Morgunblaðið - 24.12.1968, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1968
Jóladagskrá útvarpsins, eins
og hún hefur verið, er senni-
lega ein hin hátíðlegasta, sem
nokkur útvarpsstöð getur stát
að af. Meira að segja útvarps-
stöð Vatíkansins í Róm telur sér
ekki annað fært en að útvarpa
dægurlögum yfir jólahátíðina",
sagði Haraldur Ólafsson dag-
skrárstjóri, þegar við hittum
hann að máli og fengum hann
til að segja örlítið nánar frá ein
stökum liðum jóladagskrárinn
ar.
Það verða heldur engin frá-
vik frá þessari stefnu í jó'la-
dagskránni nú. Jólahelgin situr
í fyrirrúmi, dægurlög eru enn
sem fyrr forboðin tónlist, það
dugir ekki minna en dýrð-
leg helgitónverk eftir Bach og
Handel eða einhvern annan ald-
inn meistara barok-tímans til
að setja hin rétta helgiblæ á
dagskrána.
Víkjum þá að einstökum dag
skrárliðum og byrjum á aðfanga
degi. Þar má vekja athygli á
þætti kL 10.10 um morguninn,
þar sem Jónas Jónasson ræðir
við fulltrúa ýmissa sértrúar
fíokka um jólahald þeirra. Nefn
ist þátturinn „Jölahald með ýms
um hætti“. Eftir hádegi eða kl.
2.45 mun svo Sveinn Þórðarsom,
fyrrum bankagjaldkeri, segja
sögu jólasálmsins „Heims um
ból“, en hann á einmitt 150 ára
afmæli á þessum jóilum. Klukk-
an 3 er þátturinn „Stund fyrir
börnin“ og þar byrjar Rúrik
Haraldsson lestur á sögu Jóns
Sveinssonax (Nonna) „Á Skipa
lóni“. Verður hún framhaldssaga
barnanna yfir jólin.
Sem fyrr getur fær tónlist-
inn mikinn hlut í jóladagskránni
og ekki hvað sízt á aðfanga-
dagskvöld. Til að mynda mun
Sinfóníuhljómsvedt ís'lands þá
og Guðrún Tómasdóttir og Jón
Sigurbjörnsson syngja jólasálma
við undirleik Ragnars Björns
sonar. Loks verður fluttur jóla-
þáitturiinn úr „Messíasi" Handels,
og það er Leonard Bernstein
sem stjórnar.
Sú hefur verið venja útvarps
ina. undanfarin ár að fá prest
Jón Múli verður þulur útvarpsins á aðfangadagskvöld.
Hjörtur Pálsson hefur ásamt Þóru Kristjánsdóttur umsjón með
þætti er nefnist Dýrgripir í þjóðareign. Hér er hann við klipp-
ingu á þætti sínum ásamt magnaraverði.
flytja verk eftir ýmis barok-
tónskáld, svo sem Bach og Pur
cell. Að því loknu er orgelleik-
ur og einsöngur í Dómkirkjunni.
Páll ísólfsson leikur á orgelið
úr dreifbýlirau til að flytja jóla
hugvekju á aðfangadagskvöid og
svo verður einnig nú. Mun séra
Gísli H. Kolbeins á Melstað
tala. Dagskránnd á aðfangadags
kvöld lýkur með því að útvarp
að verður guðsþjónustu í Dóm-
kiirkjunni á jólanótt. Biskup fs-
lands, herra Sigurbjörn Einars-
son, messar og guðfræðinem-
ar undir stjóm dr. Róberts A.
Ottóssonar syngja.
f dagskránni á jóladag kenn-
ir margra grasa, og ýmislegt,
sem vert er að vekja athygli á.
Fyrir börnin er þátturinn „Við
jólatréð" barnatími í útvarps-
saL Jónas Jónasson stjórnar, og
þar kemur jólasvenininn m.a. í
heimsókn. Um kvöldið er þátt-
urinn „Dýrgripir í þjóðareign",
sem Þóra Kristjánsdóttir og
Hjörtur Pálsson hafa umsjón
með. „Við göngum á fund safra-
varðanna hér í Reykjavík“, tjáði
Hjörtur okkur. Förum til SeLmu
Jónsdóttur, forstöðukonu Lista-
safns ís'lands, Bjarraa Vilhjálms-
sonar, þjóðskjalavarðar, Björns
Sigfússonar háskólabókavarðar,
Finnboga Guðmundssonar, lands
bókavarðar, og Þórs Magnússon-
sonar, þjóðminjasafnsvarðar og
biðjum þá að benda á og segja
frá þeim gripum eða verkum,
sem þeir telja mestu dýrgrip-
ina í sinnd vörzlu.“ Síðar um
kvöldið er svo þátturinn „Dreg-
ið fram í dagsljósið“, þar sem
Aðalgeir Kristjánsson, skjala-
vörður tekur saman þátt úir
bréfum til Brynjólfs Pétursson-
ar, en bréfasafn hans fannst raú
í haustbyrjun í Kaupmannahöfn.
Lesari með Aðalgeiri er Krist-
ján Árnason, stud mag. Rétt er
að benda á að messunni á jóla-
dag verður útvarpað beint frá
Akureyri, og er það í fyrsta
skipti, sem það er reynt. Prest-
ur er séra Pétur Sigurgeirsson.
Rétt er að vekja athygli á
því, að jólakveðjurnar frá fólki
erlendis verða lesnar upp á jólla
dag kl. 1-2 og svo aftur kl. 4.15
og á annan í jólum kl. 16.15.
Þá er þess og að geta, að tungl-
ferð bandairísku geimfaraniraa
þriggja verður í fullum gangi
yfir jólin, og hefur frétta-
stofa útvarpsins fengið Hjálm-
ar Sveinsson, einn fróðasta
mann um þessi málefni hérlend-
is, til liðs við sig, og mun hanra
segja fréttir af ferðinni meira
og minna yfir öll jólin, meðan
á henni stendur.
Þá er að víkja að síðustu að
dagskránni um áramótin. Þá
verður útvarpað og sjónvarpað
samtímis ávarpi forsætisráð-
herra og þætti útvarpsstjóra
Andrésar Bjömssonar „Við ára
mót“. Síðar um kvöldið er svo
skopþáttur, sem þeir Guðmund-
ur Jórasaon, Jónas Jónasson og
Jón Gunnlaugsson sjá um, og
einnig mun Sinfóníuhljómsveitin
leika lög af léttara tagi. Á ný-
ársdag verður svo sjónvarpað og
útvarpað ávarpi forseta íslands,
herra Kristjáns Eldjárns,, og um
kvöldið er þátturinn „Frá liðnu
áxd“, sem Árni Gunnrsson,
fréttamaður, og Báldur Guð-
laugsson sjá um í sameiningu.
Eru það fréttir og frásagnir af
atburðum síðasta árs, rætt verð-
ur við ritstjóra og fréttastjóra
dagblaðanna og ýmsa menn um
minnisstæðasta atburðinn.
Þulur á aðfangadagskvöld
Þu'lur útvarpsins á aðfanga-
dagskvöld að þessu sinni verð-
ur Jón Múli Ámason. Þau 23
ár sem hann hefur starfað hjá
útvarpinu, hefur hann a.m.k. 13
sinnum eytt aðfangadagskvöld
inu í herbergi þulanna, og var
t.a.m. þulur á aðfangadagskvöld
í fyrra. Við spurðum Jón Múla,
hvað þeir, sem væru þá við
vinnu í útvarpinu, gerðu sér
helzt til hátíðarbrigða.
— Ýmislegt svaraði hann. —
Við reynum að gena umhverfið
hér ofurlítið jólalegt með því að
koma fyrir grenigreinum og
hengja á það ýmislegt jólagling
ur. Svo fáum við sendan jóla-
mat að heiman og kannski eitt-
hvað af jólakartum, hafi okkur
borizt einhver. Þau tökum við
upp og hugsum hlýlega til send
anda. Svo erum við í afskaplega
nánu sambandi við veðurstofuna
í gegraum fjarritarann hér. Fara
mörg hlý orð þar á milli, jafn-
vel hlýrri en yfir hásumartím-
ann. Nú, og svo reynir maður
auðvitað að syngja eitthvað af
jólasálmum, það getur aldrei far
ið svo að maður kunni ekki eiran
og tvo-þrjá sálma af öllum þess-
um aragrúa, sem sunginn er.
Annars hef ég engar áhyggjur
af því, að mér kunni að leiðasit
nú á aðfangadagskvöld, geim-
ferðin sér fyrir því. Við getum
fylgzt með fréttum af geimför-
unum í gegnum ýmsar erlendar
útvarpsstöðvar, já og það getur
meira að segja farið svo, að út-
varpið taki upp þá nýbreytni á
aðfangadagskvöld að segja frétt
ir í stuttu máli.
KLÚBBURINN
ANNAR í JÓLUM
SÖNGVARAR:
MARÍA BALDURS-
DÓTTIR OG ÞÓRIR
BALDURSSON.
Matur framreiddur frá kl. 8 e.h.
Borðpantanir í síma 35355. OPIÐ TIL KL. 1.
(jfe&ilecj jóf
ITALSKI SALUR:
RÖNDÓ TRIÓID
BLÓMASALUR:
Heiðursmenn
CjLkLcj fói
Farsælt nýtt ár.
LANDSVIRKJUN.
Sporiskirteini rikissjóðs
Er kaupandi að spariskírteinum fyrir um kr. 400
þúsund.
Tilboð merkt: „Spariskírteini — 6702“ sendist af-
greiðslu Mbl. fyrir áramót.
Vélstjórafélag fslands og kvenfélagið Keðjan
Jóatrésskemmtun verður á Loftleiðahótelinu sunnudag-
daginn 29. des. og hefst kl. 15.
SKEMMTINEFNDIN.
Vesturbæingar - Seltirningur
STJÖRNULJÓS, FLUGELDAR OG BLYS.
Mjög gott verð.
STRAUMNES, Nesvegi 33.
(j(e(jifecj jóf
Farsælt komandi ár.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.
Félng mutreiðslumanna
heldur jólatrésskemmtun á Hótel Loftleiðum 30. des-
ember frá kl. 3—6.
Aðgöngumiðar verða seldir á Óðinsgötu 7, efstu hæð
27., 28. des. frá kl. 3—5.
STJÓRNIN.
CLkL jJ
O. P. NILSEN
rafvirkjameistari.
JÓLADAGSKRÁ ÚTVARPSINS