Morgunblaðið - 13.04.1969, Síða 18

Morgunblaðið - 13.04.1969, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1969 Vontur húsnæði fyrir innflntningsíirmn Þarf að vera 230—250 ferm. og á jarðhæð, með góðri aðkeyrslu, góð bílastæði æskileg. Tilboð sendist Mbl. merkt: „B. S. — 2713“ fyrir 18. þ. m. Lestrardeildir undir landspróf Innritun nllan dnginn ^ ^ MALASKOLI HALLDORS Sextugur í dag: Sigurður Magnússon Vestmannaeyium Hann er fæddur austur á Seyð isfirði. Þar bjuggu foreldrar hans þá, hjónin frú Hildur Ólafs- dótrtir útvegsbónda Péturssonar að Þórarinsstaðaeyrum og frú Rebekku Eiríksdóttur. Maður frú Hildar, var Magnús Jónsson ritstjóri, skáld og skipstjóri, en hann var fjórði maður frá Jóni Þorvaldssyni hreppstjóra og sáttamanni Reykdæla. Jón Þor- valdsson var sá fyrsti er bjó í Deildartungu, af þeirri ætt, sem hana. byggir enn. En á þessu ári eru 180 ár írá því að Jón Þor- valdsson settist að þar. Móðir Magniúsar ritstjóra var Kristín Jónasdóttir söðlasmiðs í Belgs- holti Benediktssonar prests í Hítarnesþingum Jónassonar, en kona séra Benediikts var frú Ingibjörg dóttir séra Björns í Bólstaðarhlíð. Móðir Kristínar var Helga Sveinsdóttir. Magnús ristjóri var fjórða barn foreldra sinna, en hin voru: Jón málarameistari Reykdal í Reykjávík. Guðrún húsfreyja að Orms- stöðum í Klofningsihreppi Dala- sýslu. Jóhannes trésmiður í Kvöld- úlfi í Reykjavík. Þorbjörn trésmiður í Seattle, faðir Jóns M Jónssonar lögfræð ings og ræðismanns íslands, Kristínar fiðluleikara og Elínar hjúkrunarkonu öll búsett vestra. Helgi, bóndi síðar búsettur í V estmannaeyj um. Hér er því miður ekki mögu- leiki á að gera nánari grein fyrir nánum ættmönnrun Sigurðar, en vonandi líða ekki mörg ár, þar til út vedði gefið niðjatal Deildar tunguættarinnar, en sú ætt er ein fyrirferðamesta hér á vestur- landi. Er útgáfa ættartölunnar mjög brýn nauðsyn. Foreldrar Sigurðar fluttu frá Seyðisfirði 1916, og settust þar að, frú Hildur andaðist 1917, en Magnús 1946. í Vestmannaeyj- Aðalfundur Samvinnuhanka Islands hf. verður haldinn í Sambandshúsinu, Reykjavík, laugardaginn 19. apríl 1969 og hefst kl. 14. Dagskrá skv. 18. gr. samþykktar fyrir bankann. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða af- hentir á fundarstað. Reykjavík, 4. marz 1969. Bankaráð Samvinnubanka fslands h.f. Vörulager til sölu Tilboð óskast 1 vörulager (aðallega raf- magnsvörur). Listi yfir vörumar verður til sýnis í Súðavogi 2 og einnig hægt að skoða vörurnar á staðnum mánudag og þriðjudag 14. og 15. þ.m. Tilboðum, sem miðist við staðgreiðslu, sé skilað á sama stað eigi síðar en miðviku- daginn 16. þ.m. og verða þau opnuð þar næsta fimmtudag kl. 4 s.d. Rafmagnsveita Reykjavíkur. PACER STAR Ijosprentunarvélin Á nokkrum sekúndum getið þér fengið ná- kvæma Ijósprentun. Ljósprentar alla liti, hvort sem er prentað, vélritað eða skrifað með bleki, kúlupenna eða blýanti. Lang-ódýiasta Ijósprentunarvélin á markaðnum. VERÐ AÐEINS KR. 3.084.00 Gísli J. Johnsen hf. Vesturgötu 45. Einkaritarastaða Opinber stofnun vill ráða einkaritara nú þegar. Stúdents- menntun, verzlunarskólamenntun eða hliðstæð menntun æski- leg. Góð vélritunarkunnátta nauðsyleg. Laun samkvæmt úr- skurði Kjaradóms. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 21. apríl nk. merktar: „Opinber stofnun—apríl—1969 — 2809". LITAVER Þeir sem eru að byggja eða þurfa að lagfæra eldri hús ættu að kynna sér kosti hinnar nýju veggklæðningar. GRENSASVEGI22-24 »30280-3262 SOM V YL Á lager hjá okkur í mörgum litum. Félag áhugamanna um sjávarútvegsmál Almennur úlbreiðslufnndur verður haldinn í Sigtúni við Austurvöll mánudaginn 14. apríl kl. 20.30. FUNDAREFNI: OTGERÐ OG FISKVINNSLA I REYKJAViK. FRUMMÆLANDI: GEIR HALLGRlMSSON. BORGARSTJÓRI. Allir velkomnir og eru menn hvattir til að gerast meðlimir í félaginu. — Mætið stundvislega. STJÓRNIN. Vorfugnuður S V F K S.V.F.R. heldur skemmtifund föstudaginn 18. þ m. i Súlnasal Hótel Sögu. Kvöldverður framreiddur frá kl. 19. Dagskrá frá kl. 20.30. Tizkusýning, leikþáttur, danssýning, dans. Miðasala og borðpantanir i skrifstofu félagsins, Bergstaða- stræti 12, mánudag og þriðjudag nk., kl. 6—7. Verð pr. miða kr. 125.—, fatageymsla innifalin. SKEMMTINEFNDIN. um stundaði Magnús ýmis störf, en kunnastur miun hann nú vera, sem ritstjóri blaðsins Víðis, eftir andlát sonar síns Ólafs stud. med. d. 1930. Magnús var enn- fremur skáld giott, O'g orkti und- ir nafninu ,,Hallfreður“. Eftir burtför foreldra Sigurð- ar, frá Seyðisfirði fór hann í fóstur til sæmdarhjónanna frú Þórunnar Sigurðardóttur d. 1918 og Sigurðar hreppstjóra a'ð Þór- arinsstöðum Jónssonar d. 1941. Sigurður stundaði nám við Al- þýðusikólann að Eiðum. Minnist hann jafnarí skólaáranna með 'virðingu, en ber sérstaka lotn- ‘ingu fyrir skólastjóranum séra ‘Jakobi Kristinssyni fyrrum 'fræðslumálastjóra, sem hefur ’sáð í hjörtu nemenda sinna sér stöku gullkorni, sem síðar var nemendunum að þrozka. Að loknu námi í Eiðaskóla, siglir Sigurður til frekara náms við Lýðihásfeólann í Askov á Jót- landi. Og víst er um það að Sig- Urður hefur hagnýtt sér námið 'sem bezt. Þegar- að loknu námi í 'Danmörfeu kemur hann heim. Tekur aftur við ráðsmannsstarfi sínu á Þórarinsstöðum hjá fóstur föður sínum, og heldur ennfrem- Ur unglingaskóla á Seyðisfirði '1932. Skólastjóri barnaskóla Seýðisf jarðarhrepps er hann 1939. í hreppsnefnd situr hann '1934—1942. í Vestmannaeyjum bjó eins og áður er sagt faðir hans og syst- kin, oig hann flytur þangað 1944, og hefir par fengizt við ýmis störf, en er nú fastur starfs- maður kaupstaðarins. Sigurður Magnússon er um margrt óvenjulegur maður. Strax við fyrstu kynni veitir maður því athygli að þar fer sérstak- ’lega ráðvendinn maður. Hann er 'ennfremur frændrækinn, trygg- lyndur og vinfastur. En augu 'hans lýsa einstökum náðarhæfi- 'leifeum, sem því miður er ekki ’öllum gefið, en margt frænd- 'fólk hans er þó gætt. Samt sem 'á'ður reynir hann, að dylja þá, 'en hefði Sigurður notið þjálfun- 'ar á yngri árum á því sviði, hefði mátt mikils vænta af hon- 'um, því hæfileikar hans eru ótvíræðir, að skyggnast inn í þá Veröld sem bak við jarðvistar- árin liggja. Um þetta bera frá- sagnir hans glöggt vitni, en nokkrar þeirra hafa kornið á ■prenti í bók, er frú Elínborg Lárusdóttir sá um útgáfu á, á Vegurn Skuggsjár í Hafnarfirði '1966. íslenzkumaður er Sigurður ‘góður, ágætlega ritfær. Því mið- ur hefir Sigurður ekki skrifað niður ýmsa merkilega þætti sinnar eigin reynslu í dulrænum efnum og annarra. En hvers ’konar íslenzkum fróðleik ann Sigurður og á gott bókasafn. Sigurður Magnússon er kvænt ur frú Jóhönnu Magnúsdóttur ’frá Máseli í Jökulsárhlíð, sem hefir búið honum friðsælt heim- ili. Þeim hjónum hefir orðið fjögurra barna auðið, en þau eru þessi: 1. Þórunn hjúkrunarkona og búsfreyja í Reykjavík, gift Finni verkfræðing Jónssyni. 2. Magnús, kvæntur Sigrfði ’Stefánsdóttur, búsett á Seyðis- firði. 3. Ásdís í foreldralhúsum. 4. Ólafur Már í foreldrahúsum. Á þessum merkisdegi sendi ég og fjölskylda mín, Sigur'ði inni- legustu afmælisóskir; og þafeka honum liðinn tíma. Helgi Vigfússon.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.