Morgunblaðið - 13.04.1969, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1969
r
BÍLALEIGAN FALUðH f
car rental service ©
22*0-22-
RAUDARARSTÍG 31
■>* 1-44-44
mfíifim
Bverfisfötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGIMÚSAR
iKiPHom 21 s»mar21190
r lokurt'iimí 4038L ;
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðaotræti 13.
Sími 14970
BÍLALEIGAN '
AKBRAUT
Mjög hagstætt leigugjald.
SÍMI 8-23-47
Schannongs minnisvarðar
Biðjið um ókeypis verðskrá.
ö Farimagsgade 42
Köbenhavn Ö.
Ferðafélag
Islands
heldur kvöld"öku í Sigtúni
þriðjudaginn 15. apríl kl. 20,30.
Húsið opnað kl. 20.
FUNDAREFNI:
1. Gömul íslandskvikmynd, tek-
in fyrir stríð.
2. Hallgrímur Jónasson sýnir
litmyndir úr ferðum félagsins.
3. Myndagetraun, verðlaun
veitt.
4. Dans til kl. 1.
Aðgöngumiðar seldir f bóka-
verzlunum Sigfúsar Eymunds-
sonar og Isafoldar. Verð 100.00.
0 Flugfargjöld og
legkrabbameins-
rannsóknir
,,Gerður“ skrifar frá Akureyri:
„Kæri Velvakandi!
í tilefni af margendurteknum
fréttum í blöðum og útvarpi nú
undanfarið frá Flugfélagi íslands
um afslátt á flugfari með vélurn
félagsins til og frá Reykjavík á
skíðavikur og mót úti á landi og
leiksýningar í Reykjavík, langar
mig til að varpa fram þeirri spurn
ingu, hvort forráðamönnum þessa
ágæta félags hafi aldrei dottið í
hug að bjóða konum utan af
landi verulegan afslátt á flugfari
til Reykjavíkur, til þess að kom-
ast í krabbameinsrannsókn, sem
fjöldinn allur dregur alit of lengi
sökum mikils kostnaðar. Mér dett
ur í hug, að þar gætu þeir or-
sakað varanlegri gleði á mörgum
heimilum en með sportferðum, þó
að ekki sé nema allt gott um þær
að segja.
Oft eru mörg auð sæti í flug-
vélum á milli Akureyrar og
Reykjavíkur, er mætti nýta á
þennan hátt, báðum aðilum til
haigsbóta.
Virðingarfyllst Gerður."
Velvakandi kemur fillögunni á-
leiðis, en líklega myndi mikil
skriffinnska fylgja framkvæmd
hennar, vottorðaútgáfa o.s.frv.
Annars á Velvakandi bágt með
að trúa því, að kvenfólk setji
kostnaðinn fyrir sig, þegar um
þessa rannsókn er að ræða, því
að með henni geta sumar konur
hugsanlega lengt líf sitt um tugi
ára.
' 0 „Sleggjudómur um
gömlu húsin í Mið-
bænum“
Skúli Ólafsson skrifar:
„Afnám er e.t.v. réttnefni á
skýrslu um rannsókn á gömlum
byggingum í Miðbænum. Hroki
nútímans kemur þar berlega í
ljós, en er nokkur þörf á að hraða
niðurrifi og afmá margar nothæf
ar og gamalkunnar byggingar, þeg
ar ekki hefur tekizt að gera marg
an gler- og stei nkastalamn vatns-
heldan? Þar að auki búum við í
járðskjálftalandi, og hafa timbur-
húsin staðist þá bezt.
Fjárbagshliðin á þessu máli er
ekki mikið atriði hjá þeim, sem
eru að panta fyrir annarra fé.
,,Fu iLs.kapaður Miðbær" er einna
líkastur kalkaðri gröf, og smekk-
urinn er misjafn. Má þair nefna,
að viraaþjóðir Rússa fengu svo-
kallaðar stalinakar menningarhall
ir að gjöf, en íbúarnir eru álíka
hrifnir af gjöfunum og Pétur
Benediktsson og Magnús Kjartans
son af Hallgrímskirkju. Ekki er
fegurðinni fyrir að fara í mörg-
um steinkumböldum hins opin-
bera í Miðbænum, t.d. norður-
hluta Landssímahússins, sem nú
blasir við í allri sinni tymd, etft-
ir að Aðalstræti 9 var rifið.
Myndarskap aldamótakynslóð-
arinnar, svo sem Iðnsfcólanum,
íbúð í Hlíðuniint
Til sölu nýstandsett rúmgóð 4ra herb. kjallaraibúð í Hlíðun-
um. 3 herbergjanna eru mjög stór.
Upplýsingar í símum 24690 og eftir kl. 6 í síma 24493.
Sumarbústaðaeigendur
SVAMPDÝNUR MEÐ AFSLÆTTI.
TILVAl.DAR I SUMARBÚSTAÐI OG VEIÐIHÚS.
SNIÐNAR EFTIR MÁLI.
VELJUM ÍSLENZKT-/t^lV Pétur Snæland hf.
ISLENZKAN IÐNAÐ \|*4/ VESTURGÖTU 71. SlMI 24060.
HOLLAND - ISLAND
BLÓMAKAFFI
í Súlnasal HÓTEL SÖGU kl. 3 í dag.
Ringeiberg í Rósinni lætur blómin tala.
Blómaskreytingar — Meðferð blóma.
Hollenzkir þjóðdansar á tréklossum o. fl.
Gamanþáttur — Ámi ísleifssonar við píanóið.
Jónas Jónasson kynnir. — Allir velkomnir.
Aðgangseyrir aðeins kr. 50.— og gildir sem happdrættismiði.
Ókeypis fyrir börn í íylgd með fullorðnum.
FÉLAGIÐ HOLLAND—ÍSLAND.
Iðnó, Þórshamri, Thorshúsi, Mið-
bæjarskólanum (setn fram að
þessu hefur reynzt með beztu
skólahúsum borgarinnar) á nú að
fóma vegna hégómaskapar nokk-
urra potintáta Mörg gömlu hús-
in svoköiluðu (teldust nýleg hjá
nágrannaþjóðum okkar) Ufga upp
i grámygluhverfum, eins og hús
Johnson & Kaaber gerir, og jafn-
vel mætti Aðalstræti 16 standa enm
um hríð, þó að það sé efst á af-
tökulistanum. Húsgrunn þessa
húss þarf að vísu að rannsaka
vegna sögu fyrstu byggðar hér,
en sú rannsókn gæti farið fram
án þess að rífa þyrfti húsið.
Skúli Ólafsson,
Klapparstíg 10.“
-0 Hvað líður dreifingu
sjónvarpsins
Bjöm G. Jónsson á Laxamýri
skrifar:
„Ekki þurfum við lengi að fletta
dagblöðunum okkar, svo að við
ekki rekum augun í eirthver skrif
um sjónvarpið og sjónvarpsdag-
skrána. Þessi skrif eru auðvitað
eðlileg, og sjálfsagt mörgum tU
ánægju og fróðleiks. En ánægjan
hlýtuir að vera blandin hjá því
fólki, sem býr í þeim byggðar-
lögum, er ekkert sjónvarp hafa
enn. Þótt flestir vilji sýraa sæmi-
lega biðlund, gerir fól'k sig ekki
ánægt með reykinin af réttunum
árum saman.
Hvað okkur Suður Þingeyingum
viðkemur í þessu máU, þá sáum
við í dagblöðum þá áætlun frá
þeim aðilum, er að dreifingair-
kerfi sjónvarpsins standa, að flest
ar byggðir sýslunnair mundu
hljóta móttökuskilyrði sjónvarps-
ins á árinu 1969. Nú, er þetta er
ritað, hefur verið löng þögn frá
öllum ábyrgum aðilum um fram-
gang framkvæmda á téðri áætl-
un um útbreiðslu sjónvairpsinis
1969. Þessi þögn þykir okkur illlit
á vita, og ekki er það tU að bæta
úr bjartsýni fólks hér, að það
ganga sögur af þvi, að fjárhags-
örðugleikar séu miklir hjá sjón-
varpinu og engar líkur á því, að
áætlanir um dreifingu sjónvarps-
ins fái staðizt á næstunni.
íslenzka sjónvarpið er mikið
málefni, og hefur það miairgar hlið
ar, óg ætla mér ekki þá dul að
gera því mikil skil i þessum fáu
Unum. Hitt er mér ljóst, að sjón
varpið er óskabarn flestra, sem
þess njóta, og áberandi meirilhluti
þeima, telja að það hafi farið vel
af stað, og er það vel. Þar sem
ísland er mjög einarngrað land,
samanborið við flest nágranna-
lönd okkar, er eðUlegt, að við
höfum hvað mesta þörf fyrir sjón
vairp til þess að draga úr ein-
angrun okkar og eklri sízt til að
stytta okkur hinn langa og dimma
vetur.
' 0 Hverir hafa mesta þörf
fyrir sjónvarp?
En þá vaknar sú spuming, hvort
nokkum tímarm hafi það sjónar-
mið verið rætt í sambandi við
íslenzkt sjónvarp, hverjar af lands
ins byggðum heifðu mesta þörf
fyrir þá tilbreytni, er sjónvarpið
býður. Eiins og vitað er, eru Þing
eyjarsýslur eitt af harðbýlustu hér
uðum landsims, og er hér vetrar-
riki mikið. Er ekki óalgengt, að
mánuðum saman sjáum við ekki
annað en ósJitna fannbreiðu, og
hvergi sjáist á dökkan dU, og
þá oft harðviðri tíð. Eru þá varla
taldar aðstæður til ferðalaga fyr-
ir fólk að sækja sér tilbreytni
eða skemmtanir. Og hjá flestum
tU sveita þröngar aðstæður að
fara frá búi og börnum. Ég þekki
til margra þeirra húsmæðra hér
um slóðir, sem ekká komast að
heiman frá á vetrum svo að mán
uðum skiptir, jafnvél varla allan
veturinn. Og mér verður á að
spyrja, hafa þær minni þörf fyrir
þá tilbreytni, er sjórrvarpið býð-
ur, en húsmæður í þéttbýUnu t.d.
við Faxaflóa? ÖIS erum vtð börn
sama lands, og við ræðum um
nauðsyn á jafnvægi í byggð lands
ins, og er það vel, að við sjáum
þá þörf að halda byggð landsins
við. Hinu megum við ekki gleyma,
að allt tal um það er hjóm eitit,
svo lengi sem það kann að henda
okkur að fara með þéttbýlustu
svæðá landsins, eins og eftirlætis
böm. Þau fái þá hluti fyrst, sem
eftirsóknarverðastir teljast hverju
sinni, en láta sér svo hægar um
hinar dreifðu byggðir. Ég álít, að
það hafi verið alröng stefna að
hafa sex daga sjónvarp í viiku,
fyrr en sjórrvarpið var komið
í flestar byggðir landsins. Það
væri æskilegt að fleiri létu í ljós
álit sitt á þessum málum. Og ekki
sízt að við fengjum að heyra frá
þeim, sem með þessi mál hafa
að gera.
Laxamýri,
Björn G. Jónsson."
Velvakandi getur fallizt á það
að Þingeyingar hafi meiri þörf
fyrir sjónvarp en SeltÍTningar.
'0 Staðið við áætlun
Þær sögur, sem bréfiritari segir
ganga nyrðra um að „engiar lík-
ur [séu] á þvi, að áætlanir um
dreifingu sjónvarpsins fái sitaðizt
á næstunni", eru venjulegar róg-
og Gróusögur, og væri fróðlegt
að vita, hverjir eru höfundar
þeirra og hverjir slefla þeim út.
Um þetta má t.d. lesa í Morg-
unbiaðimu sl. fimmtudag, þar sem
greint er frá svari menntamála-
ráðhema við fyrirspurn frá nýj-
uim Jónasi Jónssyni, en á svarinu
sézt, að áætlanir eiga að stand-
aist, og skv. þeim verður t.d. stöðv
arkálfurinn á Fljótsheiði tekinn £
notkun á næsta ári.
Húseignin Unnnrstígur 6
er til sölu. Húsið er einbýli með bílskúr og er staðsett á
vestanverðri Landakotshæð. Eignarlóð með stórum trjágarði.
Tilboð óskast send ! pósthólf 242, Reykjavík, fyrir 20. apríl n.k.
Nánari uppiýsingar gefur Sigurður Þorgrímsson í slma 18246.
Útibússtjóri
Viljum ráða útibússtjóra að útibúi okkar á Eyrarbakka frá
1. júní nk.
Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf
sendist til kaupfélagsstjóra Odds Sigurbergssonar.
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA.