Morgunblaðið - 13.04.1969, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.04.1969, Qupperneq 8
8 MORGUN'BLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRIL 1069 Kvenstndeatofélog íslnnds Arshátíð Kvenstúdentafélags Tslands verður hatdin í Þjóðleik- húskjailaranum þriðjudaginn 15. apríl og hefst með borðhaldi kl. 19 30 Árgangur M.R. 1944 sér um skemmtiatriði. STJÓRNIN. mura VINYL-VEGGFÓÐUR ÞOLIR ALLAN ÞVOTT E UTAVER Grensdsvegi 22-24 sími 30280-32262 Útgerðarmenn fiskverkendur Getum útvegað fjölbreytt úrval af fiskköss- um — franska og norska plastkassa sem rúma 50—60 kg. af fiski í báta, og stóra gal- vaniseraða stálkassa, 500—600 kg., frá Vest- ur-Þýzkalandi, til nota í fiskvinnslustöðvum. Franskir (75 L.) plastfiskkassar, sem rúma 50 — 60 kg af fiski hafa slegið í gegn í fiskíðnaði í Frakklandí og viðar sl. S árin. Norskir plastfiskkassar hafa víða náð miklum vinsældum. 500—600 kg. fiskkassar eru í mörgum fiskvinnslustöðvum hérlendis. Nú þegar eru yfir 1000 kassar í notkun hér. Vegna lítillar fyrirferðar og flutningskostn- aðar er verð á frönsku plastkössunum mjög hagstætt, eða undir kr. 600,000 kassinn. PÉTVR 0. NIKULÁSSON Vesturgötu 30, símar 2 01 10 og 2 26 50. Tryggvi Marteinsson SÍÐASTLIÐINN föstudag var Tryggvi Marteinsson frá Ólafs- firði lagður til hinztu hvíldar í Fossvogskirkjugarði. Tryggvi var fæddur 17. nóv. 1889 og því á áttugasta jtldurs ári er hann lézt hinn 5. þ.m. Foreldrar hans voru Mar- teinn Sigurðsson að Bursta- brekku í Ólafsfirði og kona hans Elín Jóhannsdóttir. Tryggvi ólst upp í foreldra- húsum. Voru systkinin alls sex. Af þeim lifa enn tvær systur, Sigríður, háöldruð ekkja í Ól- afsfirði, og Helga veitingakona í Reykjavík. Þegar Tryggvi var um ferm ingu, fluttist fjölskyldan niður í Ólafsfjarðarkauptún, er þá var að byrja að vaxa. Mar- teinn faðir hans stundaði þaðan sjóróðra, meðal annars hákarla- veiðar, jafnframt smávegis bú skap. Unglingar þeirra ára á fá- Beitusíld til Uppl. í síma tæku alþýðuheimili áttu sjaldn ast margra kosta völ um fram venjulegan fermingarundirbún- ing, hvað sem greind og áhuga málum leið. Dugur og karl- mennska beindi hugum æsku- manna yfirleitt á hafið, þar sem helzt var nokkurs fengs og frama von. Svo varð og um Tryggva. Haran hóf sjómeransku jafnskjótt sem aldur og þrek leyfðu, um og jafnvel innan við fermingu. Róið var á ára- bátum og oft fast sótt. Snemma þótti Tryggvi af- bragðssjómaður, glöggur og gæt inn, ágæt sela- og hnísuskytta og öruggur við hákarl. Um tvítugt varð hann for- maður á bát, og þann sess skipaði hann að jafnaði fram til 1946. Hafði hann þá um 30 ára skeið oftast stýrt eigin far kosti, þilfarsbátum eða trillum, sem hann átti að hluta eða öllu leyti. Tryggvi var einkar feng- sölu 50165 sæll formaður. þótti stundum með ólíkindum, hve mikiran afla hann fékk þegar aðrir komu með lítinn feng. Sagt var, að hann þekkti botnlag og fiski mið Ólafsfirðinga eins og stofu gólfið heima hjá sér, og mun það hafa ráðið úrslitum. Hann var varfærinn sjómað- ur, skyggn á veður og sjólag. Þótt einatt væri fast sótt og stundum lent í svaðilförum, henti hann aldrei slys eða menn hans. En hafnleysi þeirra ára í ÓLafsfirði lék nokkra báta haras hart á legunni og olli til- finnanlegu fjárhagstjóni. Eftir að Tryggvi seldi síð- asta bát sinn 1946, stundaði hann sjó á stærri bátum, tog- veiðar og síldveiðar, en milli vertíða vann hann að fiskmati, en það starf hafði hann jafn- an stundað öðru hvoru allt frá 1918, er hann varð löggiltur fiskmatsmaður. Tryggvi kvæntist 1915 eft- irlifandi konu sinni, Rósu Frið finnsdóttur. Þau eignuðust eigið hús og fallegt heimili, sem konan prýddi af næthleik og smekkvisi, eftir því sem efni leyfðu. Börn þeirra tvö, er upp kom ust eru Baldvin cánd. juris forstjóri Almenna bókafélags- ins, og Dýrleif Jónína húsfreyja í Reykjavík. Á starfsáru-m Tryggva í Ól- afsfirði var þar allblómliegt fé lagslíf, einkum á sviði söngs iOg leiklistar. Urðu þau hjón þar brátt framarlega í flokki. Tryggvi hafði um tvítugt laert að leika á orgel hjá Magnúsi Einarssyni á Akureyri. Var hann siðan um skeið organ- isti í Ólafsfjarðarkirkju og þau hjón bæði í kirkjukór Ólafs- fjarðarkirkju í fjölda ára. Einn ig var hann sóknarnefndarmað ur og lét sér annt um málefni kirkju sinnar. Mesta ánægju hafði Tryggvi þó af að fást við leiklist. Léku þau hjón og þó einkum Tryggvi í mörgum leikritum ■er sýnd voru í Óliafsfirði á þeim árum. Minnisstæðastur er hann þeim, er sáu, fyrir með- ferð á hlutverki Kranz í Ævin týri á gönguför og Ketils í Skuggasveini. Árið 1952 fluttust þau Tryggvi og Rósa til Reykja- víkur, þar sem hann vann fyrst að fiskmati, en réðst 1955 hús- vörður að Gagnfræðaskóla Aust urbæjar. Því starfi gegndi hann til 1963 er hann varð að hætta isökum aldurs og heilsubresbs. Á þeim árum var Tryggvi ná- inn samstarfsmaður miran og hollvinur. Tel ég það hafa ver- ið stofnuninni happ að njóta starfskrafta hans. Verk sín öll rækti hann af frábærri árvekni, lipurð og samvizkusemi. Hann var maður greindur og glað- vær að eðlisfari, stakur geð- prýðismaður, en þó einbeittur og fylginn sér. Hann ávann sér hlýhug og traust allra, er áttu saman við hann að sælda, jafnt eldri sem yngri. Síðustu árin dvaldist Tryggvi ásamt konu sinni að Hrafnistu, farinn af líkamskröftum, en hress í anda og sívökull um málefni líðandi stundar. Sjúk- leik sinn bar hann af srtakri karlmenrasku og æðruleysi. Langri starfsævi er lokið Far sæll maður og góður drengur horfinn af leiksviði lífsins. Sveinbj. Sigurjónsson Húseign 2ja íbúða timburhús á eignarlóð við Miðborgina til sölu. RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, HRL. Laufásvegi 2 — Sími 19960. McCalls 9626 McCalls 9623 Smávaran á kjólinr. fæst einnig hjé okkur ásamt tízkuhnöppum og hinum vinsælu McCallsniðum. Sparið og saumið sjálfar. *¥2J<&ue Skólavörðustíg 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.