Morgunblaðið - 18.03.1969, Side 11
MOBGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1969
11
NORRÆNU FÉLÖGIN FIMMTUG
Á ÞESSU ári eru 50 ár liðin
frá stofnun Norrænu félaganna
á Norðurlöndum (Foreningen
Norden), og hefur aðalstjórn
samtakanna ákveðið, að afmælis-
dagurinn skuli vera 18. marz.
Þann dag minnist hvert félag af-
mælisins á sinn hátt, en einnig
minnast félögin afmælisins sam-
eiginlega með ýmsiun hætti.
Rætur Norræna félagsins eru
af mörgum taldar „stúdenta-
skandínavisminn" svonefndi, en
það var hreyfing, danskra
norskra og sænskra stúdenta sem
efndi til stúdentafunda. Sú
hreyfing koðnaði þó fljótt niður,
enda hvíldu sambandsslit Nor-
egs og Svíþjóðar sem skuggi yfir
samstarfi Norðurlanda um sinn.
I heimsstyrjöldinni 1914—18
glæddist skilningur Norðurlanda
þjóða á gildi samstarfs þeirra.
Þær voru allar smáþjóðir, sem
lítiks máttu sín hver og ein, en
sameiginleg framlög þeirra urðu
árangursríkari. Á þeim forsend-
um hóf danskur maður, C.I. Heer
fordt máls á því að stofna til
laganna að nokkru úr skorðum
á þann veg, að samstarfið lagðist
að verulegu leyti niður, en þau
störfuðu að ýmsum málum hvert
í sínu lagi. Harðar vegabréfs-
reglur voru aftur upp teknar,
*n nokkrum árum eftir stríðið var
losað um þær að nýju, og þarf
ekki lengur vegabréf til ferða
milli Norðurlanda.
Eftir stríðið var skipulagi og
starfsháttum Norrænu félaganna
breytt með ýmsum hætti og marg
ir nýir starfsþættir komu til
sögu. Þá hófst vinabæjahreyfing
in, og munu nú vera um 150
vinabæjasambönd á vegum félags
ins, og er hún nú að líkindum
gildasti þátturinn í starfi félag-
anna. Þar eiga sér stað mikil og
margvísleg samskipti.
Fyrst í stað voru aðeins ein-
staklingar meðlimir í félögunum,
en eftir stríðið tengdust þeim alls
konar önnur félög og samtök,
stofnanir og fyrirtæki, sem
styrktarfélagar. Félögin nutu
og vaxandi fjárstyrks ríkjanna.
Veigamesti tímamótaviðburður
hafa verið Klemenz Jónsson,
Sigúrður Nordal, Stefán Jáhann
Stefánsson, Guðlaugur Rósin
kranz, Gunnar Thoroddsen og
Sigurður Bjarnason, núverandi
formaður. Markmið þess var í
öndverðu ákveðið í lögum fé-
lagsins og hefur staðið svo ó-
breytt í 45 ár:
„Það er tilgangur félagsins að
vera í verki með skyldum fé-
lögum á Norðurlöndum í því að
efla og viðhalda samúð og ®am-
vinnu meðal norrænna þjóða inn
á við og út á við“.
Starf félagsins hefur frá önd-
verðu verið mikið. Þó hafði það
ekki sérstakan framkvæmdastjór
fyrr en eftir 1950. Framkvæmda
stjórar hafa verið Magnús Gísla
son, námstjóri og Einar Pálsson
núverandi framkvæmdastjóri.
Skal hér minnt á nokkur helztu
verkefni Norxæna félagsins ís-
lenzka frá öndverðu. íslenzk
vika í Stokkhólmi 1932. nám-
skeið fyrir stúdenta í íslenzku í
Reykholti 1936, sænsk vika í
Reykjavík 1936, norrænn dagur
í 12 ár. 25 ára afmælis síns
minntist félagið myndarlega.
Eftir styrjöldina breyttist
starfið nokkuð og færðist í auk
ana. Síðan hafa hundruð ef ekki
þúsundir ísl. nemenda fengið
skólavist á Norðurlöndum. Síð-
ustu árin hafa þeir verið milli
80 og 100 á ári. Auk þess greið-
ir Norræna félagið fyrir fjöl-
mörgum nemendaskiptum og út-
vegar skólavist, og fjöldi ís-
lendinga hefur árlega farið á
námskeið Norrænu félaganna.
Félagið hefur nú opna skrif-
stofu í Norræna húsinu, og starf
ar þar ein stúlka auk fram-
kvæmdastjóra. Starfandi félög á
'landinu eru nú um 20 talsins og
átján íslenzkir bæir hafa nú
vinabæjatengsl við bæi og borg
ir á Norðurlöndum. Nemenda-
miðlunin er vafalítið umfangs-
mesti þáttur starfsins. í sam-
bandi við hana þarf að svara
miklum fjölda fyrirspurna. Þá
er einnig á vegum félagsins miðl
un styrkja og stjórnarstörf hjá
Norræna menningarsjóðnum og
í Norrænu menningarmálanefnd
inni. Norræna húsið hefiur mjög
bætt félagsaðstöðu Norræna fé-
lagsins hér og veitt svigrúm til
aukinnar starfsemi, en jafnframt
aukið mjög störf skrifsitofu þess,
ekki sízt meðan verið var að
taka það í notkun og hefja starf
semi þess. Norræna félagið rek-
ur raunar ferðaskrifstofu líka.
Það hefur tekið flugvélar á leigu
og farið með hópa félagsmanna
ti'l Norðurlanda, og það annast
ýmsar fleiri hópferðir. Það tek-
ur á móti ferðahópum og öðrum
gestum og veitir norrænum mönn
um, sem hér eru á ferð marg-
víslega fyrirgreiðslu. Það dreif
ir bókum og tímaritum, lánar
filmur, skipuleggur ráðstefnur
og mót og sendir fulltrúa á
fundi og mót erlendis. Það hefur
staðið fyrir ritgerðasamkeppni í
skólum og tónlistarkeppni stend
ur nú yfir. Enn er þó margt ótalið
í hinu fjölþætta og umfangs-
mikla starfi, sem alltaf fer vax-
andi.
Núverandi formenn Norrænu félaganna, talið frá vinstri: Sigurður Bjarnason, ísland, Yngve
Kristensen, Svíþjóð Marius Johannessen, Færeyjum, Weio Henriksen, Finnland, Erik Eriksen,
Danmörku og Harold Throne-Holst, Noregi. Myndin er tekin íDrammen 1966.
vináttu- og kynningarfélags með
al norrænna þjóða. C. Carlssen
kammerráð tók hugmyndina upp
í Svíþjóð ásamt E.F. Heckscher
prófessor í Noregi beitti Mow-
inckel forsætisráðherra sér fyr
ir henni og í Danmörbu Neer-
gaard forsætisráðherra. Nor-
ræna félagið í Svíþjóð var stofn
að 1. marz 1919, í Noregi
12. apríl og í Danmörku 15.
apríl. í Finnlandi var félag ekki
stofnað fyrr en 1924.
f upphafi mun hafa leikið vafi
á því meðal forystumanna, hvort
Finnland og ísland ættu að vera
með í þessum samtökum, en brátt
urðu raddir háværar um, að svo
skyldi vera. íslenzka félagið var
stofnað 1922.
Tilgangi Foreningen Norden
var lýst með svipuðum orðum í
öllum félögunum, og skyldi
hann vera, „að styrkja sam-
kennd norrænna manna og þjóða,
efla menningarleg og hagræn
samskipti og auka annað samstarf
norrænu þjóðnana. Sá grundvöll
ur er enn óbreyttur. Samstarfið
er mikið, starfshættir líkir, en
hvert félag þó með nokkrum sér
kennum.
Fyrir síðari heimsstyrjöldina
var starf Norræna félagsins
fnjög fólgið í upplýsingaþjónustu,
skólasamstarfi og margvíslegu
kynningarstarfi. Þau beittu sér
fyrir samræmingu kennslubóka í
sögu og síðar í landafræði og
hefur það samstarf borið nokk-
urn árangur. Þau reyndu að
auka ferðafrelsi milli Norður-
landa, aflétta vegabréfaskoðun
og minnka tollskoðun og varð
nokkuð ágengt. Fyrir þeirra til-
stuðlan var „norræna ferðakort-
ið“ tekið upp, gilti um tíma og
varð vísir að því, sem síðar kom.
Kynningarvikur voru haldnar í
löndunum á víxl, og heimboð og
fyrirlestrarferðir komust á.
Á stríðsárunvun gekk starfi fé
inn í norrænu samstarfi eftir
stríðið er að sjálfsögðu stofnun
og starf Norðurlandaráðs. Þótt
stofnun þessi væti ekki beinlín-
is á vegum Norrænu félaganna,
voru upphafsmenn hugmyndar-
innar og helztu brautryðjendur
svo sem Hans Hedtoft, þeirrar
skoðunar, að starf Norrænu fé-
laganna ætti drýgstan þátt í
henni.
f Norræna félaginu munu nú
vera alls um 130 þús. manna
auk allra þeirra félagssamtaka,
stofnana og fyrirtækja, sem að
þeim standa. í Danmörku munu
félagsmenn vera flestir, eða yfir
50 þúsund.
Árið 1965 var stofnað samband
Norrænu félaganna, en vísir að
því höfðu verið fulltrúafundir
fé'laganna.
Norrænu félögin hafa jafnan
gefið út tímarit af ýmsu tagi,
bæði hvert í sínu landi og sam-
eiginlega. Framan af árum var
veigamesta átakið útgáfa Nord-
ens kalender, en það ársrit kom
út í 20 ár og því var dreift meðal
félaga á öllum Norðurlöndum.
Það kom síðast út 1939
Á seinni árum hefur mjög
færzt í auka námskeiðahald á
vegum Norræna félagsins. Mið-
stöðvar þeirrar starfsemi hafa
frá öndverðu verið Hindsgavl í
Danmörku og Bohusgárden við
Ullevalla í Sviþjóð. Einnig hafa
sýningar verið tíðar. Stærsti áf-
anginn á þessari braut er stofn-
un norrænnar menningarmiðstöð
ar og bygging Norræna hússins
í því sk.yni í Reykjavík.
Nemendaskipti milli landanna
hafa verið mjög miki'l og sívax-
andi.
Norræna félagið á íslandi var
stofnað 29. sept. 1922. Sveinn
Björnsson fékk Matthías Þórð-
arson til þess að gangast fyrir
henni og varð hann fyrsti for-
maður. Aðrir formenn félagsins
ár hvert síðan 1935, margvís-
leg heimboð og fyrirlestrar, þátt
taka í endurskoðun sögubóka og
landafræðibóka. Finnlandssöfn-
unin 1939, söfnun til norskra
flóttamanna, leiksýningar af
ýmsu tagi, sem félagið gekkst
fyrir. Þá gaf félagið út Nor-
ræn jól, hið myndarlegasta rit
vandervell)
^-^Vélalegur^y
Bedford 4-6 cyl. dísil 57, 64.
Buick V 6 cyl.
Chevrolet 6-8, '54—'68.
Dodge ’46—'59, 6 cyl.
Dodge Dart '60—'68.
Fiat flestar gerðir.
Ford Cortina '63—'68.
Ford D-800 '65—'67.
Ford 6—8 cyl. '52—'68.
G.M.C.
Gaz '69.
Hillman Imp. '64—'65.
Moskwitch 407—408.
Opel ’55—'66.
Rambler '56—'68.
Renault flestar gerðir.
Rover, bensín, dlsil.
Skoda 1000 MB og 1200.
Simca '57—'64.
Singer Commer '64—'68.
Taunus 12 M. 17 M '63—'68.
Trader 4—6 cyl. '57—'65.
Volga.
Vauxhall 4—6 cyl. '63—'65.
Willys '46—'68.
Þ. Jonsson & Co.
Simi 84515 og 84516.
Skeifan 17.
Hjónaklúbbui Garðohiepps
DANSLEIKUR verður haldinn að Garðaholti, laugardaginn
22. marz kl. 9.
Miðapantanir! síma 51914, fimmtudaginn 20. marz milli kl. 5—7.
STJÓRNIN.
Kvenslúdentoiélag íslands
Fundur verður haldinn I Þjóðleikhúskjallaranum fimmtudag-
inn 20. marz kl. 8.30.
Fundarefni:
Um skólamál, Andri Isaksson, sálfræðingur.
STJÓRNIN.
til verzlana og sölutuma um allt land.
Þeir kaupmenn, sem hafa áhuga á að taka þátt í þeirri kynn-
ingu, sem nú fe fram á Edgeworth- og Holiday- reyktóbaki,
vinsamlegast hafi samband við umboðið i síma 11644.
Haínaifjöiðui — Gaiðahieppui
Leigjendur matjurtagarða eru beðnir að athuga að þeim ber
að greiða leiguna fyrirfranft fyrir 5. apríl n.k., annars verða
garðarnir leigðir öðrum.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði.