Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 7
MORGUMBOLAÐEÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968
7 *
„8é þetta vagga eins og blómabúketti á sjónum“
segir Ingibjörg
Jónsdóttir, sem
J sýnir myndir af
fjörugróðri á
Mokka þessa
dagana
„Ég er búin að vera að böggl
ast við þetta síðastliðin 3 ár, og
sé hálfvegis eftir því, að hafa
ekki fyrjað fyrr á þessu
skemmtilega verkefni, en auð-
vitað varð ég fyrst að koma á
legg þessum indælu 6 börnum
mínum. Það varð að ganga
fyrir“.
Það er 63 ára gömul kona,
Ingibjörg Jónsdóttir, fædd og upp
alin á Eyrarbakka, sem þessj
orð mælti við blaðamann Mbl.,
þegar við hittum hana uppi á
Mokka kaffi við Skólavörðu-
stíg, í fyrradag hjá honum Guð
mundi Baldvinssyni, sem virð-
ist draga að sér listamenm eins
og segull, Ingibjörg Jónsdóttir
sýnir um þessar mundir á
Mokka 46 myndir, sem hún hef
ur unnið úr fjörugróðri, og leit-
un mun vera á fallegri lista-
verkum, sem á Mokka hafa
sést, en þessi látlausu, en íallegu
náttúruundur.
,Jíei, ég hef aldrei sýnt áð-
ur, og mér finnst þetta ógnar
tilstamd allt saman, en ætli það
verði ekki svo að vera. Allt
þetta þang og allir þessir þör-
ungar eru til í fjörunni framan
við Eyrarbakka. Ég nota aldrei
rekinn hlut í myndlirnar mínar,
heldur sæti og lagi um stór-
straumsfjöru að komast út á
skerin, jafnvel út fyrir þau, og
tína þessar dásemdir. Litadýrð-
in er óskapleg. Allt eru þetta
náttúrulegir litir, og þeir eru
örlítið mismunandi, hvort haust
eða vor er í hafdjúpunum.
Það þarf allmikla þolinmæði
við þetta verk og nákvæmni.
Fyrst sér maður þetta vagga
eins og blómabúketti til ogfrá
í sjónum, síðan er að velja sér
fegurstu hlutina, greiða úr þeim
ina, ef svo má segja, þurrka
þetta, og þá getur maður fyrst
íarið að hugsa til að líma það
á spjald.
Þessi vinna hefur svo sannar-
lega veitt mér mikla ánægju“.
Sýning Ingibjargar á Mokka
mun standa næstu viku eða 10
daga, og eru allar myndimar
til sölu við hóflegu verði, en
á einu skyldi fólk gæta sín, að
á meðan Ingibjörg var að hengja
upp, seldust 14 myndir, og sjálf
sagt verða þær allar seldar áð-
ur en varir .Þær eiga það líka
skilið. — FrS.
li
FRÉTTIR
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Jólafundur verður haldinn
fimmtudaginn 12. des. kl. 8.30 i
félagsiheimili kirkjunnar. Fjölbreytt
dagskrá. Kaffi. Konur taki með sér
Stúdentar MR 1944
Fundur í Átthagasal Hótel
Sögu miðvikudagskvöld kl. 8.30.
Áríðandi að allir mæti.
Frá Mæðrastyrksnefnd
Munið jólasöfnun Mæðrastyrks
nefndar á Njálsgötu 3, sími
14349, opið frá kl. 10-6.
Kvennadeild Borgfirðingafélags-
ins heldur fund fimmtudaginn 12.
desember kl. 8.30 kl. 8.30 I Haga-
skóla. Konur munið að taka myndii
með úr ferðalaginu í sumar.
Jólabasar Guðspekifélagsins
verður haldinn sunnudaginn 15. des
Félagar og velunnarar eru vinsam-
legast beðnir að koma gjöfum sín
um eigi síðar en laugardaginn 14.
des. í Guðspekifélagshúsið eða Hann
yrðaverzlun Þuríðar Sigurjóns, Að
alstræti 12.
Frá Mæðrastyrksnefnd
Gleðjið fátæka fyrir jólin!
Flugferðahappdrætti Kaldársels
Dregið verður 15. des.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs
hefur opnað skrifstofu í Félags-
heimili Kópavogs opin 2 daga i
viku frá kl. 2-4.30 á mánudögum
og fimmtudögum.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
kvennadeild. Jólafundur fimmtu-
daginr. 12. des. að Háaleitisbraut
13. kl. 8.30
S'ysavarnadeildin Hraumprýði,
Hafnarfirði heldur jólafund sinn
miðvikudaginn 11. des. kl. 8.30 í
skemmtiskrá og jólahappdrætti.
Frá Mæðrastyrksnefnd
Munið einstæðar mæður með
börn, sjúkt fólk og gamalt!
Blöð og tímarit
SAMVINNAN, 6. tbl. 62. árg.,
nóv.-des. er nýkomin út og hefur
verið send blaðinu. Hún er 68 bls.
að stærð með mörgum myindum.
Af efni heftisins má nefna: Bréf
frá lesendum, ritstjórarabb, grein
um Salazar í þættinum Menn, sem
settu svip á öldiam. Aðalgreina-
flokkur blaðsins fjallar um íslaind
og Norðurlöndin, og eiga þar í
greinar: Sverrir Kristjánsson, Otto
Gelsted, Ivar Eskeland, Eiinar Ger
hardsen og Krister Wickman. Þá
er smásagan Doði eftir Jón Bene-
dikt Bjömsson, 3 ljóð eftir Hönnu
Kristjónsdóttur, Erlend víðsjá eft-
ir Magnús Torfa Ólaísson, Undir
fargi óttans eftir hitstjórann, Atli
Heimir Sveinsson skrifar um Jón
Leifs, Gísili J. Ástþórsson: Eins
og mér sýnist, Þorsteinn Antons-
son skrifar um Borgir. Harry Fred
eriksen skrifar um íslenzkan iðn-
að, Sigurður A. Magnússon á greim
ina: Hvað veldur óánægju unga
fólksins? Erlendur Haraldsson skrif
ar um Kúrda. Þá er heimilisþáttur
Bryndísar Steinþórsdóttur, og ým-
islegt fleira. Ritstjóri er Sigurður
A. Magnússon.
Gengið
Nr. 135 — 5. desember 1968.
Kaup Sala
1 Bandar. dollar 87,90 88,10
1 Sterlingspund 209,60 210,10
1 Kanadadollar 81,94 82,14
100 Danskar krónur 1.172,00 1.174,66
100 Norskar krónur 1.230,66 1.233,46
100 Sænskar kr. 1.698,64 1.702,50
100 Finnsk mörk 2.101,87 2.106,65
100 Franskir fr. 1.772,65 1.776,67
100 Belg. frankar 175,40 175,80
100 Svissn. frankar 2.042,80 2.047,46
100 Gyllini 2.429,45 2.434,95
100 Tékkn. krónur 1.220,70 1.223,70
100 V-þýzk mörk 2.203,23 2.208,27
100 Lírur 14,08 14,12
100 Austurr. sch. 339,78 340,56
100 Pesetar 126,27 126,55
100 Reikningskrónur
Vöruskiptalönd 99,86 100,14
1 Reikningsdollar
Vöruskiptalönd 87,90 88,10
1 Reikningspund
Vöruskiptaiönd 210,95 211,45
Leturbreyting táknar breytingu
á síðustu gengisskráningu.
Oærustólar — gærukollar í úryali. Húsgaguaverzl. Búslóð ivið Nóatún, símí 18620. Til leigu í Hafnarfirði 135 ferm. ein- .býlishús. Upplýsingar í eima 50365 eftir kl. 7 sd.
Húsbyggjendur TÖkum. að okkur smíði á inniréttingum. Kynnið yður verð og greiðslukjör. — Smíðastofan, Súðavogi 50, sími 35609. Píanó- og orgelstillingar Munið að láta sti'lla hljóð- færið fyrir jólin. Hlj óðf ær a verkstæði Pálmars Árna, sími 32845.
Skatthol — spegilkommóða, gamalt verð. Húsgagnaverzl. Búslóð ,við Nóatún, simi 18620. Til sölu ferðaplötuspilari, steríó, kr. 4 Í>00,-. Einnig teak snyrti- iborð með speigli, kr. 2.500,-. Hvort tveggja sem nýtt. iUppl. í kvöld í síma 24866.
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. Hemlastilling hf., Súðavogi 14 - Sími 30135 Nýkomnar enskar peysur og peysusett, loðfóðraðir skinnhanzkar, greiðslu- sloppar og fleira. Hattabúð Reykjavíkur 'Laugavegi 10.
Til jólugjafa Saumakassar, blaðagrind- ur, innskotsborð, sófaborð, vegghillur og fótaskemlar. Nýja bólsturgerðin, Lauga- vegi 134, sími 16541. Keflavík Til sölu mjög vel með farin 4ra herb. íbúð við Hátún í Keflavík, laus strax. Fasteignasalan, Hafnaxgötu 27, símar 1420 og 1477.
Ódýr og nytsöm jólagjöf Sokkahlífar í mörgum lit- um, st. 22—40. Skóvinnu- stofan, Hrísateigi 47 við Laugalæk. Tek skóbreyt- ingar fram að Þorláksm. Píanó Gott h'ljóðfæri er gulls ígildi. Nokkur píanó fyrir- ligigjandi. Helgi Hallgrímsson, Ránargötu 8, sími 11671.
Látið mála fyrir jólin. Get bætt við mig nokkrum verkum. Jón D. Jónsson, málari. Sími 15667. Keflavík — Suðumes Bökunanáhöld, form, tertublóm, pottar, rafmagnspönnur. Stapafell, sími 1730.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Keflavík — Suðumes Kenwood hrærivélar, Nilfisk ryksugur, strauvélar, Philips raf- magnsvörur. Stapafell, sími 1730.
i—
CORTINA 1965 [ ■ til söhi. Bifreiðin er í mjög góðu ásigkomulagi að ’ öllu leyti. Hún er rauð að lit og er með útvarpi. Nánari upplýsingar í síma 21735, í dag. Vnr -m- vr -rv- vr -rv- -rr J
Ráðskona óskast Maður á bezta aldri óskar eftir ráðskonu. Nýtízku heimili með öllum þægindum. Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 17. des. næstkomandi merktar: „007“.
SETBERG
Sveinn Sæmundsson
ciaM'iMiTITW'l
frásagnlr um <slenzha sjómenn
?á.ttfióar* og.stridsíírrium
— ©AUGLÝSINGASTOFAN
I STRIÐI Sveinn Sæmundsson
OG STÓRSJÓUM
rtýjar frásagnir um ú
á fridar- og stríðstímum
sjomenn
f þessarl bök er sagl frá baráttu fslenzkra sfömanna vlö hafið
og hln eyðandi öfl helmsstyrjaldarlnnar siöarl. Frá miskunnar -
leysl hernaðarins á haflnu og hvernlg saklausum mönnum var
haldlö I fangelsi og misþyrmt af erlendum hermönnum svo að
segja | hjarla höfuðborgarinnar.