Morgunblaðið - 25.09.1969, Side 12
12
MORGUMBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2.5. SEPT. H960
„GÓÐIR farþegar, við höf-
um nú lent á tunglinu. Vin-
samlegast athugið vand-
lega allan útbúnað yðar
og gefið merki, er þér haf-
ið gengið úr skugga um að
allt sé í lagi“. Eitthvað á
þessa leið mun hljóma í
eyrum fyrstu ferðamann-
anna sem til tunglsins fara
einhvern tíma fyrir lok
þessarar aldar. Vísindarit-
stjóri brezka vikublaðsins
Observer, Gerald Leach,
hefur rítað greinina sem
hér fer á eftir um brezkan
ferðamannahóp á tunglinu
árið 1999.
Það gerizt varla nokkur
skapaðar hlutur á tunglinu
og það er eiramitt þetta sem
er mest sérkennandi fyrir
staðinn. Fyrir utan farartæki
og fólk er ekkert sem hreyf-
ist. Það er ekkert haf, ekkert
loft, enginn vindur og ekkert
hljóð til að rjúfa þagnarmúr-
inn. Það er eins og tíminn
standii kyrr og landslagið er
eins og máluð kyrralífsmynd.
Þú munt ekki kunna vel að
meta þetta fjrrst eftir
lend'ingu. Þú verður að byrja
á því að fara í geimbúning-
inn fyrir ferðina frá geim-
vellinum til stjömuhótelsins
og líklega mun votta fyrir
móðursýkisfhræðslu hjá þér
við að komast ekki aftur heilu
og höldnu til jarðar. Þú verð
ur fljótur að komast upp á
lagið með að hreyfa þig þrátt
fyrir þyngdaraflsmiumuninn
og þegar það er komið í lag
muntu líklega fyrst gera þér
grein fyrir að þú standir á
tunglinu.
ÓGLEYMANLEG SJÓN
Ef að líkum lætur muntu
fyrst vilja fá að sjá jörðina
hangandi á , blásvörtum himn
inum og sú sýn mun áreiðan-
lega aldrei líða þér úr minni.
Jörðin er mest áberandi stj-
aman á himninum og er fjór-
um sinnium stærri að sjá ,en
tunglið frá jörðu og miklu
bjartari. Þú verður að gæta
þess að velja rétta viku til
tunglferðarinnar, til þess að
vera viss um að sjá jörðina
í beztu afstöðu.
Viljir þú sjá fulla jörð
verður þú að vera á tunglinu
um miðja tunglnóttiraa, sem
stendur í þrettán og hálfan
dag og er nístandi köld.
Sértu í sól á tunglinu er ekki
hægt að greina jörðina, því
að þá verður ný jörð. Beztu
tímarnir eru þegar tungl er
hálft, því að þá er jörðin
hálf. Þetta gerist með hálfs-
mánaðar millibili og þá er
hægt að njóta þess bezta sem
plánetumar hafa upp á að
bjóða og þú munt sjá sólar-
rás og sólarlag á tunglinu.
Það er einkennileg sjón að
fylgjast með sólarrásinni, því
að það er eins og geislarnir
skríði eftir jörðinni niður og
upp hæðir og gígi en í skugg
anum er ekkert hægt að
greina, því að þar er allt kol
svart. Það er annað hvort
skjannabirta eða kolamyrk-
ur, en ekkert þar á milli.
100 SINNUM BJARTARA
Þú verður að gæta þín vel
á einu. Láttu ekki lokkast í
ódýru afsláttarferðirnar til
bakhliðar tunglsins, því að
þar er ekkert að sjá. Beztu
staðirnir eru á miðju tungl-
inu eins og það lítur út frá
jörðu. Þú verður einnig að
gæta þín á að horfa aldrei
beint í sólina. Það getur ekk
ert hlífðargler verndað augu
þín frá hinum ofsalegu geisl-
um og ef þú ert sjóndapur
skaltu alveg forðast að fara
til tunglsins. Þegar sól er
hæst á lofti er 100 sinnum
bjartara en á jörðinni og óg-
urlegur glampi hvert sem þú
lítur. Það er hætta á að aug-
un eigi erfitt með að jafna
sig á þessu og að þú sjáir
marglita depla lengi á eftir.
Þetta er líka mjög villandi og
gerir það að verkum að erf-
itt er að átta sig á veglengd-
um, þannig að bezt er að fara
mjög gætilega svo að engin
hætta sé að þú villist eða far-
ir of langt í burtu frá hótel-
inu. Þess vegna má aldrei
brjóta út af turaglreglunni um
að fara alltaf tveir eða fleiri
saman í gönguferðir, því að
fjögur augu sjá betur en
tvö. Fjarlægðarmælirinn má
aldrei gleymast og talstöðv-
arsambandið ekki rofna, því
að komi eitthvað fyrir geta
sekúndur skilið milli lífs og
dauða.
ENGAR HUNDAKÚNSTIR
Þegar talað er um að fara
í gönguferð á tunglinu verð-
ur að gæta þess, að það er
ekki jafn auðvelt fyrirtæki
og á jörðinni. Byrja verður
á því að læra að ganga og
hreyfa sig eins og ungbarn
og enginn þarf að vera hissa,
þótt hann geri ekki betur en
að drattast löturhægt áfram.
Þess verður líka að gæta að
hreyfingin áfram, kemur ekki
frá spyrnu fótanna, heldur
halla líkamans þá er skref er
hálfnað þar sem aðdráttar-
afl tunglsins er sex sinraum
minna en jarðarinnar. Þess
vegna tekur maður ekki nema
20 Skref á mínútu á tunglinu
í stað 100—120 skrefa á jörð-
inni. Reyndu alls ekki að
stökkva eða vera með aðrar
hundakúnstir, því að slíkt
getur verið stórhættulegt ef
þú missir jafnvægið. Það er
að vísu mjög freistandi, því
að með engu tilhlaupi er
hægt að stökkva 8—9 metra
upp í loftið. Hafðu bara hug-
fast að komi saumspretta á
búniraginn, missir þú meðvit-
und á 15 sekúndum og deyrð
á þremur mínútum, er blóðið
í þér fer að sjóða. Ef það er
þér nokkur huggun má taka
fram að þaulreyndum geimför
um er harðbannað að
stökkva.
Með þriggja klukkustunda
lífbirgðir á bakinu er aðeins
hægt að komast 1500 metra
frá hótelinu, þannig að bezt
er að ferðast um í tunglkerr-
unum, sem búnar eru nægum
birgðum af súrefni og öðrum
lífsnauðsynjum. Láttu þér
ekki detta í hug að þér
verði leyft að aka. Tumgl-
akstur er mikið vandaverk,
því að kerran liggur nefni-
lega 6 sinnum lausar á vegi
en bifreiðar á jörðinni, þann
ig að bremsuförin geta orðið
ansi löng ef ekki er að öllu
farið með gát. ökumaðurinn
er þaulreyndur og veit allt
sem þarf að vita af öryggis-
ástæðum. Hann veit hvar
iraæsta loftsteiniaskýlii er, því
að á tveggja ára fresti magn
ast sólin um allan helming og
rignir þá alls konar geisla-
virkum loftsteinum á tunglið,
sem baraað geta öllu sem óvar
ið er á bersvæði. Mjög vel er
fylgzt með slíkum atburðum
og hættumerki gefið um leið
og ósköpin byrja, en fyrsta
gusan lendir á tunglinu 10
mínútum síðar, þannig að það
er ekki langur tími til stefnu
til að forða sér .
Litlum loftsteinum og ögn-
um rignir í sífellu á tungl-
inu, en þú ættir ekki að finna
fyrir þeim, því að geimbún-
ingurinn verndar þig. Þó
geta auðvitað komið stórir
steinar og verðir þú fyrir ein
um slíkum er úti um þig. Hætt
an á slíku er þó hverfandi
eða einu sinni á 500 þúsund
ára fresti. Hættan á of mik-
illi geialun er einnig hverf-
andi, því að þú þyrftir að
dveljast á tunglinu í 20—30
ár til að verða fyrir hættu-
legri geislun. Sannleikur
málsins er sá að á tunglinu
ertu miklu öruggari en á veg-
unum heima hjá þér, nema auð
vitað þegar sólin tekux upp
á að ólátast.
ENGIN SKOTVOPN
Þú þarft ekki að óttast
skotvopn á tunglinu, því að
þau eru stranglega bönnuð.
Mergurinn málsins er sá að
svo furðulega vill til, að all-
ir hlutir sem fara hraðar en
2340 krn á kiukkuistund fara
beint á braut umhverfis tungl
ið og verða þar tii eilífðar-
nóns, þannig að færu menn
að iðka skytterí í stórum stíl
á tunglinu yrði það brátt
sveipað hjúp af blýkúlum á
eilífðarbraut.
Framhald á bls. 23