Morgunblaðið - 01.03.1969, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1969
- HEILAFLÓTTI
Framhald af bls. 17
skólans séu að breyta Stúdenta-
félaginu í stéttarfélag af nokk-
uð óvenjulegu tagi. Félagið set-
ur fram ótal kröfur á hendur
þjóðfélaginu, og þær kröfurnar
eru ekki bornar fram af lítil-
læti þiggjandans: Peninga eftir
þörfum, hlunnindi og réttindi
eins og vð óskum. Skyldur okk
ar við íslenzkt þjóðfé'lag ákveð
um við seinna.
Svipuð er hógværðin hjá ís-
lenzkum stúdentum, sem stunda
nám erlendis. íslenzkir náms-
menn í Svíþjóð smyrja gikkinn
á sinni kröfubyssu með eftirfar-
andi: ,.Bregðist íslenzk stjómar-
völd ekki fljótt og vel við kröf-
um okkar, er fyrirsjáanlegt, að
islenzkt námsfólk muni í sí-
auknum mæli setjast að erlend-
is. Barnlaus, ógiftur sænskur
námsmaður fær þegar á fyrsta
námsári sem svarar 140 þúsund
krónum íslenzkum í lán og styrk
og má þó hafa sem svarar 80
þúsund krónum ís'lenzkum í árs-
tekjur án þess að námsaðstoðin
sé skert.
fslenzkt námsfólk í Svíþjóð
getur fengið sömu námsaðstoð
frá sænska ríkinu og sænskir
námsmenn fá, með því skilyrði,
að það skrifi undir yfirlýsingu
þess efnis, að þeir hafi í hyggju
að setjast að í Svíþjóð."
Það hefur ekki þótt viðeig-
andi að nefna landflótta eða föð
urlandssvik, þó hópur íslenzkra
manna með háskólapróf og sér-
fræðingamenntun hafi getað selt
starfsgetu sína hærra verði er-
lendis en íslenzkt þjóðfélag hef-
ur getað boðið þeim.
En ef það á að verða næsta
skrefið hjá íslenzkum stúdent-
um, að þeir selji sig öðrum þjóð
um áður en þeir taka hvíta kofl
inn af húfunni, þá er hætt við
Lögtaksúrskurður
Eftir beiðni bæjarritarans í Kópavogi, fyrir hönd
bæjarsjóðs Kópavogs úrskurðast hér með lögtök fyrir
gjaldföllnum og ógreiddum fasteignagjöldum ársins
1969 til bæjarsjóðs Kópavogs.
Gjöld þessi fél u í gjalddaga hinn 15. janúar sl.
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 51 1964 fari lögtök fram
að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa, hafi
full skil -eigi verið gerð fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinii í Kópavogi, 4. febrúar 1969.
N auðungaruppboð
Auk áður auglýstra muna á lausafjáruppboði að Ár-
múla 26 í dag, laugardag 1. marz nJc. kl. 13.30, verða
seldir peningaskápar, skjalaskápar, skriifborð, skrifstofu-
vélar, húsgögn o. fl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu toUstjórans í Reykjaivík og lögmanna verða
nokkur veðgkuldabréf og óveðtryggð kratfa, seld á opin-
beru uppboði i borgarfóget aSkrifstofuinTi i, Skólavörðu-
stíg 12, miðvikudagimn 5. marz n.k. kl. 15.00.
Greiðsla við hamardhögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 72. og 74 .tfol. Lagbirtin.gaiblaðsin6 1968
og 2. tbl. þess 1969, á Súðarvogi 20, þimgl. eign Súðar-
vogs 20 h.f. o. £1., fer fram eftir kröfu borgarsjóðs Reykja-
vikur, á eigninni sjálfri, miðvikudaginn 5. marz 1969,
kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 72. og 74 .tbl. Lögbirtingablaðsins 1968
og 2. tbl. þess 1969, á Melavölkun við Rauðagerði, tailin
eign Baldurs Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu borg-
arsjóðs Reykjavíkur á eigninni sjálfr.i, miðvilkudaginn
5. marz 1969, kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
að fyrirvinna fræðslukerfisins,
bændur, sjómenn, verkamenn og
aðrir starfandi þegnar fari að ef
ast um að bókvitið fylli þeirra
aska.
SNÍÐUM STAKK EFTIR
VEXTI
Þegar óvenjulega vel árar
eins og 1965 og 1966, þá veldur
það ekki vandræðum þó úr Rík-
issjóði sé fleygt einhverjum krón
um í fólk, sem vill ekki vinna
þjóð sinni nýtilegri störf en setj
ast upp í erlendum háskólum og
sóa þar blómanum úr ævinni
við að læra að hengja myndir
á vegg og koma fyrir mublum
í herbergi.
En þegar framleiðslan og fram
leiðslurverðmiætin rýrna veru-
lega og hlutur þeirra, sem
vinna við framleiðslustörfin er
þrengdur svo mjög, að þeir hafa
ekki lengur til hnífs og skeiðar,
þá má það teljast ósvífni ef fólk
í blóma lífsins heimtar að vera
árum saman á annarra framfæri
við einhvers konar háskóla-
hobby, jafnvel út um öll lönd
og álfur, hobby sem hefúr ekk
ert eða óverulegt gildi fyrir ís-
lenzkt þjóðfélag, eða nám, sem
stefnir að því einu, að gera ís-
lenzka hákólaborgara að út-
gengilegum gripum í sænskum
eða bandarískum sölumarkað.
Margir af ráðamönnum þjóð-
félagsins, hafa mikinn áhuga á
að gjörbreyta starfsháttum og
fyrirkomulagi ' landbúnaðarins.
Aðrir vilja skipuleggja nýtingu
fiskimiðanna. Allt skal gert til
að auka afköst og afrakstur und
irstöðuatvinnuveganna.
En sjómenn og bændur segja:
„Gleymið ekki að skipuleggja þá
endemis vitleysu, sem allt
fræðslukerfið er orðið. Skipu-
leggið það í samræmi við þarfir
og getu þjóðarinnar, en haldið
ekki áfram að gera það að gróðr-
arstíu fyrir auðnuleysingja og
flóttamenn.
Með allri tölvutækninni og
IIORÐUR ÓLAFSSON
hæstaréttarlögmaður
skjalaþýðandi — ensku
Austurstræti 14
símar 10332 og 35673
FÉLAGSLÍF
Skíðamót Reykjavíkur
verður haldið um helgina,
8. og 9. marz 1969 við Skíða-
skála Í.R. við Kolviðarhól. —
Dagskrá auglýst nánar eftir
helgi.
Skíðadeild t. R.
sérfræðingunum, sem nú hafa sig
mjög í frammi, ætti að vera auð-
velt að áætla þarfir okkar litla
þjóðfélags, fyrir sérmenntað og
háskólagengið fólk, nokkur
næstu árin fram í tímann.
í okkar þjóðfélagi er ekki
hægt að meina neinum, að afla
sér þeirrar menntunar, sem hann
getur veitt sér, og er fær um
að taka við. En það hefur sín
takmörk hvað lítið þjóðfélag get
ur lagt í menntunarfjárfestingu,
engu síður en til annara fjár-
festinga. Það er því kominn tími
til, að við gerum það upp við
okkur, hverja er skynsamlegt
að kosta, af almanna fé, til fram
haldsmenntunar og hve marga
hverrar tegundar. Önnur fram-
haldsmenntun verður að vera
einkamál þeirra, sem eftir henni
sækjast, og af þeim kostuð.
SUKK í BABYLON
Glöggt dæmi um þann skaða,
sem stjórnleysi og fyrirhyggju-
leysi getur valdið, er það öng-
þveiti í Kennaraskóla fslands,
sem menntamálaráðherra hefur
leitt til öndvegis í þeirri mennta
stofnun.
Skólastjóri Kennaraksólans
hefur lýst því að nokkru opin-
berlega, hvernig honum er mein-
að að stjórna sínum skóla af
viti, þar sem honum er uppá-
lagt, að sjá nær 1000 nemend-
um fyrir aðstöðu til menntun-
ar í húsnæði, sem er ætlað 300
nemendum.
Sennilega sjá það allir menn,
nema hagfræðingar, að í 200 þús
und manna þjóðfélagi, þar sem
800 barnakennurum er ætlað að
annast barnafræðslu, að þar er
engin knýjandi þörf fyrir kenn-
araskóla sem útskrifa 200 barna
kennara á hverju vori. Enda líð
ur varla á löngu áður en slíkan
skóla sæki úrvöl ein.
Ástandinu í Háskóla Islands
hefur verið lýst í blöðum og út
varpi á undanförnum mánuðum.
Eftir þeim lýsingum, sem enginn
hefur mótmælt er ástandið verra
þar en á nokkrum öðrum stað
innan fræðslukerfisins og fer
dagversnandi.
Skyldunámið, 7 til 15 ára er
okkur enn svo erfiður baggi, að
við rísum ekki undir honum. í
næsta nágrenni Reykjavíkur, t.
d. í gósenlandinu Borgarfirði er
ástandið ekki betra en svo, að
börn á því svæði fá aðeins 80
kennsludaga á ári, þegar jafn-
ialdrar þeirra í Reykjavík og
stærri kaupstöðum fá 170
kennsludaga. Og ráðgert er 'að
lengja þann tíma í 200 daga.
Þannig er framlagi hins opin-
bera misskipt milli yngstu þegn
anna. Auk þess hefur þótt sæma
að láta 3. flokks kennara ann-
ast uppfræðsluna fyrir skatt
borgara dreifbýlisins.
Afleiðing þessa ranglætis kem
Jörð til sölu
Jörðin K rókur í Víðidal fæst til kaups og ábúðar nú
þegar. Á jörðinini er íbúðarhús úr steini. Fjárhús fyrir
460 fjár. Hestihús yfir 20 hross. Fjós fyrir 5 kýr. Tún
25—30 ha. Hlöður fyrir ÖJI hey. Beitiland mikið og gott,
allt girt með nýjum og nýlegmm fjárheldum girðirxgum.
Upplýsingar gefur eigandi jacðarinnar, Skarphéðinn
Skarphéðinsson, Skipasundi 84, Reykjaivík, sómi 38042.
HÆTTA A NÆSTA LEITI
eftir John Saunders og Alden McWilliams
yöu might say robin
Rondo and i GREW UP
ON THE WRONG SIOE OF
DIPFERENT TRACKS/
HOLO IT, DANHY/ OON’T
MOVEJ THE LIGHT IS
PERFÉCT! I SHAU.CALL
TROY, SHAKE HANDS ■
WITH LIBERTY HIGH
SCHOOL'S MOST OUT-
STANDING DROPOUT/
Ég vissi ekki að þú ættir vini hér í bæ
Danny. Þessi náungi er ekki einn af þeim
vinum sem maður montar sig af Troy.
(2. mynd) Það mætti kannski segja að
við Robin Rondo höfum báðir vaxið úr
grasi á skuggahlið götunnar, en ekki þó
sömu götu. (3. mynd) Kyrr Danny, ekki
hreyfa þig . . . ljósið er akkúrat mátu-
legt . . . ég kalla hana Skylmingaþræll í
sólskini.
ur svo fram í því, að mikill
fjöldi barna úr þorpum og sveit
um með góða námshæfileika, fá
ekki þann undirúbning í barna-
skóla, að þeim sé fært að fara í
undirbúningsdeildir til lands-
prófs, og fylgjast þar með í því
námi, sem jafnöldrum þeirra er
ætlað.
Menn hljóta að vera sammála
um það, að engin sanngirni mæli
með því, að úr ríkissjóði verði
nú varið fé, til að lengja skyldu
námið úr 8 árum í 9 ár, hjá
þeim börnum, sem nú þegar
njóta lengstrar árlegrar skóla-
göngu, og bezta aðbúnaðar í
skóla. Hitt lægi nær að reyna
að jafna þann aðstöðumun til
náms hjá börnum á skyldunáms
stiginu, sem alltof lengi er bú-
inn að vera svartur blettur á
fræðslukerfinu.
„HEILAVEFJUR KOSTA
BÖND“.
Þeir sem kjörnir eru til að
ráða og marka stefnuna í
fræðslumálum þjóðarinnar eru
mætir menn sem vilja að skól-
arnir verði gæfuleið unga fólks
ins. Menntamálaráðherra er
menntaður og ekki síður kunn-
ugur skólamálum en þeir 14 til
25 ára gömlu nemendur, sem nú
heimta að ráðherrann afhendi
þeim það húsbóndavald, sem hon
um ber að annast, og þjóðin
ætlast til að hann beiti. Því það
er sama lögmál sem gildir um
þjóðarheimilið og einkaheimilið,
að á hvorugum staðnum verður
alin upp kynslóð, sem verður
fær um, að taka við, að stjórna
þessu þjóðfélagi, ef hún er ekki
sjálf látin læra að hlýða og láta
að stjórn.
Menntamálin eru orðin það
umfangsmikill þáttur í þjóðfélag
inu, að yfirstjórn þeirra verður
ekki sinnt að gagni í hjáverk-
um. Það er því orðin knýjandi
nauðsyn, að menntamálaráðherra
embættið verði viðurkennt fullt
starf fyrir einn mann, svo ráð-
herra sé gert mögulegt að sinna
því á þann veg, að óprúttnum
skólastrákum líðist ekki að sýna
embættinu óvirðingu. Enda
blandast engum manni hugur um
að það er fyrst og fremst þreyta
og uppgjöf sem veldur því, en
ekki auðmjúk virðing fyrir lýð-
ræðinu, þegar menntamálaráð-
herra segist vera þeirrar skoð-
unar, að eðlilegt sé að láta nem-
endurna hafa hönd í bagga með
yfirstjórn skólanna. Og það er
öfugþróun mála þegar skólapilt
ar geta skikkað ráðherra og
rektora, til að gera svo vel að
mæta hér eða þar á tilsettum
stað og stundu, til að hlusta þar
á margendurteknar hótanir og
kröfur þess unga fólks, sem
gengur jafnvel svo langt að mis-
bjóða hinum virðulegu gestum
sínum með köpuryrðum og háði.
Það er stjórnleysi, fremur en
fjárskortur, sem stefnir fræðslu
málum hjá okkur til stórvand-
ræða, og það innan 2 til 3 árá.
Og það verða vandræði sem eng
in íslenzk ríkisstjórn ræður við,
og enginn er fær um að gera
sér í hugarlund, hve alvarleg-
ar afleiðingarnar geta orðið fyrr
en þær miklu hörmungar hafa
tröllriðið þjóðfélaginu.
Eitt af þeim vandamálum eru
skipbrot þeirra, sem neyðast til
að gefast upp á miðri námsbraut,
ýmist vegna þess að framfær-
andinn, aðstandendur og það op
inbera, verður uppiskroppa með
fóður, það er lán og styrki, eða
þeir átta sig alltof seint á því,
að hæfileikarnir, sem lagt var
upp með í byrjun, nægja engan
veginn til samkeppni á því at-
hafnasviði, sem viðkomandi var
narraður til að stefna að, með
ábyrgðarlausum áróðri og án
fyrirhýggju.
Annað vandamál og ef til vill
það alvarlegasta, það er offram-
leiðslan á fólki, sem verður það
sérhæft í sínu fagi, að það
hvorki vill né getur snert á öðru
starfi en því, sem það hefur
próf upp á. Sá hluti þess fólks,
sem ekki fær starf við sitt hæfi,
eins og það er orðað, er á viss-
an máta dæmdur til að flýja
land, og leita starfs erlendis, eða
verða nokkurs kona r Sölvar
Helgason okkar tíma.
Kristján HalUlórsson.