Morgunblaðið - 26.02.1970, Qupperneq 11
MORöUNíBLAÐIÐ, FEMMTUDAGUK 26. FEÐRÚAR 1070
11
Baldvin
Jóhannesson
símvirki
Otrateig 30. 41 árs.
Maki: Ragnheiður
Indriðadóttir.
Afkoma fólks í flestum til-
fellum er háð því hvaða mögu-
leika byggðarlagið getur boðið
upp á. Nokkrum vandkvæðum
tel ég því vera bundið að greina
einn flokk mála frá öðrum, þeg-
ar á heildina er litið, vegna þess
að í vaxandi borg, svo sem
Reykjavík er, hljóta hinir ýmsu
þættir að gripa nokkuð hver
inn á annars svið.
Atvinnumálin hljóta þó að
skipa öndvegi sem undirstaða
alls velfarnaðar. Gróskumikið
atvinnulíf, efling eldri atvinnu-
greina og uppbygging nýrra eru
mál málanna og það þarf að nýta
nýjustu tækni og vísindi á sem
hagkvæmastan hátt. Samhliða þvi
og sem forsendu þess, þarf að
leggja áherzlu á eflingu hag-
nýtrar menntunar ungs fólks,
menntunar, sem miðast við þarf-
ir atvinnuveganna.
Vel þarf að búa að ungu fólki,
svo að það geti lagt rækt við
hugðarefni sín. Því þarf að veita
góða aðstöðu á öllum sviðum,
svo að áfram haldi uppvöxtur
þróttmikillar æsku, sem er þess
megnug að takast á við vanda-
mál framtíðarinnar Reykjavík-
urborg og landinu öllu til heilla.
Baldvin
Tryggvason
framkvæmdastjóri
Kleifarvegi 11. 43 ára.
Maki: Júlia
Sveinbjamardóttir.
Svo mun um flesta þá, er hug
hafa á félagslegum málefnum og
bera hag bæjarfélags síns fyrir
brjósti, að þeir láta sér, hver
um sig, öðru fremur annt um
ákveðna þætti hinna samfélags-
legu málefna eða málaflokka.
Þannig er því að sjálfsögðu
einnig háttað um mig, og koma
mér þá fyrst í hug fræðslu-
og menningarmál. Jafnljóst er
mér hitt, að í nútímarekstri vax-
andi borgar eru flestir þættir
borgarmálefna hver öðrum háð-
ir að meira og minna leyti, og
gefur því auga leið, að þótt þau
mál, sem ég nefndi, séu mér öðr-
um hugleiknari, þykist ég engu
að síður hafa áhuga á öðrum
málaflokkum.
Þessu líkt mun og flestum far-
ið. Hver sá, er leitar eftir
trausti samborgara sinna, og ef
til vill öðlast það, hlýtur að
láta sig miklu skipta öll þau
málefni, er varða hag og ham-
ingju borgarbúa í heild. í hans
hlut kemur að fjalla um fjöl-
mörg efni, sem fljótt á litið eiga
litið skylt við höfuðáhugamál
hans, en eigi hann að reynast
traustsins verður, ber honum
umfram allt að bregðast við þeim
af djörfung og heiðarleika, en
varast einstrengingsleg viðhorf
og hagsmunasjónarmið.
Og þetta verðum við öll að
hafa hugfast: Ef Reykjavík á að
geta staðið I fararbroddi um
vaxandi menningarlíf og samfé-
lagslega þjónustu að nútima-
kröfum, hlýtur grundvöllur
þess jafnan að verða einn og
hinn sami, en það er heilbrigður
og öflugur atvinnurekstur I
höndum einstaklinga og félags-
samtaka.
Bergsteinn
Guðjónsson
bifreiðastjóri
B&staSarvegl 77.
68 ára.
Vinnan er undirstaða lifs
hvers einstaklings, því er það
áhugamál mitt, að borgaryfir-
völdin á hverjum tima, geri sitt
ýtrasta til að borgarbúar þeir
sem vinnufærir eru, hafi ávallt
nægilega atvinnu sér til lifs-
framfæris, og bæta um fyrir
þeim sem veikir eru, eða sem
eru á einhvern hátt ekki vinnu-
færir, þannig að þeir geti einn-
ig lifað mannsæmandi lifi.
Að gert verði allt, sem unnt
er, til þess að sjá skólafólki fyr-
ir atvinnu yfir sumarmánuðina
og með þeim launum, sem fólkið
teldi þess vert að vinna fyrir,
og á þann hátt haft áhuga á
vinnunni og borið virðingu fyrir
henni.
Að bætt verði aðstaða ein-
stæðra mæðra þannig, að byggð-
ar verði hentugar íbúðir þeim
til handa, og þá jafnframt séð
svo um, að þar verði einnig
húsnæði fyrir barnagæzlu. Þær
sem í eigin húsnæði búa verði
aðstoðaðar svo sem unnt er við
að koma börnum þeirra á
gæzluheimili.
Að sjálfsögðu er áhugamál
mitt, að stjórn borgarinnar verði
í hendi sterkrar samhentrar
stjórnar, því þá munu þau vanda-
mál, sem að steðja hverju sinni
verða leyst á farsælan hátt.
Birgir ísl.
Gunnarsson
héraðsdómslögmaður.
Fjölnisvegf 15. 33 ára.
Maki: Sonja Bachman.
Borgarstjórn Reykjavíkur
fjallar um fjölþætta málaflokka,
sem snerta daglegt líf borgar-
búa á margvíslegan hátt. Borgar-
fulltrúar verða því að hafa
mestan áhuga á þeim málum,
sem eru til úrlausnar og ákvörð-
unar hverju sinni.
Mig langar að drepa á nokkra
málaflokka, sem borgarstjórn
þarf I náinni framtíð að fjalla
um og hljóta því að verða áhuga-
mál borgarfulltrúa. Hið erfiða
ástand í atvinnulífinu undan-
farin ár knýr sveitarstjórnir til
aukinna afskipta af atvinnumál-
um. Borgarstjórn hefur því sam-
þykkt gerð atvinnumálaáætlunar
Reykjavíkur, sem gefur tilefni
til að leitað sé nýrra leiða í ým-
iskonar fyrirgreiðslu af hélfu
borgarinnar við atvinnuvegina.
Ferðamannaþjónusta er og vax-
andi atvinnugrein, sem borgar-
stjórn þarf að láta meir til sín
taka en verið hefur.
Innra starf skólanna verður
vafalaust mikið á dagskrá næsta
kjörtímabil og tillaga Sjálfstæð-
ismanna í skólamálum á að geta
orðið upphaf að nýrri þróun
framtíðarskólans í Reykjavík.
Sú staðreynd að Reykjavík er
að vaxa úr borg í stórborg kem-
ur vafalaust til með að móta við-
horf borgarfulltrúa á næstunni,
einkum á sviði félags- og æsku-
lýðsmála. Stórborgarvandamálin
gera nú óðum vart við sig og
við þeim þarf að bregðast með
þeim beztu ráðum, sem þekking
okkar á þjóðfélagsvísindum
bendir á. Fleiri mál mætti upp
telja, en í framkvæmd ræður
það úrslitum, að samhent stjórn
sé við stjórnvölinn.
KAUPMENN — KAUPFÉLÖG
Nýkomin
Postufíns- matar- og kaffistell
Jón Jóhannsson & Co.
Skólavörðustíg 1 A — Sími 15821.
KJÖRBÚÐAR - KÖRFUR
STERKAR — ÓDÝRAR.
FYRIRLIGGJANDI.
Strandberg hf. heildverzlun
HVERFISGÖTU 76 — SÍMI 16462.
BYGGINGARVÖRUR
Sísatpappi
Plastdúkur
Þakpappi
Saumur
Kalk
Móta- og bindivír
Vírnet
Rappnet
A J. Þorláksson & Norðmann hf.
Auglýsing
um
starfslaun handa listamönnum árið 1970.
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa ís-
lenzkum listamönnum árið 1970. Umsóknir sendist formanni
Ohlutunarnefndar starfslauna, Runólfi Þórarinssyni, fulltrúa I
Menntamálaráðuneytinu, fyrir 25. marz n.k. Umsóknir skulu
auðkenndar: Starfslaun listamanna.
I umsókn skal tilgreina eftirfarandi atriði:
1) Nafn, heimilisfang, fæðingardagur og ár.
2) Upplýsingar um náms- og starfsferil.
3) Greinargerð um verkefni, sem liggur umsókn til
grundvallar.
4) Sótt skal um starfslaun til ákveðins tíma. Verða
þau veitt til þriggja mánaða hið skemmsta, en til
eins árs hið lengsta, og nema sem næst byrjunar-
launum menntaskólakennara — eða um kr. 20 þús-
und á mánuði.
5) Umsækjandi skal tilgreina tekjur sínar árið 1969.
6) Umsækjandi kemur því aðeins til greina að fá
starfslaun, að hann sé ekki á föstu mánaðarkaupi,
meðan hann nýtur starfslauna, enda til þess ætlazt,
að hann helgi sig óskiptan verkefni því, sem liggur
umsókninni til grundvallar.
7) Að toknu verkefni skal gerð grein fyrir árangri
starfslaunanna.
8) Tekið skal fram, að umsóknir um starfslaun árið
1969 gilda ekki í ár.
Reykjavík, 24. febrúar 1970.
Úthlutunamefnd starfslauna.