðræðum, þeir
Þórfhallur Ásgeirsson og Einar
Benediktsson, njóta mikils
trausts og álits, bæði meðal
starfsmanna EFTA í Genf og
einnig í hópi sendifulltrúa EFTA
landanna í Genf. Sú afstaða til
helztu samninigamanna okkar
mun tvímiælalaust verða miálistað
okkar til góðs í samningaviðræð
unum.
Að lokum er rétt að benda á,
að það hefur mikla þýðingu fyr-
ir okkur að skapa aukinn skiln-
ing á okkar málum og okkar að-
stöðu meðal þeirra manna, sem
munu sitja andspænis fulltrúum
fslands við samningaborðið í
Genf. Það er t.d. hægt að
gera með því að leggja
tiþ að einn samningafund-
urinn verði haldinn í Reykja-
vík, þannig að samnimga-
menn EFTA-ríkjanna hafi að-
stöðu til þess að kynnast ís-
landi af eigin raun. Einnig kæmi
vel til greina að bjóða hingað
Cokkrum blaðamönnum frá EFTA
löndunum. í því sambandi skilst
mér, að hyggilegast væri að
bjóða hingað nokkrum svissnesk
um blaðamönnum. Annars vegar
vegna þess sem fyrr segir, að
Svissland hefur lykilaðstöðu í
EFTA og hins vegar vegna þess
að sendifulltrúar allra EFTA-
landanna lesa svissnesku blöð-
in og mundu því þegar í stað
kynnast viðhorfum svissnesku
bíaðanna eftir dvöl fulltrúa
þeirra hér á landi.
Vafalaust mun menn greina
I mjög á um það hér á landi, þeg-
' ar þar að kemur hvort hyggi-
* legt sé, að ísland gerist aðili að
EFTA. Hin neikvæða eða a.m.k.
mjög varfærna afstaða, sem
margir stjórnmálamenn og ýmsir
aðrir hafa þegar tekið til máls-
ins er aðeins eitt dæmi af mörg-
um um það, hversu einangraðir
við íslendingar erum að mörgu
leyti frá þeim straumum, sem
fara um Evrópu. En reynsla
allra EFTA-landanna af sam-
starfinu innan EFTA hefur ver-
ið mjög jákvæð og þess vegna
er fyrirfram engin ástæða tiT að
ætla að það sama geti ekki átt
við um okkur. Og hver efast
um það nú, að íslenzkt atvinnu-
og efnahagslíf þarf mjög á
sterkri vítamínssiprautiu að halda,
ef okkur á að takast að halda
til jafns við aðrar þjóðir um
bætt lífskjör á komandi árum og
áratugum.
Styrmir Gunnarsson.
VELJUM ÍSLENZKT
HÚSBÓNDASTÓLLINN DPIÐ TIL KL. FRÚARSTÓLLINN
4 í DAG
Það er smákrókur
í Síðumúlann, en
það er krókur, sem
borgar sig.
Næg bílastæði.
OPIÐ TIL KL.
4ÍDAG
er bezti hvíldarstóllinn á markaðinum.
Það má stilla hann í þá stöðu, sem hverjum
hentar bezt, auk þess nota hann sem venju-
legan ruggustól.
CAMLA KOMPANÍIÐ HF.
Síðumúla 23, sími 36500.
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
er einstaklega þægilegur, við alls konar
hannyrðir. Það má snúa sér í honum og
rugga.
CAMLA KOMPANÍIÐ HF.
Síðumúla 23, Reykjavík, sími 36500.