Morgunblaðið - 11.12.1968, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968
5
Líkan af fyrirhuguðu húsi og umhverfi þess.
Fyrirhugað hús Seðlabankans
— Oákveðið, hvenær ráðist verður i framkvæmdir
mjög veíi inn í hið fagra um-
hverfi tj arnarinnar, jafnframt
þvi sem Hallargaxðurinn helzt
sem almenningsgarður. Sam-
keppnin ber einnig hæfni ís-
lenzkra arkitekta gott vitni, og
voru allar lausnirnar mjög at-
hyglisverðar. Sú lausn, er bezt
hefur verið dæmd, er sérstak-
lega vel af hendi leyst, og ætti
bygging í samræmi við hana að
geta orðið höfuðborginni veruleg
ur fegurðarauki.
í framhaldi af samkeppni þess-
ari mun Seðlabankinn taka upp
viðræður við borgaryfirvöld
Reykjavíkur um frekari athugan-
ir málsins. Hins vegar er rétt að
taka það skýrt fram, að engar
ákvarðanir hafa verið teknar að
svo stöddu um það, hvenær yrði
ráðizt í nýbyggingu fyrir Seðla-
bankann. Verður það að sjálf-
sögðu að fara eftir ýmsum að-
stæ’ðum, og má gera ráð fyrir
því, að ákvörðun dragist enn um
alllangt skeið. Að því hlýtur þó
að reka fyrr eða síðar, að í siíka
nýbyggingu verði ráðizt, enda er
nú Seðlabankinn í sambýli við
Landsbankann, og búa báðar
stofnanirnar við mjög mikil
þrengsli og erfiða vinnuaðstöðu,
og hefur reynzt nauðsynlegt að
flytja verulegan hluta starfsem-
innar í óhentugt húsnæði utan
sjálfrar bankabygginganna.
í sambandi við umræður um
byggingarmál Seðlabankans að
undanfömu, hefur sú skoðun
komið fram, að æskilegt væri að
varðveita hús það, er Thor Jen-
Framhald á bls. 11
EINS og skýrt var frá í blaðimu
í gær urðu arkitektarnir Skarp-
héðinn Jóhannsson og Guð-
mundur Kr. Guðmundsson hlut-
skarpastir í samkeppninni um
teikningu að húsi fyrir Seðla-
bankann. Blaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá bankanum
varðandi málið, og segir þar m.a.,
að rétt sé að taka skýrt fram,
að engar ákvarðanir hafi verið
teknar að svo stöddu um það,
hvenær ráðizt verður í nýbygg-
ingu fyrir Seðlabankann. „Verð-
ur það að sjálfsögðu að fara eft-
ir ýmsum aðstæðum, og má gera
ráð fyrir því, að ákvörðunin
dragist enn um alllangt skeið.“
Ennfremur segir, að ef borgar-
yfirvöld telji varðveizlu húss
Thors Jensen æskilega, muni
Seðlabankinn vilja stuðla að
henni með því að taka að sér
allan kostnað af því áð flytja
húsið á annan stað í Reykjavík.
— Fréttatilkynningin fer hér á
eftir:
„í samningi þeim, er Seðla-
banki íslends gerði í júlí 1967
við borgarstjórn Reykjavíkur
um makasikipti á lóðunum Frí-
kirkjuvegi 11 og Lækjargötu 4,
voru þau skilyrði sett af borgar-
innar hálfu, að lögð yrði fram
tillaga um byggingu fyrir Seðla-
bankann á lóðunum Fríkirkju-
vegi 11 og 13, er félli vel in,n í
umhverfi tjarnarinnar og sam-
rýmdist varðveizlu þess almenn-
ingsgarðs, sem nú er á þessum
lóðum. Var gert rá’ð fyrir því,
að efnt yrði til samkeppni, svo
að betur væri tryggt, að málið
væri vel unnið og undirbúið.
Að athuguðu máli þótti heppi-
legast vegna þess, hve þetta
verkefni er tæknilega vanda-
samt, að samkeppnin yrði lok-
uð, og voru valdir fimm aðilar
til að taka þátt í henni, en það
skilyr’ði var sett, að tveir arki-
tektar stæðu að hverri lausn.
Þátttakendur voru þessir: Gunn-
laugur Halldórsson og Guð-
mundur Kr. Kristinsson, Helgi
Hjálmarsson og Vilhjálmur
Hjálmarsson, Jón Haraldsson og
Birgir Breiðdal, Manfreð Viil-
hjálmsson og Þorvaldur S. Þor-
valdsson, og Skarphéðinn Jó-
hannsson og Guðmundur Kr.
Guðmundsson. Um samkeppnina
fór eftir reglum Arkitektafélags
íslands.
Samkeppnin hófst í janúar sl.,
og var endanlegur frestur til að
skila tillögum ákveðinn 15. nóv-
ember. Hefur dómnefnd nú fjall
að um tillögumar, en í henni
áttu sæti Eiríkur Einarsson, arki-
tekt og Þorvaldur Kristmunds-
son, arkitekt, af hálfu Arkitekta-
félags Islands, en Erik Möller,
arkitekt frá Danmörku, Birgir
Kjaran, bankaráðsformaður og
Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri, af hálfu Seðlabankans.
Niðurstaða dómnefndar var sú,
að tillaga arkitektanna Skarphéð
ins Jóhannssonar og Guðmundar
Kr. Guðmundssonr væri bezt, en
smkvæmt samkeppnisskilmálun
um ber að feila þeim verkefni til
úrvinnslu. Um þessa tillögu segir
í niðurstö'ðum dómnefndar:
„Þessi tillaga er að hennar
dómi sérstaklega góð bæði að
því er varðar útlit og tilhögun.
Byggingin fellur mjög vel inn í
umhverfið, bseði í efnismeðferð
og formi, sem er fastmótað, en
þó látlaust. Lokg er alit fyrir-
komulag byggingarinnar hag-
kvæmt og mætir þeim kröfum
um vinnuskilyrði og skipulag,
sem fram voru settar.”
í almennri greinargerð dóm-
nefndar kemur ennfremur fram,
áð tillögur þær, sem fram hafa
komið í samkeppninni, beri því
vitni, að þátttakendur hafi lagt
í það mikila vinnu að leysa úr
þessu vandasama viðfangsefni.
Hafi verkefninu verið gerð ræki-
leg skiil, bæði að því er varðar
hæfiiega stærð hússins, útliit þess
í umhverfinu, fyrirkomuiLag inn-
anhúss o. s. frv., en í öllum þees-
um greinum hafi komið fram hug
myndir, er gagnlegar gætu orðið
við íullnáðarlausn verkefnisins.
Það er skoðun stjómar Seðla-
bahkans, að með þeirri sam-
keppnd, sem nú hefur verið lýst,
hafi fengizt tillaga, er sýni hvem
ig leysa megi byggingarmál Seðila
bankans á viðikomandi lóðum á
hagstæðan hátt. Virðist sam-
kvæmt þessu mega reisa við Fri-
kirkjuveginn byggingu er falli
VIÐARÞILJUR
Höfum margar tegundir og gerðir af viðarþiljum
fyrirliggjandi bæðí lakkaðar og ólakkaðar.
PÁLL ÞORGEIRSSON 0 CO.
Anægður
með Dralon
Sölustjórinn Þorsteinn Þorsteins-
son ber ábyrgð á því, hvort sala
fyrirtækisins i ár
"vérður meiri en
~hún var í fyrra.
Hann hefur tekið
mikið af litmyndum
á ferðum sínum'
erlendis, til þess að geta á þann
hátt sýnt fjölskyldu sinni hvað
fyrir augu ber, þegar hann er
að heiman.
Hánn safnar gömlum bókum og
á bókasafn, sem margir öfunda
hann af. Hann veit, að sanna
énægju hefur maður aðeins af
því bezta.
Þannig er það einnig þegar um
er aÖ ræða peysu eins og þessa
Dralon-peysu frá Heklu.
Það gerir ekkert til þó hún sé
þvegin I þvottavél. Dralon hentar
alltaf. Það neldur sínum faliegu
björtu litum, lögun og stærð,
þvott eftir þvott.
Prjónavörur úr Dralon ... úrvals
trefjaefninu frá Bayer... eru
alltaf ( hæsta gæðaflokki.
Þetta kunna vandlátir karlmenn
að meta.
dralorí
BAYER
Úrvals trefjaefni