Morgunblaðið - 01.03.1969, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1969
17
Kristján Halldórsson kennari:
Heilaflótti
reynslu, flestir ofalin
börn þjóðfélagsins.
dekur-
FRETTIR af stórkostlegum stú-
dentaóeirðum er sú hrollvekja,
sem óðum nálgast fyrsta sætið
hjá fréttamiðlunartækjum allra
landa.
Þessum ört vaxandi hjörðum,
ungra manna og kvenna í blóma
lífsins, er allt í einu að verða
það ljðst, að flestum þeirra er
stefnt í blindgötu, sem endar
með tveim afleggjurum, sem
liggja sitt í hvora áttina. Annar
afleggjarinn er mjór og þröng-
ur, og þá leið komast aldrei
fleiri en þeir, sem þjóðfé'lögin
hafa þörf fyrir á hverjum tíma,
og æskilegt er að þann hóp skipi
mannvænlegustu ungmennin.
Hinn afleggjarinn er öllum op
inn og þar fjölgar mjög vegfar-
endum með hverju ári. Og það
er þessum hóp, sem er að verða
það ljóst áður en lýkur námi,
að flestir þeirra munu koma að
lokuðum dyrum, þegar leitin að
ævistarfinu byrjar. Og þá er það
sem skelfingin grípur um sig, og
stúdentauppreisnir hefjast.
Unga fólkið, sem er langt kom
ið með að ljúka 'löngu og oft erf-
iðu námi, verður skyndilega grip
ið heift og gremju til þess þjóð
félags, sem því finnst, að hafi
brugðizt. Það er búið að eyða
mörgum beztu árum ævinnar í
að sérhæfa sig til ákveðinna
starfa, og þegar að því kemur
að kveðja háskólann, þá blasir
veruleikinn við. Það finnst
hvergi neinn sem vill nýta
mennt.un þess og kunnáttu.
Vonleysi ungu menntamann-
anna brýst svo út í ýmsum mynd
um. Þeir sem njóta forustu ske-
leggra leiðtoga finna sér næg á-
hugamál til að berjast fyrir, jafn
vel hugsjónir. Það skiptir svo
ekki öllu máli, hvort hugsjónin
er að bæta heiminn, samkvæmt
kenningum „Svarta kversins“
hans Mac Cruse, eða kríja út
jafn margar krónur í styrk, út
á króann, sem fæddist í lausa-
leik, og hinn, sem fæddur er ó
löglegan máta. Aðalatriðið er að
dreifa huganum frá þeirri ó-
tryggu framtíð, sem við tekur,
þegar náminu er loksins lokið.
VEROMÆTUR
ÚTFLUTNINGUR
Á síðustu árum hefur „heila-
flóttinn“ til Bandaríkjanna vald
ið skelfingu hjá ráðamönnum
margra landa.
Árið 1966 flýðu nær 10 þús-
und vísindamenn, verkfræðingar
og læknar frá ýmsum löndum,
til Bandaríkjanna, þar af 2700
frá Bretlandi einu.
Á árinu 1968 var ákveðið
að veita 17 þúsund „superheil-
um“, innflutningsleyfi til Banda
ríkjanna, af þeim 50 þúsundum,
sem þá voru á ört vaxandi inn-
flutningsbiðlista þar.
Flestir af þeim, sem fá inn-
flutningsleyfi í USA, eru full
tíða menn, sem hafa lokið sér-
fræðiprófum auk háskó'lanáms-
ins. Launin, sem þeir fá, eru
mjög há, ef þeir reynast eins og
efni standa til, og þegar um af-
burðamenn er að ræða eru eng-
in takmörk fyrir hve vel er að
þeim búið. Flestir af þessum inn-
flytjendum fara til starfa hjá
einkafyrirtækjum, en ef þeir
reynast ekki vandanum vaxnir,
er þeim ei'nfaldlega fleygt á
dyr.
En þrátt fyrir þetta miskunn-
arleysi bandaríska vinnumark-
aðsins, eru tugir þúsunda af
menntamönnum frá öllum lönd-
um heims, sem bíða í ofvæni
eftir að fá að komast í sæluna.
3 MTLLJ. KOSTAR Að
MENNTA HVERN OG EINN
Ful'komin læknaþjrnusta er
sá d'rasti munaður, sem fó’lk í
Bandaríkjunum veitir sér. Og
þar þykir sjálfsagt að hafa á
boðstólum læknaþjónustu, sem
hæfir fjárhagsgetu allra. Af
þeim sökum hafa innflytjendur
úr læknastétt orðið tiltölulega
mjög fjölmennir, enda haft þá
séraðstöðu, að þó þeir reyndust
engir afburðameran, þá má allt-
af notast við þá á einhverju
lægra plani.
Þessi læknaflótti til USA hef-
ur valdið mikhim glundroða og
erfiðleikum með heilbrigðisþjón
ustu víða um heim. En þó mega
margar Evrópuþjóðir vera þakk
látar fyrir, að Bandaríkjamenn
eru ekki of ginkeyptir fyrir að
leyfa innflutning á háskóla-
menntuðum mönnum, svörtum og
gulum, t.d. væri heilbrigðisþjón
usta í Bretlandi komin í algert
öngþveiti, ef þeim tækist ekki
nokkurn vegnn að fylla í skörð
in hjá sér með læknum frá þró-
unarlöndunum, aðallega frá Ind
landi. Vísir að slíkum innflutn-
ingi er hafinn hér á íslandi.
Annar þáttur þessa máls er
Bretum líka þungur í skauti. Tal
ið er að menntun þessara 2700
háskólaborgara hafi kostað 40
millj. sterlingspund eða 9.000
millj. tól. kr. (Heildarverðmæti út
flutningsafurða fslendinga árið
1968 var rúmlega 5.000 millj. kr.)
ÁRÓðUR MEð ARANGRI
Frá stríðslokum 1945 og fram
til 1960, fullnægði framleiðslan
á háskólamenntuðu fólki engan
veginn hraðvaxandi vin-numark-
aði fyrir slíkt fólk. Ráðamenn
fræðslukerfa allra menningar-
landa, settu því metnað sinn í að
sem fyrst yrði fullnægt þeirri
þörf, sem hagþróun og tækni-
þróun velferðarríkjanna hefðu
verið, og væru að skapa.
Látlaus áróður fyrir aukinni
menntun kvað við úr öllum átt-
um. Einihverjum datt í hug að
meta menntun til fjár, og þá
varð fjandinn laus. Mennta-
menn hrópuðu: „Menntun er
fjárfesting. Menntun er eina
fjárfestingin, sem máli skiptir."
Auðvitað þorðu pólitíkusarnir
ekki annað en byrja á sama
blaðrinu, og sungu með sínu
'lagi: „Bara fylla alla ask þjó
félgsins með menntun, þá mun
öllum líða vel, og allir verða á-
nægðir."
Afleiðing þessa áróðurs kom
fljótt í ljós. Bætt efnahagsaf-
koma láglaunastéttanna gerði
flestum foreldrum kleift að
styrkja börn sín til framhálds-
náms. Og efnahagsþróun margra
ríkja gerði þeim fært, að auka
mjög fjárframlög til menntamála.
En þrátt fyrir óhemju fjárveit-
ingar til nýrra skólabygginga,
fór ástandið í framhaldsskólum
mjög versnandi.
Menntaskólar troðfylltust og
stúdentaframleiðslan óx frá ári
til árs. Ótal nýjar menntagrein-
ar urðu til og sérfræðingar af
ö’llum tegundum. Og allir háskól
ar yfirfullir. Og nú er síðasti
boðskapur fræðsliufcerfaistjór-
anna sá, að sú þjóð, sem ekki
fceppi að því að 30 prs., heldiur
50 prs. af hverjum aldursárgangi
ljúki stúdentapófi, hennar bíði
ekkert nema eymd hinna van-
þróuðu þjóða og tómir askar.
Á þeim tíma þegar aðalverk-
efni háskólanna var að sjá rík
inu fyrir fábreyttu embættis-
mannaliði, þá voru stúdentar
svo fámennir, svo lítið brot af
þjóðinni, að litlu máli skipti,
hvoru megin hryggjar þeir lágu.
En nú er svo komið, að offjölg-
un háskólastúdenta er að verða
flestum menningarþjóðum álíka
vandamál og kynþáttavandamál-
ið er Bandaríkjamönnum.
Háskólastúdentar eru fullorð-
ið fólk, í blóma lífsins. Þeir eru
farnir að þrá að komast út í at-
vinmulífið og gerast virkir þátt-
takendur í athafnalífi þjóðfélags
ins. Á meðál stúdentanna eru
gáfnaljósin, vonarpeningur
hverrar þjóðar, fólkið með háu
greindarvísitöluna, takmarka-
lítið sjálfsálit, en sáralitla lífs-
Eins og dekurbörn allra tíma,
þá sjá þessir ungu menntamenn
ekki, að þeir standi í neinni
þakklætisskúld við einn eða
•neinn, þó þeir séu búnir að vera
ómagar á annarra framfæri, það
sem af er ævinni. í þess stað
æpa þeir og væla um meðaunk-
un, vegna þess, að þeir fórni stór
um hluta ævinnar við einhverj-
ar ýmyndaðar þrautir, sem fylgi
löngu námi. Það á víst að skilj-
ast þannig, að þeir harmi það
mest, að hafa ekki fengið að
byrja brauðstrit almúgamanns-
ins strx eftir fermingu.
ÞEGAR ÓARTIN
GRÍPUR BÖRNIN
í útvarpinu 9. nóvember 1968
sagði einn af stúdentaráðsmönn
um Háskóla Islands: „Við þurf-
um að láta mikið meira til okk-
ar taka. Okkar starf í vetur
er að virkja áhuga stúdenta fyr-
ir kröfum okkar. Að sjálfsögðu
kjósum við fremur að nota frið-
samlegar aðferðir til að fá fram
okkar kröfur. En við höfum
í bakhöndinni að nota önnur með
ul, ef ekki duga friðsamleg."
Það afl, sem gera má ráð fyrir
að standi að baki hótunar þessa
unga íslendings, er um 1000 stú
dentar með áhuga, sem stúdenta-
félagið ætlar að virkja í vetur.
Það má segja, að nemendur Há-
Framhald á bls. 20
Vorið ~
vekur
ferðaþrá...
Vorið er fegursti tími ársins í Evrópu;
náttúran vaknar af dvala og allt iðar
af lífi og fjöri. Þá hefst tími ferða-
laganna og Flugfélag íslands býður
yður sérstakan afslátt af flugfargjöld-
um til 16 stórbórga í Evrópu. Vorfar-
gjöld Flugfélagsins eru 25% lægri
en venjuleg fargjöld á sömuN
flugleiðum og gilda á tímabilinu
15. marz til 15. maí. Flugfélagið og
IATA ferðaskrifstofurnar veita allar
upplýsingar og fyrirgreiðslu.
IATA
Alþj óðasamvinna
um flugmál
FLUCFÉLAG ÍSLANDS