Morgunblaðið - 07.01.1969, Síða 2

Morgunblaðið - 07.01.1969, Síða 2
MORCrUN’BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1969. 52 fórust þegar lending mistðkst — Farþegaþota sundraðist við Gatwick flugvöll — Fólk í nœrliggjandi húsum sýndi mikið hugrekki við að bjarga nokkrum sem voru á lífi Gatwick, Englandi, 6. janúar. — AP — TALIÐ er að minnst 52 manneskj ur hafi látiff lifið þegar Boeing 727 farþegaþota frá Afghanistan lenti í hríff fyrir utan Gatwick flugvöll, skall á húsi og sundrað ist sl. sunnudag. Þrettán voru fluttir í sjúkrahús, margir alvar lega slasaffir. Meffal þeirra voru flugstjóri og vélamaður. Flestir farþeganna voru Asíumenn. Gatwick flugvöllur, sem er 40 km frá London, hafði verið lokaður í marga tíma vegna þoku þegar fluigvélin kom að. Flugstjóranum var sagt að lend- ingairskilyrði væru mjög slæm en hann kvaðst ætla að yfir- fljúga í lítilli hæð og afihuga Samveldisráðstefna hefst í London í dag London, 6. jan. NTB, AP. STJ ÓRNMÁL ALEIÐTOG AR tuttugu og átta brezkra samveld- islanda hefja fund í dag í London og eru flestir þeirra þegar komn- ir og í byrjuðu í dag óformlegar viffræffur sín á milli. Talsverffur ágreiningur er rikjandi meffal fulltrúanna á ráðstefnunni um ýmis þau vandamál sem eru á dagskrá ráffstefnunnar, og má þar nefna þráteflið um Ródesíu, innflutningslögin og kynþátta- mál, svo og afstöffu auðugra landa til hinna efnaminni. Meðal annarra mála, sem vænt anlega verður fjallað um er sam- búð austurs og vesturs, afvopn- unarmál, friðarviðræðurnar í París og ástandið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Síðasti slíkur fundur var hald- inn í september 1966 og síðan haia fimm lönd bætzt í hópinn, Arobar viður- kenna landa- mæri ísraels hverfi þeir frá her- teknu svœðunum Belgrad, Beirut, 6. jan. NTB. NTB-fréttastofan skýrði frá því í kvöld, og kvaðst hafa eftir áreiðanlegum heimildum, að Ara- baríkin væru reiðubúin að við- urkenna landamæri ísraels, svo framarlega sem þeir hyrfu brott af þeim landsvæðum, er þeir lögðu undir sig í sex daga styrj- öldinni. Hinsvegar mundu Ara- baríkin ekki taka upp stjórn- málasamband við fsrael. Mauritius, Barbadorp, Swazi- land, Lesotho og Botswana. Forsætisráðherra Ástralíu, John Gorton, sagði við brottför- ina frá Syndey á sunnudag, að Ródesíumálið mætti ekki verða allsráðandi á fundinum og varð- andi borgarastyrjöldina í Níger íu sagði Gorton, að Ástralía myndi ekki eiga frumkvæði að því að leiða styrjöldina til lykta. Pierre Eliot Trudeu, forsætis- ráðiherra Kanada átti fund með Wilson, forsætisráðherra Breta á sunnudag, sagði að brezka til- lagan um lausn Ródesíumálásins hefði valdið sér vonbrigðum og ekki verið á þá lund, sem hann hefði vonazt til. Tekinn ai lífi fyiir njósnir Kairó, 6. janúar — AP — EGYPSKUR liðhlaupi var tek- inn af lífi í dag fyrir njósmir í þágu fsrael, að því er blaðið „A1 Ahram“ segir. f fréttinni segir, að hann hafi náðzt þegar hann var að reyna að komast til ís- raelsmanna, yfir Súezskurðinn, og hafi þá haft meðferðis ljós- myndir og upplýsingar um eg- ypska flotann. hvort hann fyndi ekki blett. Flug stjómarmenn segja að vélin hafi verið algerlega á réttri stefnu til lendingar, hún hafi bara tekið of fljótt niðri. Rétt á'ður en bún skall í jörðina tilkynnti flug- maðurinn að allt væri í lagi. Flugvélin kom niður aðeins rúman kílómetra frá brautarend- anum en þokan var svo þétt að sprengingin sást ekki þaðan. Hún skildi eftir sig tæplega kílómet- ers langan skurð, klippti af nokkra trjátoppa og skorsteina og stöðvaðist loks þegar hún rakst á einbýlishús þar sem fjögurra manna fjölskylda var sofandi. Vængir og skrokkur sundruð- ust og mikið eldihaf gaus upp. Flugstjómarklefinn hafði losnað frá og kastast á hliðinni burt frá húsinu Björgunarsveitir voru þegar sendar á vettvang en þegar þær komu að hafði fólk sem bjó í ná- lægum húsum þegar bjargað flest um sem bjargað varð úr flugvél- inni. Margir sýndu þar einstaka hetjulund, óðu hiklaust inn í brennandi flakið til að bjarga þeim farþegum sem hægt var að ná til. Þeir voru svo fluttir í skyndi á sjúkraihús en tveir lét- ust fljótlega eftir að þangað kom og nokkrir aðrir voru í lífshættu. Úr húsinu sem vélin lenti á bjargaðist aðeins stúlkubam. Efcki er búið að finna lík hinna en talið er fullvíst að þau hafi öll farist. Téhhor biðjcst alsöhunar Múnchen, Þýzkalandi 6. janúar —AP— V ARN ARMÁLARÁÐUNE YTI Tékkóslóvakíu hefur formlega beðið Vestur-Þjóðverja afsökun- ar á því að landamæraverðir fóru innfyrir landamæri Vestur- Þýzkalands til að bandtaka tvo flóttamenn, en flóttamönnunum befur ekki verið skilað, eins og kraifzt var. Sagt var að landamæraverð- imir væru ungir og óreyndir og því hefðu þeim orðið á þessi mis tök, sem þeir verða látnir svara til saka ’fyrir. Flóttamennimir verða hins vegar ákærðir fyrir að hafa ráðizt á landamæravörð. Lögðu niður vinnu við löndun úr íslenzhum togura Aberdeen, 6. janúar. AP. LÖNDUN var hætt úr íslenzka togaranum Úranusi í dag, er hafnarverkamenn lögðu niður vinnu við löndun á farminum Mynd af Lenin á leið til Venusar VENUSARFLAUGIN, sem Rússar sendu af staff á sunnudaginn á aff lenda hægri lendingu á Ven- usi um miffjan maímánuff ef allt gengur vel. Þetta er fimmta flaug in sem Rússar senda þangaff. Þrjú fyrstu skotin misheppnuff- ust, en þaff fjórffa tókst vel og Venus fjórði sendi miklar upp- lýsingar til jarffar áffur en hinn gífurlegi hiti eyffilagffi senditæk in. 24 tímum eftir lendingu Ven- usar fjórffa bar þar að banda- ríska fariff Mariner fimmta, sem fór nokkra hringi um plánetuna, en hingaff til hefur ekkert banda riskt far lent þar. Upplýsingum rússnesku og bEindarísku faranna bar ekki aaman og hlógu menn mikið að því að jiafnvel gerfihnettir þjóð- anna væm ósammála. Báðir kom ust þó að þeirri aðal niðurstöðu, að hið þétta, skýjakennda gufu- hvolf plánetunnar gerði hania að sjóðandi „helvíti" sem svo til úti lokaði að þar þrifist líí. Venus fimm flytur með sér mun meira af alls konar vísinda- tækjum eon Venus fjögur, og auk þess er innanborðs falleg lit- mynd af Lenin. Vegalengdin sem Venus fimm fer er um 250 millj- ón kílómetrar og sem fyrr segir er áætlað að hún taki um fjóna mnáuði. Meðan á ferðinni stend ur verða gerðar nokkrar stefnu- breytingar og þeim verður stjóm að með radíógeislum frá jörðu. vegna launaágreinings. Landað hafði verið 1829 körfum úr tog- aranum, sem seldust á 8400 ster- lingspund, en neitað var löndun á 400 körfum, sem eftir voru. Togarinn ætlaði að sigla áleiðis til íslands í kvöld, en verður að bíða þess, að leifum aflans verði landað. Friðrik Úlafsson á al- þjóölegt mót í Hollandi — Sjö þekktir stórmeistarar í hópi keppinauta hans FRIÐRIK Ólafsson, stórmeist- ari, fer til Hollands á laugar- dag n.k. til aff taka þátt í al- þjófflegu skákmóti, sem þar verffur haldiff síffari hluta þessa mánaffar. Æffi langt er nú orffiff frá því aff Friffrik hefur teflt erlendis, og keppi- nautar hans á þessu móti aff frófflegt verffur aff fylgjast verffa engir aukvisar, þannig meff frammistöðu hans. Morg- unblaðiff átti í gær stutt sam- tal viff Friðrik, og spurffi hann nánar um þetta mót. — Mótið er haldið árlega í bænum Baverwijk í Hollandi, og mun standa frá 13. janúar til 1. febrúar. Ráðgert er að keppendur verða 16 talsins, og í hópi keppinauta minna eru m.a. 7 stórmeistarar. Eru það Keres frá Sovétríkjunum, Botvinik, fyrrv. heimsmeist- ari, einnig frá Sovétríkjunum, Portich frá Ungverjalandi, Pomer frá Spáni, Kavalek frá Tékkóslóvakíu, Donner frá Hollandi, og Ciric frá Júgó- slóvakíu. Einnig er Júgóslav- inn Ostojic meðal keppenda, en margir munu minnast hans frá mótinu hér í sumar. — Hvað er langt síðan þú hefur keppt erlendis, Frið- rik? — Ég keppti síðaet í Dundee í Skotlandi sumarið 1967 á al- þjóðlegu móti þar. Að öðru leyti hef ég ekkert keppt hin síðari ár nema á mótinu, sem haldið var hér heima í sumar. — Hvernig leggst þetta mót í þig? — Ég vona hið bezta. Æf- ingin hefur að vísu oft verið meiri en núna, en ég vona að Friffrik Ólafsson þar vegi kannski upp á móti að ég verði ferskari en ella. Ég geri mér grein fyrir, að það eru erfiðir keppinautar, sem ég á við að etja, en ég vona jafnframt, að ég muni reynast þeim erfiður líka. Við spurðum Friðrik, hvort honum bærust mörg boð um þátttöku í erlendum skákmót- um. Svaraði hann því játandi, kvað sér stöðugt vera að ber aet boð erlendis frá, en þetta borð befði verið hið eina, sem hann sá sér fært að þiggja \ð sinni. Liv Ullmann ásamt Ingmar Berg man, en hann var Ieikstjóri þeirra mynda tveggja sem færðu henni verfflaun bandarísku kvikmynda- gagnrýnendanna. Liv Ullmann bezta leikkonan '68 að dómi bandarískra gagnrýnerda New York, Qsló — NTB 6. jan. BANDARÍSKIR kvikmyndagagn- rýnendur kjöru í dag norsku leik konuna Liv Ullman beztu leik- konu ársins 1968, fyrir leik henn ar í myndunium „Stund úlfsins" og „Skömmin“. Skandinaviska kvikmyndin „Sultur“ byggð á sögu Hamsuns var úrskurðuð númer þrjú af beztu erlendu myndum öðrum en enskum. Bandaríski leikarinn Cliff Ro- bertson var kjörinn bezti karl- leikarinn fyrir frammistöðu sína í „Charley" og brezka kvikmynd in „Skór fiskimiannsims“ bezta emskia kvikmyndin, en um þá mynd hafa verið nokkrar ýfingar meðal bandarískra gagnrýnenda. Sovézka kvikmyndin „Stríð og friður“ var að ma'ti gagnrýn- enda bezta erlenda kvikmyndin á öðrum málum en ensku, og núm er tvö var „Hagbarður og Signý“, en sú mynd var að verulegu leyti tekin hér á landi. Þriðja í röðinni var „Sultur“ eins og fyrr segir og tvær franskar kvikmynd ir „Við tvö“ og „Brúðurin var svartklædd." Fréttamenn ræddu við Liv Ull mann eftir, að henni hafði bor- izt vitneskja um verðlaunin og sagðist hún að sjálfsögðu fagna þessum sóma. — Það var raun- ar tannlæknirinn minn, sem sagði mér tíðindin, hann frétti um þetta á undan mér, sagði leik- konan. Næsta kvifcmynd sem Liv Ull- man leikur í er „Vesturfararnir", gerð eftir Skáldverki Wilhelms Mobergs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.