Morgunblaðið - 23.09.1970, Side 4
4
MORGCJNBLAÖIÐ, MIÐVIKUUAGUR 23. SBPT. 1970
*.
%
*
*
>
22*0-22*
[raudarárstíg 31
WfílFIOIR
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW swefnvagn
VW9manna-Laitdrover 7manna
Fjaðnr, fjaðrablöð, hljóðkútar,
pútetrör og fleW varahfutír
i margar gerðár bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168 - Sími 24180
johkis - mmi
glenillareinangninin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrunina
með álpappírnum, enda eitt
bezta einangrunarefnið og
jafnframt það langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4" J-M
glerull og 3" frauðplasteinangr-
tm og fáið auk þess álpappir
með. Jafnvel flugfragt borgar
sig. Sendum um land allt - —,
Jdn Loftsson hf.
penol
skólapenninn
BEZTUR í BEKKNUMI
Blekhylki, jöfn
blekgjöf og oddur
viö hæfi hvers og
eíns. Sferkur!
FÆST í FLESTUM
RITFANGA—OG
BÓKAVERZLUNUM
HEILDSALA:
FÖNIX S.F. - SUBURG. 10 - S. Z4420
^ Hugarórar ónafngreinds
bréfritara
Blaðafulltrúi Flugfélags Is-
lands hefur sent Velvakanda
eftirfarandi:
1 dálkum yðar laugardaginn
19. september skrifar maður
undir dulnefninu „Trölli“ og
segir frá viðskiptum skjólstæð
ings síns við afgreiðslu Flug-
félags íslands í Reykjavík. Þar
sem mjög er hallað réttu máli
verður ekki komizt hjá að leið
rétta missagnir. Kona sú sem
hinn ónafngreindi bréfritari
segir frá, bauð ekki að greiða
hluta fargjaldsins síns með
venjulegri tékk-ávísun heldur
með ávísun á launareikning í
í fyrirtæki úti á landi, og sem
aðeins eru gjaldgengar og til
notkunar innan héraðs. Þar
sem slíkar ávísanir eru ekki
innleysanlegar í bönkum í
Reykjavik né öðrum stofnun-
um og hvergi nema hjá viðkom
andi fyrirtæki sjálfu, gat af-
greiðslustúlkan að sjálfsögðu
ekki tekið við slíkri greiðslu.
Að afgreiðslustúlkan hafi orð-
ið ókvæða við og ekki sýnt
kurteisi í hvívetna eru hugar-
órar hins ónafngreinda bréfrit-
ara og naumast svaraverðir.
Hinn miskunnsami Samverji,
sem bréfritari getur um, var
hann sjálfur, sem lánaði kon-
unni það fé sem á vantaði.
Afgreiðslur Flugfélags ís-
lands taka að sjálfsögðu við
ávísunum, sem greiðslu fyrir
farseðla, nema um ávísanir á
mjög háar upphæðir sé að ræða
sem skiptimynt viðkomandi af-
greiðslufólks ræður ekki við.
Það skal að lokum tekið fram
að konan sem i hlut átti virt-
ist skilja afstöðu og aðstöðu af
greiðslustúlkunnar í hvívetna
og sýni fyllstu kurteisi.
Blikksmiðir
Óskum að ráða blikksmiði, járnsmiði,
eða menn vana járn- og plötusmíði.
BLIKK OG
STÁL H.F.
Dugguvogi 23.
STUÐNINGSMENN
HARÐAR EINARSSONAR
EFNA TIL KYNNINGARKVÖLDS
Stuðningsmenn Harðar Einarssonar í
prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík
efna til kynningarkvölds í LEIKHÚS-
KJALLARANUM í kvöld 23. sept. kl.
20.30.
'Ar Hörður. Einarsson flytur ræðu
BRÝNUSTU FRAMTÍÐARVERKEFNI
í ÍSLENZKUM STJÓRNMÁLUM.
Hann mun síðan svara fyrirspurnum.
* MARKÚS ÖRN ANTONSSON,
borgarfulltrúi, flytur ávarp.
★ SIGFINNUR SIGURÐSSON,
hagfræðingur, setur kynningarkvöldið
og stjórnar því.
KAFFIVEITINGAR.
STUÐNINGSFÓLK SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS VELKOMIÐ
■■■ ......... Wll I-
Q Biður afgreiðslu-
stúlkuna afsökunar
Velvakandi harmar, að bréf-
ritari skyldi ekki hafa farið
með rétt mál. Hins vegar lét
bréfritari í té nafn sitt, heimii-
isfang og símanúmer, og gat
Velvakandi því ekki ímyndað
sér annað, en á orðum hans
væri nokkuð byggjandi.
Afgreiðslustúlka Flugfélags
Islands, sem hér hefur orðið fyr
ir aðkasti óverðskuldað, biður
Velvakandi afsökunar og von-
ar að hún sjái sér fært að fyrir
gefa þessa yfirsjón.
0 Njóta óverðskuldaðs
heiðurs
Kæri Velvakandi.
Vinsamlegast bið ég þig að
birta eftirfarandi.
Laugardaginn 19. sept. birt-
ist í Morgunblaðinu afmælisvís
ur til Jóns Guðmundssonar
bónda á Reykjum í Mosfells-
sveit, en þann dag átti Jón
fimmtugsafmæli. Undirskrift
höfundar var frá gömlum skóla
bróður.
Þar sem höfundur tilnefnir
með slíkri undirskrift ákveðin
hóp manna sem til greina koma
með að vera höfundur vísna
þessara, vil ég mælast til þess
við skáldið að hann gangist
hreinlega við afkvæmi sinu og
birti nafn sitt í Morgunbl. sem
höfundur nefndra vísna.
Með því leiðréttist sá tví-
þætti misskilningur, að óverð-
skuldaðir hafa ekki heiðurinn
af skáldskapnum og einnig hitt
að þeir sem ekki vildu ort hafa
losna undan því ámæli.
@ Miðaldra skvísa
lyftist upp
Leppalúðamamma skrifar:
Reykjavík, 14. sept. 1970.
Velvakandi góður.
Ég hugsaði með sjálfri mér
í kvöld — Allt er mér fertugri
fært — á meðan ég horfði og
hlustaði á „Trúbrotabrotin" i
sjónvarpinu okkar marg-um-
deilda.
Mér þótti nefnilega svo dæma
laust gaman að komast að raun
IE510
um að þessir blessaðir leppalúð
ar eru ljómandi músikalskir
drengir, sem gera sína hluti
svo skínandi vel, að miðaldra
skvísa eins og ég, lyftist upp í
æðra veldi og finnst hún ung
á ný.
Það fannst hins vegar þessari
sömu miðaldra skvísu ekki í
gær, þegar hún horfði á Ragn-
ar Bjarnason & Co, í sama tæki.
Þeir mættu, að hennar dómi,
reyna að lífga upp á taktinn,
og verða ofurlítið nýtízkulegri.
Ein, sem á músikalskan bítil
fyrir son, en hefir ekki fyrr
en nú, viðurkennt, að tónlitar
hæfileikar og hármagn sé órjúf
anleg heild.
Beztu kveðjur, og þakkir fyr
ir margt skemmtilegt.
Leppalúðainamma".
0 Langvetningur,
það er ég
Þ.G. skrifar m.a. á þessaleið:
Til Velvakanda.
Þér að segja þá fór ég í
sveitina núna um helgina, upp
i Hálsasveit og hitti þar gaml-
an mann, mér nákunnugan. „Ég
var að líta í Kristnihald undir
Jökli“ segir hann „Langvetn-
ingur, það er ég: Langvetning-
ur — Hálssveitingur Það eru
jafnmörg atkvæði" útskýrði
hann.
„Já, hann var eitthvað að tala
um samband tungls og sólar í
því sem átti að vera um mig“,
hélt þessi slitni og þreytulegi
öldungur áfram, „En ég held
að hann ætti að tala sem minnst
um tunglið, hann Kiljan. Úr því
að hann vissi ekki einu sinni
að þverrandi tungl gengur ekki
undir síðari hluta nætur, í
þeirri bókinni sem hann ætlaði
að vanda sig mest með
(Gerplu), þá held ég að hann
ætti að halda sig sem mest frá
stjörnufræðinni", sagði Lang-
vetningur — Hálssveitingur
með dálítið nöprum raddblæ.
Ég hefði víst eitthvað viljað
fara að malda í móinn með það
að Reykvíkingar viti varla að
tunglið er til, hvað þá hvernig
það gengur, og þess vegna megi
auðveldlega gefá þeim inn eins
vitlausar hugmyndir og vera
vill — en Hálssveitingur gefur
ekki gaum að slíkum röksemd-
um. Það mun vera skoðun hans,
að enginn fái til lengdar um-
flúið það sem er, og þess vegna
þýði ekkert annað en að reyna
að afla sér réttrar og áreiðan-
legrar vitneskju og fara eftir'
henni.
Þ.G.
__ frystikisfur 270 —
Mí BP* S 400 og 500 lítra
Hannaðar eftir kröfum
norskra neytendasam-
taka.
Eldsnögg frysting, allt
niður í -5-34°. Engin
kristalmyndun í sellu-
vökvanum í matvörun-
um — því miklu lengra
geymsluþol.
KPS frystikisturnar eru
með læsanlegu loki,
Ijósi í loki, á tvöföldum
nylonhjólum, úr brenndu
og lökkuðu stáli að
utan og innan vandlega
ryðvarðar.
Matvælin eru örugglega geymd í KPS frystikistum.
Einar Farostveit & Co. h.f., Bergstaðastræti 10 A, sími: 16995.