Morgunblaðið - 08.10.1969, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8, OKTÖBER 1968
-=^—25555
1^14444
WIUIIÐIR
I5ILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
V W Sendiferðabif reið - VW 5 manna-VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna $
liíl.AI.KU.A*
lAit;
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
0 Heybanki
Að VONUM velta þvi margir
fyrir sér, hvernig fari fyrir þeim
bændum, sem standa uppi með
hálftómar hlöður núna í vetrar-
byrjun. Hér er bréf varðandi það
mál:
„Rigningin í sumar og vandræð
in, sem af henni hafa leitt fyrir
bændur í sambandi við öflun
heyja, hlýtur að vekja menn til
umhugsunar um, hvort ekki megi
komast hjá því að veðurfarið
geti valdið slíkum búsifjum.
Bændur hafa um margt haft
framtak um að koma á umbót-
um svo sem 1 verzlun og úr-
vinnslu afurða sinna. Hvers
vegna hafa þeir ekki frumkvæði
að stofnun „heybanka”, sem hugs
anlega gæti starfað í sambandi
við heyþurrkunarstöð?
Nóg er af heitu vatni Um allt
land til að slík þurrkuií þyrfti
ekki að vera kostnaðarsöm. Mætti
þá hugsa sér að bændur ein-
beittu sér að grasræktun og slætti,
en létu þurrkunarstöðina og héy-
bankann um að þtxrrka og geyma
heyið.
Ei til vill er hér um marg-
kannsð mál að ræða, en gaman
væri þá að fá upplýst, hvað helzt
mælir á móti því.
— G.“
Fróðlegt væri að heyra meira
um þetta mál, hvort framkvæm-
anlegt væri að stofna til slíks
heybanka án allt of mikils kostn
aðar. Þá yrði einnig að t-aka með
í reikninginn, hve ótrygg við-
skiptin við bankann yrðu, allt
eftir því hvort áraði vel eða illa.
Rýmingarsala
i dag og á morgun Mikil verðlækkun.
K. óla, efni, smávörur og bútar á mjög góðu verði.
Vcrzlunin KJÓLLINN, Þingholtsstræti 3.
Sendisveinn óskast
fyrir hádegi helzt á reiðhjóli.
Egill Guttormsson hf.
Grófin 1, sími 25155.
Atvinna
Óskum að ráða fólk til eftirfarandi starfa.
1. stúlku til verkstjórnar,
2. stúlku í frágang,
3. karlmann til aðstoðar feldskera.
Vinnustaður ísfeldur s.f., Grensásvegi 12.
Uppiýsingar kl. 5—6 í dag hjá Prjónastofu
Önnu Þórðardóttur, Ármúla 5, ekki svarað
í síma.
Bótagreiðslur
almannatrygginga
í Reykjavík
Útborgun ellilífeyris hefst að þessu sinni
fimmtudaginn 9. október.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
^ Konur, sem vinna úti
„Móðir, sem vinnur ekki úti”,
skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég var að hlusta á formenn
stærstu §tjórnmálaflokkanna í
Sjónvarpinu í gærkveldi. Það var
margt gott, sem þeir sögðu. Já,
þeir eru hglfhræddir um atvinnu-
leysi í yetur. En nú langar mig
að vita hvernig yrði, ef allar
giftar konur, sem vinna í verzl-
unum, skrifstofum og bönkum,
færu að vera heima og hugsa um
heimili sín, hvort þá myndi ekki
vera næg vinna fyrir ungt fólk,
sem nýkomið er út úr skóla.
Margar af þessum konum, sem
vinna úti, eiga menn i góðri at-
vinnu. Kannski verða þær að
leggja þetta á sig til þess að
missa ekki þessi fínu og dýru
hús sín. En þetta fólk á ef til
vill líka börn eða unglinga og
þætti voht, ef það fengi ekki at-
vinnu fyrir þá, þegar þeir koma
út úr skóla.
Móðir, sem vinnur ekki úti”.
% Búrfellshraun
„Náttúruunnandi” skrifar:
„Göngumaður býsnast hér í
dálkum Velvakanda yfir þeim
skrifum og umtali, sem hraun-
taka í Urriðakotslandi hefur
valdið.
Það eru ekki merkileg rök,
sem hann hefur fram að færa fyr-
ir hrauntekju á þessum stað önn
ur en þau að honura finnst sjálf-
sagt, úr því að búið er að byggja
og nema burt hluta þessara
hrauna niðri í byggðinni, að
halda þá áfram spj öilum á þeim
í fjáröflunarskyni.
Ég álít, að það liggi í augum
uppi að Náttúruverndarráð ís-
lands er ekki að ástæðulausu að
óska eftir friðun þessa lands.
Jarðfræðingar, náttúruskoðendur
og yíirleitt allir, sem hafa kynnt
sér þetta mál, eru furðu lostnir
yfii þessum framkvæmdum.
Náttúruverndarráð ísl. sam-
þykkti á fundi 1. okt. s.X. að
banna allt jarðrask og umrót á
þessum stað. Nefndarmenn 7 að
tölu, voru einróma samþykkir
þessari ákvörðun, en hún tekur
ekki gildi nema viðkomandi
ráðuneyti samþykki hana.
Það skal tekið fram að það
stendur til að friðlýsa Gálga-
hraun norðan Álftanessvegar.
Vífilsstaðahraun hefur verið á-
ætlað að byggja að nokkru leyti
neðan Vífilsstaðalands. Um þetta
eru þó skiptar skoðanir og væri
vel farið ef hjá því væri kom-
izt. í þessu áætlaða byggingalandi
er þegar búið að taka nokkurt
hráun, en það land tilheyrir
Hafnarfirði.
Auðvitað hefði allt Búrlells-
hraunið verið ómetanlegt fyrir
okkur óhreyft og óbyggt, sem
sýningargripur, kennslutæki og
stolt okkar, dæmigert vel gróið
hraun, sérstakt á mælikvarða
hrauna yfirleitt og í nánum
tengslum við byggðina.
Það þýðir ekki að sakast um
orðinn hlut, en sjáum þó að okk-
ur og sameinumst um að halda
hlífiskildi yfir því heillegasta
sem eftir er af Búrfellshrauni í
dag, og helzt þá því dýrmætasta,
sem er hrauntröðin frá Búrfelli
niður í Urriðakotshraun ásamt
því niður um Urriðakotsholt nið-
ur í Vífilsstaðahraun.
Að lokum skal á það bent að
ef sfórvirkar vinnuvélar og flutn
ingabílar fá að leika lausum hala
í hnauninu og á vegunum að því,
þá er næsta umhverfi orðið undir
lagt af hávaða og svo umferð,
sem vegirnir þarna eru alls ekki
gerðir fyrir.
Náttúruunnandi.”
H árgreiðslustofa
Til sölu er mjög vel sótt hárgreiðslustofa á einum bezta
stað í Austurborginni. Þéttbýlt hverfi og malbikaðar götur
í kring.
Upplýsingar gefur (ekki í síma)
Ragnar Tómasson hdl.
Austurstræti 17 (Silli og Valdi).
Fiskbúð
Til sölu fiskbúð í stóru verzlunarhúsi góðir greiðsiuskilmálar. í Kópavogi,
ÍBÚÐA- SALAN SÖLUMAÐUR: GÍSLl ÓLAFSS. ÍNGÓLFSSTRÆTI GEGNT GAMLA BÍÓI SÍMI 12180. HEIMASÍMI 83974.
Vymura vinyl-veggfóður
ÞOLIR ALLAN ÞVOTT
LITAVER Grensásveg i 22-24
SÍmÍ 30280-32262