Morgunblaðið - 08.10.1969, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1969
- COLDWATER
Framhald af bls. 11
þeirra fjórmer-ninga, að þjón-
usta við , Fish and Chips“-
veitingastaðina vestan hafs
ætti eftir að valda verulegum
breytingum heima á allri með-
ferð og vinnslu fisksins, og
væri raunar farin að gera það
þegar, t.d. hvað varðaði vöru-
tegundir. „Við verðum að bæta
meðferð okkar á fiskinum — al-
veg frá því han.n kemu.r um
borð í veiðiskipin og þar til
verkun er lokið í frystihúsun-
um“, sögðu þeir.
*
Islenzka „Fish &
Chips“-búðin hin
fyrsta í New York
Coldwater hefur nýlega opn
að „Fish and Chips“-veitingastað
í nágrenni Scarsdale. Veitinga-
staðurinn stendur við aðalgöt-
una í smábæ þessum, og eru
húsakynni mjög skemmtileg —
sambland af nýtízkulegum veit
ingastað og enskri krá í hefð-
bundnum stíl. Á veggjum
hanga brezk skjaldarmerki og
kaupandinn fær matinn í
pappaumbúðum, sem ljósprent-
aðar eru á úrklippur úr
þekktustu dagblöðum Eng-
lands. Allt er þetta gert til að
skapa verulega brezkt and-
rúmsloft og til að láta það ekki
fara fram hjá neinum, að mat-
urinn, sem viðkomandi snæðir,
er „ekta“ brezkur. Sölubragð,
sem hefur gefið einstaklega
góða raun.
„Þetta er fyrsti „Fish and
Chips“-veitingastaðurinn í New
York-fylki“, segir Þorsteinn,
„og við rekum hann í tilrauna
skyni. Reynsla af veitinga-
staðnum hefur verið mjög góð,
og raunar farið fram úr beztu
vonum. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um það ennþá,
hvort fleiri staðir verði opn-
aðir eða hversu margir, ef
til þess kemur. En ef við fær-
um frekar út á þessa braut, þá
mundi verða ráðinn sérstakur
framkvæmdastjóri fyrir þá, og
staðirnir jrrðu í eigu sérstaks
félags „Royal Guard Restaur-
an.ts“, sem yrði auðvitað í okk-
ar eigu.“ Þetta mál er því enn
þá á byrjunarstigi, en fróðlegt
og skemmtilegt verður að fylgj
ast með þróuninni á næstunni í
þessum efnum.
Fiskverðið og
nýja löggjöfin
and Chips“ í Bandaríkjunum,
því að margt fleira kom til tals
í samræðunum við þá fjórmenn
inga. Til að mynda fengum við
Þorstein til að segja okkur eitt
hvað frá fiskblokkarverðinu í
Bandaríkjunum um þessar
mundir. „Núna er það 24 cent,
og hefur haldizt að mestu ó-
breytt um nokkurn tíma. Raun
ar var það í 12 ár samfleytt 24
cent, en sá stöðugleiki hefur
ekki verið fyrir hendi nú um
nokkurt skeið — hefur fallið
niður í 20—21 cent þegar verst
lét, en komizt hæst upp í 30
"ent — aðeins um örskamman
tíma. En þetta verð — 24 cent
— er farið að verða mjög þýð-
ingarmikið og mikill áhugi hjá
stærstu seljendunum hér að
halda því. Að vísu féll það nið-
ur fyrir nokkrum vikum og
það var vegna undirboðs frá
íslenzkum aðila — Sjöstjörn-
unni í Keflavík. Þetta voru
blokkir úr einu skipi og það
sýnir hversu viðkvæmt þetta
verð er, að ekki meira magn
skyldi steypa því niður um
hríð. í þessu sambandi má geta
þess að þýðingarmikið er fyrir
okkur að safna hráefnisbirgð-
um þegar líður á árið til að
þjóna þessum markaði hér alls
kostar. Þess vegna er afar áríð
andi að óvæntar verðbreyting-
ar komi ekki, en fyrsta hætt-
an er undirboð frá þessum sjálf
stæða aðila á íslandi."
Eins og áður hefur verið
greint frá eru Bandaríkja-
menn nú að undirbúa nýja
löggjöf, þar sem gert er ráð
fyrir opinberu gæðamati á
fiski og fiskafurðum til mann-
eldis. Við spurðum forráða-
menn SH og Coldwater, hvern
ig löggjöf þessi gæti verkað á
útflutning okkar til Bandaríkj
anna.
„Við erum þegar farnir að
hugleiða það, hvaða áhrif þessi
löggjöf kemur til með að hafa
á frystihúsin heima, og raun-
ar þegar farnir að vinna að
undirbúningi, m.a. með því að
gera úttekt í nokkrum húsum
og reyna að átta okkur á,
hversu stórfelldrar endur-
skipulagningar er þörf. Það er
þegar ljóst, að endurbætur
þessar koma til með að verða
mjög kostnaðarsamar", segir
Gunnar Guðjónsson. Þorsteinn
Gíslason bætir við: „Ég er fyr
ir mitt leyti sannfærður um, að
við íslendingar munum eiga
auðveldara með að mæta þess-
um kröfum en nokkur önnur
þjóð af öllum þeim, sem hingað
flytja inn. Að endurskipulagn-
ingu frystihúsa okkar lokinni,
getum við orðið einir af fáum,
sem uppfyllum þessar lcröfur,
og koanizt í mjög þægilega að-
stöðu.“
Hann sagði ennfremur, að
þeir hefðu þegar vitneskju um
helztu atriði hinnar nýju lög-
gjafar. Það væri m.a. þýðing-
armikið atriði í þessari löggjöf,
að innan hvers frystihúss
væru embættismenn til að fylgj
ast með framleiðslunni, sem
ekki þægju laun frá viðkom-
andi frystihúsi og heyrðu und-
ir sérhæfða stofnun á þessu
sviði. „Og við íslendingar bú-
um einmitt svo vel, að slík
stofnun er þegar fyrir hendi
heima — Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins,“ sagði Þor-
Steinn.
Sölukerfið
Að síðustu skal hér getið um
aðferðir Coldwater Seafood
Corp. til að selja framleiðslu
sína. Að sögn Þorsteins eir sölu
kerfi fyrirtækisins byggt upp
á þann hátt, að það hefur 50
umboðsmenn víðsvegar um öll
Bandaríkin, sem gefa sérstaka
söluaðstöðu. Sagði Þorsteinn,
að þetta fyrirkomulag hafi ver
ið talið hagkvæmara en að hafa
eigin sbairfsmenn til að annast
þessa hlið. Þessir umboðsmenn
vinna því ekki eingöngu fyrir
Coldwater, heldur vinna að
öðrum verkefnum jafnframt.
Kvað hann þetta hafa gefið
ágæta raun.
Nokkurri fjárupphæð er ár-
lega varið til auglýsinga. „Við
höfum ekki farið inn á þá braut
að setja okkur ákveðin mörk
í þeiim efnum“, segir Þorsteinn,
„hicldur auglýsum þegar okkux
þykir þurfa.“ Því er það breyti
legt, hversu miklu fé er. varið
til þeirra frá ári til árs, en
mest hefur það orðið 1966. Þá
nam kostnaður við auglýsing-
ar % milljón dollara eða rúmum
40 milljónum miðað við núver-
andi gengi.
— BVS.
Söng-
skemmtun
NORSKI barýtónsöngvarinin Olav
Eriksen söng á vegum Tónlistar-
félags Kópavogs sl. laugardag í
félagsheimili bæjarins. Annað
bvort eru Kópavogsbúar óimúsík
alskari en annað fól'k í landinu
eða þá að starfsemi félagsins er
ver skipulögð en annars staðar,
því að aðsó'kn að þesisari söng-
skemmtun var mjög léleg.
Efnisisikráin var fjölbreytt,
hófst með aríu eftir Lully og
sönglagi eftir Purcell. Þriðj-a lag
ið var eftir hinn sérkennilega
Spánverja Pablo Esteve, og fór
söngur Erilki.sen mætavel af stað.
Rödd hans er milkil og hljómfög-
ur en hún er líka notakuð ójöfn.
Tæknilega varð því breidd „Vier
ernste Gesange" eftir Brahms
eklki nógu sannfærandi, þótt að
öðru leyti yrði stígandi í söngn-
um efnissfcrána á enda.
Eriiksen söng „Hjertets Melo-
dier“ eftir Grieg og „Þrjá hebr-
eslka söngva“ etftir Ravel og
beitti þar ágætum túllkunarhæfi
leilkum sínum. Lokaþáttur söng-
skemimtunarinnar var af íslenzlk-
um og norslkuim lögum, söng Erilk
sen þá „Sötonuð" eftir Pál Isólfs-
son og „Ef engill ég væri“ eftir
Hallgríim Helgason; kly'klkti út
með „I Vaagelidann" eftir Joh-
ansen,, „Vise i onna“ eftir Bræin,
„Helg-sög fra Rymdi“ eftir Egge,
„Jeg vi/I hjem“ og „Spurven"
eftir Hovland. Fróðlegt hefði
verið að kynnast fleiri slílkum
lögum, en tíminn leyfði það
eklki.
Sumt á efnisdkránni kynnti
söngvarinn sjálfur og féll það
einnig í góðan jarðveg hjá þaiklk-
látum áiheyrendum, sem að end-
ingu ætluðu eklki að vilja sleppa
honum við aðeins fáein aulka-
lög!
Árni Kristjánsson léto með á
píanóið og var þar óskeikull
hvatningisimaður og stuðningur
til dáða.
Þorkell Sigurbjörnsson
Bezta auglýsingablaöiö
Látum þetta nægja um „Fish
Nauðungaruppboð
Efíir kröfu Ara Isberg hdl., Bjarna Beinteinssonar hdl.,
Hákons H. Kristjónssonar hdl., Helga Guðmundssonar hdl.,
Tómasar Árnasonar hdl. og Útvegsbanka Islands, verður haldið
opinbert uppboð á ýmiskonar lausafé í skrifstofu minni að
Álfhólsvegi 7 miðvikudaginn 15. október 1969 kl. 15.
Það sem selt verður er: 3 sjónvarpstæki, 2 sófasett, 2 kæli-
skápar, 2 málverk, borðstofuhúsgön, IBM rafmagnsritvél,
Encyclopaedia Britannica o. fl.
Greiðsla fari fram við hamarshög.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
mfimmNH
J GRENSÁSVEG 11 -
EGE
broadloom
BYGGINGAVORUR
SÍMI 83500
CÓLF-
TEPPI
Dönsk gœðavara
með þykku gúmmífilti
Verð aðeins frá kr. 650,— pr. m2
MÁLARINN
BANKASTRÆTI 7 — SÍMI 22866.
blaðbIírðarfólk
ÓSKAST
í eftirtolin hverfi
Sjafnargötu
TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 10100
fRíijí’igíimMAiJiit*
Soumostúlkur — Kvöldvinno
Stúlkur vanar kápusaumi óskast nú þegar.
Vinnutimi frá kl. 5—10.30 á kvöldin (ákvæðisvinna).
Tilboð merkt: „Kvöldvinna — 3835" sendist Mbl. fyrir
11. oktober.
Skrifstofustúlka
Skrifstofustúlka með enskukunnáttu óskast til starfa hjá
stóru fyrirtæki úti á landi Ráðningatími minnst 1 ár.
Upplýsingar um aldur, fyrri störf og menntun sendist Mbl.
fyrir næstu helgi merkt: „Skrifstofustörf — 3779".
HÆTTA A NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams
— Vertu kátur, litli bróðir. Þú ert ekki
sá fyrsti, sem hefur gefið sig fram við
lögregluna af sjálfsdáðum.
— Hættu að tala eins og það hafi verið
mín hugmynd, Danny.
— Og ef þú heldur, að ég ætli að kjafta
frá hópnum, ertu snarvitlaus. Þeir myndu
ná mér og . . .
— Gray þingmaður!
— Iljálp!