Morgunblaðið - 26.02.1970, Síða 17
MORlOU'NlBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1970
17
"1
Útgefandi:
Landssamband Sjálfstæðiskvenna
Ritstjóri: Anna Bjamason.
Kvenfélagasambandið
stofnar bréfaskóla
tauþrykk, tilsögn í því að standa
fyrir námshringastarfi, o. fl.
Munu konurnar síðan halda nám
s'keið heima í sínum héraðssam-
böndum í þessum greinum, eft-
ir því sem aðstæður leyfa.
Er þetta annað árið í röð, sem
efnt er til slíks námskeiðs.
Kennarar á námskeiðinu eru
Kristín Jónsdóttir, Gíslrún Sig-
urbjörnsdóttir og Sigríður Har-
aldsdóttir, sem jafnframt er
stjórnandi þess. Sigríður Har-
aldsdóttir veitir Leiðbeiningar-
stöð húsmæðra forstöðu.
Þessi föngulegi hópur er meirlhlutj fulltrúanna er sótti þing L andssambands Sjálfstæðiskvenna
er haidið var á Þingvöilum ásíðastliðnu sumri. — (Ljósmynd: Herdís Guðmundsdóttir)
A NÆSTSÍÐASTA landsþingi
Kvenfélagasambands íslands var
samþykkt, að koma á fót bréfa-
skóla á vegum sambandsins og
er nú fyrsta verkefni hans til-
búið. Fjallar það um umgengn-
ishætti og nefnist „Siðvenjur og
háttprýði“. Höfundurinn er
norskur, Hákon Sommerset, yf-
irkennari, en Sigríður Thorla-
cius hefur þýtt það og staðfært.
Nýbyrjað er hálfs mánaðar
námskeið hjá K.í. fyrir konur
víðsvegar að af landinu. Kennslu
greinar eru margs konar föndur,
Vaxandi áhugi kvenna á
borgar- og sveitast j órnar málum
Mót Sjálfstæðiskvenna um
sjálfstjórnarmál um helgina
NÆSTKOMANDI laugardag
og sunnudag verður haldið
mót Sjálfstæðiskvenna um
sveitarstjórna- og flokksmál
í Valhöll við Suðurgötu. Er
það Landssamhand Sjálfstæð
iskvenna og Sjálfstæðis-
kvennafélagið Hvöt í Reykja-
vík, sem fyrir mótinu standa.
Tilgangurinn með móti
þessu er að undirbúa konur
undir bæjar- og sveitar-
stjórnakosningar í vor. Einn-
ig er tilgangurinn að efla
samvinnu félaganna úti á
landi.
ÁHUGI KVENNA Á LÁNDS-
MÁLUM ER SÍVAXANDI
Reynslan af tveim undanförn-
um landsþingum, Sjálfstæðis
kvenna, en þau eru haldin annað
hvert ár, hefur verið með slíkum
ágætum, að okkur finnst ástæða
til að efna til slíks móts, sem
þessa, mæltu þær Ragnheiður
Guðmundsdóttir, formaður Lands
sambands Sjálfstæðiskvenna og
Geirþrúður Hildur Bernhöft for
maður Hvatar er Vettvangur
kvenna ræddi við þær s.l. sunnu
dag um mótið, dagskrá og tilhög-
un þess.
Einmág hefur komið berlega
í ljós að áhugi kvenna á sveitar-
stjórnar og landsmálum fer mjög
vaxandi. Sást það m.a. með hinni
miklu þátttöku kvenna í síðasta
landsfundi Sjálfstæðisflokksins,
sem haldinn var á hausti s.l.
Þennan aukna áhuga má m.a.
þakka hinum velheppnuðu og vel
sóttu landsþingum Sj álf stæðis-
kvenna, sem hafa bæði verið fjöl
sótt og í alla staði vel heppnuð
mót. Hið síðasta var haldið á
Þinigvöfflium á liðmu sumiri. Þá
hefur einnig komið fram að kon-
ur vilja fá aukin áhrif í bæjar-
og sveitarstjórnum.
Að undirbúningi mótsins vann
undirbúningsnefnd sem skipuð
var þessum konum: Ragnhildi
Helgadóttur, Elínu Jósefsdóttur,
Helgu Gröndal ásamt formönn-
um Landssambandsins og Hvat-
ar.
FLOKKS STARFIÐ OG FRAM-
KVÆMD KOSNINGANNA
FYRIR HÁDEGI
Á laugardag hefst mótið með
nokkuð nýstárlegum hætti, en
félögin tvö sem að því standa,
bjóða mótsgestum til morgunkaff
is kl. 9. Mótið verður síðan sett
stundvíslega kl. 10. Að setningu
lokinni mun dómsmálaráðherra,
Jóhann Hafstein, varaform. Sjálf
stæðisflokksins flytja ávarp í for
föllum dr. Bjarna Benediktsson
ar, forsætisráðherra.
Undirbúningsnefndin kom sér
saman um að fyrri dagur móts-
ins yrði helgaður flokksstarfinu
og sveitarstjórnarmálum, en síð-
ari dagurinn helgaður fundar-
sköpum og ræðumennsku.
Að loknu ávarpi varaformanns
ins flytur Baldvin Tryggvason,
formaður skipulagsnefndar Sjálf
stæðisflokksins ræðu er hann
nefnir: Flokksstarfið og kjósand
inn. Þá flytur Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, ræðu um
undirbúning og framkvæmd sveit
arstj órnarkosninganna.
Ef tími leyfir verða frjálsar
umræður að ræðunum loknum,
fram að hádegisverðarhléi.
S VEIT ARST J ÓRN ARMÁL
EFTIR HÁDEGI
Eftir hádegi hefst dagskrá sem
eingöngu er helguð sveitarstjórn
armálum og unnin og flutt af kon
um, sem sæti eiga í sveitarstjórn,
bæði í borg, bæ og sveit.
Fyrst á mælendaskrá er Auður
Auðuns, sem verið hefur í borg-
arstjórn Reykjavíkur fjölmörg
undanfarin kjörtímabil og for-
seti borgarstjórnarinnar, eins og
kunnugt er. Mun Auður flytja
erindi úm hlutverk sveitar-
stjórna almennt.
Þá er á mælendaskrá Ingibjörg
Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi á
Akureyri og ræðir hún um heil-
brigðismál, enda þeim málum vel
kunnug, þar sem hún er yfir-
hjúkrunarkona á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri.
Þriðji ífriuimimœliainidiinin er Sal-
óme Þorkelisdóttir, hrepp9n©fndar
kona í Mosfellssveit og ræðir
hún um skólaimlál. Skólamál hafa
verið mjög á dagskrá að undan-
förnu og er Salóme þeim málum
vel kunnugt, því hún hefur átt
sæti í skólanefnd um árabil.
Bryddað verður upp á þeirri
nýbreytni að ræðuimennska og
fundarsköp verða kynnt á grund
velli Dale Carnegie námskeiðs-
ins í umsjá Konráðs Adolphsson
ar, viðskiptafræðings og Ólafs B.
Thors deildarstjóra. Á þeim
•gmuinidveílli er efndð kynnt á miobk
uð frábrugðinn hátt frá hefð-
bundnum ræðumennskustíl. Þess
má geta að námskeið þessi eru
nú haldin í 35 þjóðlöndum víðs
vegar um heim og um 80 þúsund
blandað geði. Samstarf innan
hinna ýmsu félaga vex ekki hvað
sízt með mótum sem þessum, fyr-
ir utan hve nauðsynlegt er fyrir
allar konur að kynna sér sem
bezt sveitarstjórnarmál, þar sem
það eru þau málefni, sem þær
geta haft einna mest áhrif á.
Gífurlegum fjármunum er ár-
lega varið til t.d. heilbrigðis-
dkóia-, æskiuilýðs- og bannia-
verndarmála. Segja má að það
séu þau mál, sem sherta konurn
ar einna mest. Það er því ekki
úr vegi að konur kynni sér al-
mennt hvað gert er í þessum
málum, og jafnvel leggja til mál
anna ef þær sjá einhverjar leið
ir sem betur henta heldur en
notaðar eru.
Á vori komandi eiga konur
jafnt sem karlar að ganga til
kosninga. Þær eiga að kjósá full
trúa sína í borgar, bæjar og
Undirbúningsnefndin, sem vann að undirbúningi mótsins Frá vi nstri: Helga Gröndal, Geirþrúð-
ur Hildur Bemhöft, formaður Hvatar, Ragnheiður Guðmundsdóttir, formaður Landssambands
Sjálfstæðiskvenna, Ragnhildur Helgadóttir og Elín Jósefsdóttir. (Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.)
Og loks talar Sigurlaug
Bjiamniaidóttir, vairaJbongairfujlttrúi
í Reykjavík. Hún mun ræða um
æslkulýðis- og baimiawernidaTmál.
Sigurlaug hefur verið í barna-
verndarnefnd Reykjavíkur und
anfarin ár.
Eftir framsöguierinidin verða
frj álsar umræður.
FUNDARSKÖP OG RÆÐU-
MENNSKA Á GRUNDVELLI
DALE CARNEGIES
Síðari dagur mótsins er helg-
aður fundarsköpum og ræðu-
mennsku. Þann dag hefst fund-
urinn einnig stundvíslega kl. 10,
eftir að fundargestir hafa aftur
þegið morgunkaffi.
manns tóku þátt í þeim á s.l. ári.
Allt útlit er Jyrir að fjöldi
Sjálfstæðiskvenna sæki mótið.
Fulltrúar frá 14 félögum utan
Reykjavíkur hafa þegar tilkynnt
þátttöku sína. — Að gefnu til-
efni má geta þess að öllum Sjálf-
stæðiskonum er heimil þátttaka í
mótinu og ber að tilkynna þátt-
töku sem allra fyrst, í síðasta
lagi kl. 5 á morgun (föstudag), í
síma 17100.
NAUÐSYNLEGT AÐ KYNNA
SÉR SEM BEZT HVERNIG
SVEITARSTJÓRNARMÁLUM
ER HÁTTAÐ
Það er ómetanlegt fyrir Sjálf
stæðiskonur að fá að taka þátt í
móti sem þessu. Þarna hittast
konur víðs vegar að af landinu
og geta skipzt á skoðunum og
sveitarstjórnir, þá fulltrúa, sem
á næstu fjórum árum eiga að
ráða m.a. hvernig þessum mál-
um verður háttað. Og úr því að
við búum við lýðræðisskipulag,
þar Sem hinn almenni kjósandi
hefur tækifæri til þess að hafa
áhrif á gang mála, þá er bæði
synd og skömm að notfæra sér
það ekki. En til þess að geta
gert það verða allir að kynna
sér hvernig á málunum hefur
verið haldið. Þá fyrst er hægt
að koma með tillögur til úrbóta,
ef einhverjar eru.
Því eiru mót, sem þetta svo af-
ar mikilvæg. Þar er hægt að
kynnast málunum og ræða þau
við konur, sem sæti eiga í stjórn
um byggðarlaga sinna og geta
komið breytingum á framfæri.
A. Bj.