Morgunblaðið - 13.04.1969, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.04.1969, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRÍL 19&9 13 arar nýju stefnu. Sennilega eru þær líka margar. Nefna mætti til dæmis atburðina í Tékkóslóvakíu. Þeir hafa miklu djúpstæðari rætur en eftirköst in af innrásinni sjálfri gefa til kynna. Sovétstjórnin hefur af- sakað framferðið með því, að verjast hefði þurft erlendum og innlendum óvinum sósíalismans. Ef Dubcek hefði tekizt að sýna og sanna, að sósíalismi geti lif- að og dafnað án kúgunar vald- hafa, hvernig var þá hægt að verja nauðsyn einræðisstjórnar? Hvað hefði orðið um sjálfa ein ræðisherrana? „Æðsta baráttumál þeirra sem sitja í Politburo er ákaf- lega ljóst“, sagði sagnfræðing- ur í Leningrad. „Það er að halda völdum. Þess vegna grípa þeir strax til sinna ráða. Nauðsynlegt var að vinna á vírusinum í Tékkóslóvakíu og bólusetja okkur hin á ný. Því kommúnistar óttast ekkert eins mikið og lýðræðislegan sósíal- iama.“ Ný-Stalinismi sá fyrst dags- ins ljós alllöngu fyrir innrás- ina í Tékkóslóvakíu. Sumir (rússneskir menntamenn telja hann líka eiga rætur að rekja til vaxandi uppireisnarhneigða ungs fólks á Vesturlöndum gagn vart hvers konar yfirboðum. Og það er ekki óeðlilegt að slík alda vekji ugg meðal rússn- eskra valdhafa, því öll slagorð vestrænna stúdenta um meira frelsi og sjálfsákvörðunarrétt hlýtur að enduróma í Rúss- landi með tíföldum styrk. En loks er ástæðuna lífea að finna í vaxandi óánægju Rússa og mótmælanna við rithöfunda réttarhöldin. Enda þótt tala þeirra, sem mótmæltu, væri lág og mótmæl in varla annað en auðmjúk til- mæli um að endurskoða afleið- ingar réttarhaldanna, þá bend ir allt til að sovézk yfirvöld hafi fyrst orðið undrandi en síð an fyllzt reiði yfir þessari óheyrðu dirfsku. Nú skyldi þagga niður allar óánægjuradd ir, áður en slíkt kæmist upp í vana. Loks álíta sumir að nýja kúgunarstefnan sé endurkast af fyrstu dauðateygjum einræðis- ins. Valdhafarnir geri sér ljóst, að þeir séu að missa tökin. Og lýðræðislegur sosíalismi hljóti að sigra að lokum. Ég hef oft heyrt á þá kenningu minnst á Vesturlöndum, en aldrei í Rússlandi, 'hvorki meðal þeirra sem með völdin fara eða hinna sem kúgaðir eru af valdinu. Og litlar líkur eru til að ein- ræðisstjórnir rnuni syngja sitt síðasta á þessarri öld í Rúss- landi. Menntamenn eru sendir í útlegð, byltingarviðleitnir til umbóta eru kæfðar í fæðingu, allur hugsjónaeldur löngu slokknaður — éinræðisöflin ráða meiru hú í landinu en áð- ur. Sumir frjálshyggjumenn hvíslást á um það, að ný-Stal- inisminn geti orðið þeim bein endurtekning á gamla Stalin- ismanum. Aðrir álíta að ekki sé ástæða til að óttast það, á meðan áhrifa gætir frá fleirum en einum aðila í Politburo. „En nái einn maður alræðisvaldi aft ur verður ekki við neitt ráðið. Hann verður þá að útrýma fyrri keppninautum sínum og setja alla af, sem í kring um þá voru.“ „En ef þessi eini maður reyn ist vera frjálshyggjumaður“ spyr ég „Frjálshyggjumenn kom ast ekki í æðstu stöður. Ekki í Politburo. Hvergir hyllir und ir sovézkan Dubcek og engar horfur eru á því, að nokkur í valdastóli mundi styðja slíkan mann. Það er hörmuiegast. Tékk ar ná sér aftur á strik, hvemig sem Rússar reyna að kúga þá til hlýðni. En rússneskir valda menn verða samir við sig. . . halda þjóðinni j heljargreipum, milli þess sem þeir gripa til of sókna, eins og þeirra, sem nú eiga sér stað“. skóii ANDREU FJÖLBREYTT NAMSKEIÐ • 6 VIKNA NÁMSKEIÐ • SNYRTINÁMSKEIÐ • NÁMSKEIÐ FYRIR SÝNINGARSTÚLKUR OG FYRIRSÆTUR • MEGRU N • KENNSLA HEFST ^4. Qpiíl MIDSTRÆTl 7 SÍMI 1 9395 PIERPONT ÖR MODIL1969 MARGAR NÝJAR GERÐIR AF DÖMU- OG HERRAÚRUM. GARÐARÓLAFSSON LÆKJARTORGI SÍMI10081 D 0 0 0 8 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 8 0 0 0 0 0 0 0 0 0 Kaffi! Ny tegund Oss er það ánægja að geta sífellt aukið fjölbreytni kaffitegunda á markaðinum. Nú bjóðum véryður nýja tegund er nefnist Santos blanda Santos blandan er afbragðskaffi, framleitt ur úrvalsbaunum frá Santos í Brazilíu og Kolumbíu. Santos kaffiblandan er ódýr úrvalsvara. 0. J0HNS0N & KAABER HF. 0 0 0 0 0 0 0 0 ©0 c 0 g y 1 0 I 0 n 8 0 8 0 0 0 0 0 0 0 8 8 0 0 0 0 0 0 STABA BYGGiNGARIÐNADARINS LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR HELDUR ALMENNAN FUND UM STÖÐU BYGGINGARIÐNAÐARINS í SIGTUNI MIÐVIKUDAGINN 16. APRÍL KL. 20,30 RÆÐUMENN: OTTÓ SCHOPKA, framkvæmdastjóri HILMAR GUÐLAUGSSON, múrari GISSUR SIGURÐSSON, húsasmiðameistari verkfræðingur GUÐMUNDUR EÍNARSSON, verkfræðingur Á EFTIB VERÐA FRJÁLSAR UMRÆÐUR STJÓRNIN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.